Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Qupperneq 20
28 t’RIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1996 íþróttir NBA-úrslit Aðfaranótt laugardags: Atlanta-Golden State 96-117 - Sprewell 32, Smith 22, Armstrong 21. Charlotte-Portland 102-99 Burrell 20, Rice 18, Gill 16 - Robinson 26, Sabonis 21. Orlando-LA Clippers 122-98 Shaq 25 - Washingt.-New York (frl.) 127-120 Howard 27, Pack 25, Webber 19 - Ma- son 30, Harper 21. Chicago-Indiana 120-93 Jordan 29, Pippen 23 - Phoenix-Denver 103-92 Tisdale 26, Barkley 19, Finley 19 - Seattle-Boston 124-85 Payton 26, Kemp 24, Hawkins 20 - Fox 14. Sacramento-Philadelphia 117-97 Richmond 20, Williams 18 - Stackhou- se 22, Weatherspoon 21. Aðfaranótt gamlársdags: Utah-LA Lakers 99-82 Malone 24, Homacek 19 - Cleveland-Portland (frl.) 124-121 Phills 43, Brandon 24 - Strickland 22. Detroit-Charlotte (frl.) 102-100 Hill 28 - Johnson 38, Gill 20. Miami-LA Clippers 105-96 Owens 34 - Williams 21. New Jersey-Golden State 110-120 Gilliam 29 - Mullin 25, Seikaly 23. Chicago-Atlanta 95-93 Jordan 33, Pippen 23 - Smith 20, Blay- lock 19. Dallas-Houston 102-105 Dumas 27 - Olajuwon 35. SA Spurs-Minnesota 122-84 Elliott 33, Robinson 23 - Rieder 23. Denver-Philadelphia 108-100 Abdul-Rauf 22, Stith 22 - RufFin 28. Milwaukee-Washington 87-96 Robison 21 - Legler 19. Phoenix-Seattle (frl.) 112-123 Barkley 30, Perry 25 - Hawkins 35, Peyton 24. Vancouver-Boston 103-95 Edwards 26, Anthony 20 - Eder sigraði Elfi Eder sigraði í svigkeppni kvenna i heimsbikamum á laug- ardaginn en hún var haldin í heimalandi hennar, Austurríki. Marianne Kjörstad frá Noregi varð önnur og Kristina Anders- son frá Svíþjóð þriðja. Miroshina látin Jelena Miroshina, sem vann til silfurverðlauna í dýfingum á ólympíuleikunum í Barcelona og varð tvisvar Evrópumeistari, fannst látin framan við ibúðab- lokk í Moskvu á föstudaginn, 21 árs að aldri. Hún bjó á 9. hæð blokkarinnar en engar skýringar hafa verið gefnar á andlátinu. Edwards útnefndur Franska iþróttadagblaðið l’Equipe útnefndi Jonathan Ed- wards, breska heimsmeistarann i þrístökki, „meistara meistar- anna árið 1995“. Edwards stökk fyrstur manna yfir 18 metra í þristökki á nýliðnu ári. Hann varð enn meiri heiðurs aðnjót- andi á laugardag þegar hann var sæmdur MBE-orðu breska heimsveldisins. Gazzetta valdi tvö ítalska íþróttadagblaðið Gaz- zetta dello Sport valdi besta íþróttamann og bestu íþrótta- konu ársins 1995. Fyrir valinu urðu Haile Gebr- esilasie frá Eþíópíu, heimsmeist- ari í 10 þúsund metra hlaupi, og bandaríska hlaupakonan Gwen Torrence. Dormagen sigraði Bæði íslendingaliðin sigruðu í leikjum sínum um helgina í þýsku úrvalsdeildinni i hand- knattleik. Gummersbach, lið Júl- íusar Jónassonar, sigraði Kiel, 21-20, og Dormagen, lið Kristjáns Arasonar, lagði Flensburg, 22-17. Kiel og Massenheim eru efst með 18 stig, Gummersbach er í 4. sæti með 16 og Dormagen, sem á leik til góða, er í 12. sæti með 10 stig. Nick Anderson, hinn snjalli leikmaður Orlando, í baráttu undir körtu LA Clippers um helgina. Loy Vaught er til varn- ar. Orlando vann stórsigur, sinn 23. í röð á heimavelli. Símamynd Reuter