Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Síða 18
26
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1996
*■
Íþróttir
England
Úrvalsdeild
Laugardagur:
Arsenal-Wimbledon 1-3
1-0 Wright (37.), 1-1 Earle (38.), 1-2
Holdsworth (50.), 1-3 Earle (67.)
Blackburn-Tottenham 2-1
1-0 Marker (31.), 2-0 Shearer (41.), 2-1
Sheringham (53.)
Bolton-Coventry 1-2
1-0 McGinlay (16.), 1-1 Whelan (44.),
1-2 Salako (90.)
Chelsea-Liverpool 2-2
1- 0 Spencer (9.), 1-1 McManaman (33.),
2- 1 Spencer (45.), 2-2 McManaman (76.)
Everton-Leeds 2-0
1-0 sjálfsmark (6.), 2-0 Kantsjelskis
(51.)
Manch.Utd-Q.P.R. 2-1
1-0 Cole (44.), Giggs (52.), 2-1 Dichio
(68.)
Nott.For.-Middlesbro 1-0
1-0 Pearce (8.)
Aston Villa-Sheff. Wed frestað
Southampton-Man. City frestaö
West Ham-Newcastle frestað
Nýársdagur:
Coventry-Southampton 1-1
0-1 Heaney (64.), 1-1 Whelan (83.)
Leeds-Blackburn 0-0
Liverpool-Nott. For 4-2
0-1 Stone (13.), 0-2 Woan (18.), 1-2
Fowler (31.), 2-2 Fowler (41.), 3-2
Collymore (62.), 4-2 sjálfsmark (86.)
Manch. City-West Ham 2-1
1-0 Quinn (21.), 1-1 Dowie (75.), 2-1
Quinn (78.)
Middlesbro-Aston Villa 0-2
0-1 Wright (21.), 0-2 Johnson (40.)
Sheff. Wed.-Bolton 4-2
1-0 Kovacevic (22.), 2-0 Kovacevic
(45.), 2-1 Curcic (51.), 3-1 Hirst (54.), 4-1
Hirst (54.), 4-2 Taggart (77.)
Tottenham-Manch. Utd 4-1
1-0 Sheringham (35.), 1-1 Cole (36.), 2-1
Campbell (45.), 3-1 Armstrong (48.), 4-1
Armstrong (66.)
Wimbledon-Everton 2-3
0-1 Ebbrell (1.), 0-2 Ferguson (23.), 0-3
Ferguson (25.), 1-3 Holdsworth (54.)
2-3 Ekoku (72.)
Newcastle 20 14 3 3 40-18 45
Manch. Utd 22 12 5 5 41-27 41
Liverpool 21 11 5 5 40-20 38
Tottenham 22 10 8 4 31-22 38
Aston Villa 20 10 5 5 27-15 35
Arsenal 21 9 7 5 28-18 34
Nott. For 21 8 10 3 32-31 34
Middlesbro 22 9 6 7 23-21 33
Everton 22 9 5 8 32-24 32
Blackburn 22 9 5 8 33-26 32
Leeds 21 9 5 7 28-27 32
Chelsea 21 7 8 6 21-23 29
Sheff. Wed 21 6 7 8 32-32 25
West Ham 20 6 5 9 22-30 23
Wimbledon 22 5 6 11 31-44 21
Southampt. 21 4 8 9 20-31 20
Coventry 21 4 7 10 28-43 19
Man.City 21 5 4 12 12-31 19
Q.P.R. 21 5 3 13 16-31 18
Bolton 22 2 4 16 21-44 10
1. deiid:
Laugardagur:
Huddersfield-Stoke 1-1
Norwich-Reading 3-3
Wolves-Portsmouth 2-2
Nýársdagur:
Derby-Norwich 2-1
Grimsby-Huddersfield 1-1
Ipswich-Port Vale 5-1
Millwall-Leicester 1-1
Portsmouth-Cr.Palace 2-3
Reading-Tranmere 1-0
Southend-Barnsley 0-0
Derby 25 13 7 5 41-29 46
Charlton 24 10 9 5 31-24 39
Leicester 24 10 8 6 40-35 38
Huddersfld 26 10 8 8 36-32 38
Birmingh. 24 10 8 6 34-30 38
Sunderland 22 10 8 4 30-19 38
Southend 25 10 8 7 28-28 38
Grimsby 24 9 10 5 30-27 37
