Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Síða 27
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996
Wlendar fréttir
Bandaríski auðkýfingurinn John du Pont á bak við lás og slá fyrir morð:
Sérvitringur sem safnaði
skeljum og dáði glímumenn
Lögregluþjónar leiða John du Pont inn í höfuðstöðvar lögreglunnar í
Newtown Square eftir tveggja sólarhringa umsátur. Símamynd Reuter
Erient
„Hann var mikill sérvitringur
sem ungur maöur en hann þurfti
líka að glíma við fjöldann allan af
slæmum félögum og við fíkniefni.
Honum svipar mjög til Howards
Hughes að því leytinu til að hann
hefur snúið baki við fjölskyldunni
og einangrað sig á landareign
sinni.“
Maðurinn sem fær þessa einkunn
er bandaríski milljónamæringurinn
og sérvitringurinn John Eleuthere
du Pont sem hefur verið ákærður
fyrir morðið á glímukappanum Dav-
id Schultz á landareign sinni fyrir
rúmri viku. Sú sem gefur einkunn-
ina er Martha du Pont, mágkona
Johns. Hún ætti að vita um hvað
hún talar því leiðir þeirra lágu fyrst
saman fyrir þremur áratugum eða
svo. Hún hefur enn fremur látið
hafa það eftir sér um mág sinn að
hann sé andlega vanheill, maðurinn
líka þekktur fyrir að spranga um í
baðsloppnum á almannafæri eða
aka um landareign sína á hrynvörð-
um liðsflutningabíl.
Gafst upp eftir tveggja
sólarhringa umsátur
David Schultz, sem fékk gullverð-
laun á ólympíuleikunum 1984, bjó
ásamt fjölskyldu sinni, eiginkonu
og tveimur bömum, á gríðarstórri
landareign du Ponts skammt frá
borginni Fíladelfíu. Hann var í óða-
önn að undirbúa sig fyrir keppni á
ólympíuleikunum í Atlanta í sumar.
Það var svo um miðjan dag á
fóstudag í síðustu viku að John du
Pont ók að heimili glímukappans.
Schultz stóð við bO sinn fyrir utan
húsið. Du Pont steig út úr bO sínum
og skaut þremur skotum á Schultz
með .38 kcdíbera skammbyssu. Lög-
reglan var kvödd á staðinn en það
var ekki fyrr en eftir tveggja sólar-
hringa umsátur að John du Pont
gafst upp. Hann var þegar í stað
fluttur í steininn þar sem hann hef-
ur dvalið í einangrun.
Skotárásin og umsátur lögregl-
unnar sem fylgdi í kjölfarið hafa
beint kastljósinu að furðulegum
uppátækjum þessa sérlundaða
manns sem er einn af erflngjum
hinna miklu du Pont-auðæfa. For-
faðir hans stofnaði hið mikla fyrir-
tækjaveldi sem ber fjölskyldunafn-
ið.
Breyttist þegar
móðir hans lést
Nágrannar Johns du Ponts í smá-
bænum Newton Square í Pennsyl-
vaníu segjast hafa tekið eftir breyt-
ingum í skapferli hans árið 1988,
árið sem móðir hans, Jean Lister
Austin du Pont, lést og skOdi son
sinn eftir einan á landareigninni.
Það var líka þá sem hann sneri
einnig baki við vinum sínum í lög-
regluliöi Newtown Square og helg-
aði líf sitt glímu sem hann hafði
ástríðufullan áhuga á.
Margir lögregluþjónanna sem
tóku þátt í umsátrinu um landar-
eign du Ponts höfðu notið góðs af
velvOja hans í garð lögregluliðsins.
Hann byggði skotæfingasvæði á
landi sínu sem lögregluþjónarnir
notuðu, gerðist ólaunaður liðsmað-
ur lögreglunnar árið 1970 og gekk
um í einkennisbúningi hennar.
Fór sínar eigin leiðir
„John var margmiOjónari sem
gerði hlutina eftir eigin höfði,“ seg-
ir Stan Short, fyrrum lögreglustjóri
í Newton, sem hefur þekkt auðkýf-
inginn frá barnsaldri.
Tárin streyma niður kinnar
Johns Halotas og hann á erfitt um
mál þegar hann minnist vináttu
sinnar og Johns du Ponts. Halota,
sem er kominn á eftirlaun, var i lög-
fréttaljós
reglunni á áttunda áratugnum þeg-
ar du Pont bauð lögregluliðinu að
æfa á skotsvæði sínu.
„Du Pont gaf mér eigið aðgangs-
kort að hliðinu og eigin lykO að
skotæfingasvæðinu," segir Halota.
