Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Qupperneq 2
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996
2 fréttir
Egill Ásgrímsson pípulagningameistari slapp ótrúlega vel frá vinnuslysi:
Kom niður a hofuðið
úr fimm metra falli
- fékk þrjá litla skuröi á höfuðið og segist hafa fengið „lottóvinning“
„Ég tel mig hafa fengið lottóvinn-
ing. Það er ótrúleg heppni að sleppa
lifandi frá fallinu því ég lenti á höfð-
inu í steingófinu,“ segir Egill Ás-
grímsson, pípulagningameistari í
Reykjavík, í samtali við DV.
Egill var í gærmorgun að vinna í
nýjum kennslustofum sem verið er
að ganga frá við Menntaskólann í
Kópavogi. Hann notaði vinnupall á
hjólum til að komast upp i rjáfur í
um fimm metra hæð.
Fyrir vangá setti Egill ekki
bremsurnar á hjólin á pallinum.
Rann pallurinn undan honum þegar
upp var komið. Egill náði engri
handfestu og steyptist beint á höfuð-
ið í steingólfið fimm metnim neðar.
„Það er venjulega svo þegar slys-
in verða að einhverjum verður á í
messunni. í þessu tilviki get ég sjálf-
um mér um kennt að hafa ekki sett
bremsurnar á,“ segir Egill.
Hann segist ekki hafa rotast við
höggið þegar hann kom niður í gólf-
ið. Hins vegar blæddi mikið og
töidu vinnufélagar Egils að hann
væri stórslasaður. Agli var ekið í
skyndi á slysadeild Borgarspítalans
en þar kom í ljós að sár hans voru
ekki alvarleg.
Egill fékk að fara heim eftir fárra
tíma veru á slysadeildinni. Sauma
varð átta spor í þrjá skurði á höfði
hans. Hann sagðist í gær vera lerk-
aður og aumur eftir fallið en liði
annars ekki illa.
„Ég er ekki einu sinni með höfuð-
verk. Það er rnerkilegt enda kalla ég
það lottóvinning að sleppa svona frá
þessu,“ sagði Egill.
-GK
Mögulegt verðmæti sameignar þjóðarinnar:
Eins mætti spyrja
um verðmæti
Mónu Lísu
- segir Sveinn Hjörtur, hagfræðingur LÍÚ
„Það eru margir fletir á þessu
máli. Einhverjir 150 milljarðar segja
í rauninni ekki neitt. Undirstaða
efnahagslífs þessa eyríkis er fiskur-
inn í sjónum. Hvers virði er það fyr-
ir þjóðina? Það er þess vegna hægt
að segja að 150 milljarðar séu bara
lág upphæð og fara enn hærra,“
sagði Sveinn Hjörtur Hjartarson,
hagfræðingur LÍÚ, í samtali við DV
vegna úttektar blaðsins á verðmæti
helstu fiskstofna á íslandsmiðum.
Þar kom fram, miðað við afla yfir-
standandi fiskveiðiárs og kvótaverð
í dag, að söluverðmæti sameignar
þjóöarinnar væri 150 milljarðar
króna og leiguverðmætið 26 millj-
arðar.
Sveinn sagðist ekki hafa á reiðum
höndum mælikvarða til að mæla
verömæti fisksins í sjónum. Eins
mætti spyrja hvers virði málverkið
af Mónu Lísu væri. „Þetta er eitt-
hvað sem hefur órætt verðgildi."
Sveinn benti á að útgerðin væri í
dag að greiða ýmsar álögur. Þar
nefndi hann framlag til þróunar-
sjóðs sjávarútvegsins, tryggingar-
gjald, veiðieftirlitsgjald og viöbót
við slysatryggingar sjómanna. Allt
væru þetta álögur upp á hundruð
milljóna króna árlega.
„Úmræða um að útgerðin sé að
hafa einhverja tugi milljarða af
þjóðinni er öfgafull og skekkir
myndina. Það eru engin hagræn rök
fyrir því að auðlindaskattur bæti
arðsemina í greininni. Er hagsmun-
um þjóðarinnar betur borgið með
því að byggja upp sjávarútveginn og
leyfa honum að blómstra eða að fara
aftur í gamla farið og drepa þessa
atvinnugrein í dróma með því að
hirða allan afrakstur beint í’ríkis-
sjóð?“ sagði Sveinn Hjörtur.
-bjb
Skuggastjórn í Dagsbrún
Menn af B-lista Dagsbrúnar hafa
stofnað skuggastjórn Dagsbrúnar
sem mun starfa fram yfir næstu
kosningar í Dagsbrún sem verða
væntanlega að ári. Þetta eru vinn-
andi Dagsbrúnarmenn sem eru
staðráðnir í að veita þeirri stjórn,
sem tekur við á næsta aðalfundi
Dagsbrúnar, strangt aðhald og
harða stjórnarandstöðu. Skugga-
stjórnin mun krefjast þess að ný
stjórn vinni á heiðarlegum og lýð-
ræðislegum grunni.
Skuggastjómin mun koma saman
til fundar fyrsta þriðjudag í hverj-
um mánuði. „Við munum starfa í
skugga nýju stjórnarinnar en erum
tilbúnir að veita henni ljós fram á
veginn," sagði Kristján Árnason en
hann og Sigurður Rúnar Magnús-
son eru í forsvari fyrir þessari
skuggastjórn. Kristján sagði að
þetta væri gert að áeggjan fjöl-
margra Dagsbrúnarmanna.