Stoke 25 9 9 7 36-32 36
Millwall 25 9 9 7 26-30 36
Norwich 26 9 8 9 38-33 35
Ipswich 24 8 9 7 44-36 33
Tranmere 23 9 6 8 34-26 33
Barnsley '25 8 9 8 33-41 33
Cr. Palace 23 8 8 7 30-31 32
Oldham 24 7 10 7 34-28 31
Portsmouth 26 7 8 11 40-43 29
Reading 24 6 10 8 31-33 28
Port Vale 25 6 8 11 30-38 26
Wolves 24 5 9 10 30-36 24
W.B.A. 24 7 3 14 2641 24
Watford 23 5 9 9 27-30 24
Sheff. Utd 24 5 6 13 31-43 21
Luton 23 4 7 12 19-36 19
DV
Enska knattspyrnan um áramótin:
Tottenham fór
illa með United
- skellti Man. Utd, 4-1, og staða Newcastle styrktist á ný
Stuart Nethercott og Teddy Sheringham, leikmenn Tottenham, í baráttu við
Frakkann William Prunier sem er í iáni hjá Manchester United frá Bordeaux.
Símamynd Reuter
Tottenham lék Manchester
United grátt í ensku úrvalsdeildinni
í gærkvöldi þegar liðin mættust á
White Hart Lane í London. United
átti möguleika á að minnka forskot
Newcastle í deildinni niður í eitt
stig en leikmenn Tottenham voru á
öðru máli og unnu stórsigur, 4-1.
Newcastle mætir Arsenal í kvöld og
getur náð sjö stiga forystu á ný.
Teddy Sheringham kom Totten-
ham yfir en Andy Cole jafnaði í
næstu sókn með fjórða marki sínu í
jafnmörgum leikjum. Varnarmaður-
inn Sol Campbell skoraði fyrir Tott-
enham í lok fyrri hálfleiks, 2-1, og
Chris Armstrong hóf seinni hálfleik-
inn á marki. Armstrong skoraði síð-
an aftur og glæsilegur sigur Totten-
ham var staðreynd.
Aston Villa vann mikUvægan sig-
ur í Middlesbrough, 0-2, með mörk-
um frá Alan Wright og Tommy
Johnson. Boro tapaði þar með öðru
sinni um áramótin.
Collymore sterkur
gegn Forest
Robbie Fowler og Stan Collymore
afgreiddu Nottingham Forest sem
komst í 0-2 á Anfield í Liverpool eft-
ir aðeins 18 mínútur. Fowler jafnaði
með tveimur mörkum fyrir hlé, eft-
ir sendingar frá Collymore, sem síð-
an skoraði sjálfur, 3-2, og átti fyrir-
gjöf í lokin sem leiddi af sér sjálfs-
mark, 4-2. Fowler hefur nú gert 7
mörk í síðustu þremur heimaleikj-
um Liverpool.
West Ham með yngsta
leikmann deildarinnar
West Ham tefldi fram yngsta leik-
manninum í sögu úrvalsdeildarinn-
ar, markverðinum Neil Finn, sem
varð 17 ára um jólin. Niall Quinn
skoraði tvívegis hjá honum og Man-
chester City vann, 2-1. Harry RedA
knapp, stjóri West Ham, gagnrýndi
stjórn úrvalsdeildarinnar harkalega
fyrir að heimila ekki félaginu að
kaupa markvörð fyrir leikinn. Báðir
aðalmarkverðir West Ham eru
meiddir og hinn ungi Finn er ekki
heldur alheill.
Ferguson frískur eftir
fangelsisdvölina
Duncan Ferguson er greinilega
endurnærður eftir fangelsisdvölina
því hann skoraði tvö marka Everton
í 2-3 sigri á Wimbledon í London.