„Hann var frábær.“
John du Pont safnaði í kringum
sig mörgum af bestu áhugaglímu-
mönnum heimsins, þar á meðal
David Schultz, og fékk þá til að
þjálfa í æfingamiðstöð sem hann
hafði byggt á landareign sinni. Sum-
ir glímumannanna höfðu þar fasta
búsetu. Glímumennirnir sem þjálf-
uðu í æfmgamiðstöð hans sögðu
hann rausnarlegan en um leið sér-
vitran. Margir þeirra fengu eitt þús-
und doOara á mánuði frá du Pont tO
að standa straum af kostnaði við
þjálfunina.
Njósnarar inni
í veggjunum
Phil Schultz, faöir hins myrta
glímukappa, segir að hann hafi
hvatt son sinn tO að flytja burt fyr-
ir tveimur árum.
„Ég tel að maðurinn hafi verið
haldinn ofsóknaræði og þurfi virki-
lega á læknisaðstoð að halda,“ segir
PhO Schultz. „David var sama sinn-
is en hann taldi sig geta hjálpað
honum. Hann hafði róandi áhrif á
hann.“
Dan Chaid, sem var þjálfari og
æfði sjálfur á æfingasvæði du Ponts
i átta ár, þar tO að hann hætti í
október síðastliðnum, segir du Pont
hafa átt í andlegum vandamálum.
Hann segir að du Pont hafi orðið
sannfærður um það á árinu 1993 að
einhver héldi tO inni í veggjum
heimilis hans til að njósna um
hann. Du Pont viðurkenndi einnig
fyrir Dan Chaid að hann hefði neytt
kókaíns og verkjaiyfja.
Samskiptum þeirra Dans Chaids
og Johns du Ponts lauk þann 12.
október síðastliðinn þegar du Pont
kom að Chaid þar sem hann var að
lyfta lóðum, beindi sjálfvirkum riffli
að brjósti hans, tuldraði klúryrði
fyrir munni sér og sagði: „Ég vO að
þú hypjir þig á brott héðan.“
Dan Chaid segist hafa yfirgefið
æfingasalinn og hringt á lögregluna
en lögregluþjónarnir hefðu gert lítið
úr sögu hans, sagt að John du Pont
væri bara „dálítið sérvitur".
Lúxusbifreið út í tjörnina
Þessi gamli skjólstæðingur du
Ponts kann líka fleiri sögur um
furðuleg uppátæki auðkýfingsins.
Hann segir tO dæmis frá þvi að í
fyrra hafi du Pont ekið lúxusbifreið
sinni út í tjörn á landareigninni og
synt í land. Fulltrúi ameríska sund-
sambandsins, sem var með honum í
bOnum, var hins vegar nærri
drukknaður áður en tókst að bjarga
honum á þurrt.
En góðmennska og örlæti Johns
du Ponts náði tO fleiri en lögregl-
unnar í Newtown Square og
glímukappanna. Hann lét tO dæmis
reisa náttúrugripasafn Delaware-
fylkis sem hýsir frægt safn hans
sem hefur að geyma 66 þúsund fugla
og tvær milljónir sjávarskelja. John
du Pont var kvæntur maður í eitt
ár, frá 1983 tO 1984. Kona hans fyrr-
verandi, Gale Wenk du Pont, höfð-
aði mál á hendur fyrrum eigin-
manni sínum árið 1985 þar sem hún
sakaði hann um að hafa gert tilraun
tO að kyrkja hana, ógnað henni með
hnífi og reynt að fleygja henni út úr
bO á ferð.
Ekki er nákvæmlega vitað hversu
auðugur John du Pont er. Tímaritið
Forbes segir að eigur alirar du Pont-
fjölskyldunnar eins og hún leggur
sig séu metnar á tíu miOjarða doU-
ara eða meira. Sama rit segir að eig-
inkonan fyrrverandi hafi sagt fyrir
rétti árið 1985 að hún mæti eigur
hans á ríflega 46 miUjónir doUara,
sem mun vera nálægt þremur mill-
jörðum íslenskra króna.
Byggt á Reuter og IHT
35
Menningarmálanefnd Reykjavíkur
auglýsir eftir umsóknum um styrki til
menningarstarfsemi í borginni. Um er að
ræða styrki til listamanna, hópa og
stofnana vegna liststarfsemi og einstakra
verkefna.
Umsóknum skal skilað á sérstökum
umsóknareyðublöðum sem fást í
afgreiðslu Kjarvalsstaða og hjá ritara
nefndarinnar sem einnig veitir nánari
upplýsingar ef óskað er í síma 552 6131.
Umsóknir skulu hafa borist Menningar-
málanefnd Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum
v. Flókagötu, 105 Reykjavík,
fyrir 1. mars nk.
rír urtglinginn
Myldu það bara
■ efþú vilt brjóta upp línurnar
Fislétt
en samt gróft og hollt fyrir meltinguna.
Weetabix - hjartans mál!