Lokaleikir ársins 1995 í NBA-deildinni: Chicago slapp fyrir horn á heimavelli Chicago Bulls hélt sigurgöngu sinni áfram á heimavelli i vetur þeg- ar liðið lagði Atlanta Hawks að velli aðfaranótt gamlársdags, 95-93. Chicago komst þó í hann krappan í leiknum. Luc Longley skoraði úr tveimur vítaskotum fyrir Chicago 20 sekúndum fyrir leikslok og það reyndust vera sigurstigin því Steve Smith, leikmaður Atlanta, átti þrjú skot sem öll geiguðu. Michael Jord- an og Scottie Pippen voru í aðalhlut- verkum hjá Chicago, Jordan með 33 og Pippen 23, og Chicago hefur unn- ið alla 15 leiki sína á heimavelli í vetur. Sam Cassell tryggði meisturunum Houston sigur á Dallas þegar hann skoraði sigu.rkörfuna af löngu faéri um leið og leiktíminn rann út en áður hafði Dallas tekist að jafna metin með 3ja stiga körfu þegar 2,2 sekúndur liföu af leiknum. Hakeem Olajuwon skoraði 35 stig og þar af 18 í síðasta leikhlutanum. Seattle vann sinn fimmta sigur í röð þegar liðið lagði Phoenix í fram- lengdum leik. Hersey Hawkins skor- aði 35 stig fyrir Seattle en hjá Phoenix var Charles Barkley með 30 stig en fékk sína sjöttu villu skömmu fyrir lok venjulegs leik- tíma. Grant Hill var maðurinn á bak við sigur Detroit á Charlotte í fram- lengdum leik. Hill skoraði 28 stig og skoraði 3ja stiga körfu þegar 50 sek- úndur voru eftir af framlenging- unni. Billy Owens átti mjög góðan leik þegar Miami lagði LA Clippers. Ow- ens skoraði 34 stig, tók 10 fráköst og átti 4 stoðsendingar. Bimbo Coles var góður á lokasprettinum og skor- aði 7 stig fyrir Miami á 2 mínútum. New Jerseý tapaði fiórða leik sín- um í röð á heimavelli þegar liðið fékk Golden State í heimsókn. Chris Mullin var stigahæstur hjá Golden State með 25 stig. Armon Gilliam var með 29 stig fyrir New Jersey. Framlengja þurfti leik Cleveland og Portland í tvígang til að fá úrslit. Bobby Phills átti stórleik fyrir Cleveland'og skoraði 42 stig. Sean Elliott skoraði sjö 3ja stiga körfur þegar San Antonio Spurs ger- sigraði Minnesota með 38 stig mun. Þetta var níundi sigurleikur SA Spurs á Minnesota sem var að tapa sínum 8. leik af síðustu níu. Karl Malone skoraði 24 stig fyrir Utah Jazz og komst þar með upp fyr- ir 22.000 stiga múrinn í NBA. Malone hefur skorað 22.002 stig í deildinni og er í 14. sæti yfir stiga- hæstu leikmenn frá upphafi. Óvæntur sigur hjá Washington Fæstir áttu von á þvi að Was- hington tækist að sigra New York aðfaranótt laugardagsins. Was- hington hafði tapað 15 sinnum í röð gegn New York og aðeins unnið eina af síðustu 22 viðureignum félag- anna. En Washington tókst það eftir framlengingu, 127-120. Það var Ro- bert Pack sem tryggði Washington þennan merka sigur með þvi að skora úr 9 vítaskotum af 10 á síð- ustu 40 sekúndum framlengingar- innar. Patrick Ewing lék ekki með New York en hann meiddist á ökkla i leik gegn Cleveland kvöldið áður. Chris Webber, sem er nýbyijaður að leika með Washington eftir slæm meiðsli á öxl, fór af velli í framlengingunni þegar hann féll á sömu öxlina en meiðslin reyndust ekki alvarleg. Chicago hefndi fyrir ósigurinn gegn Indiana fyrr í vikunni og vann 27 stiga sigur í viðureign liðanna. „Það