Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Síða 4
fréttir
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996 DV
Veiðar íslendinga á helstu úthafssvæðum:
Rösklega 30 milljarða
króna verðmæti í húfi
- miðað við úthafsveiðar á síðasta ári og söluverð kvóta
Ef miðað er við kvótaverö helstu
fisktegunda innan landhelginnar er
verðmæti úthafsveiða íslendinga
ríflega 30 milljarðar króna á árs-
grundvelli. Um er að ræða þorsk-
veiðar í Smugunni, veiðar á norsk-
íslenska síldarstofninum í Síld-
arsmugunni, karfaveiðar á Reykja-
SL 085X þvottavél:
• Tromla m be^ur úr rybfriu stáli
•18þvottakeffi(sérullárkerfi)
• Vmduhraöi 850 snún. á mín.
• Raíeindastýrftur vindu/hleftsluskynjari
• Stiglaus hitast, stiH. fyrir hálfa vél ojnfL
• Hæft:85 Breidd:59,5 Dýpt53 cm
OCKX'i
SL 012X þvottavél:
• Tromla oq befö úr ryftfríu stáli
• 18 þvottakerfi (sér ullarkerfi)
• Vinauhrafti 1200 snún. á mín.
• Rafeindastýrftur vindu/hleftsluskynjari "
• Stiglaus hitastillir, spamaftarrofi o.m.fl. ‘
• Hæft:85 Breidd:59,5 Dýpt:53 cm
SL 012WD þvottavél og þurrkari:
• Tromla og beigur úr ryftfríu stáli
• 18 þvottakerfi (sér ullarkerfi)
• Vmduhrafti 1200 snún. á mín.
• Rafeindastýrfturvindu/hleftsluskynjari
• Stiglaus hitastillir, spamaftarrofi o.m.fl.
• Haeft:85 Breidd:59,5 Dýpt:53 cm
Skipholti 19“
Sími: 552 9800
MXS.RMGREIOSLUR
neshrygg og nágrenni og rækjuveið-
ar í Flæmska hattinum og á Dohm-
banka. Útreikningurinn er gerður á
sömu forsendum og í DV á fimmtu-
dag þegar verðmæti helstu fiskteg-
unda innan lögsögimnar var metið í
tilefni af umræðunni um veiðileyfa-
gjald.
Aðeins bráðabirgðatölur liggja
fyrir um veiði síðasta árs á þessum
svæðum. Veiðar í Smugunni voru
um 34 þúsund tonn. Miðað við 540
króna söluverð pr. kiló af þorsk-
kvóta gera það um 18,4 mifljarða
króna verðmæti.
í Síldarsmugunni veiddu íslend-
ingar um 173 þúsund tonn úr norsk-
íslenska síldarstofninum á siðasta
ári. Verðmæti þess afla yrði tæpir
4,9 milljarðar ef reiknað er út frá
söluverði síldarkvóta i dag, sem er
um 28 krónur kílóið.
Veiðar á úthafskarfa á Reykjanes-
hrygg og næstu úthafsveiðisvæðum
voru um 29 þúsund tonn í fyrra.
Miðað við 160 króna kílóverð á seld-
um kvóta er verðmæti karfans um
4,6 milljarðar króna.
Bráðabirgðatölur sýna 7.400
tonna veiði íslenskra skipa á úthafs-
rækju í Flæmska hattinum á síðasta
ári. Verðmæti þess afla yrði um 2,5
milljarðar miðað við 340 króna kíló-
verð á seldum kvóta á markaði í
dag.
Rækjuveiðar á Dohrnbanka
námu 1.150 tonnum í fyrra. Þær
myndu gefa tæplega 400 milljóna
króna verðmæti miðað við 340
króna kílóverð á úthafsrækjukvóta.
Þetta eru helstu úthafsveiðisvæði
íslendinga. Síðan eru ótalin nokkur
svæði rétt utan 200 milna landhelg-
innar sem sótt hefúr verið í. Þær
veiðar eru ekki það umfangsmiklar
að þær breyti ofangreindum tölum
verulega. -bjb
Reykj avíkurborg:
Verðmæti úthafsveiða
- á arsgrundvelli í milljónum kr.* -
rsgrundvel]f| milljónum
)
Smugan
18.360 millj.
pvi
Bretinn sem sýknaður var af nauðgunarákæru þungorður:
Leyfi mér að kalla þá lygara
sem fengust við þetta
- segir Michael Rimmer um ákæruvaldið á íslandi
Fjárhags-
áætlun sam-
þykkt í nótt
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar var samþykkt á ströng-
um fundi borgarstjómar sem
stóð langt fram á nótt. Flestar
tillögur sjáifstæðismanna í
minnihlutanum voru felld
Leiðrétting:
Klappað og
klárt á Garða-
kránni
Þau mistök urðu við vinnslu
DV í gær að sagt var að hljóm-
sveitin Klappaö og klárt léki
fyrir gesti Kringlukrárinnar.
