Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Blaðsíða 19
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1996 27, Kjartan í Breiðablik Breiðablik hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir komandi tímabil í knattspyrnunni en Kjartan Ein- arsson skrifaði um helginga und- ir samning við Kópayogsliðið. Hann kemur til Breiðabliks frá Keflavík en þar hefur hann leikið lengst af sínum ferli. Hann er 27 ára gamall ,sóknarmaður sem leikið hefur 104 leiki í 1. deild og skorað 26 mörk og er honum ætlað að fylla skarð Slóvakans Rastislavs Lazoriks sem fór frá Blikum til Leifturs á Ólafsfirði. Kjartan er íjórði nýi leikmað- urinn sem gengur í raðir Breiða- bliks en áður hafði liðið fengið Hreiðar Bjarnason frá Þrótti, Sævar Péturssson frá Val og Þor- stein Sveinsson frá HK. Þá er lík- legt að Skagamaðurinn Theodór Hervarsson gangi í raðir Blikanna. Þrír sterkir farnir frá Kefivíkingum Kjartan er þriðji sterki leik- maðurinn sem Keflvíkingar missa en áður hafði liðið misst Marko Tanasic til norska liðsins Strömsgodset og Helga Björg- vinsson til Stjörnunnar. -GH Martha og Sigmar unnu Martha Emstdóttir, ÍR, og Sig- mar Gunnarsson, UMSB, sigr- uðu í kvenna- og karlaflokki í gamlárshlaupi ÍR sem haldiö var í 20. sinn á sunnudaginn. í öðru sæti í kyennaflokki var Hólm- fríður Ása Guðmundsdóttir, UMSB, og í þriðja sæti Laufey Stefánsdótir, FH. Annar í karla- flokki varð Guðmundur Valgeir Þorsteinsson, UMSB, og Jóhann Ingibergsson, FH, hafnaði í þriðja sæti. Metþátttaka var í hlaupinu en keppendur voru 261 talsins. -GH Bronsverðlaun í Þýskalandi íslenska unglingalandsliðið í handknattleik sigraði Sviss, 23-22, í úrslitaleik um bronsverð- launin á sterku móti sem lauk í Þýskalandi um áramótin. Hall- dór Sigfússon skoraði sigur- markið úr vítakasti þegar leik- tímanum var lokið. Hjalti Gylfa- son skoraði 5 mörk fyrir ísland og Halldór 4. ísland tapaði fyrir Þýskalandi, 20-24, í undanúrslit- um mótsins, en í riðlakeppninni vann ísland stórsigra á Austur- ríki og Póllandi og tapaði fyrir Dönum. -VS Lane sigraði Breski kylfingurinn Barry Lane sigraði á Andersen golfmót- inu sem lauk í Arizona í gær. Lane tryggði sér sigur eftir bráðabana við Suður-Afríkubú- ann David Frost. Fyrir sigurinn hlaut Lane að launum 1 milljón dollara. Bandaríkjamaðurinn Mark McCumber varð þriðji á mótinu og Japaninn Massy Kuramoto varð fjórði. Laitinen slasaðist Einn besti skíðastökkvari Finna, Mika Laitinen, slasaðist illa á æfingu fyrir eitt af heims- bikarmótunum í skíðastökki sem fram fór í Þýskalandi í gæar. Laitinen, sem er efstur að stigum í heimsbikarkeppninni, við- beinsbrotnaði, braut nokkur rif og meiddist á höfði þegar hann lenti harkalega eftir 97 metra stökk. Hann var fluttur á sjúkra- hús og þarf að dveljast þar í nókkra dag og ljóst er hann verð- ur frá keppni í nokkra mánuði. íþróttir Þessir fengu atkvæöi: Jón Amar Magnússon, frjálsar íþróttir 8.988 Patrekur Jóhannesson, handknattleikur 7.525 Magnús Scheving, þolfimi 7.292 Teitur Örlygsson, körfuknattleikur 839 Amar Gunnlaugsson, knattspyrna 690 Geir Sveinsson, handknattleikur 682 Ólafur Þórðarson, knattspyrna 515 Sigurður Jónsson, knattspyma 459 Eydís Konráðsdóttir, sund 282 Guðmundur Stephensen, borðtennis 270 Valdimar Grímsson, handknattleikur 248 Dagur Sigurðsson, handknattleikur 176 Birkir Kristinsson, knattspyrna 158 Vemharð Þorleifsson, júdó 152 Julian Duranona, handknattleikur 140 Kristinn Björnsson, skiði 123 Jón Kristjánsson, handknattleikur 122 Alfreð Gislason, handknattleikur 119 Magnús Ver Magnússon, aflraunir 118 Karen Sævarsdóttir, golf 104 Sigurður Matthíasson, hestaíþróttir 102 Alexander Ermolinski, körfuknattleikur, Arnar Ólafsson, sund, Arnór Guöjohnsen, knattspyma, Aron Kristjánsson, handknattleikur, Atli Ein- arsson, knattspyma, Auðunn Jónsson, kraftlyftingar, Axel Gomez, knatt- spyma, Ámi Stefánsson, knattspyrna, Bergsveinn Bergsveinsson, hand- knattleikur, Bjarki Gunnlaugsson, knattspyma, Bjarki Sigurðsson, hand- knattleikur, Björgvin Björgvinsson, handknattleikur, Bjöm Björnsson, handknattleikur, Björg Hafsteinsdóttir, körfuknattleikur, Broddi Krist- jánsson, badminton, Eiður Smári Guðjohnsen, knattspyma, Einar Þór