Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995 URVALS BÆK Þú þokklr nCimorWJ John Gardner \ UULLAUEA < i< >1 I >1 -IN-liVl númerið - nafnið 895 kr. og ennþd ódýrari í óskrift í síma Útlönd__________________________________________pv Dómur vegna smíöar togarans SkálaQalls í Færeyjum: Réttur I Færeyjum sýknaði í gær sjö manns sem ákærðir voru fyrir að hafa svikið fé út úr færeysku landstjóminni og skipslánasjóðnum í Danmörku vegna byggingar togar- ans Skálafjalls. Danskur setudómari kvað upp dóminn. Sjömenningarnir í Skálafjallsmál- inu vora ákærðir fyrir að hafa fjár- magnað skipasmíðarnar á fölskum forsendum. Þannig hafi þeir komist yfir meira fé en þeim bar sem nam 160 milljónum króna. Þá voru þeir ákærðir fyrir að hafa náð í annað eins af fé með því einu að falsa dag- setningu í umsóknum um fjárstuðn- ing danska ríkisins. Togarinn Skálaljall var seldur á nauðungaruppboði. Tapaði land- stjómin þar ríflega 450 milljónum króna meðan danska ríkið og danski seðlabankinn töpuðu sam- tals um 120 milljónum. í rökstuðningi dómsins segir að ekki sé sannað að hinir ákærðu hafi falsað eða breytt dagsetningum. Þó er bent á að umsóknir um fram- kvæmdafé hafi byggst á mati á eig- infé sem ekki hefði staðist úndir venjulegum kringumstæðum. Landsstjómin samþykkti þetta mat og því þykir ekki sannað að fjársvik hafi átt sér stað. Þá kom fram að þá- verandi lögmanni hafi þótt nauðsyn- legt að halda skipasmíðunum áfram, að öðrum kosti hefði skipasmíða- stöðin orðið verkefnalaus. Þetta er annað fjársvikamálið í umdeildum skipasmiðum í Færeyj- um þar sem kveðinn er upp sýknu- dómur. í fyma skiptið voru fjórir sýknaðir fyrir fjárdrátt í tengslum við smíði togarans Heygadrangs. Sá sýknudómur var staðfestur fyrir héraðsdómi í Danmörku. Tveir hinna ákærðu í Skálafjallsmálinu voru einnig fyrir rétti í það skipti. Lögreglan rannsakar nú 10 mál af svipuðum toga í Færeyjum. Þrátt fyrir húsleitir og aðrar aðgerðir hafa ekki verið gefnar út ákærur. Ákæmvaldið hefur 14 daga til að ákvarða um áfrýjun í Skálafjalls- málinu. Ritzau Lögreglan rannsakar nú 10 mál vegna umdeildra skipasmíða f Færeyjum. DV-mynd Ból Sjö sýknaðir af ákærum um svik Jólagetraun DV - 8. hluti Hvar er jolasveinninn? Þá er komið að áttunda hluta jólagetraunar DV en hún mun birtast 12 sinn- um, síðast næstkomandi mánudag, 11. desember. Ykkar hlutverk, lesendur góðir, er að finna út hvar jólasveinninn er staddur. í dag er jólasveinninn kominn að forsögulegum minjum á Englandi sem gerðar eru úr ferstrendum tilhöggnum steinum. Talið er að þessi fyrirbæri hafi tengst sóldýrkun fyrir langalöngu. Sveinki er svo steinhissa yfir þessum steinminjum að hann hefur steingleymt hvað þær heita. Hann ætti kannski að spyrja leikonuna Sharon Stone eða tala við Rolling Stones. Hvar er jólavsveinninn? Merkið við það sem þið teljið rétt svar, klippið getraunina úr blaðinu og geymið á vísum stað. Munið að fyrst þegar allir 12 hlutar getraunarinnar hafa birst megið þið senda okkur lausnimar. Brátt munum við kynna hvert á að senda lausnimar og fyr- ir hvaða tíma. Þátttakendur í jólagetraun DV eiga möguleika á að vinna einn hinna 19 glæsilegu vinninga sem í hoði eru en verðmæti þeirra nemur samtals hálfri milljón króna. 7. verðlaun er Telefunken CDP350 ferðageislaspilari ásamt tveimur hátölur- um frá Radíóbúðinni að verðmæti 17.400 krónur. Hátalararnir eru með inn- byggðum magnara. Hvar er jólasveinninn? UÁrbæjarsafn ULegoland □Stonehenge Nafn Heimilisfang pnctmimpr Staflur sími

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.