Dagblaðið Vísir - DV - 28.11.1995, Blaðsíða 22
26
ÞRIÐJUDAGUR 28. NÓVEMBER 1995
Menning____________________________________________
Barnasálfræði - fyrsta bók sinnar tegundar á íslandi:
Hjálpar fólki að sjá
hvað er eðlilegur þroski
- segja höfundarnir, Guðfinna Eydal og Álfheiður Steinþórsdóttir, við DV
„Það hefur ekki verið til bók fyr-
ir foreldra og fólk sem vinnur með
börnum þar sem hægt er að slá upp
aldri hvers barns og við hverju má
búast í sambandi við t.d. sálrænan
og félagslegan þroska. Bókinni er
skipt upp eftir aldurshópunum 0-12
ára. Fólk getur flett henni upp og
velt þvi fyrir sér hvar barniö þeirra
er statt og hvaða þarflr það hefur.
Það hefur vantað bók í barnasál-
fræði og sérstakalega um börn á
skólaaldri," sagði Álfheiður Stein-
þórsdóttir sálfræðingur við DV en
hún hefur ásamt kollega sínum,
Guðfinnu Eydal, skrifað bókina
Bamasálfræði sem Mál og menning
gefur út.
Guðfinna sagði að í gegnum
margra ára starf þeirra Álfheiðar
með börnum og foreldrum þeirra
hefðu þær fundið fyrir mikilli þörf
fyrir bók af þessu tagi, sem er sú
fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Guðfinna og Álfheiður hafa saman
rekið Sálfræðistöðina frá árinu 1983
en starfað með börnum frá 1979.
„Bókin hjálpar fólki að sjá hvað
er eðlilegur þroski og hvernig
venjulega barnið þroskast. Margir
foreldrar hafa áhyggjur af börnun-
um sínum og velta því fyrir sér
hvort eitthvað sé að. Þegar fólk hef-
ur eðlilegan þroska að miða við get-
ur það betur áttað sig á hvenær
vandamál verður sálrænt, hvað er
óeðlilegt og hvað eðlilegt í þessum
efnum. Bókin hefur því mikið upp-
lýsinga- og fræðslugildi," sagði Guð-
finna.
Auk þess að fjalla um eðlilegan
þroska taka þær á sálrænum vanda-
málum barna, s.s. einelti, ofbeldi og
ýmsum tímamótum í lífi barna. Má
þar nefna skilnaði foreldra, aðlögun
að stjúpfjölskyldu, búferlaflutninga,
slys, sjúkdóma og ástvinamissi.
Þá taka þær fyrir raunveruleika
íslenskra bama og hvernig hann er
frábrugðinn aðstæðum erlendis. Því
var nærtækast að spyrja hvernig
raunveruleiki íslenskra barna væri.
íslenski raunveru-
leikinn sérstakur
„Hinn íslenski raunveruleiki er
sérstakur um margt og hefur tekið
Sálfræðingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal hafa skrifað bókina Barnasálfræði -
unglingsára, sem Mál og menning gefur út. Hér glugga þær í bókina, Álfheiður til vinstri.
stööugum breytingum. Hér er rekin
sérstök húsnæðispólitik, það er mik-
il vinna á fólki og lítill tími gefinn
fyrir fjölskylduna. Hér hefur allt
gerst á miklum hraða og möguleik-
ar takmarkaðir á vistun fyrir börn.
Álag hefur verið mikið, sérstaklega
á smábarnafjölskyldur, að koma
öllu þessu heim og saman,“ sagði
Guðfinna.
„Það er algengt að börn skipti oft
um pössun og einnig að þau þurfi að
klára sig ein, án pössunar. Vegna
hraðans í þjóðfélaginu eru foreldrar
oft ráðvilltir í því hvernig best er að
nýta þann tíma sem þeir hafa með
börnunum til að uppeldið verði sem
ákjósanlegast. Allir foreldrar vilja
börnum sínum vel og að þau verði
hamingjusöm," sagði Álfheiöur.
