Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Blaðsíða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 2. JÁNÚAR 1996
Fréttir
DV
Stefni stálbátsins Styrmis ÍS rifnaöi við siglingu á ís:
Skipverjar köstuðust
til við höggið
Tvöfalt byröi í stefni kom skipverjum til bjargar en sjór vætlaði inn í skipið
Styrmir ÍS var á línuveiðum í villta vestrinu eins og það er kallað þegar slinkur kom á skipið. í Ijós kom að skipið
hafði rekist á ís og stór rifa komið á stefnið. Forpikkur eða stafnhylki er í stefni skipsins og kom það í veg fyrir að
sjór fossaði inn í vistarverur skipverja. Aðeins minni háttar leki kom að skipinu. DV-mynd Sveinn
Litlu mátti muna að illa færi þeg-
ar Styrmi ÍS-207, 200 tonna stálbát,
var siglt á ísspöng þar sem hann
var á línuveiðum um 50 mílur vest-
ur af Látrabjargi 29. desember sið-
astliðinn. Um 60 sentímetra langar
og breiðar rifur komu á stefni skips-
ins. Gat kom á forpikk eða stafn-
hylki skipsins og aðeins munaði
nokkrum sentímetrum að ísinn
næði að leggja hylkið saman.
„Ég og Atli vélavörður stóðum
uppi á dekki og vorum að vinna í
línunni. Stýrimaðurinn var að fara
að keyra í næstu bauju þegar mikið
högg kom á skipið og ég kastaðist
allt í einu hálfan annan metra
áfram og Atli, félagi minn, datt ofan
á mig. Við hlupum strax upp á brú
og mér datt í hug að það hefði kom-
ið gat að skipinu og allir vöknuðu.
Þetta gerðist á milli kl. 21 og 22 en
það var ekki fyrr en fimm tímum
seinna að bátsmaðurinn, sem var í
sínum fyrsta túr á sjó, sá bleytu
inni í klefanum sínum sem er í
stefni skipsins. Hann hljóp upp og
kom til mín og Atla og sagði okkur
frá því. Þá kom í ljós að veggurinn
var brotinn og það flæddi inn með
öllum köntum," segir Benedikt Ingi
Ármannsson, háseti um borð í
Styrmi.
Jón Páll Jakobsson, stýrimaður á
Styrmi, var í brúnni þegar óhappið
átti sér stað. Hann segir menn ekki
hafa uppgötvað að rifa hafi komið á
stefnið fyrr en fjórum til fimm tím-
um eftir að þeir sigldu á ísinn þegar
í ljós kom að sjór vætlaði inn í vist-
arverur skipverja. Hann segir mjög
góða veiði hafa verið við ísspöngina
sem hafi verið nokkuð þétt. Fleiri
bptar hafi verið þar á veiðum og
véður mjög stillt. ísinn sem þeir
hafi siglt á hafi verið mun minni en
ís sém þeir hafi áður siglt á án þess
að það ylli skaða.
Benedikt áætlar að lekinn hafi
ekki verið undir 250 lítrum á
klukkustund. „Þetta var í sjálfu sér
ekki mikill leki og við ekki í lífs-
hættu. En hefði ekki verið tvöfalt
hólf frammi í skipinu hefði ég ekki
viljað spá fyrir um hvernig farið
hefði. Höggið hefði heldur ekki mátt
vera mikið meira því þá hefðu bæði
byrðin gefið sig. Menn voru alveg
ótrúlega rólegir enda veður gott, ör-
yggisbúnaður um borð í skipinu
góður og fleiri skip á veiðum á
sömu slóðum.“
Skipinu var siglt til Flateyrar þar
sem fulltrúi Siglingamálastofnunar
skoðaði það. Hann gaf leyfi að því
yrði siglt til Reykjavíkur þar sem
það var tekið upp í slipp og viðgerð
fer fram á því nú. Áætlað er að við-
gerð taki viku til 10 daga. -pp
Stuttar fréttir
Þörungaverksmiðjan á Reykhólum:
Utanríkisþjónustan:
Tilboð frá Banda-
ríkjunum samþykkt
í hlut ríkisins
- sem er 15 milljónir af 23 milljóna hlutafé
Rithöfundaverðlaun
Þóra Jónsdóttir og Gyrðir Elí-
asson voru verðlaunuö úr Rit-
höfundasjóði Ríkisútvarpsins á
gamlársdag að forseta íslands
viðstöddum. Þau fengu 400 þús-
und krónur hvort um sig.
Áfengi hækkar
Ný verðskrá á áfengi tekur
gildi í dag í kjölfar nýrra verö-
lagningarreglna ÁTVR. Að með-
altali hækkar áfengi um 0,1%.
Afmæli í Höfða
Reykjavíkurborg, í samstarfi
við forsætisráöuneytið, er að
kanna möguleika á að halda al-
þjóðlegan fund á árinu í tilefni af
10 ára afmæli leiðtogafundarins í
Höfða. Þetta kom fram í Mbl.
Bætur hækka
Bætur almannatrygginga
hækkuðu um 3,5% um áramótin
um leið og laun hækkuðu sam-
kvæmt kjarasamningum. Sam-
kvæmt frétt RÚV fellur ekkjulíf-
eyrir niður af jafnréttisástæðum.
-bjb
Að sögn Bjama Óskars Halldórs-
sonar, framkvæmdastjóra Þörunga-
verksmiðjunnar á Reykhólum, hef-
ur verið ákveðið að taka tilboði
bandaríska fyrirtækisins Kelco í
hlut ríkissjóðs í verksmiðjunni.
