Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1996, Blaðsíða 2
2
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996
Fréttir
Fækkun meðferðarplássa fyrir unglinga í vímuefnavanda:
Skapar verulegan vanda
- segir Hugo Þórisson sálfræðingur
„Við töpum meðferðarplássum,
bæði í vímuefnameðferð og lang-
tíma meðferð fyrir unglinga I öðru-
vísi vandræðum. í staðinn kemur
greiningarvinna og vistunartíminn
verður þrír til fjórir mánuðir lengst.
Það er ekki langur tími til meðferð-
ar og aðeins inngrip í líf unglings.
Þetta svarar ekki brýnni þörf fyrir
langtíma meðferðarúrræði fyrir
unglinga í vímuefnavanda og öðr-
um vanda. Þessi þróun hefur skap-
að verulegan vanda fyrir okkur sem
eigum að vista börn,“ segir Hugo
Þórisson, sálfræðingur á unglinga-
deild Félagsmálastofnunar Reykja-
víkur.
DV hefur greint frá því að með-
ferðarplássum fyrir unglinga undir
16 ára aldri í vímuefnavanda fækki
verulega í sumar þegar meðferðar-
plássum á Meðferðarstöðvum ríkis-
ins við Sólheima og Efstasund í
Reykjavík verður lokað og ný með-
ferðarstöð, Stuðlar, verður opnuð
við Korpúlfsstaði í haust. Tíu pláss
að Tindum voru lögð niður í fyrra
og í stað meðferðarplássanna við
Sólheima og Efstasund verða um tíu
pláss að Stuðlum.
„Á undanfornum árum hefur
þessi vandi farið vaxandi og
kannski sérstaklega á síðasta ári og
því eru það fráleit vinnubrögð að
bregðast við honum á þann hátt að
fækka plássum til að taka á þessum
vanda. Rekstur dagdeildar á höfuð-
borgarsvæðinu kemur aldrei í stað-
inn fyrir meðferðarheimili annars
staðar en á þeim stað þar sem
krakkarnir hafa verið í neyslu. Það
er kominn tími til að stjómvöld við-
urkenni þennan vanda og taki á
honum með raunhæfum lausnum,"
segir Margrét Frímannsdóttir, for-
maður Alþýðubandalagsins.
Á ríkisstjórnarfundi nýlega bar
heilbrigðisráðherra upp það erindi
að hækka sjálfræðisaldur barna úr
16 árum í 18 en unglingar, 16 ára og
eldri, verða nú að samþykkja þá
meðferð sem þeir hafa gengist und-
ir. Erindið er til athugunar í dóms-
málaráðuneytinu.
-GHS
Sjávarútvegsráðuneytiö:
Ásökunin
erút
í hött
- segir Ari Edwald
„Sjávarútvegsráðuneytiö
hafnar þessum ósanna áburði
harðlega. Það á ekki við nokkur
rök að styðjast og er hrein íjar-
stæða,“ sagði Ari Edwald, að-
stoðarmaður sjávarútvegsráð-
herra, um þau ummæli Óttars
Yngvasonar útgerðarmanns að
hafnbannið í Kanada, á íslensku
úthafstogarana, sem ekki eru
með eftirlitsmenn mn borð, sé
pantað af sjávarútvegsráðuneyt-
inu.
Hann benti á að Kanadamenn
hefðu gert þetta sama við skip
annarra landa sem ekki hafa
virt NAFO- samninga, meðal
annars skip frá ESB-löndunum.
Og þegar sjávarútvegsráðuneyt-
ið hefði spurst fyrir um málið í
Kanada hefði svarið verið að
þetta beindist ekki að íslenskum
skipum sérstaklega. Það væri
stefha Kanadamanna að neita
skipum um hafnarþjónustu ef
þau virtu ekki NAFO-samning-
ana.
„Þess vegna er það út í hött að
halda því fram að sjávarútvegs-
ráðuneytið hafl pantað þetta
hafnbann," sagði Ari Edwald.
-S.dór
Skattframtölm:
Það þarf hóp lögreglumanna til aðstoðar þegar fólk í hjólastólum kemur á þingpalla til aö hlýöa á umræður. Þannig
var það líka í gær og Guðmundur Magnússon, formaður ferlinefndar Sjálfsbjargar, segir að hreyfihamlaðir muni
halda áfram að mæta á þingpalla þegar málefni þeim tengd eru til umræðu. DV-mynd GVA
Aðgengi fatlaðra enn einu sinni til umræðu á Alþingi:
Til eru lög um þetta sem
ekkert er farið eftir
- segir Guðmundur Magnússon, formaður ferlinefndar Sjálfsbjargar
Heimilt að
skila inn
eftir helgi
Frestur til að skila inn skatt-
framtali til skattayfirvalda renn-
ur í raun út mánudaginn 12.
febrúar, í samræmi við stjóm-
sýslulög, þó að auglýst sé af
skattstjórum að fresturinn renni
út laugardaginn 10. febrúar. Þeir
sem skOa skýrslunni inn á
mánudaginn verða því ekki
sektaðir.
„Þetta er hárrétt. Samkvæmt
lögum um tekjuskatt og eigna-
skatt rennur framtalsfresturinn
út 10. febrúar en það leiðir af
stjórnsýslulögum og eðli máls að
það sem kemur inn þann 12.
telst hafa komið á réttum tíma,“
segir Gestur Steinþórsson, skatt-
stjóri í Reykjavík.