var fyrst og fremst góð vörn sem tryggði okkur sigurinn," sagði Michael Jordan sem skoraði 29 stig fyrir Chicago. Boston fékk sinn versta skell í tæp 30 ár, tapaði með 39 stiga mun fyrir Seattle, 124-85, og skotnýting liðsins var 33 prósent. Orlando vann sinn 23. heimaleik í röð, nú gegn Clippers, og Shaquille O’Neal skoraði 25 stig og tók 10 frá- köst. -GH/VS Körfubolti: Gefa okkur byr undir báða vængi DV, Akranesi: „Leikurinn einkenndist af því að menn voru orðnir leiðir á að spila hver við annan. Við spiluð- um af skynsemi í seinni hálfleik og hittum vel úr þriggja stiga skotunum og það var mjög ánægjulegt að sigra í öllum þremur leikjunum. Þessir leikir gefa okkur byr undir báða vængi fyrir Evrópukeppnina í vor,“ sagði Jón Kr. Gíslason, þjálfari íslenska landsliðsins í köfuknatt- leik, við DV eftir sigur á Eistum, 87-80, í þriðja landsleik þjóðana á jafnmörgum dögum á Akranesi á föstudagskvöldið. Guðmundur Bragason og Teit- ur Örlygsson fóru fyrir íslenska liðinu og góður leikur þeirra I síðari hálfleik, þar sem þeir skoruðu 34 af 44 stigum liðsins tryggðu íslendingunum sigur. -DÓ Ísland-Eistland (40-36) 87-80 8-12, 16-25, 27-27, 31-31 (40-36), 44-42, 53^46, 60-57, 81-77,87-80. Stig íslands: Guðmundur Braga- son 26, Teitur Örlygsson 24, Guðjón Skúlason 14, Hermann Hauksson 7, Hinrik Gunnarsson 6, Hjörtur Harð- arson 5, Jón Amar Ingvarsson 3, Fal- ur Haðarson 2. Stig Eistlands: Klavnukk 27, Saksakulum 14, Kandimaa 9, Luvak 9, Kábin 9, Varblame 8, Seli 2, Renter 2. Fráköst: ísland 41, Eistland 41. 3ja stiga körfur: ísland 8, Eistland 4. Dómarar: Kristinn Albertsson og Atsu Matsolo, góðir. Áhorfendur: 150. Maður leiksins: Guðmundur Bragason. Naumt tap hjá stúlkunum DV, Akranesi: „Við hljótum að hafa lært eitt- hvað af leikjunum tveimur á undan fyrst við stóðum okkur svo vel í síðasta leiknum. Það býr mikið í þessu liði og það á eftir að verða betra seinna meir,“ sagði Sigurður Ingimund- arson, þjálfari islenska kvenna- landsliðsins í körfuknattleik, við DV eftir að liðið hafði tapað með tveggja stiga mun, 58-60, fyrir Eistlandi á Akranesi á föstudags- kvöldið. íslensku stúlkurnar komu mjög ákveðnar til leiks og ætl- uðu ekki að láta þær eistnesku endurtaka það sem gerðist í fyrri tveim leikunum en þær unnu stóran sigur. Leikurinn var mjög jafn og tókst eistnesku stúlkun- um að inbyrða sigur á lokasek- úndunum. Anna María Sveinsdóttir var best í íslenska liðinu og skoraði 20 stig. Linda Stefánsdóttir átti einnig góðan leik en hún skoraði 10 stig og Björg Hafsteinsdóttir var með 13 stig. -DÓ Knattspyrna: Sigur á Belgum og tap gegn Grikkjum íslenska U-17 ára landsliðið í knattspyrnu lék tvo leiki um helgina á sex landa mótinu í ísrael. Fyrri leikurinn var gegn Belgum og sigruðu íslensku strákamir, 2-1. Belgar skoruðu fyrsta markið en Haukur Hauks- son jafnaði metin og Ámi Ingi Pjetursson skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu. Á gamlársdag töp- uðu svo íslendingar fyrir Grikkj- um, 0-1. í dag leikur íslenska liðið gegn Ungverjum og gegn ísraelsmönn- um í síðasta leik sínum á fimmtudaginn. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.