Ekki hefur fengist uppgefið hvernig
tilboðið hljóðar en eignarhlutur rík-
isins er um 15 milljónir af rúmlega
23 milljóna króna hlutafé. Bjarni
sagði frágang viðskiptanna eftir en
það ætti að takast að ljúka honum
innan tveggja mánaða.
Kelco, sem staðsett er í San
Diego, hefur um margra ára skeið
keypt mikið magn þörunga af verk-
smiðjunni á Reykhólum. Fyrirtækið
er dótturfyrirtæki Monsanta Chem-
icals í Bandaríkjunum og er stór
framleiðandi hleypiefnis sem er
m.a. notað í bjór og mjólkurvörur.
Kelco hefur notað þörunga í þetta
hleypiefni eða algenada eins og það
er kallað.
Bjarni sagði það ljóst að eignarað-
ild Kelco myndi styrkja verksmiðj-
una til muna. Forráðamenn Kélco
hafa lýst yfir vilja sínum um að
koma með aukið fjármagn í rekstur-
inn og jafnvel viðrað hugmyndir
um stækkun verksmiðjunnar.
-bjb
Séra Flóki Kristinsson undrandi á gjöröum biskups:
Réttir ráðherra hirðstafinn
á eftir að sjá ráðherrann taka að sér stjórnina
„Ég er undrandi á þessu og get
ekki betur séð en að biskupinn sé að
víkja sér undan ábyrgð og sé að
rétta ráðherra hirðstafinn. Ég á eft-
ir að sjá það að ráðherrann vilji
taka að sér kirkjustjórnina með
þessum hætti,“ segir séra Flóki
Kristinsson, sóknarprestur í Lang-
holtskirkju, um þau áform biskups,
herra Ólafs Skúlasonar, að dóms-
málaráðherra skerist í deilumál
Langholtskirkju.
Séra Flóki segir að biskup tali um
að kirkjuna vanti kirkjuréttarleg
ákvæði til þess að hann geti leyst úr
málinu. Jafnvel þótt svo kunni að
vera sé biskup andlegur leiðtogi
kirkjunnar, hann hafi andlegt
kennivald og það vald sé í réttu
hlutfalli við andlegan skyrk hans.
Hann hafi með öðrum orðum svo
mikið vald sem hann vilji sjálfur
sem andlegur leiðtogi.
Aðspurður um kirkjusóknina seg-
ir Flóki að hátt í 200 manns hafi ver-
íð í hátíðarmessu í gær og á þriöja
hundruð í fyrradag. Þátttaka hafi
verið góð og kröftugur söngur. Um
deilur hans og Jóns Stefánssonar
organista minnti Flóki á að Jón
hefði sagst ekki koma til starfa í
kirkjuna ef Flóki yrði þar áfram.
„Það skal enginn efast um að ég
haldi ekki áfram og þá geta menn
lagt saman tvo og tvo. Fyrir tveim-
ur árum hafði ég hugmyndir um að
færa mig um set og taka við öðru
brauði. Úr því sem komið er er það
útilokað," segir séra Flóki Kristins-
son.
-sv
Tilfærslur a
sendiherrum
Nokkrar tilfærslur verða á sendi-
herrum utanríkisþjónustunnar í
byrjun nýs árs.
Róbert Trausti Árnason tekur við
starfi sendiherra íslands í Kaup-
mannahöfn í dag í stað Ólafs Egils-
sonar sem kemur til starfa í utan-
ríkisráðuneytinu. Hörður H.
Bjamason tekur við starfi sendi-
herra í Stokkhólmi 1. febrúar í stað
Sigríðar Snævarr sem kemur til
starfa í utanríkisráðuneytinu á
sama tíma.
Skipti verða á stöðu forsetaritara.
Sveinn Björnsson sendiherra hefur
verið í leyfi frá störfum í utanríkis-
þjónustunni til að gegna starfi for-
setaritara en kemur aftur í ráðu-
neytið 1. febrúar. Á sama tíma tek-
ur Kornelíus Sigmundsson aftur við
starfi forsetaritara en hann hefur
starfað sem sendifulltrúi að undan-
förnu.
Þá sest nýr fulltrúi íslands í fasta-
nefndina hjá Sameinuðu þjóðunum
í New York innan mánaðar en það
er Sigríður Gunnarsdóttir sendi-
ráðsfulltrúi. -bjb
Velti bíl og
hljóp til fjalla
DV, Akureyri:
Fullorðinn maður sem nýlega
var sviptur ökuskírteini sínu vegna
ölvunaraksturs var þó enn á ferð á
bíl sínum í Hörgárdal um helgina
og missti bifreiðina út af veginum
nærri Þelamerkurskóla.
Lögreglan á Akureyri fór á vett-
vang en þá hafði maðurinn stungið
af til fjalla. Greiðlega gekk að rekja
slóð hans og fannst maðurinn eftir
nokkra leit. Hann var ölvaöur og
orðinn nokkuð kaldur og hrakinn
svo að réttast þótti að flytja hann á
slysadeild á Akureyri til aðhlynn-
ingar.
-gk
Stöð tvö:
Hólmavík og Drangsnes
DV, Hólmavik:
Strandamenn áttu þess kost í
fyrsta sinn nokkru fyrir jól að sjá
Stöð 2. Þá voru settir upp sendar á
Hrútafjarðarhálsi, Ennishöfða og
við Hólmavík.
Skilyrði eru allgóð í og við þétt-
býliskjarnana, lakari víða á sveita-
bæjum og sums staðar nær engin.
Mikill áhugi var fyrir jól á að fá
Stöð 2 og búið að fá búnað á um 40%
- heimila á Hólmavík og Drangsnesi
nokkrum dögum eftir uppsetningu
sendanna.
-GF