Agavandamál algeng
- Er eitthvert eitt sálrænt vanda-
mál algengara hjá börnum en ann-
að?
„Almennt séð má segja að ýmiss
konar agavandamál séu algeng.
Börn læra þá ekki og virðast ekki fá
nógu mikla stjórnun í að aga sína
hegðun. í bókinni fjöllum við bæði
um jákvæðan og neikvæðan aga,“
sagði Guðfinna.
Álfheiður sagði að algengt væri
að börn ættu erfitt með að hlusta og
erfitt geti verið að róa þau niður.
Ráðleggingar í þessum efnum mætti
frá fæðingu til
DV-mynd ÞÖK
finna í bókinni.
Guðfinna og Álfheiður tileinka
bókina börnum sínum en samanlagt
eiga þær fimm börn, sem nú eru
flest uppkomin.
„Það rifjaðist margt skemmtilegt
upp þegar bókin var skrifuð um
uppeldi okkar barna og við notum
líka dæmi frá þeim,“ sagði Guð-
finna.
Þær vonuðust til að bókin ætti
eftir að nýtast foreldrum og forráða-
mönnum barna vel. Uppeldi barna
sé afar jákvætt og skemmtilegt,
nokkuð sem foreldrar ættu að njóta
og huga vel að áður en börnin kæ-
must á unglings- og fullorðinsár.
-bjb
Ragnar Th. og Ari Trausti meö bók um íslenska jökla:
Ævilangur dómur án reynslulausnar
- segir Ari Trausti um „jöklafiknina“
„Þegar við Ragnar byrjuðum að um við á orði að safna saman falleg-
vinna saman i kringum jökla höfð- um myndum af íslenskum jöklum.
Ragnar Th. Sigurðsson og Ari Trausti Guðmundsson með bók sína, Jökul-
heimar - íslenskir jöklar, sem Ormstunga gefur út. DV-mynd BG
Ragnar á gífurlegt safn af myndum,
hátt í 70 þúsund stykki. Fyrir einu
og hálfu ári vorum við orðnir
ákveðnir í að gefa út bók um ís-
lenska jökla. Það er reyndar eldgöm-
ul hugmynd hjá mér. Á sínum tíma
samdi ég bók, íslandselda, um eld-
virkni á íslandi fyrir Vöku-Helgafell
og það stóð alltaf til að koma með Is-
landsísa sem átti að vera úttekt á ís-
lenskum jöklum. Það varð aldrei
neitt úr því en þetta er að einhverju
leyti þróun út frá þeirri hugmynd,“
sagði Ari Trausti Guðmundsson við
DV en hjá Ormstungu er komin út
bókin Jökulheimar - íslenskir jökl-
ar. Ari skrifaði texta bókarinnar og
ljósmyndir eru eftir Ragnar Th. Sig-
urðsson. Bókin kemur einnig út á
ensku og þýsku.
Bókina tileinka þeir brautryðj-
endum í jöklarannsóknum á íslandi
og þeim er stofnuðu Jöklarann-
sóknafélag íslands árið 1950.
í bókinni er umfjöllun og myndir
af öllum helstu jöklum landsins.
Undanskildir eru nokkrir litlir jökl-
ar og fannir á Norðurlandi, Áust-
fjörðum og Vestfjörðum. Sömuleiðis
eru ekki með nokkrir jöklar austan
við Vatnajökul, s.s. eins og Hofsjök-
ull eystri og Þrándarjökull.
„Við tökum hvern jökul fyrir og
reynum að lýsa honum í stuttu máli
með ljósmyndum. Bókin er byggð
þannig upp að myndatextarnir eru
viðbót við megintextann. Því er les-
málið meira en virðist við fyrstu
sýn. Þetta réðst af því að við ætluð-
um að hafa bókina litla og ódýra og
ég held að það hafi tekist bærilega.
Þetta er íslenskt handverk frá upp-
hafi til enda og viö erum mjög sátt-
ir,“ sagði Ari.
- í formála bókarinnar segir að
þið séuð nokkurs konar fangar ís-
lenskra jökla. Eruð þið lausir úr
prísundinni?
