Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Page 5
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995
5
Fréttir
Yfirstjórn Akureyrarbæjar:
Laun æðstu stjórnenda
hækka um níu prósent
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Laun bæjarfulltrúa, sem eru
miðuð við ákveðna prósentu af
launum alþingismanna, hækkuðu
ekki í haust þegar þingfararkaupið
hækkaði en það er gert ráð fyrif
hækkun í fjárhagsáætlun fyrir
næsta ár,“ segir Valgarður Bald-
vinsson, bæjarritari á Akureyri, um
launamál æðstu stjórnenda Akur-
eyrarbæjar.
Þingfararkaup hækkaði um 9% I
haust og munu laun, sem greidd eru
æðstu stjórnendum Akureyrarbæj-
ar; bæjarstjóra, bæjarfulltrúa, bæj-
arráðsmanna og nefndarmanna,
hækka sem því nemur samkvæmt
nýrri fjárhagsáætlun sem nú er til
afgreiðslu fyrir bæjarstjórn.
Laun bæjarráðs- og bæjarstjórn-
armanna, sem eru 20% af þingfarar-
kaupi, hækka samkvæmt þessu úr
35.800 krónum í um 39 þúsund krón-
ur en forseti bæjarstjórnar og for-
maður bæjarráðs fá hærri greiðsl-
ur. Bæjarfulltrúar fá ekki greitt sér-
staklega fyrir fundarsetu en það fá
þeir þeirra sem sitja einnig í bæjar-
ráði og mun sú upphæð nema um 10
þúsund krónum fyrir hvern fund
eftir hækkun. Varamenn, sem kall-
Dalvík:
Gjaldþrot í
fiskvinnslunni
Gylfi Kristjánsson, DV, Aknreyri:
Fiskverkun Jóhannesar og Helga
á Dalvík hefur hætt starfsemi og
fyrirtækið verið tekið til gjaldþrota-
skipta. Þar störfuðu um 25 manns
og eru flestir þeirra nú á atvinnu-
leysisskrá.
Heildarskuldir fyrirtækisins
munu nema um 150 milljónum
króna en bókfært verð eigna og
tækja er ekki nema um 60 milljónir.
Sparisjóður Svarfdæla er stærsti
kröfuhafinn í þrotabúið en Friðrik
Friðriksson sparisjóðsstjóri vildi
ekki upplýsa um hvaða upphæð
væri þar að ræða.
Rögnvaldur Skíði Friðbjörnsson,
bæjarstjóri á Dalvik, sagði það
vissulega slæmt fyrir atvinnulífið
að svona hefði farið en vonir stæðu
til að fyrirtækið kæmist í gang að
nýju undir stjórn nýrra eigenda
áður en langt um liði.
Skagstrendingur:
Rækjutogari frá
Grænlandi
- annar í athugun
„Það er rétt að við erum búnir að
kaupa rækjutogara frá Grænlandi
sem heitir Betty. Skipið er 50 metra
langt, 18 ára gamalt en með 10 ára
gamalli vél og er í mjög góðu
standi," sagði Óskar Þórðarson,
framkvæmdastjóri Skagstrendings,
í samtali við DV.
Hann sagði að þessi skip væru á
mjög góðu verði í Grænlandi um
þessar mundir og ef annar togari
byðist á góðu verði væri Skag-
strendingur að íhuga kaup. Það
væri þó ekki endilega ákveðið.
Betty er nú á Akureyri til skoðun-
ar og yflrferðar. -S.dór
Einar, ekki Árni
Bæjarstjórinn í Hveragerði heitir
Einar Mathiesen, ekki Árni
Mathiesen eins og sagt var í blaðinu
í gær. Beðist er velvirðingar á þess-
um nafnaruglingi. -GHS
aðir eru til funda í bæjarstjórn, fá Þeir sem sitja í nefndum fyrir Ak- krónur fyrir hvern fund og hækkar nefnda hafa hærri greiðslur en aðr-
sömu laun fyrir hvern fund. ureyrarbæ hafa fengið 4 þúsund sú greiðsla í 4.290 krónur. Formenn ir nefndarmenn.
3 dyra HYUNDAI ACCENT vw GOLF TOYOTA COROLLA NISSAN ALMERA
Rúmtak vélar 1341 cc 1391 cc 1331 cc 1400 cc
Hestöfl 84 60 75 87
Lengd/Breidd cm 410/162 402/169 409/168 412/169
Farangursrými lítr. 380 370 309 340
Utvarp + segulb. Inr^glið, InnifaliS Ekki innifaliS Ekki innifaliS
Þyngd . 960 1075 1050 1035
VerS 1.019.000 :: 1.197.000 1.134.000 1.248.000
HYunDni
...til framtíðar
ve r ð i
þegar allt annað stenst samanburð
HYUNDAIACCENT
84 hestöfl með beinni innspýtingu,
vökvastýri, vönduðum hljómflutningstækjum,
samlitum stuðurum
og lituðu gleri.
ÁRMÚLA 13 • SÍMI: 568 1200
BEINN SÍMI: 553 1236
Aukabúnaður á mynd,
álfelgur og víndskeið.