Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1996, Síða 9
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1996
9
Utlönd
Réttarhöldunum yfir Menendez-bræörunum lokið:
Sekir um morð
á foreldrunum
Bræðurnir Erik og Lyle
Menendez voru fundnir sekir um að
hafa myrt foður sinn og eiginkonu
hans fyrir rétti í Los Angeles í gær
eftir fimm mánaða löng réttarhöld
þar sem dómarinn leyfði þeim ekki
að byggja vöm sína á kynferðislegri
og andlegri misnotkun. Þetta voru
önnur réttarhöldin yfir bræðrunum
fyrir morðin sem voru framin í
ágúst 1989.
Dómsúrskurðurinn felur í sér
ákvæði sem gæti leitt tO þess að
bræðurnir yrðu dæmdir til dauða.
Auk þess fann kviðdómurinn þá
Lyle, sem er 28 ára, og Erik, sem er
25 ára, seka um samsæri.
Við réttarhöldin kom fram að
bræðurnir gerðu sér ferð til San
Diego til að kaupa haglabyssur og
nökkrum dögum síðar myrtu þeir
foreldra sína, gáfu sér meira að
segja tíma til að endurhlaða byssur
sínar. Þeir skutu foður sinn, hinn 45
ára vellauðuga plötuframleiðanda
Jose Menendez í hnakkann, en eig-
inkona hans, hin 47 ára gamla
Kitty, var skotin niður þegar hún
reyndi að flýja.
Bræðurnir komu grátandi til lög-
reglunnar síðar sama kvöld og til-
kynntu morðin, sögðust hafa fundið
líkin þegar þeir komu heim af bíó.
Mörgum mánuðum síðar voru þeir
svo handteknir og ákærðir snemma
árs 1990. Þeir hafa setið i fangelsi
allar götur síðan.
Bræðurnir viðurkenndu að hafa
drepið foreldra sína en sögðust hafa
gert það vegna þess að þeir óttuðust
um líf sitt eftir margra ára illa með-
ferð.
Saksóknari hélt því fram að fég-
ræðgi hefði legið að baki morðun-
um, að bræðumir hefðu viljað kom-
ast með krumlurnar í 14 milljón
dollara auðæfi foreldra sinna.
í fyrri réttarhöldunum gat kvið-
dómurinn ekki komið sér saman
um úrskurð eftir tilfinningaþrungn-
ar vitnaleiðslur bræðranna um ára-
langa misnotkun af hálfu foreldr-
anna.
Bræðurnir sýndu engin svip-
brigði þegar úrskurðurinn var
kveðinn upp í gær. Refsiþáttur rétt-
arhaldcmna hefst á mánudag og þar
til honum lýkur er lögfræðingum
málsaðila bannað að tjá sig um mál-
ið. Reuter
Grímuklæddi mexíkóski glímukappinn Superbarrio Gomez tilkynnti framboð sitt til forsetaembættis Bandaríkjanna
í Mexíkóborg í gær undir slagorðinu „Við setjum traust okkar á blautbakana". Þar vísar hann í þrautagöngu margra
mexíkóskra innflytjenda til Bandaríkjanna. Símamynd Reuter
Pavarotti skilinn við konuna
Tenórsöngvarinn Luciano Pavarotti
og eiginkona hans til 35 ára tilkynntu
í gær að þau hefðu skilið að borði og
sæng. Nokkrum vikum áður viður-
kenndi stórsöngvarinn að hafa átt í
ástarsambandi við Nicolettu
Mantovani, 26 ára gamlan einkaritara
sinn.
í stuttri yfirlýsingu sem lögfræðing-
ur Aduu Pavarotti afhenti fjölmiðlum
sagði að þau hjónin hefði náð sam-
komulagi um skilnaðinn „af virðingu
hvort fyrir öðru og fjölskyldunni".
Söngvarinn og ritarinn höfðu stað-
fastlega neitað að eiga i ástarsambandi
þar til ljósmyndari tímarits stóð þau
að því að kyssast á baðströnd og birti
myndina. Reuter
iJ
ÚTBOÐ
Einkasímstöðvar
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í tvær
ISDN-einkasímstöðvar í samræmi við útboðsgögn RKS-01.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Landsvirkjunar,
Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík, frá og með fimmtudeginum
25. mars 1996, gegn óafturkræfu gjaldi að upphæð kr. 1.000
með VSK fyrir hvert eintak.
