Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995
Viðskipti
Landsbréf
hafa stofnað
nýjan sjóð
Landsbréf hafa stofnað pen-
ingamarkaðssjóö undir nafninu
Peningabréf og er hann fyrsti og
eini sinnar tegundar á íslandi.
Peningabréf eru laus til útborg-
unar án kostnaðar þegar tíu dag-
ar eru liðnir frá kaupum á þeim
og er hægt að leysa bréfin út hve-
nær sem er eftir þann tíma.
Ávöxtun Peningabréfa hefur ver-
ið sem svarar 5,88 prósenta nafn-
ávöxtun á ári.
Peningamarkaðssjóður Lands-
bréfa er skammtímasjóður og
fjárfestir einungis í traustustu
tegundum verðbréfa á markaðin-
um, einkum skammtímabréfum
ríkissjóðs og bankastofnana, eins
og segir í fréttatilkynningu frá
Landsbréfum. Meðalbinditimi
eigna er stuttur og er sjóðurinn
því ekki mjög næmur fyrir vaxta-
breytingum.
Fallið frá
umsókn um
skrásetningu
Breska verslunarkeðjan „Ice-
land Frozen Foods“ hefur fallið
frá umsókn sinni um skrásetn-
ingu á vörumerkinu „Iceland" í
Bandaríkjunum vegna mótmæla
íslenskra aðila.
Það var skrifstofa Útflutnings-
ráðs í New York í samvinnu við
íslenska viðskiptaaðila i Banda-
ríkjunum sem sá um að senda
inn mótmæli vegna þessa máls,
segir i fréttatilkynningu frá Út-
flutningsráði.
Vörumerkið „Iceland Frozen
Foods“ er þekkt vörumerki í
Bretlandi.
Myndband
um tölvur
Hagavík hf. hefur gefið út
myndband sem ber heitið „Að
læra á tölvu“. Myndbandið, sem
er 70 minútur að lengd, er ætlað
þeim sem hafa lítið komið nálægt
tölvum en vilja læra grundvallar-
atriðin.
Á myndbandinu er fjallað um-
notkun Windows stýrikerfisins,
auk þess sem notkun og tilgang-
ur algengustu hugbúnaðarkerf-
anna er útskýrður. -GHS
Velta hjá ísfélaginu í Vestmannaeyjum minnkar um tæpar 150 milljónir:
Minni loðnuveiði og
óhagstætt í Japan
Ómar Garðarsson, DV| Vestmannaeyjum:
Aðalfundur ísfélagsins var hald-
inn á laugardaginn og kom þar fram
að heildarvelta félagsins var 2.027
milljónir á síðasta rekstrarári á
móti 2.161 milljón króna árið á und-
an. Hagnaður var 40 milljónir króna
á síðasta rekstrarári en var 194
milljónir á árinu á undan. Ástæð-
urnar eru einkum minni loðnu-
veiði, óhagstæðari aðstæður á Jap-
ansmarkaði en árið á undan, sjó-
mannaverkfall og léleg útkoma í
bolfiskveiðum og bolfiskvinnslu.
Sigurður Einarsson, forstjóri ísfé-
lagsins, segir að leitað hafi verið
margvíslegra leiða til hagræðingar í
rekstri til að draga úr kostnaði og
auka tekjur til að bæta hag félags-
ins. „Það er mjög mikilvægt að það
takist að reka félagið með hagnaði
til þess að uppbygging þess geti auk-
ist sem mest til hagsbóta fyrir at-
vinnulíf í Vestmannaeyjum," sagði
Sigurður.
Félagið fjárfesti á seinasta ári fyr-
ir 323 milljónir og þar af aðeins 10
milljónir í skipum. Fjárfest var tölu-
vert mikið í frystihúsi félagsins,
komið upp nýju frystikerfi og jafn-
framt var keypt ný karfaflökunarvél
og lausfrystir ásamt tilheyrandi
flokkunarbúnaði. „Jafnframt voru
gerðar umfangsmiklar breytingar í
fiskimjölsverksmiðju félagsins,
keyptur nýr sjóðari, byggt yfir þak á
þróm og keypt ný mjölskilvinda
ásamt ýmsum minni fjárfestingum.
Auk þess voru keyptar veiðiheim-
ildir, aðallega í loðnu,“ sagði Sig-
urður.
Starfsmenn ísfélagsins voru um
300 og heildarlaunagreiðslur án
launatengdra gjalda voru 585 millj-
ónir.
Á aðalfundinum var stjórnin end-
urkjörin en hana skipa Baldur Guð-
laugsson, Gunnlaugur Sævar Gunn-
laugsson og Þórarinn Sigurðsson.
Til vara eru Auður Einarsdóttir,
Ágúst Bergsson og Eyjólfur Mart-
insson.
Hringingum í bílaeigendur er að Ijúka og hafa 11 þúsund manns gengið í FIB. Verið er að senda út félagsskírteini og
umboð til að fara með tryggingamálin. DV-mynd BG
Tryggingaátak FÍB:
Tilboð opnuð í janúar
Ráðgjafarfyrirtækið Ráð hf. hefur
tekið að sér að undirbúa og annast
útboð bílatrygginga fyrir félags-
menn Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda, FÍB. Runólfur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri FÍB, segir að útboðið
verði kynnt innlendum og erlend-
um tryggingafélögum um miðjan
desember og tilboð verði opnuð um
miðjan janúar.
