Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Qupperneq 18
18 LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996 Dóttirin vildi ekki pissa Úti á flugvelli beið Palli bróðir eftir mér og skutlaði mér upp á Landspítala þar sem þær Edda og Sara Dögg höfðu verið nánast allan daginn. Ástæðan var fyrst og fremst þrjóska Söru Daggar (sem móðir hennar segir geniska og komna úr fóðurættinni en ég kann- ast ekki við). Hún átti að pissa í poka en ákvað að þetta yrði piss- laus dagur þar .til nokkrir dropar höfðu vinninginn undir kvöld. Við fengum okkur samlokur á leiðinni austur, komum prinsessunni í rúmið og spjölluðum aðeins við Bjögga og Hansa, en sá síðarnefndi var að lesa undir biblíusögupróf, og horfðum svo á snillinginn Derrick leysa enn eina gátuna, enn einu sinni með sömu leikurunum og venjulega, þó í öðrum hlutverk- um en síðast. Bjöggi var á sínu venjulega rölti úr rúminu í ísskáp- inn þar sem ég held hann hljóti að þekkja einhvern en Hansi var sofn- aður ofan í biblíusögurnar. „Þessi dagur byrjaði, eins og aðrir dagar, á því að fara of seint að sofa. Um síðir, eða klukkan tvö, hafði ég mig þó í bælið og vaknaði eins og venjulega klukkan sjö við það að vekjaraklukkur og sími heimilisins glumdu í kór. Eftir bolla af kaffi og meðlæti kennt við kameldýrið renndi ég mér í bað. Henti reyndar heimiliskettinum Snúlla út áður því dýrið er með af- brigðum hænt að vatni og stríðið í þokkabót. Þegar upp úr baðinu var komið tók við baráttan við bræðurna sem háð er á hverjum morgni og endar ævinlega með sigri mínum, þótt oft megi litlu muna. Með stírurnar í augunum og töskurnar á bakinu fylgdist ég með þeim tölta út göt- una á leið í skólann. Þessi morgunn var ólíkur öðrum morgnum að því leyti að þær mæðgur Edda og Sara Dögg ætluðu með mér í bæinn, þar sem sú stutta hefur verið lasin upp á Árni Magnússon, aðstoðarmaður iðnaðaráðherra. JJlllílíí Dagur í lífi Árna Magnússonar, aðstoðarmanns iðnaðarráðherra: Pabbarófan dekruð fram úr síðkastið og átti því að mæta hjá Gesti barnalækni, stórvini sínum. Eftir að hafa dekrað dótturina fram úr og fengið nokkur yndisleg bros og gælur að launum var sest út í bO og haldið á Heiðina. Hér og nú í útvarpinu, hálka á veginum, hugurinn við aksturinn en að hluta í Eyjum þar sem Finnur ráð- herra yrði meö fund með stjórn- endum fyrirtækja í hádeginu. Leiðir mínar og mæðgnanna skildi síðan fyrir utan Arnarhvál með tilheyrandi kossum á víxl. Þær mæðgur fóru á vit læknis- fræðinnar en ég ræsti tölvuna mína og hringdi nokkur símtöl. Flogið til Eyja Valur, flugmaður í Eyjum, var klár í slaginn. Mæting kl. 11, á Vestmannaeyjaflugvelli biði okkar bíll og Skæringur á Esso boðaði komu okkar í nokkur fyrirtæki þar ytra. Að loknum stuttum ríkisstjórn- arfundi var Finnur klár í slaginn og ekki eftir neinu að bíða. Hálf- tíma eftir flugtak var fasta landið og Atlantshafið að baki, Heimaey undir fótum. Við höfðum boðað til fundar á Hótel Bræðraborg þar sem nærri 70 manns biðu okkar. Einn af mörgum fundum ráðherra að und- anförnu þar sem kynnt eru ýmis verkefni á sviði lítOla og meðal- stórra fyrirtækja, atvinnusköpun- ar og fleira. Fundurinn tókst að okkar mati ágætlega og um klukk- an tvö hittum við Sighvat Bjarna- son hjá Vinnslustöðinni. Næsti viðkomustaður var Skipalyftan þar sem nýr lóðs Eyjamanna er óðum að taka á sig mynd og fleiri fyrir- tæki fylgdu í kjölfarið. Þótt ótrú- legt megi virðast héldum við tímaáætlun. Að loknum ágætum fundi með stjóm Bæjarveitna Vestmannaeyja áðum við um stund hjá teiknaran- um Sigmund og konu hans. Mót- tökurnar þar á bæ eru ævinlega eins og aldagamlir vinir og félagar séu komnir eftir langa fjarveru og einhverra hluta vegna slaknar ósjálfrátt á stressþræðinum þar inni. Nokkrar hláturgusur, umræður um gOdi hjónabandsins og siðast glæsilega búninga Rússahers, sem af ókunnum orsökum hanga í for- stofu þeirra hjóna, voru veganesti okkar í flugferð til Reykjavíkur. Veðrið var fallegt, heiðskírt og sólin að setjast á vinstri hönd en á þá hægri glitruðu ljósin í sunn- lenskum bæjum eins og perlur. Eins og stundum áður fannst Söru Dögg ástæða tO að rísa upp við dogg þegar við skriðum upp í, spjaOa svolítið, draga okkur fram i síðbúið Cheerios og kvelja síðan köttinn hæfilega fyrir svefninn. Það síðasta sem ég man eftir, áður en svefninn tók völdin, enn einu sinni klukkan að ganga tvö, var að Edda sagði mér frá gangi mála á Landspítalanum um daginn. Á milli þess sem Sara Dögg skældi og reifst við læknaliðið stundi hún upp með ekkasogum: „Sæa dule babbalóa." Hjúkrunarkonan bað um þýðingu sem hún fékk: „Sara dugleg pabbarófa.““ Finnur þú fimm breytingar? 344 Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn eins en þeg- ar betur er að gáð kemur í ljós að á myndinni til hægri hefur fimm atriðum verið breytt. Finnir þú þessi fimm atriði skaltu merkja við þau með krossi á myndinni til hægri og senda okkur hana ásamt nafni þínu og heimilis- fangi. Að tveimur vikum Nafn: Heimili: Vinningshafar fyrir þrjú hundruð fertugustu og aðra getraun reyndust vera: 1. Bryndis Dyrving 2. Björk Sigurðardóttir Gíslholti Faxabraut 68 851 HeUa 230 Keflavík liðnum birtum við nöfn sigurvegaranna. 1. verðlaun: ELTA útvarpsvekjari að verðmæti kr. 4.275, frá Bræðrunum Ormsson, Lág- múla 8, Reykjavík. 2. verðlaun: Tvær Úrvalsbækur að verðmæti kr. 1.790. Vinningamir verða sendir heim. Merkið umslagið með lausninni: Finnur þú fimm breytingar? 344 c/o DV, pósthólf 5380 125 Reykjavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.