Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1996, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.1996, Side 5
FIMMTUDAGUR 8. FEBRÚAR 1996 5 » I » I i I > í i i s i i i i dv_________________________________________________Fréttir Bandarískur liðþjálfi fyrir herrétt vegna árásar á íslenska stúlku: Stúlkan féll frá kæru en herinn vill dóm - liðþjálfinn er grunaður um fleiri ofbeldisverk innan vallar Réttað var á Keflavíkurflugvelli í fyrradag í máli liðþjálfa í hernum vegna líkamsárásar á íslenska stúlku í september á síðasta ári. Samkvæmt heimildum DV var ráð- ist á stúlkuna í heimahúsi í Reykja- vík. Stúlkan kærði liðþjálfann fyrir árásina en féll síðan frá kæru. Hef- ur málið því aldrei komið fyrir ís- lenskan dómstól. Ríkissaksóknari lét málið niður falla þegar stúlkan hætti við kæruna. Áverkar á henni munu ekki hafa verið miklir. Málinu er þó ekki lokið fyrir lið- Leigubílasamningar: Ríkiskaup höfnuðu öll- um tilboðum - viðræður við BSH Samningur ríkisins við Hreyfil um leigubilaakstur fyrir ríkisstofnanir á höfuðborgarsvæðinu, aðrar en Ríkis- spítalana, rann út um síðustu mán- aðamót. Vegna þessa stóðu Ríkiskaup fyrir útboði á akstrinum. Þrjú tilboð bárust en Ríkiskaup höfnuðu þeim öllum. Hreyfill og BSR buðu sameig- inlega og tUboð komu einnig frá Bæj- arleiðum og Taxa. Gamli samningiu:inn við Hreyfil bauð upp á 35,5% afslátt af akstrin- um. Hér er um mikil verkefni að ræða fyrir leigubílastöðvarnar því samkvæmt upplýsingum frá Rikis- kaupum er akstur fyrir stofnanir rík- isins upp á 70-80 milljónir króna á ári, án afsláttar. Bifreiðastöð Hafnarfjarðar, BSH, sótti útboðsgögn en gerði ekki tilboð í aksturinn. Viðræður hafa hins vegar staðið yfir um að stöðin taki að sér akstur fyrir stofnanir rikisins. Hvort samningar takist skýrist á næstu dög- um. Aðeins 25 bílar eru hjá BSH og því ljóst að stöðin þyrfti að bæta við flotann ef samningar nást við Ríkis- kaup. -bjb Hljómsveitin Blur íupptökur til íslands „Ég hélt þetta væri hemaðarleynd- armál en ég get ekki neitað því að þetta hefur verið í undirbúningi um nokkurt skeið. Þeir hafa komið að máli við okk- ur en ef af þessu verður kemur bara Stúdió Sýrland til greina," segir Aöal- steinn Magnússon hjá Skífunni. Á Intemetinu má lesa að hljómsveit- in geysivinsæla, Blur, sé á leið til ís- lands og ætli að taka upp næstu plötu sína hér. Búið er að selja yfir 4.000 ein- tök af síðustu plötu hennar, The Great Excape. Ekki er vitað hvenær hljóm- sveitin kemur en hjá skrifstofu hennar fékkst þetta staðfest. Reykjavík: 24 milljónir í styrkveitingar Borgarráð hefur samþykkt að veita rösklega 24 milljónir króna til ýmissa íþróttafélaga og tómstundaféiaga í borginni. Hæstu styrkina hljóta KFUM og KFUK eða 5,6 milljónir og Skátasam- band Reykjavíkur 5,5 milljónir króna. Lægsta styrkinn hlýtur Foreldra- og kennarafélag Engjaskóla eða 30.000 krónur. -GHS þjálfann því yfirmenn hersins hafa látið draga hann fyrir herrétt. Hófust yfirheyrslur í gær og voru m.a. íslensk vitni kölluð fyrir. Eftir því sem heimildir DV herma er umræddur liðþjálfi grunaður um hafa staðið fyrir fleiri ofbeldisverk- um þótt svo hafi ekki verið utan vallar. Verði liðþjálfinn fundinn sekur fyrir herréttinum má hann búast við að verða vikið úr hernum með smán. -GK á hljómtækjum og geisladiskum Seljum nánast öll hljómtæki og bíltæki meö 10 - 30% afslætti KENWOOQ, Hljómtœki sem endast H af öllum Vinsælustu hátalarar Dana geróum WHARFEDALE Elsta breska hátalaramerkið G\RVER Powerful > Musical • Accurate Öðruvísi bátalarar Einfalt útlit fullkominn hljómur AC0USTIC IresSrÍ:h1 9ertum / áratugi á toppnum af öllum geröum Cerwin-Vega! HÁ-talarar sem stanáa undir nafni! GEISLADISKAR FRÁ 189 KR. MIKIÐ ÚRVAL. ALLAR GERÐIR TÓNLISTAR. ÍSLENSKT/ERLENT af öllum eróum l'MII þar sem gœðin heyrast Ármúla 17, Reykjavík, sími 688840

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.