Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Side 23
X>V LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996 23 Yngsti atvinnumaður Islendinga í knattspyrnu vekur athygli: Staðráðinn í að leggja þetta fyrir mig - segir Eiður Smári Guðjohnsen Forritið Fjölhugi Arftaki Vaskhuga Fjölhugi er fullkomið bókhaldsforrit sem hentar flestum rekstri. Fjölhugi byggir á Vaskhuga sem er í notkun hjá yfir 1000 fyrirtækjum „Það hefur verið mikið að gerast hjá mér, stöðugar æfingar auk þess sem ég hef verið á bekknum hjá aðalliðinu á síðustu leikjum og kom inn á um daginn,“ segir Eiður Smári Guðjohnsen, atvinnumaður í knattspyrnu hjá hinu þekkta liði, PSV Eindhoven, í samtali við DV. Eiður Smári er aðeins 17 ára gam- all og hefur vakið mikla athygli í Hollandi sem svo ungur atvinnu- maður, sérstaklega eftir að hann fór að leika með aðailiðinu. Eiður hefur búið í Hollandi síðan í nóvember 1994 er PSV Eindhoven bauð honum vinnu. Móðir hans og fósturfaðir fluttu með honum til Hollands og faðir hans, Arnór Guðjohnsen, fylg- ist vel með stráknum og gefur hon- um góð ráð frá Svíþjóð. „Eftir að ég kom út spilaði ég fyrst með unglingaliðinu og síðan varaliðinu. Það tók tíma að aðlagast og læra tæknina en gífurlegur agi er hér á æfingum. Æfingar eru stund- um tvisvar á dag svo það er ekki mikill tími fyrir annað en fótbolt- ann, skólinn verður að bíða,“ segir Eiður Smári. Fær tækifæri Siðastliðið sumar var hann síðan valinn í aðalliðshópinn og komst þar með á leikskýrsluna. Eiður Smári segist þó aldrei vita fyrir fram hvort hann spili með í leikj- um. „Það hefur verið mikið um meiðsl í liðinu núna þannig að ég fæ þá frekar tækifæri," segir hann. „Ég fæ líka að kynnast eldri og reyndari mönnum í liðinu sem er mjög gott.“ Eiður Smári segist kunna vel við sig í Hollandi og sakni ekki margs frá íslandi. „Ég sakna auðvitað vina og ættingja en mér finnst mjög gott að búa hér,“ segir hann. Þess má geta að unnusta Eiðs Smára, Ragn- hildur Sveinsdóttir, er flutt til Hollands og stundar þar nám um þessar mundir. Eiður Smári er ekki óvanur því að búa í útlöndum þvi hann ólst að mestu upp í Belgíu þar sem faðir hans var atvinnumaður hjá Lokeren og síðan Anderlecht. Þetta kemur sér vel fyrir Eið því hann tal- aði flæmsku eins og sitt móðurmál, en flæmska er náskyld hollensk- unni.“ Eiður Smári segir að mikil breyt- ing hafi orðið á lífi hans þegar hann hóf atvinnuferilinn og margt nýtt að læra. „Tæknin hér er öll önnur en á íslandi og einnig hraðinn í leiknum. Það er líka mikill munur á þjálfur- um, þeir eru kröfuharðari og agaðri hér,“ segir hann. Baráttan gengur vel Meiðsl hafa ekki hrjáð hinn unga atvinnumann að neinu ráði. „Ég hef orðið fyrir lítils háttar meiðslum en þá hefur dugað að hvílast í nokkra daga,“ segir hann. Reynslan sem Eiður Smári hefur fengið á undan- fórnu ári hefur ekki dregið úr áhug- anum á fótboltanum. Hann segist þvert á móti vera mun ákveðnari í um allt land. Fjölhugi kemur tilbúinn til notkunar og krefst ekki sérstakrar tölvu- eða bókhaldskunnáttu. Fjölhugi er alhliða bókhaldshugbúnaður, og þú getur fjölgað kerfum eftir þörfum. Meðal kerfa í Fjölhuga eru: sala, birgðir, viðskiptamenn, verkefna- bókhald, launabókhald, tollskýrslukerfi og fullkomið tvíhhða fjárhagsbókhald. Og þjónustan hjá Vaskhuga hf. er pottþétt. áskhugi hf. Skeifan 7 - Sími 568-2680 Þessi mynd var tekin af Eiði Smára og föður hans, Arnóri Guðjohnsen, sumarið 1994. Nú eru þeir báðir at- vinnumenn í knattspyrnu. DV-mynd Brynjar Gauti að leggja þetta fyrir sig. „Þetta á vel við mig og launin eru mjög góð ef vel gengur,“ segir hann. Eiður Smári er allra yngsti ís- lenski atvinnumaður í knattspyrnu og einnig með þeim yngstu á er- lendri grund. „Mér er mjög vel tek- ið í liðinu eins og hinum útlending- unum sem fyrir utan mig eru Bras- ilíumaður og Belgi en mest eru þetta þó Hollendingar. PSV Eindhoven hefur gengið vel í baráttunni og Eiður Smári segir að liðið sé í öðru sæti og muni þremur stigum á því efsta. „Við erum enn þá í baráttunni um meistaratitil- inn.“ Þess má geta að aldrei koma færri en 25 þúsund manns á leiki PSV Eindhoven. Án efa þykir ungum strákum það spennandi að komast í atvinnu- mennsku óg Eiður er þar engin und- antekning. „Þetta hefur verið mjög spennandi tímabil," segir hann. í viðtali við helgarblað DV sumarið 1994 sögðu Eiður Smári og faðir h£ms, Arnór Guðjohnsen, það vera sinn stærsta draum að leika saman í íslenska landsliðinu. Eiður Smári segir að þeir bíði enn eftir að sá draumur rætist. „Við vonum að það geti gerst í surnar," segir hann en Eiður verður 18 ára í september. Móður Eiðs, Ólöfu Einarsdóttur líst mjög vel á soninn og í áður- nefndu viðtali við DV sagði Arnór: „Mér líst vel á strákinn og þessi vel- gengni hans kemur mér ekkert á óvart.“ -ELA ÚTSALA SÍDASTI DAGUR ÚTSÖLUNNAR 10-70% AFSLÁTTUR LJOS OG LAMPAR Rafkaup Armúla 24 - Sími 568 1518

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.