Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1995, Page 4
4
ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1995
Fréttir______________________________________________________
Llfeyrissjóöur bænda og lánið til Emerald Air:
Meira en 100 milljónir
foknar út um gluggann
- sem eru tíu prósent af ráðstöfunarfé lífeyrissjóðsins
—
> 11 e c
Ein af mörgum flugvélum sem Emerald Air notaði við flugið til Belfast í vor og sumar. Innfellda myndin er af Kristni
Sigtryggssyni framkvæmdastjóra
Nú virðist ljóst að 100 miiljónir
króna, auk vaxta, sem Lífeyrissjóð-
ur bænda lagði til og lánaði til flug-
félagsins Emerald Air, séu glatað fé.
Lífeyrissjóðurinn lagði 11 milljónir
króna sem hlutafé í flugfélagið við
stofnun þess. Síðan lánaði Benedikt
Jónsson, fyrrum framkvæmdastjóri
sjóðsins, Emerald Air 90 milljónir
króna upp á sitt eindæmi. Hér var
um að ræða 10 prósent af ráðstöfn-
unarfé Lífeyrissjóðs bænda. Þegar
sjóðstjórnin komst að þessu var
Benedikt látinn segja af sér þegar í
stað. Einnig hefur RLR verið beðin
um að rannsaka málið. Þetta gerðist
í lok ágúst.
Ekkert greitt
Fyrsta afborgun af 90 milljóna
króna láninu átti að koma 20. sept-
ember síðastliðinn, sú næsta átti að
komna 15. október og þriðja og síð-
asta 15. nóvember. Ekki hefur króna
verið greidd af láninu enn né reynt
að semja um það á einn eða annan
hátt. Skuldin er nú, með vöxtum,
komin vel yfir 100 milljónir króna.
Formaður stjórnar lífeyrissjóðs-
ins, Guðríður Þorsteinsdóttir lög-
fræöingur, sagði í samtali við DV
fyrir nokkrum dögum að innheimtu-
aðgerðir væru hafnar gegn Emerald
Air á N-Irlandi. Hún sagðist ekki
eiga von á því að neinar eignir fynd-
ust og að hún óttaðist að féð væri
glatað. Hún sagði að ef eignir væru
ekki til staðar yrði gjaldþrotaleiðin
farin.
Kristinn Sigtryggsson, fram-
kvæmdastjóri Emerald Air, svaraði
að mestu út úr þegar DV ræddi þetta
mál við hann í síðustu viku. Hann
vildi alls ekki greina frá fjárhags-
stöðu félagsins. Hann sagði að vísu
að flugfélagið væri í afar viðkvæm-
um samningum og því vildi hann
ekki ræða stöðu félagsins né þessa 90
milljóna króna skuld.
Furðuleg lánveiting
Sem fyrr segir er mál Benedikts
Jónssonar komið til RLR til rann-
sóknar. Lán hans til Emerald Air, án
vitundar stjórnar lífeyrissjóðsins,
þykir hið furðulegasta og er flestum
mönnum óskiljanlegt.
Benedikt gaf þá skýringu á
ákvörðun sinni að með 90 milljóna
króna láninu hefði hann verið aö
verja þær 11 milljónir sem lifeyris-
sjóðurinn hafði lagt sem hlutafé í
flugfélagið. Auk þess hefði tilgangur-
Fréttaljós
Sigurdór Sigurdórsson
inn verið að ná ríflegri ávöxtun á fé
sjóðsins á skömmum tíma. Þá sagöist
hann hafa verið sannfærður um að
rekstur Emerald Air myndi ganga og
aö lánið yrði greitt. Hann sagði í yf-
irlýsingu að hann hefði ekki reynt að
leyna sjóðstjórnina því að hann hefði
lánað þetta fé.
Stjóm lífeyrissjóðsins tók yfirlýs-
ingu Benedikts ekki gilda og sendi
málið til RLR.