„Nei, nei, það má segja að þetta sé
ævilangur dómur án reynslulausn-
ar. Það eru kannski ekki margir
sem finna þetta svona en fyrir mér
eru jöklaferðir langskemmtilegustu
ferðir sem maður fer í um hálendi
íslands,"
í tengslum við útkomu bókarinn-
ar hafa þeir félagar verið með sýn-
ingu í Gerðarsafni í Kópavogi. Auk
mynda úr bókinni eru þar m.a. ljós-
myndir frá ferð þeirra á Norðurpól-
inn fyrr á þessu ári. Sýningunni hef-
ur verið feiknavel tekið og ákveðið
hefur verið að framlengja hana til
jóla. -bjb
DV
Hjálmur Sighvatsson og Sig-
urður Bragason.
Sigurður Bragason:
Boðið að
syngja í Cor
Coran
í Washington
Sigurði Bragasyni baríton-
söngvara hefur verið boðið að
syngja í Cor Coran í Was-
hington, einu virtasta tónlistar-
og listahúsi Bandaríkjanna, nk.
mánudagskvöld. Sigurður mun
syngja þar við undirleik Hjálms
Sighvatssonar píanóleikara, sem
nú starfar í Þýskalandi.
Sigurður sagði í samtali við
DV að þetta væri einhver mesti
heiður sem honum hefði hlotn-
ast á ferlinum, sambærilegt við
það þegar hann söng í Wigmore
Hall í London fyrir tveimur
árum. Margrét Jónsdóttir Ward
kom Sigurði á framfæri við for-
ráðamenn Cor Coran með því að
senda þeim geislaplötu sem kom
út með honum fyrir þremur
árum. Sigurður var valinn úr
hópi fjölda listamanna sem
sækja það hart að komast að hjá
Cor Coran. Tónleikar þeirra
Hjálms verða hluti af tónleika-
röð vetrarins • hjá Cor Coran.
Þeir munu flytja lög eftir Sig-
valda Kaldalóns, Bellini, Verdi,
Chopin, Liszt og Rakhmanínov.
Af Sigurði er það annars að
segja að hann er nýkominn til
landsins ásamt Bjarna Jónatans-
syni píanóleikara eftir vel
heppnaða tónleika í Buenos
Aires í Argentínu í boði varafor-
seta Alþjóða tónlistarráðsins.
Ný geislaplata
Þá er að koma út hjá Japis ný
geislaplata með Sigurði sem
nefnist Ljóðakvöld. Þar syngur
Sigm-ður lög eftir pianósnilling-
ana Chopin, Liszt, Rakhman-
ínov, Ravel og Rubinstein við
undirleik Vovka Ashkenazys pí-
anóleikara, sonar Þórunnar og
Vladimirs Ashkenazys. Þess má
geta að Kaupmannahafnarborg
hefúr boðið Sigurði og Vovka að
halda þrenna tónleika næsta vor
í tilefni þess að borgin verður
menningarborg Evrópu 1996.
Heimi Guðríðar
vel tekið
í Saurbæ
Leikritið Heimur Guðríðar
eftir Steinunni Jóhannesdóttur
var flutt í Hallgrímskirkju í
Saurbæ á Hvalfjarðarströnd sl.
sunnudagskvöld. Kirkjan var
troðfull og komust færri að en
vildu. Af þeim sökum hefur ver-
ið ákveðið að halda aukasýn-
ingu í kirkjunni 11. desember
nk.
Leikritið fjallar einmitt um
síðustu heimsókn Guðríðar Sím-
onardóttur í kirkju Hallgríms
Péturssonar í Saurbæ. Steinunn
er jafnframt leikstjóri en leikar-
ar eru Helga Bachmann, Helga
Jónsdóttir, Þröstur Leó Gunn-
arsson og Guðjón Davíð Karls-
son. Tónlist er eftir Hörð Áskels-
son og leikmynd og búningar eft-
ir Elínu Eddu Árnadóttur. Þess
má geta að leikritið hefur verið
gefið út á bók. -bjb