Hið rétta er að hljómsveitin
leikur fyrir gesti Garðakrárinn-
ar í Garðabæ. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Leiðrétting
Þau mistök urðu við vinnslu
dálksins Með og á móti í gær að
Sveinbjöm I. Baldvinsson var
sagður Halldórsson. Þá féll nið-
ur hluti af síðustu setningunni
í kafla Sveinbjörns. í heild
sinni hljóðar setningin:„Vitað
er að meirihluti þjóðarinnar
hefur gaman af þessu.“
Beðist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
„Ég hef ekki misst álitið á íslensku
réttarfari við þetta því ég hafði ekki
myndað mér neitt álit á því áður. Ég
segi samt að réttlætið hafi sigrað að
lokum. Undanfarnir mánuðir hafa
verið hreinasta martröð," segir
Michael Rimmer, breski sjómaður-
inn sem sýknaður var af ákæru þar
sem honum var gefið að sök að hafa
nauðgað konu um borð í islenskum
togara sem lá við bryggju í Reykja-
víkurhöfn fyrir 4 mánuðum.
Eins og kunnugt er dæmdi héraðs-
dómur Michael sekan um nauðgun
og grundvaflaði sekt hans á niður-
stöðu DNA-rannsóknar á sæði en
hún var gerð af rannsóknarstofu há-
skólans í meinafræði. Önnur DNA-
rannsókn, sem gerð var í Noregi,
leiddi hins vegar í ljós að sæðið í
smokkinum gat ekki verið úr Mic-
hael.
Michael sat í viku í gæsluvarð-
haldi eftir að hann var handtekinn
en síðan var sett á hann farbann
þannig að hann hefur orðið að halda
sig hér á landi i 4 mánuði en útgerð-
in sem hann starfar hjá hefur kostað
dvöl hans hér. Hann er giftur og á
sextán mánaða gamla dóttur.
„Ég fer heim á eftir og verð kom-
inn til Hull í kvöld til konu minnar
og bams. Hún hefur allan tímann
„Þetta hefur verið mikil prófraun fyr-
ir viljastyrk minn en ég var oft kom-
inn að því að gefast upp,“ sagði
Michael Rimmer í samtali við DV.
DV-mynd GVA
trúað á sakleysi mitt, stutt við bakiö
á mér og samgladdist mér þegar nið-
urstaða Hæstaréttar var ljós. Þetta
hefur verið mikil prófraun fyrir
viljastyrk minn en ég var oft kominn
að því að gefast upp,“ sagði Michael í
gærmorgun.
Hann segist hafa litla trú á ákæru-
valdinu hér á landi. Steinaldarfyrir-
komulag einkenni starfshætti þess og
margir sem hann hafi rætt við hér á
landi séu sammála honum. Michael
segist vera að íhuga hvort hann höfði
skaðabótamál í ljósi sakleysis sins og
hefúr fengið lögmann sinn til að at-
huga réttmæti slíkra krafna.
Michael fuflyrðir að hann hafi
ekki neytt aflsmunar til að koma
fram vilja sínum gegn konunni sem
lagði fram kæru á hendur honum. Þá
segist hann ekki muna til þess að þau
hafl haft samfarir. í ljósi þessa var
hann beðinn um að skýra fyrri DNA-
rannsóknina. Hann segir þá niður-
stöðu hafa verið tilbúning einan og
vísindaleg niðurstaða hafi aldrei ver-
ið fengin: „Ég leyfi mér að kalla þá
lygara sem fengust við þetta.“
Þrátt fyrir raunir hér á landi ségir
Michael ekki útilokað að hann komi
hingað aftur. Hann ætli jú að starfa
áfram sem sjómaður ef hann hafi
ekki misst starf sitt og skipið sem
hann sé á eigi áreiðanlega eftir aö
leita hafnar hér í framtíðinni. -pp