Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.12.1995, Blaðsíða 28
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá I síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö I DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta.fréttaskotiö I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER MUNIÐ NÝTT SÍMANÚMER Kjaramálin: Grindvíking- ar hættu við - Baldur áfram __ „Ég gef það ekkert upp hvernig atkvæði féllu, við höfum það bara fyrir okkur, en það var samþykkt að draga uppsögn kjarasamninganna til baka,“ sagði Benóný Benedikts- son, formaður Verkalýðsfélags Grindavíkur, í samtali við DV í morgun. Á félagsfundinn í gærkvöld mættu innan við 20 manns, að sögn Benónýs. Á félagsfundi hjá Verkalýðsfélag- inu Baldri á ísafirði í gærkvöld var hins vegar samþykkt að standa við uppsögn kjarasamninganna og senda vinnuveitendum á Vestfjörð- um gagntilboð. Pétur Sigurðsson, formaður Baldurs, sagði í samtali við DV í gær að hann liti svo á að það sem meirihluti fulltrúa verka- Jýðshreyfingarinnar í launanefnd 'heföi samþykkt hefði bara verið til- boð frá VSÍ og þess vegna ætlaði hann að senda gagntilboð. -S.dór Eininjg felldi ASI-sam- komulag Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Félagar í Verkalýðsfélaginu Ein- ingu í Eyjafirði felldu í gær sam- komulag meirihluta launanefnda ASÍ og Vinnuveitendasambands ís- lands. Fimm félagsfundir voru haldnir hjá Einingu í gær víðs veg- ar í Eyjafirði og atkvæðagreiðsla í lok þeirra. Alls greiddu 302 atkvæði, 170 höfnuðu samkomulaginu, 140 samþykktu það og 2 seðlar voru auðir. Eining er eitt félaganna sem sagt hefur upp kjarasamningunum frá febrúar sl. og heldur sig við þá upp- sögn. Á fundunum i gær kom fram mjög mikil óánægja með þá aðstöðu sem launanefnd samningsaðila hef- ur sett félögin í og töldu fundar- menn að launanefndin hefði ekkert ■•umboð til að standa í samningavið- ræðum. Slökkviliðið slökktia vekjaraklukku Hávær vekjaraklukka varð til þess að slökkviliðið var kallað að fjölbýlishúsi í Seljahverfi í gær- kvöld. Töldu nágrannar að reyk- skynjari hefði farið í gang og að eld- ur væri í einni íbúðinni. Enginn var heima en þegar slökkkviliðsmenn komu inn var hvorki reykur né eldur en vekjara- klukkan hafði hátt og hljómaði ekki ösvipað reykskynjara. Var slökkt á henni og hlaust ekki tjón af. -GK L O K I Ungur maður dæmdur í átta mánaða fangelsi: Notfærði sér konu við hlið unnusta hennar Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Bjarna Guðmundsson, 22 ára, í átta mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot með því að hafa not- fært sér ölvunarástand ungrar konu sem svaf og haft við hana samfarir er hún lá við hlið unnusta síns sem einnig var í ölv- unarsvefni aðfaranótt 5. ágúst síð- astliðinn. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða konunni 543 þúsund krónur í skaðabætur og sviptur ökuréttindum í 6 mánuði þar sem hann ók bíl sínum a.m.k. þrisvar sinnum ölvaður umrædda nótt. Bjarni hitti konuna og unnusta hennar á veitingastaðnum Ölkjall- aranum. Kynni tókust með fólk- inu og sýndi sakborningurinn konunni mikinn áhuga. Að sögn hennar hafði hann stöðugt verið að fara á fjörurnar við hana en hún haldið honum frá sér. Síðar fóru öll þrjú í partí, á bíl ákærða, og þar á eftir var haldið til heim- ilis parsins. Konan fór inn að sofa en mennirnir tveir sátu við drykkju um stund áður en unn- ustinn, sem var orðinn mjög ölv- aður, lagðist einnig til hvílu. Eftir þetta fór sakborningurinn inn í svefhherbergi, lagðist hjá konunni, sem svaf við hlið unnustans, og hafði við hana sam- farir. Dómurinn taldi fullsannað að konan hefði ekki getað spornað við verknaðinum vegna