-ÞK
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hring/a í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já _lj
Nei _2j
r ö d d
FÓLKSINS
904-1600
mm
Á Sjónvarpið að spara
með því að hætta þátttöku
í Evrópusöngvakeppninni?
Egill Ásgrímsson pípulagningameistari líkir því við lottóvinning að hafa sloppið lifandi frá fimm metra falli í gær.
Hann kom niður á höfuðiö en slapp með skrámur. Svava Svávardóttir, kona hans, hjúkraði bónda sínum heima í gær.
DV-mynd GS
Verömæti sameignar þjóöarinnar:
Úttekt DV athyglisverö
og gefur vísbendingu
- segir Ágúst Einarsson, þingmaöur Þjóövaka
„Mér fannst þetta athyglisverð út-
tekt. Hins vegar þarf aö hafa í huga
að viðskiptin, enn sem komið er,
eru í tiltölulega litlu magni. Ef
framboð á þessum markaði eykst
mun verð á hverri einingu lækka.
Samt sem áður geta heildarviðskipt-
in orðið mjög umtalsverð, eins og
fram kemur í úttektinni. Það er erf-
itt að spá um framtíðina hvað þetta
varðar þar sem það fer mjög eftir
ástandi fiskstofnanna.
Eftir því sem þeir braggast má
búast við að verð á veiðiheimildum
lækki,“ sagði Ágúst Einarsson,
þingmaður Þjóðvaka, í samtali við
DV um úttektina sem blaðið birti á
fimmtudag um verðmæti helstu
fiskstofna þjóðarinnar miðað við
Kanadíska leiguflugfélagið
Canada 3000 hefur fengið leyfi sam-
gönguráðuneytisins til að selja hér
á landi í tvær ferðir á viku til
Kanada. Félagið hafði sótt um að fá
að selja í sjö ferðir á viku en því var
hafnað vegna svokallaðrar jafnræð-
isreglu þar sem Flugleiðir eru með
tvær ferðir frá Kanada til íslands.
Steinþór Jónsson, umboðsmaður
Canada 3000 á íslandi, sagðist í sam-
tali við DV vera sáttur við niður-
stööu ráðuneytisins. Þetta væri
byrjunin á flugi til Kanada og síðar
gætu opnast möguleikar á því að
selja í fleiri ferðir í viku hverri.
„Þetta er mjög gott mál. Við get-
afla og kvótaverð í dag.
Ágúst sagði úttektina gefa vís-
bendingu um verðmæti auðlindar-
innar og styrkti þá umræðu að
sanngjarnt sé að taka gjald fyrir
þær veiðiheimildir sem stjórnvöld
væru nú að úthluta ókeypis.
„Úttektin styður þá hugmynda-
fræði þegar ljóst er hvílíkar tölur
eru þarna að baki, þó svo að þær
séu settar fram með öllum fyrirvör-
um eins og eðlilegt er. Við verðum
að gera okkur grein fyrir því að
verðmætasköpun islensks sjávarút-
vegs er um 85 milljarðar á ári. Fjár-
festingar í sjávarútveginum á síð-
asta ári voru upp á um 5!4 milljarð.
Þetta er því mjög umsvifamikil at-
vinnugrein. Það kemur ef tU vill
um ráðið hvaða daga við seljum og
haft það mismunandi milli vikna.
Þetta verða einkum ferðamenn sem
nýta sér flugið þannig að það breyt-
ir ekki öllu hvort farið er á t.d.
þriðjudegi eða fimmtudegi. Við
munum að sjálfsögðu vinna í því að
fá leyfi fyrir fleiri ferðum. Það kem-
ur vonandi síðar, sem og leyfi fyrir
flugi til Evrópu," sagði Steinþór.
Hann sagði það skýrast fljótlega
hvaða gjaldskrá yrði á fluginu tU
Kanada en Samvinnuferðir-Land-
sýn sjá um farmiðasöluna fyrir
Canada 3000. ÁæUað er að hefja
flugið um mánaðamótin aprU-maí.
-bjb
mörgum á óvart hvað tölurnar eru í
reynd háar,“ sagði Ágúst. -bjb
stuttar fréttir
Gunnar til Moskvu
| Gunnar Gunnarsson sendi-
herra hefur afhent Leonid Kuc-
f hman, fbrseta Úkraínu, trúnað-
| arbréf sitt sem sendiherra í
j Úkraínu með aðsetur í Moskvu.
Sendiherra Breta
Bretadrottning hefur sam-
þykkt útnefningu Mr. James
McCullosch sem sendiherra
Breta á íslandi.
Sendiherra í Portúgal
3 Sverrir Haukur Gunnlaugs-
j son hefur afhent Mario Soares,
i forseta Portúgals, trúnaðarbréf
sitt sem sendiherra íslands í
j Portúgal með aðsetur í París.
Sveinbjörn I. hættur
Sveinbjörn I. Baldvinsson
hefur sagt upp störfum hjá
Sjónvarpinu vegna Eurovision.
RÚV greindi frá.
Langholtsdeilan
Sóknarnefhd Langholtssókn-
ar vill halda almennan safnað- '
arfund um deilumálin í kirkj-
unni. Biskup er mótfallinn.
RÚV greindi frá. I
Samið um kvóta
? íslendingar hafa náð sam- )
kranulagi um að taka ákveðinn
kvóta úr norsk-íslenska síldar-
:! stofninum, 244 þúsund tonn,
: samkvæmt fréttum Stöðvar tvö’
-ÞK
Canada 3000 fær flugleyfi:
Fengu tvær ferðir á
viku en sóttu um sjö
- umboðsmaður félagsins sáttur