Allt á afturfótunum
Það var í apríl í vor sem tilkynnt
var um nýtt flugfélag, Emerald
European Airways, sem væri í eign
íslendinga og íra. Flugfélagið ætlaði
að halda uppi reglubundnu flugi
milli Keflavíkur og Belfast á N- ír-
landi. Félagið hafði þá verið með
flug milli Belfast og London frá því
í desember og ætlaði að tengja flug-
ið frá íslandi Lundúnaflugi sínu frá
Belfast. Fyrsta ferðin var farin á
skírdag.
Kristinn Sigtryggsson sagði þá í
samtali við tíðindamann DV að það
væru tveir aðaleigendur að flugfélag-
inu. Annars vegar Emerald Air og
hins vegar European Aviation Lim-
ited í Bretlandi. Það stæðu bæði ís-
lenskir og írskir aðilar að flugfélag-
inu.
„Við höfum verið að fá stöðugt
fleiri farþega og allar okkar vænting-
ar hafa í aðalatriðum staðist. Síðan
er hugmyndin að opna fleiri flugleið-
ir á næstunni...“ sagði Kristinn Sig-
tryggsson í samtali við DV þegar
fyrsta ferðin var farin.
Strax eftir fyrsta flugið gekk allt á
afturfótunum hjá Emerald Air. Fé-
lagið fékk aldrei þá flugvél sem það
taldi sig hafa samið um. Þess vegna
þurfti það að leysa málin á ýmsan
hátt, meðal annars að fá leigða Fok-
kervél hjá Flugleiðum hf. og rúss-
neska skrúfuvél. Flugið var aldrei á
tíma þótt oftast tækist að fljúga á
þeim sólarhring sem miðar fólks
giltu. Að sjáifsögðu gat þetta ekki
endað nema á einn veg. Flugfélagiö
hlaut að gefast upp.
Millileikur
Þegar Emerald Air gafst upp var
tilkynnt um stofnun nýs flugfélags,
Arctic Air Tours, sem yfirtæki starf-
semi Emerald Air. Gísli Örn Lárus-
son var framkvæmdastjóri og eig-
andi þess ásamt rútufyrirtækinu
Allrahanda. Gísli lýsti því yfir í byrj-
un að Arctic Air ætlaði að halda
uppi reglubundnu áætlunarflugi til
Gatwick tvisvar í viku. Emerald Air
ætlaði að snúa sér alfarið að rekstri
flugvéla sinna erlendis.
Þetta ævintýri stóð stutt. Arctic
Air tókst aldrei að koma neinni
reglu á flug sitt og gafst upp eftir
stuttan tíma.
Eftir stendur það eitt að Emerald
Air er hætt flugi frá íslandi. Það hef-
ur ekki greitt af 90 milljóna króna
láninu til Lífeyrissjóðs bænda, en
stendur í viðkvæmum samningum
ytra að sögn Kristins
Sigtryggssonar.
bérchéí
Heildverslunin
Bjarkey
S: 567 4151
Þingmenn eiga daglega í erjum á
Alþingi þar sem tekist er á um
ýmis mál sem þar eru til umfjöll-
unar hverju sinni. Stundum falla
stór orð og þingmenn verða jafnvel
að sæta því að vera áminntir af for-
seta þingsins þegar þeir gæta ekki
hófs í málflutningi. Nægir að nefna
þegar Ólafur Ragnar sagði að Dav-
íð hefði skítlegt eðli eða þegar pró-
fessor Ágúst sagði Þorstein vera
ómerking. Þetta þótti ekki góð lat-
ína. Hins vegar hreyfði forseti ekki
hamarinn þegar Össur lýst því yfir
í þingræðu á dögunum að honum
heyrðist sem háttvirtur þingmaður
Árni Johnsen væri að hrista höfuð-
ið. Árni tók þetta hins vegar
óstinnt upp og lái honum hver sem
vill. Eftir að Össur lauk ræðu sinni
gekk Árni aftan að honum, greip
þéttingsfast um annað eyra hans
og sneri upp á. En ráðherrann fyrr-
verandi er þéttur fyrir og kveink-
aði sér ekki einu sinni undan þess-
ari óvæntu atlögu. Árni sá þá að
ekki var nóg að gert og þegar Öss-
ur gekk niður stiga þinghússins í
fylgd Jóns Baldvins kom Ámi að-
vífandi og gaf honum fast spark í
afturendann, samkvæmt því sem
lesa má í flokksblaði kratanna. Það
var eins gott að Árni ruglaðist ekki
á bakhlutum þvi varlegt er að
treysta á geðprýði Vestfirðinga.