ölvunar- svefns. Hún vaknaði hins vegar og gerði sér grein fyrir hvað var að gerast þegar verknaðurinn taldist fullframinn, varð ofsareið og reyndi árangurslaust að vekja unnusta sinn. Ákærði hafði sig þá á brott. Hún tilkynnti lögreglu strax um atburðinn og fór í við- eigandi skoðun. Maðurinn var auk kynferðis- brotsins dæmdur fyrir ölvun- arakstur, á milli tveggja staða í Reykjavík, til Hafnarfjarðar, það- an að Vogum á Vatnsleysuströnd, þaðan til Keflavíkur, síðan til Grindavíkur og loks tO Reykjavík- ur á ný. Hann viðurkenndi að hafa verið ölvaður og drukkið áfengi í bílnum. Þriggja manna fjölskipaður dómur komst að þeirri niðurstöðu varðandi ölv- unaraksturinn að sex mánaða ökuleyfissvipting væru hæfileg viðurlög í þvi sambandi. -Ótt Verslun Bónuss í Holtagörðum hefur selt bækur á 20-30% afslætti. Eftir ákvörðun útgefenda um að setja ekki af- greiðslubann á Bónus og fleiri verslanir er Ijóst að bókastríðið heldur áfram. Bóksalar munu ákveða aðgerðir í kvöld. Hagkaupsverslanir hafa til þessa selt bækur á fullu verði en líklegt er að þar verði boðið upp á afslátt á næstu dögum. DV-mynd GVA Veðrið á morguri: Skýjað um allt land Á morgun verður suðaustan stinningskaldi eða allhvasst með suður- og vesturströndinni en heldur hægari suðaustanátt ann- ars staðar. Skýjað um allt land og víða rigning, mest þó um landið sunnanvert. Á hálendinu má búast við snjókomu. Hiti 3-7 stig. Veðrið í dag er á bls. 76 ^ Nýtt álver? Akveðið í næstu viku Ákveðið verður á stjórnarfundi Columbia Aluminium í Bandarikj- unum í næstu viku hvort farið verð- ur í viðræður við íslendinga um byggingu álverksmiðju með 60 þús- und tonna framleiðslugetu á ári á Grundartanga eða hvort verksmiðj- an verður byggð í Venesúela. Samkvæmt upplýsingum frá Landsvirkjun stefna forsvarsmenn fyrirtækisins að því að hefja bygg- inguna í lok næsta árs og verk- smiðjan taki til starfa í ársbyrjun 1998. Sótt verður um starfsleyfi til iðnaðarráðuneytisins fyrir vikulok. ______________________-GHS Amfetamínmálið: Einn maður í haldi Einn maður er í haldi vegna til- raunarinnar til að smygla tæpu kílói af amfetamini til landsins á sunnudaginn. Var maðurinn tekinn á Keflavíkurflugvelli eftir komu frá Amsterdam. Hann reyndist vera með 990 grömm af efninu í fórum sínum. Málið er enn í rannsókn hjá flkni- efnalögreglunni. Umræddur maður hefur ekki komið þar við sögu áður. -GK Ekkert afgreiðslubann: Við hörmum niðurstöðuna - segja bóksalar „Við hörmum niðurstöðu fundar- ins og að samningur, sem búið var að vinna að í heilt ár, skuli bresta um leið og brýtur á honum. Það er óþolandi að samningsaðili okkar skuli ekki standa við gerðan samn- ing. Það er mikill hiti í mönnum,“ sagði Teitur Gústafsson, formaður Félags bóksala, við DV í tilefni af ákvörðun stjórnar bókaútgefenda i gær um að setja ekki afgreiðslu- bann á verslanir Bónuss og KÁ á Suðurlandi. Bóksalar höfðu lagt fram beiðni um bannið. Teitur sagði að bóksalar myndu gripa til einhverra aðgerða. Þær að- gerðir yrðu ákveðnar á fundi í kvöld. Útgefendur telja að afgreiðslu- bann yrði ekkert annað en táknræn aðgerð, verslanir og stórmarkaðir myndu hvort sem væri ná sér í bækur. DV hefur heimildir fyrir því að Hagkaup hafi undanfarna daga verið að safna birgðum af bókum. Óskar Magnússon forstjóri vildi hvorki játa því né neita í samtali við DV. Jóhannes Jónsson í Bónusi vildi fátt segja um niðurstöðu útgefanda. Hefðu þeir ákveðið afgreiðslubann hefði hann farið með málið til Sam- keppnisstofnunar. -bjb Grensásveqi 11 Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888 Grœnt númer: 800 6 886 K I N G L#TT# alltaf á Miðvikudögxun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.