Hringingum í bílaeigendur um
allt land er að ljúka um þessar
mundir. og hafa nú hátt í 11 þúsund
manns gengið í FÍB. Félagsmenn
eru því um 17 þúsund. Verið er að
senda nýjum félagsmönnum félags-
skírteini og umboð til FÍB um að
fara með tryggingamálin.
Runólfur segir að 90 prósent
nýrra félagsmanna séu tjónalaust
fólk.
Viðskipti á erlendum mörkuðum:
Jólastemning komin í álmarkaðinn
Sæmileg viðskipti áttu sér stað á
hlutabréfamarkaði vikuna 24. nóv-
ember til 1. desember. Þá áttu sér
stað viðskipti fyrir yfir 99 milljónir
króna og námu því heildarviðskipt-
in á árinu tæpum þremur milljörð-
um króna.
Á tímabilinu 24.11.-1.12. urðu
mest viðskipti með hlutabréf í SR-
Mjöli eða fyrir 20,3 milljónir króna.
Viðskipti með hlutabréf í Islenska
Hlutabréfasjóðnum námu 8,4 millj-
ónum. Viðskipti með hlutabréf í
Eimskipafélaginu, Flugleiðum og
Hlutabréfasjóðnum hf. áttu sér stað
fyrir yfir sjö milljónir króna á þessu
tímabili.
Á álmarkaði er greinilegt að jólin
eru í nánd og lítið fjör á uppboðs-
mörkuðum í samræmi við árstím-
ann. Margir álmarkaðir í útlöndum
eru lokaðir yfir jólin og viðskiptin
því heldur í dræmari kantinum. Al-
verð var þó 1.652 dollarar tonnið í
fyrradag.
Af gámasölu í Bretlandi er það
helst að frétta að 136,78 krónur feng-
ust fyrir kílóið af þorski dagana
27.-29. nóvember. Þá seldi Viðey RE
afla sinn í Bremerhaven og fékk
117,40 krónur á kílóið fyrir aflann.
-GHS
DV
Verðtryggð
lán til
15-25 ára
í Keflavík
Ægir Már Kárason, DV, Suðurnesjum:
Sparisjóðurinn í Keflavík mun
bjóða viðskiptavinum sínum upp
á nýja tegund útlána, verðtryggð
lán á fóstum vöxtum meö láns-
tíma á bilinu 15-25 ár.
Þessi nýi þáttur í starfsemi
sparisjóösins miðar að því að ein-
falda fjármögnun og lækka
greiðslubyrði vegna íbúðar-
kaupa, endurbóta og endurfjár-
mögnunar skammtímalána.
í húsakynnum sparisjóðsins er
að finna þær upplýsingar að
nokkur verðbréfafyrirtæki hafi
boðið upp á lán af þessu tagi um
nokkurt skeið en þau hafi ekki
verið veitt utan Reykjavíkur-
svæðisins.
Flugleiðir
skoða
Fokkera
Danska flugfélagið Maersk Air
hefur óskað eftir því að tækni-
svið Flugleiða taki að sér stór-
skoðanir á fjórum Fokker 50
skrúfuþotum. Þegar hefur verið
gengið frá samkomulagi um
fyrstu vélina og verður hún tekin
inn í viðhaldsskýli í vikulokin.
Gengið verður frá samkomulagi
um hinar vélarnar á næstunni.
Viðhaldsstöð Flugleiða á Kefla-
víkurflugvelli hefur náð veruleg-
um árangri við öflun verkefna á
alþjóðamarkaði upp á síðkastið,
t.d. voru gerðar stórskoðanir á
þremur Fokker 50 skrúfuþotum
SAS Commuter í sumar.
Skoðun fjögurra Fokker 50
véla fyrir Maersk Air yrði
stærsta viðhalds- og skoðunar-
verkefni sem Flugleiðir hafa tek-
ið að sér til þessa fyrir utanaða-
komandi aðila. Hver skoðun tek-
ur um 2.800 vinnustundir.
Bros við
orðrómi
„Þetta er ekki rétt. Menn hafa
farið í gegnum ákveðnar mein-
ingar en það er ekkert stríð í
gangi. Ég hef heyrt þetta á Akur-
eyri og bara brosað," segir Ró-
bert Guðfinnsson, forstjóri Þor-
móðs ramma á Siglufirði, um
þann orðróm að ÚA kaupi öll
hlutabréf í Skagstrendingi til að
bola Róberti út úr stjórn Skag-
strendings.
Allianz opnar
útibú í Reykjavík
Tryggingafélagið Allianz, sem
hóf sölu líftrygginga hér á landi
fyrir ári, hefur nú ákveðið að
opna formlegt útibú að Lang-
holtsvegi 115 í Reykjavík.
Fulltrúar IKEA og Bræðranna
Ormsson eftir handsal samn-
ingslns.
IKEA selur
raftæki
Verslunin IKEA hefur hafið
sölu á eldhúsraftækjum frá
Bræðrunum Ormsson. Til sölu
eru ofnar, helluborð, eldavélar,
kæliskápar, uppþvottavélar og
viftur frá AEG og Indesit. -GHS