-GHS
„Því miöur var umræðan hér og
svör ráðherra jafn rýr og ég gerði
ráð fyrir. Þaö kom afskaplega lítið
nýtt fram. Þess vegna varð ég fyrir
vonbrigðum eins og oft áður. Það
sem mér þykir þó sárast við þetta
allt saman er að við höfum ágæt-
islög og reglugerðir um aðgengi fatl-
aðra. Það er bara ekkert farið eftir
þeim og hefur ekki verið gert í 20
ár. Þar er mjög skýrt kveðið á um
að við allar meiri háttar breytingar
á opinberu húsnæði skuli tekiö tillit
til hreyflhamiaðs fólks. Það er bara
ekki gert, samanber umhverfisráðu-
neytið síðan 1990. Þar er óhugsandi
að koma hjólastólum inn og ráö-
herra viðurkennir það. Þjóðleikhús-
ið má líka nefna sem dæmi,“ sagði
Guðmundur Magnússon, formaður
ferlinefndar Sjálfsbjargar, eftir um-
ræður um aðgengi fatlaðra að ýms-
um opinberum byggingum, á Al-
þingi í gær.
Guðmundur var þar kominn i
hjólastól sínum ásamt fleirum í
hjólastól. Og eins og alltaf þegar
fólk í hjólastólum ætlar að hlýða á
umræður í Alþingishúsinu þarf hóp
lögreglumanna til þess að bera það
upp á þingpalla. Alþingishúsið er
eitt versta dæmið sem til er í opin-
berum bygginum hvað aðgengi fatl-
aðra varðar.
„Ég held að ég geti lofað því að
við munum halda áfram að koma
hingað á þingpalla, þótt það kosti
mikla fyrirhöfn, þegar eitthvað það
er til umræðu á Álþingi sem snertir
okkur,“ sagði Guðmundur Magnús-
son. -S.dór
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
Já Jj
Nei _2j
,r 5 d d \
FOLKSINS*"
904-1600
Á Davíð Oddsson að gefa
kost á sér í forsetaframboð?
Albert GK:
Krafa gerð um björgunarlaun
- sjópróf verða á laugardaginn
„Við ætlum okkur að gera kröfu
um björgunarlaun. Það verða sjó-
próf á laugardaginn og eftir það
verður krafan endanlega orðuð.
Þeir menn sem ég hef heyrt í eru á
einu máli um að hér hafi verið um
björgun að ræða,“ segir Gísli M.
Auðbergsson, lögfræðingur á Eski-
firði, en hann hefur tekið að sér mál
útgerðar Alberts GK vegna björgun-
ar gríska flutningaskipsins Amakan
eystra um sfðustu helgi.
Útgerð Alberts GK telur að um
björgun hafi verið að ræða þegar
flutningaskipinu var snúið til rétts
vegar skömmu áður en það rak inn
í höfnina á Eskifirði. Nokkrar
skemmdir urðu á Albert við björg-
unina. Flutningaskipið er enn
eystra og á að lesta þar frysta loðnu
á Japansmarkað.
-GK
Stuttar fréttir
Nauðsyn að gefa effir
Ráðherrar telja nauðsynlegt
að síldarþjóðimar gefi eftir til
að ná samningum um norsk-ís-
lenska sUdarstofninn. Samn-
ingafundur verður í Noregi, skv.
Stöð 2.
Vegurinn sígur
Berghlaup, sem Siglufjarðar-
vegur liggur um, getur skriðið
fram í sjó hvenær sem er. Jarð-
sig er stöðugt og hefur vegurinn
sigið um allt að hálfan metra á
sólarhring, skv. RÚV.
Frestun óskiljanleg
Matthías Bjarnason telur
óskiljanlegt ef landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins verður frestað
til hausts. Hann segir þingmenn
ekki þora að spyrja um framboð
Davíðs. Timinn greindi frá.
Frystiskip til Súðavíkur
Frystiskipið Andey frá Horna-
firði verður líklega selt til
Frosta hf. á Súðavík. Aflaheim-
ildir fylgja, að sögn Útvarps.
Aðgangur að lyfjaskrám
Tölvunefnd hefur heimilað
landlækni aðgang að skrám apó-
teka yfir lyfjaávísanir lækna.
Apótekarar eru ósáttir við þetta.
Stöð 2 sagði frá.
Læknir Marínar kemur
Bandarískur sérfræðingur
kemur hingað tfl að gera aðgerð
á Marínu Hafsteinsdóttur sem
gekkst undir hjartaaðgerð í Bos-
ton í haust. Tryggingastofnun
greiðir kostnaðinn.
Ungbarn sótt
íslandsflug sótti ungbarn til
Grænlands í gærkvöld. Barnið
er með alvarlega veirusýkingu.
Mynd um áhrif tilrauna
Kvikmyndafyrirtæki íslend-
ings í Svíþjóð framleiðir kvik-
mynd um áhrif kjamorkutO-
rauna Frakka á líf í Suður-
Kyrrahafi. Morgunblaðið sagði
frá.
Tilsjónarmaður skipaður
Tilsjónarmaður hefur verið
skipaður að réttargeðdeildinni
að Sogni. Rekstrarkostnaður er
of hár, aö sögn Sjónvarps.
-GHS
Suðumes:
Glæsistúlkur
keppa i Stapa
DV, Suðurnesjiun:
Vali á þátttakendum í fegurð-
arsamkeppni Suðurnesja í ár er
lokið og munu 13 glæsistúlkur
víðs vegar af Suðurnesjum
keppa um titOinn Fegurðar-
drotting Suðurnesja. Úrslita-
kvöldið verður 16. mars í veit-
ingahúsinu Stapa.
Flestar stúlknanna eru úr
Keflavikurhverfi Reykjanesbæjar
eða fimm og þrjár eru úr Njarð-
víkurhverfinu. Þá eru þrjár stúlk-
ur úr Garðinum, ein frá Sandgerði
og önnur úr GrindavOc.