Blaðið bætir því við að nokkrir
þingmenn hefðu orðið vitni að
þessari leifturárás Árna og vildu
að Össur kærði atlöguna fyrir for-
seta þingsins. össur heföi svarað
þvi til að við öllu mætti búast af
manni sem hefði allt sitt líf veriö á
greindarstigi sauðkindarinnar.
Það sýnist ekki fara á milli mála
að Össur getur sjálfum sér um
kennt. Þingmaðurinn er kjaftfor
eins og alþjóð veit og grípur hvert
tækifæri til að skensa pólitíska
andstæðinga. Auðvitað er það fá-
heyrð ósvífni að halda því fram að
það megi heyra Árna Johnsen
hrista höfuðið og raunar óskiljan-
legt að forseti þingsins gerði enga
athugasemd við þessi ummæli. Það
heyrist aldrei stuna eða hósti í
Árna Johnsen á Alþingi eftir að
þingmenn hættu að greiða atkvæði
með því að segja já eða nei og fóru
að ýta á takka við atkvæðagreiðsl-
ur. Raunar hefur Árni náð slíkum
tökum á þeirri tækni að hann get-
ur greitt atkvæði í þinginu þótt
hann sé fjarstaddur, eins og dæmin
sanna. Árni er því fyrirmyndar-
þingmaður að flestu leyti. Hann er
ekki að tefja þingfundi með því að
blanda sér í umræður um þau mál
sem þar eru til meðferðar. Þegar
hann mætir til þings á annað borð
situr hann stilltur og prúður í sæti
lætur hann sig hverfa ósköp hljóð-
lega og lætur tölvukerfið sjá um at-
kvæði sitt. Á mannamótum utan
þings kemur Árni með gítarinn og
kyrjar Þykkvabæjarsönginn með
slíkum glæsibrag að einu sinni
kom það fyrir undir lok dansleiks
aö Flúðum að hann var klappaður
upp. Hann heilsar mönnum að sjó-
mannasið þegar það á við og við-
brögð hans við ummælum Össurar
sýna best að Árni hefur varðveitt
barnið í sjálfum sér.
Þaö verður að krefjast þess að
forseti Alþingis leggi betur við
hlustir þegar Össur og aðrir kjafta-
skar eru í ræðustól. Það er ómögu-
legt að sjá fyrir afleiðingar þess að
þingmenn taki almennt upp á því
að sparka hver í annan og snúa
upp á eyru pólitiskra andstæðinga.
Það eru ekki allir sem láta slíkt
yfir sig ganga án þess að borga í
sömu mynt. Nú á að ræða búvöru-
samninginn á þingi og þá verður
forseti hlusta vel. Það má búast við
að einhverjir þingmenn fari að
bera saman greindarstig sauðkind-
arinnar og þingmanna og það verð-
ur að gæta þess að ekki halli á
þingmenn í þeim samanburði.
Dagfari
VÖNpUp EIKFÖN0 GeRA
GæFUMUNl N
Sterku og góðu Berchet dúkkuvagnarnir eru komnir
í helstu leikfangaverslanir landsins
sinu og þegir. En hver getur áfellst
Árna fyrir að hrista höfuðið af og
til undir ræðum manna og þá ekki
síst þegar Össur lætur gamminn
geisa? Og þegar Eyjajarlinn fær
ekki lengrn- afborið bullið i þinginu
Dagfari
Eyrnafíkjur á Alþingi