Dagblaðið Vísir - DV - 24.01.1996, Blaðsíða 20
40
MIÐVIKUDAGUR 24. JANÚAR 1996
Sviðsljós
DV
Fyrirsæta á vegum Christian Dior sýnir hér kvöldkjól ás
tískuhönnuðinn Gianfranco Ferre en vor- og sumartískai.
í París í fyrradag. Sím..
: 'Rir
Missti meydóminn
í rúmi foreldranna
Teri Hatcher, sem leikur í sjón-
varpsþáttunum um ævintýri Súper-
manns, segist hafa misst meydóm-
inn þegar hún var 16 ára gömul, í
hjónasæng foreldra sinna. Teri
fannst sú upplifun ekki vera neitt
sérstök en kærastinn þá var fót-
boltakappi aö nafni Kevin Lyon. En
þrátt fyrir heldur brösótta byrjun í
ástarlifinu eru Teri og Kevin bestu
vinir í dag. Og Teri hefur væntan-
lega fundið taktinn í hjónasæng-
inni, sinni eigin, enda nýlega gift og
að sögn mjög hamingjusöm.
Mel Gibson til-
nefndur aftur
Mel Gibson virðist vera í mikl-
um metum vestur í Hollywood
þessi misserin, að minnsta kosti
sem leikstjóri. Hann var varla
búinn að jafna sig á þeirri
óvæntu ánægju að fá Golden Glo-
be verðlaun sem besti leikstjór-
inn fyrir Braveheart, þegar hann
frétti aö hann væri tilnefndur,
fyrir sömu mynd, til verðlauna
sem samtök leikstjóra veita. Ef
hann fær síðamefndu verðlaunin
þykir næsta öruggt að hann hirði
óskarinn fyrir leikstjóm í mars.
jSST
Qsk
Grisham aftur
í réttarsalinn
John Grisham var starfandi
lögfræðingur áður en hann varð
heimsfrægur margmilljónari fyr-
ir spennuskáldsögur sínar. Hann
hafði þó ekki stigið fæti inn í
réttarsal í sjö ár í öðm hlutverki
en áhorfandans þegar hann birt-
ist um daginn sem fulltrúi ekkju
nokkurrar í Missisippi. Eigin-
maður konunnar hafði látist í
vinnuslysi við jámbrautir fylkis-
ins áriö 1991 og vill ekkjan fá
bætur. Hún hafði beðið Grisham
um að taka málið að sér áður en
hann varð frægur rithöfundur.
Þess má svo geta að nýjasta
skáldsaga Grishams, The Rain-
maker, er í efsta sæti vinsælda-
lista vestanhafs.
Fyrirsætan Jodie Kidd þykir með afbrigðum horuð en samt segist hún aldrei
hafa farið í megrun.
Aukablað um
Midvíkudaginn 31. janúar mun
aukablað um skatta og fjármál
fylgja DV.
Blaðið verður fjölbreytt og efnismikið en í því verð-
ur fjallað um flest það er viðkemur sköttum og fjár-
málum heimilanna.
Meðal efnis er skattframtal, húsnæðislán, heima-
banki, kreditkort, greiðsludreifing, leiðir til
sparnaðar o.fl.
Þeim sem vilja koma á framfæri upplýsingum og
efni í blaðið er bent á að senda upplýsingar til Evu
Magnúsdóttur, DV, fyrir 24. janúar.
Bréfasíminn er 550-5999.
Þeir auglýsendur sem hafa áhuga á að auglýsa í
þessu aukablaði vinsamlega hafi samband við Selmu
Rut Magnúsdóttur eða Arnar H. Ottesen, auglýs-
ingadeild DV, hið fyrsta í síma 550-5722.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagur 25. janúar.
Auglýsingar
E- símissnsnnn b»
Sími 550 5000, bréfasími 550-5727.
Holdafar fyrirsætunnar Jodie Kidd veldur áhyggjum:
Borðar eins og hross
en er samt grindhoruð
„Það er alvag sama hvað ég borða
mikið, ég þyngist bara ekki neitt. Ég
hef aldrei farið í megrun. Þess hefur
heldur ekki gerst þörf,“ segir ofur-
fyrirsætan, sem einu sinni var,
Jodie Kidd. Hún er núna orðin svo
horuð að tískuhúsin eru hætt að
hafa samband við hana og foreldrar
hennar hafa miklar áhyggjur af líð-
an hennar.
„Hún er of horuð og hún veit það.
Sem faðir hennar hef ég þungar
áhyggjur af þyngd hennar. Ég hef þó
ekki áhyggjur af anorexíu eða neinu
slíku þar sem hún borðar eins og
hross,“ segir faðir Jodie, milljóna-
mæringurinn Johnny Kidd.
Myndir sem voru teknar af Jodie
nýlega þar sem hún var að sóla sig
í Karíbahafinu sýna, svo ekki verð-
ur um villst, að stúlkan á í veruleg-
um vanda. Hún lítur miklu fremur
út sem fórnarlamb hungursneyðar í
einhverju Afríkuríkinu en hálaun-
uð fyrirsæta, þótt þær séu sosum
alltaf mjóar.
Næringarfræðingurinn Luci
Daniels segir að Jodie verði aö vara
sig. „Það er í hæsta máta óvenjulegt
að borða eins og hross og þyngjast
ekki neitt,“ segir hún. „Ég kenni i
brjósti um Jodie. Hún var með
heiminn innan seilingar en núna er
hún búin að missa það allt frá sér af
þvi að hún fór yfir línuna sem skil-
ur á milli þess sem almenningur
sættir sig við og þess sem hann
hafnar, rétt eins og Kate Moss.“
Jodie, sem er rúmir 180 sentí-
metrar á hæð, vegur núna tæp
fimmtíu kíló en ætti að vera milli
sextíu og sjötíu ef allt væri með
felldu.