Daníelsson, knattspyma, Eiríkur Kristinsson, júdó, Eyjólfur Sverrisson, knattspyma, Finnbogi Gylfason, frjálsar íþróttir, Finnur Jóhannsson, handknattleikur, Geirlaug B. Geirlaugsdóttir, frjálsar íþróttir, Georg Birg- isson, knattspyrna, Guðmundur Bragason, körfuknattleikur, Guðmundur Guðmundsson, knattspyma, Guðmundur Hrafnkelsson, handknattleikur, Guðni Bergsson, knattspyma, Guðni Hafsteinsson, körfuknattleikur, Guð- rún Amardóttir, frjálsar íþróttir, Hannes Hlifar Stefánsson, skák, Haukur Arnórsson, skiði, Helena Ólafsdóttir, knattspyrna, Herbert Amarson, körfuknattleikur, ívar Ásgrímsson, körfuknattleikur, Júlíus Jónasson, handknattleikur, Kim Magnús Nielsen, skvass, Kolbrún Jóhannsdóttir, handknattleikur, Konráð Óskarsson, körfuknattleikur, Lárus Orri Sigurðs- son, knattspyrna, Leó Örn Þorleifsson, handknattleikur, Martha Ernstdótt- ir, frjálsar íþróttir, Mihajlo Bibercic, knattspyrna, Ólafur Gottskálksson, knattspyrna, Ólafur Guðmundsson, frjálsar íþróttir, Ólafur Stefánsson, handknattleikur, Ómar Þ. Ámason, sund, Pétur Guðmundsson, körfu- knattleikur, Rondey Robinson, körfuknattleikur, Róbert Amþórsson, knattspyma, Róbert Sighvatsson, handknattleikur, Rósa Steinþórsdóttir, knattspyma, Ruslan Ovtsinnikov, frmleikar, Sigfús Sigurðsson, handknatt- leikur, Sigríður Anna Guðjónsdóttir, frjálsar íþróttir, Sigurður Valur Sveinsson, handknattleikur, Sigurlín Garðarsdóttir, sund, Steingrímur Ingason, akstursíþróttir, Theodór Hervarsson, knattspyma, Torfi Magnús- son, körfuknattleikur, Tryggvi Guðmundsson, knattspyrna, Unnur Sigurð- ardóttir, þolfimi, Þorvaldur M. Sigbjömsson, knattspyrna. Jón Arnar Magnússon, íþróttamaður ársins 1995 að mati iesenda DV. Jóhanna Ösp Guðmundsdóttir, fjögurra ára Skagastúlka, tekur við lesenda- DV-mynd ÞÖK verðlaununum, Orion-myndbandstækinu, úr hendi Reynis Traustasonar, fréttastjóra á DV. DV-mynd ÞÖK Kjör DV á íþróttamanni ársins 1995: Lesendur DV voldu Jón Arnar Magnússon Lesendur DV völdu Jón Amar Magnússon, frjálsíþróttamann úr UMSS, íþróttamann ársins 1995 í hinu árlega kjöri blaðsins. Jón Amar sigr- aði eftir harða keppni við handknattleiksmann- inn Patrek Jóhannesson og þolfimikappann Magnús Scheving. Jón Amar náði frábærum árangri í tugþraut á árinu 1995 og skipaði sér í hóp þeirra bestu í heiminum í þessari erfiðu grein. Jón Amar hóf tímabilið á því að slá íslandsmet sitt glæsilega á mjög sterku móti í Götziz í Austurríki en þar fékk hann 8.236 stig og hafnaði í 5. sæti. Fyrra met hans var 7.896 stig. Því næst var Jón Arnar í lykilhlutverki í tug- þrautarlandsliði íslands sem sigraði í sínum riðli í 2. deild Evrópubikarkeppninnar á Laugardals- vellinum. Þar fékk hann 8.037 stig og leiddi liðið upp i 1. deild. Á heimsmeistaramótinu í Gautaborg var Jón Arnar óheppinn, en hann var dæmdur úr leik í 400 metra hlaupi. Hann hélt samt áfram en varö síðan að hætta keppni vegna meiðsla. Loks náði Jón Amar að slá íslandsmetið á ný þegar hann varð í 5. sæti í keppni bestu tugþraut- armanna heims í Talence í Frakklandi og þá fékk hann 8.248 stig. „Það er stórkostlegt að vera valinn af lesendum DV og það sýnir að fólk hefur tekið eftir því sem maður hefur veriö að gera. Ég bjóst hálfpartinn við því að verða dæmdur hart fyrir að ná ekki að Ijúka keppni á heimsmeistaramótinu en senni- lega hefur það gert útslagið að ég hætti ekki keppni þótt ég væri dæmdur úr leik í einni grein. Það er mikill heiður að fá þessa viðurkenningu,“ sagði Jón Arnar við DV i gær. Hann komst ekki til Reykjavíkur í gær til að taka við verðlaunum sínum því á sama tíma var verið að skíra son hans norður á Sauðárkróki. DV sendir honum og fjölskyldu hans innilegustu heillaóskir. Jón Arnar tekur við verðlaunum sín- um síðar í vikunni. Skagastúlka fékk myndbandstækið Það var kornung stúlka frá Akranesi, Jóhanna^ Ösp Guðmundsdóttir, sem hreppti aðalvinning- inn en að vanda var einn heppinn þátttakandi í kjörinu dreginn út. Jóhanna Ösp fékk glæsilegt Orion-myndbandstæki frá Bræðrunum Ormsson hf. að launum. Þátttakan í kjörinu var góð eins og venjulega. íþróttadeild DV þakkar iesendum blaðsins þenn- an mikla áhuga og óskar þeim gleðilegs nýs árs. -GH/JKS/SK/VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.