Darko Kovacevic, annar nýju
Júgóslavanna hjá Sheffield Wednes-
day, skoraði tvívegis í öruggum 4-2
sigri á botnliði Bolton og David
Hirst gerði hin tvö.
Noel Whelan skoraði sitt þriðja
mark í fjórum leikjum með Co-
ventry. Hann lék á sex leikmenn
Southampton áður en hann jafnaði,
1-1, rétt fyrir leikslok.
Shearer fyrstur í
eitt hundrað mörkin
Newcastle gat ekki leikið gegn
West Ham á laugardag vegna
slæmra vallarskilyrða á Upton
Park. Manchester United nýtti sér
það með því að vinna QPR, 2-1, með
mörkum frá Andy Cole og Ryan
Giggs. Peter Schmeichel, markvörð-
ur United, gaf siðan QPR mark þeg-
ar hann sendi boltann beint á
Danny Dichio sem þakkaði fyrir sig
með því að skora auðveldlega.
Alan Shearer skoraði sitt 100.
mark fyrir Blackburn í úrvalsdeild-
inni þegar liðið vann Tottenham,
2-1, og varð fyrstur leikmanna til
þess síðan deildin var stofnuð. She-
arer hefur skorað í öllum 11 heima-
leikjum meistaranna i vetur.
Klaufalegt tap
hjá Bolton
Guðni Bergsson hóf að taka út
þriggja leikja bann þegar Bolton
mætti Coventry í uppgjöri botniið-
anna. Bolton tapaði á dæmigerðan
hátt þegar John Salako skoraði úr
vítaspymu á lokamínútunni, 1-2.
Markvörður liðsins átti alla sök á
markinu því hann reyndi að leika á
leikmann Coventry að ástæðulausu
og felldi hann síðan.
Liverpool komst í þriðja sæti með
2-2 jafntefli gegn Chelsea i London
og þar jafnaði Steve McManaman
tvívegis fyrir gestina. John Spencer
kom Chelsea tvisvar yfir.
Skellur hjá Arsenal
Dennis Bergkamp lék með
Arsenal á ný eftir meiðsli en samt
tapaði liðið óvænt heima fyrir
Wimbledon, 1-3. Tony Adams og
Steve Bould léku ekki i vörn
Arsenal og Robbie Earle nýtti sér
það og skoraði tvívegis.
Stuart Pearce tryggði Nottingham
Forest 1-0 sigur á Middlesbro með
marki úr vitaspyrnu.
Everton lék lengi með 10 menn
gegn Leeds eftir að fyrirliðinn Dave
Watson var rekinn af velli en sigr-
aði samt, 2-0.
Aðeins 12 leikir voru spilaðir í
allri ensku deildakeppninni á laug-
ardag vegna slæmra vallarskilyrða,
þar af 7 í úrvalsdeildinni, en flest
liðin þar eru með upphitaða velii. í
gær var hægt að leika alla leiki í úr-
valsdeildinni en nær öllu var
frestað í neðri deildunum.
-VS
Rangers skoraði 7
Rangers burstaði Hibernian,
7-0, í eina leiknum í skosku úr-
valsdeildinni á laugardaginn.
Gordon Durie skoraði fjögur
markanna og Paul Gascoigne,
besti maður vallarins, gerði eitt
eftir frábæran einleik frá eigin
vallarheimingi.
Hibernian vann síðan granna
sína í Hearts i gær, 2-1, en öllum
öðrum ieikjum um áramótin var
frestað.
Nígería hætti við
Nígeríumenn tilkynntu á laug-
ardaginn að þeir myndu ekki
mæta til leiks í úrslitakeppni
Afríkumóts landsliða I knatt-
spyrnu sem fram fer í Suður-Afr-
íku í þessum mánuði.
Morðhótanir
íþróttamálaráðherra Nígeríu
sagði að morðhótanir hefðu
borist og yfirvöld í Suður-Afríku
gætu ekki tryggt öryggi leik-
manna liðsins í landinu. Níu
menn voru fyrir skömmu líflátn-
ir í Nígeríu af pólitískum ástæð-
um og því hefur verið mótmælt
víða um heim, ekki síst í Suður-
Afríku.
