Dagblaðið Vísir - DV - 02.01.1996, Side 21
ÞRIÐJUDAGUR 2. JANÚAR 1996
Fréttir
Kirkjulóöin í Keflavík:
Úrskuröur
biskups kærður
- dóms- og kirkjumálaráðuneyti mun skoða kæruna
DV, Suðurnesjum:
Nokkrir menn í Keflavíkursókn,
sem eru í áhugahópi um vemdun
kirkjulóðarinnar í Keílavik, hafa
kært úrskurð biskups íslands til
dóms- og kirkjumálaráðherra um
lögmæti atkvæðagreiöslu í Keflavík-
ursókn 26. febrúar í ár um byggingu
safnaðarheimilisins á lóðinni. I at-
kvæðagreiðslu var samþykkt ný til-
laga sóknarnefndar með 295 atkvæð-
um gegn 190. Á kjörskrá voru 5400.
Kærendur lögðu fram kærur 28.
febrúar og 2. mars til yfirkjörstjóm-
ar Kjalamesprófastsdæmis og gerðu
þar kröfu um að kosning aðalsafh-
aðarfundar um hina nýju tillögu að
byggingu safnaðarheimilisins yrði
ógilt vegna annmarka á undirbún-
ingi og skipulagi. Af hálfu kærenda
er fullyrt að sumum kjósenda hafi
verið hleypt inn á kjörfund eftir lok-
un en öðmm ekki. Þeir segja að 300
manns hafi beðið fyrir utan Kirkju-
lund í Keflavík í slæmu veðri, roki
og slyddu. Kærendur vita um marga
sem þurftu að hverfa frá vegna veð-
ursins. Kærendur segjast vita um
einstaklinga sem geta borið vitni.
Einnig hafa kærendur myndband og
þar má sjá ringulreið við atkvæða-
greiðsluna og aðstæður á kjörfundi.
Yfírkjörstjórn Kjalarnesprófasts-
dæmis komst að þeirri niðurstöðu
16. mars að atkvæðagreiðslan hafi
farið fram á lögmætan hátt. Biskup
íslands staðfesti síðan að ákvörðun
yfírkjörstjómar skuli standa.
Deila þessi hófst í febrúarmánuði
1992. Embætti Þorsteins Pálssonar
dóms- og kirkjumálaráðherra mun
taka kæru kærenda til skoðunar.
-ÆMK
...Einn á dag
Línurnar í lag...
Megrunarplásturinn sem sló öll met hjá
Sjónvarpsmarkaðinum nú fáanlegur beint.
4 VIKNA PKN KR. 2.490
8 VIKNA PKN KR. 4.490
TÍTANhf
Lágmúla 7-108 Reykjavík
Sími 581 4077 - Fax 581 3977
Frí heimsending um allt land ef greitt er með VISA/EURO
TITANhf
Jlido GYM
Davíð Jónsson, búfjárfræðingur frá
Noregi, hefur þýtt norskt tölvuforrit
á íslensku og er að markaðssetja
það hér á landi. Forritið er gott tii
leiðbeiningar við fóðrun hrossa, að
hans sögn. DV-mynd GVA
ÓlafsQörður:
Konur í Rótaryklúbbnum
DV, Ólafsfirði:
Rótaryklúbbur Ólafsfjarðar, sem í
40 ár hefur í raun verið lokað karla-
veldi, gerði í síðustu viku róttæka
breytingu á starfsemi sinni; - sam-
þykkti að leyfa konum inngöngu í
klúbbinn. Þar með er klúbburinn sá
fimmti á landinu - af 26 - sem sam-
þykkir þessa breytingu.
Rótaryklúbbur Ólafsfjarðar hefur
löngum tekið virkan þátt í nem-
endaskiptum, sérstakalega við Ástr-
alíu, og hefur verið einn virkasti
klúbbur landsins á því sviði. Þá hef-
ur klúbburinn tekið að sér lýsingu á
kirkjugarðinum yfir jólahátíðina.
Nýtt tölvuforrit leiðbeinir
við fóðrun hrossa
„Þetta forrit er hægt að nota til
leiðbeiningar við fóðrun hrossa, til
að fylgjast með verðlagningu á fóðr-
inu og jafnvel að fylgjast með vexti
unghrossa og hryssum sem eru
komnar að köstun. Með því að slá
inn nafn hrossins, þyngd, fæðingar-
ár og þjálfunarstig og velja um fóð-
urtegund reiknar forritið út fóður-
þörfina,“ segir Davíð Jónsson, bú-
fjárfræðingur frá Noregi, en hann
hefur þýtt norskt tölvuforrit á ís-
lensku og ætlar að markaðssetja hér
á landi.
