Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995
Fréttir
Ragnheiður Erla Hauksdóttir sem missti mann sinn í snjóflóðinu á Flateyri:
Húsin ekki rýmd í sam-
ræmi viö þekkta hættu
- koma verður í veg fyrir hörmungar þar sem annars staðar á flóðasvæðum
„Ég er búin að ala mín böm upp.
En ég er mjög ósátt við skipulag
snjóflóðavarnanna. Mjög háttsettur
maður sagði mér nýlega að það
hefði verið bannað að byggja á okk-
ar svæði eftir 1985. Hvar eru þau
gögn, hvers vegna komu þau ekki
fram? Hvers vegna voru húsin ekki
rýmd í samræmi við það bann þeg-
ar snjóflóðahætta vofði yfir? Húsin
voru rýmd eftir Súðavíkurflóðið en
síðan ekki söguna meir. Það var
bannað að byggja á svæðinu í ára-
tug en samt var það ekki rautt
„Ég vil hafna því sem meirihluti
launanefndar samþykkti 30. nóv-
ember. Ég lít á það sem ólöglegan
gjörning. Ég tel að meirihluti launa-
nefndarinnar hafl ekki haft neinn
rétt til að ganga frá þessu máli
svona. Það er mín skoðun að láta
eigi uppsögn kjarasamninganna
gilda og taka slaginn,“ sagði Halldór
Björnsson, varaformaður Verka-
mannafélagsins Dagsbrúnar, í sam-
tali við DV í gær.
Halldór var spurður hvað hann
legði til að gert yrði í stöðunni ef
Verkalýðsfélagið Baldur tapar kæru
Vinnuveitendasambandsins til fé-
lagsdóms en dæmt verður í málinu
í næstu viku.?
„Baldur er nú ekki búinn að tapa
málinu enn, dómurinn er ekki fall-
inn. Ef dæmt verður í Baldursmál-
inu og falli dómur Baldri í óhag
þýðir það ekki að félögin 22, sem eft-
ir eru með lausa samninga, séu þar
með búin að tapa sínum málum. Ef
Vinnuveitendasambandið ætlar að
halda þessu máli til streitu verður
það að kæra uppsögn kjarasamn-
Kind kom heim að bænum Þorp-
um í Kirkjubólshreppi hér á Strönd-
um 25. nóvember og bar þess aug-
ljós merki að hafa komið úr snjó.
Harðir snjókögglar voru á baki
hennar og mölum þótt þá væri veð-
urblíða. Þá voru liönar fimm vikur
frá októberveðrinu ógurlega.
svæði. Ég hélt því alltaf fram að við
hefðum verið á rauðu svæði og var
alltaf taugastrekkt yfir þessu,“ segir
Ragnheiður Erla Hauksdóttir frá
Flateyri sem missti eiginmann sinn,
Þórð Júlíusson, og hund þeirra,
Týru, í snjóflóðinu á Flateyri.
Þau áttu heima að Hjallavegi 6 en
Ragnheiður Erla var í Reykjavík
þegar flóðið féll, vegna eindreginna
óska dóttur sinnar. Hún segir að í
raun hefði hún verið sátt við að fara
með manni sínum sem hún hefur
syrgt. Hún segist ekki vera í vafa
inga hjá hverju félagi fyrir sig.
Menn mega ekki gleyma því að fé-
lögin geta verið með mismunandi
vamir í sínum málurn," sagði Hall-
dór Bjömsson.
Dagsbrún hélt trúunaðarráðsfund
í gær og hefur boðað annan trúnað-
arráðsfund í fyrramálið og að öllum
likindum verður haldinn félags-
fundur í Dagsbrún á morgun.
Önnur verkalýðsfélög hafa ýmist
boðað trúnaðarráösfundi eða félags-
fundi í dag og á morgun. Þar veröa
endanlegar ákvaröanir teknar um
framhald þessarar kjaradeilu.
Það liggur fyrir að þeir Sigurður
T. Sigurðsson, formaður Hlífar í
Hafnarfirði, Kristján Gunnarsson,
formaður Verkalýðs- og sjómannafé-
lags Keflavíkur, Bjöm Snæbjörns-
son, formaður Einingar, og Aðal-
steinn Baldursson, formaður Verka-
lýðsfélags Húsavíkur, hafa allir lýst
því yflr að þeir vilji hafna því sem
meirihluti launanefndar samþykkti,
láta uppsögn samninganna gilda og
taka slaginn í þessu máli við Vinnu-
Nokkmm dögum fyrr höfðu kom-
ið heim kindur að sama bæ sem líkt
var ástatt um. Við eftirgrennslan
hefur ból þessara kinda fundist og
var þar sem heitir Hvammur í
Hvalsárdal. Þykir með ólíkindum
að skepnurnar skyldu lifa þar allan
þennan tíma og komast af.Sýnir
þetta vel hve harðger skepna ís-
lenska sauðkindin er.
um að hættan sé víða um land ekki
minni en á Flateyri.
„Atburðirnir á Flateyri voru viti
til varnaðar. Ég óttast að snjóflóð
falli næst á Siglufjörð. Ástandið þar
er alveg eins og var á Flateyri fyrir
snjóflóðið - þar hafa hús verið byggð
á því svæði þar sem stórt flóð féll
fyrr á öldinni. Ég vil því að það
verði komið í veg fyrir að fólk farist
á Sigluflrði eða á hættusvæðum á
Austfjörðum. Við erum allt of fá til
að missa fleira fólk - ríkið verður al-
gjörlega að endurskipuleggja snjó-
Atvinnulausum í Reykjavík fjölg-
aði um 116 í nóvember. Hjá Vinnu-
miðlun Reykjavikurborgar voru í
lok mánaðarins 3.180 manns á at-
vinnuleysisskrá, þar af 1.547 karlar
og 1.633 konur. í byrjun nóvember
voru hins vegar 3.064 á atvinnuleys-
isskrá, 1.408 karlar og 1.656 konur.
