Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1996 Fréttir Skagfirðingar og Grundfirðingar sameinast í fjórða stærsta útgerðarfyrirtæki landsins: Útiloka ekki landvinn inga erlendis - segir Einar Svansson, framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar Skagfirðings Fjórða stærsta útgerðarfyrirtæki landsins varð til á gamlársdag þeg- ar Fiskiðjan Skagfirðingur á Sauð- árkróki og Hraðfrystihús Grundar- fjarðar, HG, sameinuðust í eitt. Nokkur aðdragandi hefur verið að þessari sameiningu en Skagfirðing- ur hefur verið hluthafi í HG í þrjú ár, nú síðast með 85% eignarhluta. Einar Svansson, framkvæmdastjóri Skagfirðings, sagðist í samtali við DV ekki útiloka að landvinningar á erlendri grundu yrðu næst kannað- ir. Ekkert hefði þó verið gert í þvi heldur fyrst og fremst um vanga- veltur verið að ræða. „Þróunin hefur verið hröð síð- ustu árin. Stærstu fyrirtækin, eins og Grandi, ÚA og Samherji, hafa verið í útvegi erlendis og því ekki óeðlilegt að við könnum slikt hið sama,“ sagði Einar. Eftir sameininguna er fyrirtækið með 10 þúsund tonna þorskígildis- kvóta, þann þriðja mesta á eftir Granda og Útgerðarfélagi Akureyr- inga. Ef litið er til heildarkvóta þá er nýja fyrirtækið það fjórða stærsta og Samherji á Akureyri vermir þriðja sætið. Velta samein- aða fyrirtækisins er áætluð á árinu nálægt 3,5 milljörðum króna. Fyrirtækið gerir út 6 togara, starfrækir þrjú frystihús, salthús- verkun, rækjuvinnslu, skelvinnslu og fískimjölsverksmiðju. Hátt í 500 manns starfa hjá fyrirtækinu, þar af um 100 5 Grundarfírði en þar hefur einkum verið rekin rækju- og skel- vinnsla. Einar Svansson, framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar Skagfirðings, fjórða stærsta útgerðarfyrirtækis landsins eftir sameiningu við Hraðfrystihús Grundarfjarðar. Sjúkrahús Reykjavíkur að veruleika Sjúkrahús Reykjavíkur verður formlega sett á stofn um áramótin með sameiningu Borgarspítala og Landakotsspít- ala og hefst þá nýr kafli í heilbrigðisþjónustu landsmanna. Sameiningarferlið hefur staðið yfir síðan 1992 og er hvergi nærri lokið. Talað er um 5-10 ár í því sambandi. Auglýsingastofan Gott fólk hannaði merki sjúkrahússins. Nýr forstjóri hefur verið ráðinn, Jóhannes Pálmason, sem var forstjóri Borgarspítalans. Myndin er tekin á blaðamanna- fundi sem efnt var til af þessu tilefni. DV-mynd S Barðaströnd: Mannlaus sumarbústaður brann Talsvert eignatjón varð þegar sumarbústaður skammt frá Brjáns- læk brann til grunna á nýársnótt. Að sögn lögreglunnar á Patreks- firði uppgötvuðu menn brunann klukkan 14 á nýársdag en þá hringdi heimilisfólk á Brjánslæk og tilkynnti um brunann til lögreglu. Er ljóst að í bústaðnum hefur kviknað einhvern tímann frá klukkan 3 á nýársnótt þegar fólk á Brjánslæk gekk til náða. Lögreglan telur sig hafa vissu fyr- ir þvi að rafmagn hafi verið útslegið í bústaðnum sem var mannlaus þeg- ar hann brann. Þá voru engin spor í kringum hann sjáanleg. Flugelda- notkun var hins vegar í húsum í nokkur hundruð metra fjarlægð. Málið er í rannsókn lögreglu og telur hún að svo stöddu ekki hægt að leiða getum að eldsupptökum. -pp AUKIN OKURETTINDI MEIRAPRÓF Nú er hægt að velja á milli kvöld- og helgamámskeiða. Næsta kvöldnámskeið hefst mánudaginn 8. janúar og næsta helgamámskeið hefst laugardaginn 13. janúar. ATH. Breyttar reglur varðandi próf til aukinna ökuréttinda taka gildi í júlí 1996. Mörg verkalýðsfélög taka að hluta þátt í námskeiðsgjaldi. Ökuskóli SG hefur á undanfömum árum verið í fararbroddi hvað varðar nám til aukinna ökuréttinda og er umferðaröryggi kjörorð okkar. Betri ökumaður - betri umferð - betra líf. Skólinn hefur á að skipa úrvalsliði kennara í öllum námsgreinum og er vitnisburður nemenda okkar stolt. Efþú þekkir nemanda sem hefur verið í Ökuskóla SG spurðu viðkomandi og svarið er okkar