Norska forritið hefur verið notað
í nokkur ár á landbúnaðarháskólan-
um að Ási í Noregi og reynst þar
ágætlega, að sögn Davíðs, en það
voru einmitt tveir Norðmenn, dýra-
læknir og fóðurfræðingur, sem
hönnuðu forritið. Þá notaði kennari
við Bændaskólann að Hvanneyri
norsku gerðina af forritinu í fyrra.
„Forritið sýnir hvort þörfm pass-
ar við það sem ætlunin er að gefa
hrossinu, öll steinefni og vítamín.
Það sýnir líka fóðurkostnað á dag.
Með þessu móti geta hrossaeigend-
ur oröiö meðvitaðri um hvað þeir
eru að kaupa og hugsanlega sparað
peninga, til dæmis með því að
minnka hey og auka fóðurbæti,"
segir hann.
Davíð segir aö með forritinu geti
eigendur hrossa gert fóðuráætlun
fyrir allan veturinn, fylgst með fóðr-
uninni og endurmetið áætlunina
reglulega.
„Auðvitað er ekki hægt að forrita
hrossin. Þau þurfa mismikið af
fóðri en auðvitað er hægt að styðj-
ast við forritið við fóðurgjöf,“ segir
hann. -GHS
-fyrir unga sem aldna
VERTU VEL VIRKUR Í
VETUR 0G BJÓDDU
ÖLLU BIRGINN.
HJÁ 0KKUR FÆRÐU
FÍNT F0RM 0G
FL0TTAR LÍNUR FYRIR
FÁEINAR KRÓNUR.
-. eð Trimlorm helur náðst
mjög góöur árangur til |
ningar.aHtaðlOsmi
mitti ettir tíu tsna i
lun. f baráttunni við QeiuBte"
(appeisínuhúð) tietur náðst
mjög góður árangur mað
Trimlorm.
Trlmform er mjög gott tii
þe8s að þjálta upp aBa vöðva
líkamans, s.s. magavöðva,
iæri, handloggsvöðva o.lL
Aflt. Við bjóðum ókeypis pru-
futíma. Komið og prófið því
þið sjáið árangur strax.
Einnlg hölum við náð mjög
goðinn arangri við vöðvabol-
gu og þvagleka. Við orum
læroar i ramuuui. Hrmgio og
fálð nánari upplýslngar um
Trimform í síma Í53 3818.
TRIMFORM
Grensásvegi 50, síml 668 8818. Berglindar
p ÞREKSTIGAR
— FULLKOMIN LfKAMSRÆKT
— JUDO
— JIU-JITSU
— sjAlfsvörn
— TAEKWONDO
ÞJÁLFARI: MICHAEL JORGENSEN, 4. DAN
— FITUBRENN8LA
L- rAðqjöf um mataræði
... og svo á eftir - Ijós og sauna
láttu sjá þig semfyrst
Landsvirkjun:
Hlutur Akureyr-
arbæjar falur ef
kaupandi finnst
DV, Akureyri:
„Meirihlutinn í bæjarstjórn er
opinn fyrir því að selja eignarhlut
bæjarins í Landsvirkjun og raun-
ar er það stefna meirihlutans ef
kaupandi finnst," segir Gísli
Bragi Hjartarson, bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins í meirihluta bæj-
arstjómar Akureyrar.
Akureyrarbær á 5% eignarhlut
í Landsvirkjun, Reykjavíkurborg
45% og ríkiö 50%. „Ég vil halda
því fram að eignarhlutur bæjarins
í þessu fyrirtæki sé upp á einn og
hálfan milljarö króna en menn
hafa fengið ýmsar útkomur úr því
dæmi eftir því hvemig er reiknað.
Okkar hagur af aö eiga þennan
hlut er fyrst og fremst sá aö við
fáum aöeins hagstæðara heild-
söluverð á raforkunni frá Lands-
virkjun en flestir aðrir. Ég held að
það sé um 5% lægra en þrátt fyrir
það erum við opnir fyrir sölu á
þessum hlut okkar,“ segir Gísli
Bragi. -gk
HEILSURÆKTARBOMBA