Rush heiðraður
Ian Rush, hinn gamálkunni
leikmaður með Liverpool og
velska landsliðinu, hlaut MBE-
orðu breska heimsveldisins á
laugardaginn, einn af fimm
breskum íþróttamönnum sem
urðu þess heiðurs aðnjótandi í
þetta sinn.
Cryuff þjálfari íra?
Johan Cryuff, þjálfari Barc-
elona á Spáni, er einn þeirra sem
hefur verið orðaður við þjálfara-
stöðuna hjá írska landsliðinu.
Aðrir sem hafa verið nefndir í
þessu sambandi eru Mick
McCarthy, Joe Kinnear og
Kenny Dalglish. Breskir veð-
bankar gera sér mat úr þessu og
líkurnar á að Cryuff verði næsti
þjálfari eru 4:1. Daglish og Kinn-
ear eru með sömu líkur en veð-
bankar tippa á McCarthy en lík-
urnar hjá honum eru 6:4.
Robson refsað
Bryan Robson, framkvæmda-
stjóri Middlesbrough, á yfir
höfði sér refsingu frá enska
knattspyrnusambandinu fyrir að
sýna íþróttinni óvirðingu. Rob-
son hellti sér yfir dómarann eftir
tapleik gegn Blackburn þann 17.
desember, ásamt tveimur leik-
mönnum sínum, Nigel Pearson
og Neil Cox, sem einnig eiga refs-
ingu yfir höfði sér.
Shearer rólegur
Markakóngurinn Alan She-
arer var rólegur yfir 100. marki
sínu fyrir Blackburn á laugar-
daginn. „Auðvitað er ég ánægður
en stigin þrjú skipta meira máii
en þetta mark. Ég tel ekki mörk-
in mín, ég sá það bara i blöðun-
um að ég væri búinn að skora i
öllum heimaleikjunum," sagði
Shearer, sem var fyrirliði gegn
Tottenham í staðinn fyrir Tim
Sherwood, sem var meiddur.
Ríkharður Daðason í KR
Ríkharður Daðason knatt-
spymumaður er genginn í raðir
KR frá Fram og skrifaöi hann und-
ir tveggja ára samning við vestur-
bæjarliðið um helgina.
Ríkharður er 24 ára gamall
sóknarmaður. Hann hefur leikið
allan sinn feril með Fram og á að
baki 101 leik með Fram í 1. deild
og hefur skorað 30 mörk i þeim
leikjum. Þá hefur hann leikið 3 A-
landsleiki, auk þess sem hann hef-
ur leikið með öllum yngri landslið-
unum.
„Það var auðvitað erfitt að yfir-
gefa Fram en þetta var það sem ég
taldi réttast í stöðunni fyrir mig
knattspymulega séð og ég stend og
fell með þessari ákvörðun. Það er
spennandi verkefni sem ég tekst á
við með því að ganga til liðs við
KR. Það eru góðir leikmenn í
hverri stöðu og rúmlega það og
maður verður að byrja á því að
vinna sér sæti í liðinu,“ sagði Rík-
harður í spjalli við DV í gær.
Ríkharður er við nám í Banda-
ríkjunum og heldur utan 11. janú-
ar. Hann segist svo reikna með að
koma heim aftur í kringum 10.
maí.
„Ég held að ég verði kannski
ekki í toppformi þegar ég kem
heim en það mætir skilningi og ég
hef rætt þessi mál við Lúkas Kost-
ic þjálfara. Ég mun reyna að gera
mitt besta og ég held að það taki
ekki langan tíma að komast á
sama ról og aðrir leikmenn liðs-
ins,“ sagði Ríkharður.
Ríkharður er sjötti leikmaður-
inn sem gengur úr röðum Framara
en eins og kunnugt er féll liðið í 2.
deild í haust. Auk Ríkharðar er
Birkir Kristinsson farinn til
norska liðsins Brann, Kristján
Jónsson til Elfsborg í Svíþjóð, Pét-
ur H. Marteinsson til Hammarby í
Svíþjóð, Nökkvi Sveinsson til ÍBV
og Atli Hðlgason til Vikings.
-GH