Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 03.02.1996, Blaðsíða 31
Bandaríkin — plötur og diskar — | 1. (1 ) Waiting to Exhale Úr kvikmynd | 2. ( 2 ) Daydream Mariah Carey $ 3. ( 3 ) Jagged Little Pill Alanis Morrissette t 4. ( 5 ) Sixteen Stone Bush t 5. ( 9 ) (What's the Story) Morning Glory? Oasis t 6. ( 4 ) Cracked Rear View Hootie and the Blowfish t 7. ( 6 ) The Woman in Me Shania Twáin | 8. ( 8 ) Mellon Collie and the Infinite ... Smashing Pumpkins | 9. ( 7 ) The Greatest Hits Collection Alan Jackson (10. (10) RKclly R Kelly Whitney Houston fer með eitt aðalhlutverkið í kvikmyndinni Waiting To Ex- hale og syngur jafnframt titillag myndarinnar. LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1996 tónlist ísland | 1.(1) Crougie D'oú Lá Emilíana Torrini t 2. ( 5 ) Pottþétt 1995 Ýmsir | 3. ( 3 ) Different Class Pulp t 4. (10) Desperado Úr kvikmynd f 5. ( 4 ) The Memory of Trees Enya t 6. ( 9 ) Melon Collie and the Infinite ... Smashing Pumpkins t 7. (13) Gangsta's Paradise Coolio | 8. ( 8 ) One Hot Minute Red Hot Chili Peppers 4 9. ( 2 ) (What's the Story) Morning Glory? Oasis 110. (19) Reif í skóinn Ýmsir 111. (Al) D'Eux Celine Dion 112. (Al) Crazysexycool TLC 113. (15) The Bends Radiohead 114. ( - ) Garbage Garbage 415. ( 7 ) Drullumall Botnleðja 116. (Al) Gleðifólkið KK 117. ( - ) Waiting to Exhale Úr kvikmynd 118. (Al) Maxinquaye Tricky 4 19. (12) í skugga Morthens Bubbi Morthens 120. (Al) Love Songs Elton John London | 1. (1 ) Spaceman Babylon Zoo t 2. ( - ) Slight Return Bluetones t 3. ( 4 ) Anything 3T 4 4. ( 2 ) Jesus to a Child George Michael t 5. ( - ) Street Spirit (Fade Out) Radiohead 4 6. ( 3 ) Whole Lotta Love Goldbug t 7. (23) Not a Dry Eye In the House Meat Loaf 4 8. ( 7 ) One by One Cher t 9. ( - ) No Fronts - The Remixes Dog Eat Dog 4 10- ( 5 ) Earth Song Michael Jackson New York -lög- $ 1. (1 ) One Sweet Day Mariah Carey & Boyz II Men | 2. ( 2 ) Exhale (Shoop Shoop) Whitney Houston | 3. ( 3 ) Missing Everything but the Girl t 4. ( 6 ) One of Us Joan Osbourne 4 5. ( 4 ) Hey Lover LL Cool J 4 6. ( 5 ) Name Goo Goo Dolls | 7. ( 7 ) Breakfast at Tiffany's Deep Blue Something t 8. (10) Be My Lover La Bouche | 9. ( 9 ) Before You Walk out of My Life Monica t 10. (12) Nobody Knows The Tony Rich Project Bretland | 1.(1) (What's the Story) Morning Glory? Oasis t 2. ( - ) Boys for Pele Tori Amos t 3. ( 5 ) Jagged Little Pill Alanis Morrisette 4 4. ( 2 ) Different Class Pulp 4 5. ( 3 ) Robson & Jerome Robson & Jerome | 6. ( 6 ) History - Past Present and Future.. Michael Jackson t 7. ( 8 ) Something to Remember Madonna 4 8. ( 4 ) First Love Michael Ball t 9. (12) All Change Cast 4 10. ( 7 ) Said and Done Boyzone Tónlist úr Waiting To Exhale slær í gegn Platan með tónlist úr kvikmynd- inni Waiting To Exhale hefur tekið bandaríska vinsældalista með trompi. Hún er í efsta sæti breið- skifulistans aðra vikuna i röð og á Toppi R&B listans eins og næstu sex vikurnar á undan. Whitney Houston er í öðru sæti listans sem mælir vinsælustu lög landsins með lagið Exhale (Shoop Shoop) og sömuleiðis í öðru sæti listans yfir vinsælustu R&B lögin. Raunar eru tvö lög til viðbótar