auglýsing. • LEIGUBIFREIÐ • VÖRUBIFREIÐ • HÓPBIFREIÐ • ENDURMENNTUN ÍIKIINKIIII AUKIN OKURETTINDI HF. Suðurlandsbraut 16, Reykjavík- Sími 581-1919 Fiskiðjan Skagfirðingur hefur rekið frystihús á Hofsósi ásamt starfseminni á Sauðárkróki. Að sögn Einars er ætlunin að sérhæfa vinnsluna á Hofsósi og koma þar upp allri ufsavinnslu fyrirtækisins sem til þessa hefur verið á þremur stöðum. Ein fisktegund á einum stað „í landvinnslunni ætlum við að vinna eina tegund á einum stað. Sameiningin mun því hafa í fór með sér ákveðna hagræðingu í sambandi við tegundimar og vinnsluna á þeim. Þorskskerðingin síðustu ár hefur gengið í öfuga átt og gert mönnum erfiðara að vera með sér- hæfingu. Frystihúsin hafa því þurft að hverfa til fortíðar og fjölga teg- undum til að halda uppi starfsemi. Við erum að reyna að vinna á móti þessari kvótaskerðingu. Möguleikar okkar til þess em meiri með fyrir- tækið sem er með þetta margar ein- ingar,“ sagði Einar. Fiskiðjan Skagfirðingur keypti sig inn í Hraðfrystihús Grundar- fjarðar um áramótin 1992/1993 með rúmlega 30% hlut. Síðan hefur hlut- urinn vaxið jafnt og þétt og var kominn í 85% fyrir sameiningu. Af- koma HG hefur verið í járnum um leið og hagnaður hefur verið veru- legur af Skagfirðingi. Einar sagði litlar sem engar breytingar verða á yfirmannastöðum fyrirtækisins eft- ir sameininguna og nafnið yrði áfram fyrst um sinn Fiskiðjan Skag- firðingur. -bjb Nýtt sjávarútvegsfyrirtæki í Reykjanesbæ: Allt aö 100 manns fá vinnu við fullvinnslu sjávarafurða - Japanir í samstarfi viö íslendinga DV, Suðurnesjum: „Það verður stofnað nýtt fyrir- tæki um rekstur ýmissa tegunda sjávarafurða í neytendapakkningar á Japansmarkað. Við reiknum með, þegar fyrirtækið er komið á fullt skrið, að 80-100 manns muni starfa hjá þvi,“ sagði Ellert Vigfússon hjá íslenskum ígulkerum hf. í Njarðvík. íslensk ígulker verða hluthafi í nýja fyrirtækinu sem ráðgert er að stofna fljótlega eftir áramót og verð- ur staðsett í Reykjanesbæ. Japansk- ir aðilar standa einnig að stofnun þess. Ellert segir að hann muni inn- an skamms ræða við Pál Pétursson félagsmálaráðherra um þann mögu- leika að fá að ráða til landsins 50-70 útlendinga til starfa við fyrirtækið. „Við höfum hug á að ráða tækni- menntað fólk frá Tælandi að hluta til en við munum að sjálfsögðu ráða íslendinga sem vilja og geta unnið við þessa atvinnugrein. Ef það tekst ekki þurfum við að leita út fyrir landsteinana og til þess þurfum við leyfi frá viðkomandi yfirvöldum. Það er erfitt að fá fólk hér til starfa í fiskvinnsluhúsum og árangur okk- ar á því sviði hefur verið lítill sem enginn,“ sagði Ellert. Þeir hafa leitað víðar um landið eftir mannafla en það hefur engan árangur borið. Ellert segir að unnið verði með Verkalýðs- og sjómanna- félagi Keflavíkur og Markaðs- og at- vinnumálaskrifstofu Reykjanesbæj- ar að þessum málum. ÆMK Ríkisráðsfundur á gamlársdag: Vigdís ■ sínum lokaverkum Vigdís F'innbogadóttir forseti staðfesti fjárlög, fjáraukalög, láns- fiárlög og ýmis önnur lög á ríkis- ráðsfundi á Bessastöðum á gamlárs- dag. Jafnframt voru staðfestar ýms- ar ákvarðanir sameiginlegu EES- nefndarinnar og skipað var í nokk- ur embætti í ráðuneytunum. Auk fjárlaga staðfesti Vigdís laga- breytingar vegna Lífeyrissjóðs starfsmanna, Þróunarsjóðs sjávar- útvegsins og stjómunar á fiskveið- u’m. Þetta var síðasti ríkisráðsfundur Vigdísar á gamlársdegi með ríkis- stjóm landsins en hún lætur sem kunnugt er af embætti á þessu ári. Hún flutti sitt síðasta nýársávarp í sjónvarpi í gær. Þar var henni tíð- rætt um framtíð upplýsingasamfé- lagsins og þá byltingu sem tölvu- tæknin hefur valdið hérlendis. Þessi mál eru henni hugleikin enda hefur hún lýst því yfir að hún ætli sér í störf tengd margmiðlun að lokinni 16 ára veru á Bessastöðum. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.