Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Qupperneq 28
36
Méttir
LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996
Tollgæslan lömuð vegna mannfæðar og fjárskorts:
Fíkniefnasmyglarar hafa
nánast friálsar hendur
- tollvörðum á einstökum stöðvum hefur fækkað um helming á fáum árum
Undantekning er ef tekst að koma
„Það eru ótakmarkaðir möguleikar
upp um smygl á eiturlyfjum við toll- á flkniefnasmygli," sagði Páll Franz-
skoðun. Þetta fullyrða yfirmenn í toll- son, deildarstjóri hjá tollgæslunni í
gæslunni við DV.
Sundahöfn, í viðtali við DV á dögun-
W _
Arsverk hjá Tollpóststofu
18
16
14
12
10
1988 1989 1990 1991 1992 1993 1994
um. Hann kennir um skorti á áhuga
hjá yfirvöldum. Það vantar viljann til
að stöðva innflutning á fíkniefnum.
Á sama tíma er verið að efna í átök
gegn fíkniefnavandanum. Lögreglan
stendur fyrir herferð þar sem mark-
miðið er að hræða eiturlyfjasala af
Innlent fréttaljós
Gísli Kristjánsson
götunum. Afskipti hafa verið höfð af
á annað hundrað manns. Flestir eru
gamlir kunningjar lögreglunnar og
viðbúið að þeir haldi uppteknum
hætti þrátt fyrir tiltal. Sölukerfið
kann vissulega að riðlast um tíma við
þessar aðgerðir en vandinn er óleyst-
ur.
Nefnd skoðar vandann
Heilbrigðisráðherra vill að barna-
geðdeild Landspitalans fái meira fé til
að bjarga fórnarlömbum fikniefnanna
og nú er sérstök verkefnisstjórn að
vinna að tillögum um aðgerðir á veg-
um ríkisstjórnarinnar. Hún á að skila
ir^Eluuii
er í dag til kl. 17
Nú er tækifærið til að fá sár notaðan bíl
á einstaklega hagstasðu verði
/ / ••
i gla?silegu husnasði að Sasvarhöfða 2
frí ábyrgðartrygging
V lánakjör til allt að 60 mán.
V fyrðta greiðsla jafnvel eftir 6-& mán.
V vetrardekk fylgýa
nHHHHBHnni
g s g 'a, Ingvar
...^ Helgason hf.
Sævarhöfða 2
Sími: 525 8020
Tollverðir segja að ekki takist að skoða nema lítið brot af þeim gámasend-
ingum sem berast til landsins. Þarna er sem annars staðar opin leið inn í
landið. DV-mynd GVA
af sér í sumar.
Á sama tíma er tollpóstur t.d. bara
skoðaður í dagvinnu þótt hann berist
til landsins á öllum tímum sólar-
hrings. Hann má ekki tefjast hjá póst-
inum og fer því óskoðaður inn í land-
ið. Þar er opin leið fyrir smyglarana.
„Það er öruggt mál að hér fara
fikniefni í gegn,“ sagði Jóhanna Guð-
bjartsdóttir, deildarstjóri hjá Toll-
póststofunni, í samtali við DV. Það er
því vitað hvernig eiturlyfin koma inn
í landið en aðgerðirnar gegn vandan-
um beinast einkum að því að bjarga
sálum þeirra ungmenna sem þegar
hafa orðið undir í baráttunni við
fíknina.
Markaðurinn stór
Lögreglumenn, sem fást við fíkni-
efnavandann, segja með réttu að á
meðan til er fólk sem hefur áhuga á
að verða sér úti um fíkniefni verður
fíkniefnavandinn til. Það fínnast
alltaf leiðir til að koma efnunum inn
í landið og þótt sett verði undir lek-
ann sem nú er í gegnum allar toll-
stöðvarnar þá halda efnin áfram að
koma með öðrum leiðum.
Það er þó öllum ljóst að ekki er von
á að ástandið batni ef fíkniefnasmygl-
arar hafa nánast frjálsar hendur við
verk sín vegna þess að tollgæslan
ræður ekki lengur við verkefni sitt.
Tollverðir kvarta ekki aðeins und-
an mannfæð og minnkandi fjárveit-
ingum. Skipulagið er líka í molum og
nú heyra tollamálin undir þrjú ráðu-
neyti. Ránuneyti fjármála, dómsmála
og utanríkismála koma öll með ein-
um eða öðrum hætti að tollgæslunni.
Þarna vantar markvissari og betri
vinnubrögð, segja tollverðir.
Slagur um millígrömm
Reynslan sýnir að eftir að eiturlyf-
in eru komin inn í landið og á götuna
er nær vonlaust að hafa upp á þeim.
Á síðasta ári tóku tollverðir um 80%
af þeim eiturlyfjum sem á annað borð
náðust. Afganginn tóku lögreglu-
menn.
„Það er hjá tollgæslunni sem stóru
sendingarnar nást. Sleppi fikniefni
inn í landið tekur við vonlaus barátta
um grömm og millígrömm á göt-
unni,“ segir Elías Kristjánsson, toll-
fulltrúi á Keflavíkurflugvelli, við DV.
í þessum orðum felst ekki gagnrýni
á löggæsluna heldur einungis sú stað-
reynd að eftir að búið er að dreifa efn-
unum næst aldrei nema í lítið magn í
einu.
Elías hefur einnig bent á í samtali
við DV að aðild íslands að svokölluðu
Schengen-samstarfí mun leiða til að
enn dregur úr tolleftirliti. Ef af verð-
ur fellur að mestu niður toOskoðun
milli landa í allri Vestur-Evrópu.
Ekki verður leitað á farþegum sem
koma frá löndum sem þekkt eru sem
uppspretta eiturlyfía, svo sem Hol-
landi.
Úrbætur á leiðinni?
Ekkert hefur frést af hugmyndum
stjórnvalda um eflingu tollgæslunnar.
Á einstökum stöðvum tollgæslunnar
hefur fólki við störf fækkað um helm-
ing á fáum árum og stöðugt minnkar
það litla brot sem tollverðir ná að
skoða af sendingum sem berast til
landsins.
Það er almennt viðkvæði þeirra
sem um fikniefnavandann fjalla að
„sölumenn eitursins séu engir fábján-
ar“. Fíkniefnasmyglurunum er því
sennilega betur ljóst en ráðamönnum
hve létt er að flytja fikniefni til lands-
ins og þeir nota sér þær leiðir sem
standa opnar. Það sýnir mikið fram-
boð af fíkniefnum.
Heilsugæslustööin Raufarhöfn
Staða heilsugæslulæknis er laus til umsóknar. Umsækjandi
þyrfti að geta hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Upplagt starf fyrir mann sem vill vinna mikið og eiga góð frí
á milli en samstarfssamningur er um vinnu og vaktir við
stöðvarnar á Kópaskeri og Þórshöfn.
Auk venjulegra launa eru í gildi sérstakir staðarsamningar
um launauppbót og önnur kjör.
Sérmenntun í heimilislækningum æskileg.
Nánari upplýsingar veita:
IÐUNN ANTONSDÓTTIR stjórnarformaður
í símum 465 2105/465 2161eða
SIGURÐUR HALLDÓRSSON LÆKNIR
í símum 465 2109/465 2166.