Tekið verður á móti tilboðum á skrifstofu Landsvirkjunar að
Háaleitisbraut 68, Reykjavík til opnunar mánudaginn
15. apríl 1996, kl. 14.00.
Fulltrúum bjóðenda er heimilt að vera viðstaddir opnunina.
MEGA DRIVE
LEIKJATÖLVA
M/STÝRIPINNA
BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI
Stuttar fréttir
NATO sendir hersveitir
NATO hefur sent hersveitir inn í
hverfi í Sarajevo vegna aukinnar
spennu um mörk hverfa múslíma og
Serba. Hermenn studdu löggæslu-
sveitir Sameinuðu þjóðanna vegna
frétta um að Serbar smygluðu vopn-
um inn í borgarhverfm.
Engir samningar
Bill Clinton
forseti og Bob
Dole, öldunga-
deildarþingmað-
ur og væntan-
legt forsetaefni
repúblikana,
hittust til við-
ræðna um fjár-
lagahaliann.
Raunverulegum viðræðum hefur þó
veriö frestað þar til eftir páska og
jafnvel þar til eftir forsetakosningar.
Skuidir ræddar
Hjá Alþjóðagjaldeyrissjóönum
ræddu menn leiðir til að koma í veg
fýrir að fátækustu ríki heims yrðu
enn fátækari og gætu ekki greitt
skuldir sínar.
Ný lög um lífeyrissjóði
Ernesto Zedillo, forseti Mexíkó,
kynnti lagafrumvarp um fyrstu
einkareknu lífeyrissjóði landsins
sem búist er við að útibú erlendra
banka muni reka.
Skoti frestað
Vegna vinda var frestað um sólar-
hring að skjóta geimskutlunni Atl-
antis á loft frá Canaveralhöfða.
Næturklúbbaherferð
Yfirvöld á Filippseyjum hafa haf-
ið herferð gegn næturklúbbum með
ófullnægjandi útgönguleiðum eftir
brunann um helgina þar sem 151 lét
lífið.
Róar Jeltsín
Javier Sol-
ana, fram-
kvæmdastjóri
NATO, hittir
Jeltsfn Rúss-
landsforseta í
dag í tilraun til
að koma á nán-
ari tengslum við
Rússa og slá á
ótta vegna stækkunar hemaðar-
bandalagsins.
Dóu úr gaseitrun
Þrír laumufarþegar sem falið
höfðu sig í kakófarmi skips á leið
frá Afríku til Bandaríkjanna dóu
vegna gaseitrunar.
Sjálfsmorðstilræði
Sjálfsmorðsskæruliöi Hizbollah-
samtakanna varð einum ísraelskum
hermanna að bana og særði fimm í
Líbanon. Reuter
AT&T324S
NetturGSM-
sími-en
öflugur!
• Fastloftnet
• 20 tíma rafhl
• Aðeins 280
t
•
KALIMAR
MYNDAVÉLAR
SPIRIT F
35 mm myndavél. Fæst í fjórum
lltum.
Verð kr. 1.590
SPIRIT FUN PACK
35 mm myndavél. Filma og
rafhlaða fylgja.
Verð kr. 1.995
SPIRIT AF
35 mm myndavél. Alsjálfvirkur
með sjálfvirkum fókus.
Verð kr. 3.990
SPIRIT AT
35 mm myndavél. Alsjálfvirk -
Engin rauð augu - Getur tekið
gleðimyndir.
Verð kr. 7.990
AWIO
Vatnsheld myndavél. Tilvalin í
sundlaugina eða á ströndina.
Verð kr. 3.990
AF CASE
Taska fyrir myndavél.
Verð kr. 1.280
TWIN CASE
Taska fyrir myndavél.
Verð kr. 995
ÉMÍÉgMÉÉIl
Ármúla 38 (Selmúlamegin), 108 Reykjavík
Sími 553 1133 • Fax 588 4099