úr kvikmynd- inni meðal tíu vinsælustu R&B lag- anna og ýmislegt bendir til að fleiri eigi eftir að fylgja í kjölfarið. Það er lagahöfundurinn, upptöku- stjórinn og tónlistarmaðurinn Kenny „Babyface" Edmonds sem er, heilinn að baki þessari vinsælu plötu. Hann semur fimmtán lög af sextán, sér um megnið af undir- leiknum, syngur bakraddir og stýr- ir upptökum. Hann hafði einnig með höndum að velja söngvarana á plötuna. Sjónarhóll kvenna „Waiting To Exhale er unnin út frá sjónarhóli konu og þar af leið- andi fannst mér skynsamlegast að velja eingöngu söngkonur til að flytja lögin,“ segir Babyface. „Ég hafði þær síðan í huga þegar ég samdi lögin og passaði aö hafa hug- blæ laganna í svipuðum anda og myndina sjálfa. Því er enginn æs- ingur eða læti i tónlistinni." Það kom af sjálfú sér að velja Whitney Houston til að taka þátt í flutningi laganna. Hún leikur eitt af aðalhlutverkum myndarinnar og fékk þar af leiðandi það hlutverk að syngja eins konar titillag myndar- innar, Exhale (Shoop Shoop). Hún flytur einnig tvö önnur lög sem koma fyrir í myndinni. Aðrir flytj- endur eru Toni Braxton, Aretha Franklin, Brandy, tríóið TLC, Mary J. Blige, Chaka Khan, Sonja Marie, SWV, Chanté Moore, Patti LaBelle, Faith Evans, For Real, Shanna og CeCe Winans sem syngur eitt lag með Whitney Houston. „Upptökustjórar og lagahöfundar fá tæpast oftar en einu sinni annað eins tækifæri og að vinna að einni og sömu plötunni með sliku einvala liði og þessar söngkonur eru,“ segir Babyface. „Þær sýna þama allar sínar bestu hliðar og ég naut hvers dags meðan ég var að vinna með þeim.“ Eina lagið á plötunni sem ekki er eftir Babyface er gamla flug- an My Funny Valentine eftir Ric- hard Rogers og Lorenz Hart, sem Chaka Khan syngur. Það fellur þó Whitney Houston og Angela Basset í hlutverkum sínum í Waiting To Exhale. vel inn í þá rólegu heildarmynd sem Babyface skapaði með tónlistinni. Whitney Houston og Michael Hou- ston semja síðan með honum eitt laganna. Allt small saman Whitney Houston segir að sér hafi strax frá upphafi líkað vel þær hugmyndir sem Babyface var með þegar hann kynnti fyrir samstarfs- fólki sínu hvað hann langaði að gera með tónlistina fyrir Waiting To Exhale. „Það bregst ekki að allt gengur vel þegar við Babyface vinnum sam- an,“ segir hún og smellir fingrum. „Það smellur allt saman svona. Einnig finnst mér honum hafa geng- ið sérlega vel að semja og útsetja tónlist sem hæfir myndinni. Hún talar sínu máli um þá vináttu kvennanna fjögurra sem Waiting To Exhale fjallar um. Og reyndar finnst mér sérlega vel hafa tekist til með að velja saman leikkvennahóp- inn sem fer með hlutverk vinkvenn- anna. Ég er sannarlega fegin að all- ar samþykktu að vera með.“ Whitney Houston er titluð sérleg- ur upptökustjóri plötunnar Waiting To Exhale ásamt Clive Davies, for- stjóra Arista hljómplötuútgáfunnar. Hann hefur ekki mörg orð um plöt- una: „Útnefningarnefnd óskarsverð- launanna verður að fjölga tilnefn- ingum fyrir kvikmyndalag ársins á næsta ári,“ segir hann. „Það er ljóst að öðruvísi komast ekki öll lögin hans Babyface að sem eiga skilið að verða tilnefnd."

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.