Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Síða 13
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 1995
13
' \
ÍSLENSK
VARA -
INNLEND
ATVINNA
Fréttir
Haröar deilur vegna snjóaeftirlitsmanns í Neskaupstað:
Ráðning slökkviliðsstjóra
og tæknifræðings gagnrýnd
íslenskrsw já takk
JjlReykjavíkurborg
- báöir hafi lykilhlutverkum aö gegna á hættustundum, segir bæjarfulltrúi
„Við verðum að fá 100 prósent eft-
irlit með fjöllunum héma og það
þýðir ekkert að ráða einhverja í það
starf og það má ekki vera aukastarf
hjá mönnurn," segir Magnús Sig-
urðsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokksins í Neskaupstað, sem mót-
mælt hefur því að Guðmundur Sig-
fússon bæjartæknifræðingur og
Tómas Zoéga slökkviliðsstjóri hafa
verið ráðnir sem snjóaeftirlitsmenn
á staðnum.
Harðar deilur hafa verið innan
bæjarstjórnar Neskaupstaðar vegna
ráðningar snjóaeftirlitsmanns á
staðnum. Magnús hefur gagnrýnt að
ráðnir hafi verið í starfið slökkvi-
stjóri staðarins sem jafnframt gegn-
ir lykilhlutverki á hættustundu sem
varaformaður Almannavarnanefnd-
ar. Á lokuðum fundi bæjarstjórnar
á dögunum var tekist á um málið
þar sem Magnús gagnrýndi mjög
hvernig að málinu var staðið. Hann
segir að báðir þeir sem ráðnir voru
hafi nóg að gera á hættustundu ann-
að en að fylgjast með snjóalögum.
„Þeir eiga báðir sæti í Almanna-
varnanefnd. Þá er annar sjúkrabíl-
stjóri og hinn hefur með yfirstjórn
að gera á svæðinu komi til hamfara.
Þetta eru báðir mjög hæfir menn á
þessu sviði en málið er að þeir
verða að láta af öðrum störfum ef
þeir ætla að sinna eftirliti með
Reykjanesbær:
Álagning
óbreytt
Ægir Már Kárason, DV Suðurnesjum:
Bæjarráð Reykjanesbæjar
hefur samþykkt óbreytta álagn-
ingu sveitarsjóðsgjalda fyrir
árið 1996 miðað við 1995. Út-
svarsprósentan verður áfram
9% en leyfileg hámarksprósenta
er 9,2%. Þá var samþykkt að
gjalddagar fasteigna yrðu áfram
sjö.
Bæjarráð samþykkti afslátt af
fasteignaskatti á íbúðarhúsnæði
elli- og örorkulífeyrisþega til
eigin nota. Ellilífeyrisþegar
fæddir 1925 eða fyrr fá allt að 20
þúsund króna lækkun. Þeir sem
fæddir eru á árunum 1926-1928
fá 20 þús. kr. lækkun.
snjóalögum. Fólk er hér skelkað eft-
ir þá hörmungaratburði sem gerst
hafa og það verður að tryggja að allt
eftirlit verði virkt,“ segir Magnús.
Guðmundur Bjarnason bæjar-
stjóri segir að bæjarstjórn hafi ein-
göngu umsagnarrétt um málið og
hann telji að sátt ríki um ráðningu
snjóaeftirlitsmanns á staðnum.
„Það er sýslumaður sem hefur
með ráðninguna að gera, við erum
eingöngu umsagnaraðilar. Við héld-
um lokaðan fund um málið og þetta
leystist allt mjög friðsamlega. Ann-
ars er það Veðurstofan sem kemur
til með að hafa allt að segja í þess-
um málum þannig að þetta skiptir
litlu máli,“ segir Guðmundur.
Bjarni Stefánsson sýslumaður
segir að ráðning snjóaeftirlitsmann-
anna sé samkvæmt laganna hljóðan.
„Þetta eru reyndir og góðir menn
sem hafa langa reynslu af því að
fylgjast með snjóalögum. Þeir eru
ráðnir sem heiðarlegir umsækjend-
ur og allt annað víkur þegar þeir
ganga í svona störf. Það verður að
lenda á einhverjum öðrum störfum
en ekki á þessu starfi. Við réðum þá
samkvæmt lögunum eins og þau
hljóða í dag,“ segir Bjarni.
-rt
Peacockmottur
Jólaverð:
120x170 cm kr. 6.630 stgr.
135x190 cm kr. 8.091 stgr.
80x150 cm kr. 4.354 stgr.
80x140 eggl. kr. 4.993 stgr.
125 cm hringl. kr. 5.931 stgr.
Leikmottur margar gerðir
Jólaverð:
100x165 cm kr. 2.629
140x200 cm kr. 4.460
koddinn
Frábær heilsukoddi!
Gefur góðan stuöning við hálsliðina.
Sissel koddinn fyrirbyggir og dregur úr
stirðleika í hálsi og herðum og hefur því verið tekinn
í notkun á sjúkrahúsum hér á landi og erlendis.
Ranqt
Venjulegur koddi
Sissel koddi
Jólaverð aðeins kr. 3.542.-Stgr.
RAÐGREIÐSLUR
TEPPABUÐIN
SUÐURLANDSBRAUT26 ■ SÍMI 568-1950
Öll gólfefni á einum stað!
Umboðsmenn umland allt
Byggingarhúsið. Smiðjuvöllum 7, Akranesi • Litabúðin, Ólafsvlk • Verslunin Hamai, Grundarfirði • Skipavfk. Stykkishölmi • Byggingarfélagið Byggir, Mrsgötu 10, Patreksfirði • Kaupf. V-Húnvetninga, Hvammslanga • Kaupf. Húnvetninga, Blönduösi • Kaupf.
Skagfirðinga. Sauðárkrúki • Torgið, Aðalgötu 32, Siglufirði • Verslunin Valberg. Ólafsfirði • KEA Akureyri • Kaupl. Þingeyinga, Húsavfk • Kaupf. Langnesinga, Þórshöln • Kaupf. Vopntirðinga. Vopnafirði • Trésmiðja Fljótsdalshéraðs, Fellabæ • Kaupf. Héraðsböa,
Egilsstöðum • Kaupf. Héraðsbúa. Reyðarfirði • Kaupí. Fram Neskaupstað • Kaupf. Fáskrúðsfjarðar, Fáskrúðsfirðí • Kaupf. Stöðlirðinga, Slöðvarfirði • Kaupf. Stöðfirðinga, Breiðdalsvlk • KASK, Djúpavogi • KASK, Hðln Hornafirði • Kaupf. Rangæinga. Hvoisvellí
• Kaupf. Árnesinga, Vik í mýrdal • Kaupl. Árnesinga, Selfossi • Reynisstaður, Vesfmannaeyjum • Byggingavöruverslunin Stoð. Þorlákshöfn • Verslunin Málmey, Grindavlk • Járn og skip, Keflavik • Þorgeir Kristjánsson. Höfn • Kaupf. Steingrfmsfjarðar. Hólmavlk.