í lok nóvember í fyrra voru alls
2.680 manns á atvinnuleysisskrá i
Reykjavík, þar af 1.361 karl og 1.319
konur. Milli ára hefur atvinnulaus-
um því fjölgað um 500 manns. Mið-
flóðavarnir," sagði Ragnheiður Erla.
„Það sem. ég vil að nú verði gert
er að Almannavarnir ríkisins end-
urskipuleggi algjörlega sína starf-
semi - þær áttu að hafa vitneskju
um þetta og nú er þeirra hlutverk
að koma í veg fyrir hörmungar ann-
ars staðar á landinu. Það á að láta
rýma öll þau hús á svæðum þar sem
snjóflóð hafa einhvern tíma fallið,"
sagði Ragnheiður Erla. Hún býr nú
í Reykjavík, í íbúð sem þau hjónin
höfðu þegar fest kaup á áður en eig-
inmaður hennar fórst. -Ótt
að við reynslu fyrri ára er búist við
að atvinnuleysið haldi áfram að
aukast fram í febrúar.
Að sögn Oddrúnar Kristjánsdótt-
ur, framkvæmdastjóra Vinnumiðl-
unar Reykjavíkurborgar, er engin
ein skýring á auknu atvinnuleysi
núna. Ein skýringin sé þó sú að i
sumar hafi verið staðið með öðrum
hætti en áður að átaksverkefnum í
borginni. Færri hafi fengið vinnu
við verkefnin sem aftur hafi valdiö
auknu atvinnuleysi. -kaa
Ragnheiður Erla Hauksdóttir frá
Flateyri sem missti eiginmann sinn,
Þórð Júlíusson. Hún segir að í raun
hefði hún verið sátt við að fara með
manni sínum. DV-mynd GVA
Stuttar fréttir
Á móti búvörusamningi
Búvörusamningurinn var
staðfestur á Alþingi í gær. Einn
stjómarliði, Pétur Blöndal,
greiddi atkvæði á móti samning-
inum.
Lent á vatni
Málarekstur er hafinn vegna
þess að landflugvélum hefur ver-
ið lent á vatni með hjólum. Flug-
maður, sem hefur verið kærður
vegna þessa, segir þetta hættu-
laust en Loftferðaeftirlitið telur
þetta vitavert kæruleysi. Sjón-
varpið greindi frá.
Heimiid fyrir útlendinga
Útlendingar geta eignast aUt
að fjórðungshlut í sjávarútvegs-
fyrirtækjum á íslandi samkvæmt
nýju stjórnarfrumvarpi. Stöð tvö
greindi frá þessu.
Hærri rekstrarkostnaöur
Rekstrarkostnaður fjármála-
ráðuneytisins hefur hækkað um
liðlega 7% að raungildi frá árinu
1988. Þar á bæ fer tíunda hver
króna í vexti. Viðskiptablaðið
greindi frá þessu.
Dýr jólafasta
Jólahlaðborð njóta mikilla vin-
sælda um þessar mundir. Skv.
Viðskiptablaðinu má áætla að í
Reykjavík eyði fólk samtals um
250 milljónum króna í slíka nær-
ingu á jólafóstunni.
íslendingar til Bosníu?
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra vill að íslendingar taki
þátt í friðarstarfi í Bosníu. Stöð
tvö greindi frá þessu,
Völd stjórnar skert
Völd stjórnar Brunamálastofn-
unar verða skert samkvæmt
frumvarpi sem félagsmálaráð-
herra kynnti í ríkisstjóm í gær.
Sjónvarpið greindi frá.
Öðruvísi forseti
Þorsteinn Pálsson dómsmála-
ráðherra telur koma til greina að
sameina embætti forseta íslands
embætti forseta Alþingis eða for-
sætisráðherra. RÚV greindi frá.
-kaa
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringa í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já _lj
Nel 2j
r ö d d
F0LKSINS
904-1600
Búa jólasveinarnir
í Hveragerði?
Alllr 1 statrana kerflnu meS tdnvalssima gota nýtt sét þessa þjónustu.
Mikil fundahöld fram undan um kjaramálin:
Ég vil hafna því
sem launanefndin
samþykkti
- segir Halldór Björnsson, varaformaður Dagsbrúnar
Slökkviliöið kom til hjálpar konu nokkurri sem læst hafði sig úti í Þingholt-
unum í gær. íbúð hennar er á annarri hæð og var ekki annað til ráða en
skríða þar inn um opinn glugga og opna fyrir húsráðanda. Tók einn hinna
yngri í slökkviliðinu að sér að smjúga inn á ullarsokkunum því að sjálfsögðu
dró hann af sér stígvélin. DV-mynd S
Vinnumarkaðurinn í Reykjavík:
Meira atvinnuleysi en í fyrra
veitendasamabandiö. -S.dor
íslenska sauðkindin ótrúlega harðger:
Enn að koma til byggða úr
októberveðrinu ógurlega
Guðfinnur Finnbogason, DV, Hólmavík: