Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1996, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1996, Blaðsíða 13
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1996 13 Hvalfj aröartollur inn: Brú við Kiðafellsána „í áratug er rekstrarkostnaöur því orðinn einn til einn og hálfur milljarður og þá eru brúin og göngin orðin jafn dýr.“ Brú viö Kiöafellsána byggð af Vegagerðinni hefði verið góður kostur. Slík brú er um milljarði króna dýrari framkvæmd en væntanleg göng en miklu áhættu- minni framkvæmd. Rekstrar- kostnaður ganganna mun verða á bilinu 100 til 150 milljónir á ári. í áratug er rekstrarkostnaður því orðinn einn til einn og hálfur milljarður og þá eru brúin og göngin orðin jafn dýr. Ef litið er til lengri tíma verða göngin okkur óhagstæðari og óhagstæðari. Ef menn endilega vildu gera göng undir Hvalfjörðinn, með allri þeirri áhættu sem því fylgir, af hverju í ósköpunum gerðu menn þá ekki jarðgöngin við Kiða- fellsána? Þau jarðgöng hefðu verið einum milljarði ódýrari, skv. út- tekt Vegagerðarinnar, en væntan- leg Hnausaskersgöng. Kjallarinn Friðrik Hansen Guðmundsson byggingaverkfræðingur megum fara út í vegabætur í Hval- firðinum. Bara það að hafa göngin lokuð í einn áratug myndi borga upp allar framkvæmdir við að laga veginn fyrir Hvaltjörðinn. Út alia næstu öld? Greinarhöfundur hefur litla trú á því að ríkið muni eftir 20 ár vilja taka við þessum jarðgöngum og sturta 100 til 150 milljónum á ári ofan í Hvalfjörðinn. Menn muni þá hafa val um tvennt. Annars vegar að afskrifa göngin og loka þeim og byggja upp veginn fyrir Hvalfjörðinn og yfir Dragann. Hins vegar að halda áfram gjaldtöku þarna út alla næstu öld, eða þar til náttúruöflin, sem skópu þetta land og eru stöðugt að breyta því og bylta, munu sjá um að loka þeim fyrir okkur. Friðrik Hansen Guðmundsson Hvalfjörðurinn og Geld- ingadragi Sú lausn, sem er væntanlega hagstæðust, er að byggja upp veg- inn fyrir Hvalljörð og brúa frá Kattarhöfða yfir í Þyrilsnes og fara með veginn þaðan yfir Geld- ingadraga. Myndi þetta stytta leið- ina norður svipað og göngin undir Hvalfjörðinn. Kostnaðurinn við að laga veginn fyrir Hvaltjörðinn er álíka og rekstrarkostnaður gang- anna í einn áratug, eða 1 til 1,5 milljarðar. Göngunum lokað eftir 20 ár? í ljósi þess gífurlega kostnaðar sem rekstur ganganna kallar á, þ.e. um 100 milljónir á ári sam- kvæmt heimildum Spalar hf. vegna dælingar, loftræstingar o.s.frv. og væntanlega 50 milljónir til viðbótar á ári vegna reksturs slökkvistöðvar við göngin, eða alls um 150 milljónir á ári, þá hljótum við eftir 20 ár, þegar Spölur vill af- henda ríkinu jarðgöngin til eign- ar, að velta því alvarlega fyrir okkur hvort við eigum að halda þeim opnum eða loka þeim. Þá verður samningur ríkisins við Spöl fallinn úr gildi og við Að hafa göngin lokuð í einn áratug myndi borga upp allar framkvæmdir við að laga veginn fyrir Hvalfjörðinn, segir m.a. í grein Friðriks. Stefnumótun í upplýsingamálum Fram eru komnar tillögur menntamálaráðuneytisins til stefnumótunar í upplýsingamál- um. Slíkar tillögur eru vægast sagt tímabærcU-. Þótt ljóst hafi ver- ið um rúmlega tveggja áratuga skeið að upplýsingamál eru mála- flokkur sem skiptir meira máli en margt annað í nútímaþjóðfélagi þá hafa íslensk stjórnvöld ekki sýnt þessum málum neinn teljandi áhuga fyrr en nú. Frumkvæði menntamálaráðherra, Bjöms Bjamasonar, og sérstakur áhugi hans á þessum málaflokki skiptir því miklu. Árin 1979 til 1990 starfaði nefnd á vegum menntamálaráðuneytis sem vann að samræmingu og stefnumótun um upplýsingamál (Samstarfsnefnd um upplýsinga- mál). Tillögur nefndarinnar fengu lítinn byr sakir takmarkaðs áhuga ráðamanna. Sú breyting sem nú er orðin í þessum málum er því fagn- aðarefni. Hvað gerir upplýsingar mikilvægar? Með upplýsingum miðla menn reynslu og þekkingu og boðum sín á milli. Upplýsingar eru því for- senda þess að menn samnýti af- raksturinn af hvers kyns þekk- ingaröflun sem oft er mjög kostn- aðarsöm. Þessi samnýting á sér oft stað með fremur óverulegum til- kostnaði. Iðulega þarf sá sem nýt- ir sér reynslu annarra með aðstoð skráðra upplýsinga ekki að greiða Kjallarinn Jón Erlendsson yfirverkfræðingur Upplýsingaþjón- ustu Háskólans nema hverfandi brot af upphaflegu „framleiðsluverði". Við þetta bætist það séreðli þekkingar að engin takmörk eru fyrir þeim fjölda notenda sem hag- nýtt geta sér hana eftir að hún er tiltæk. Það er því lítil furða að það er almenn skoðun sérfræðinga um efnahagsmál að hraðar efnahags- framfarir byggi öðru fremur á víð- tækri og hraðri útbreiðslu þekk- ingar og reynslu með rekstri öfl- ugrar fræðslu- og upplýsingastarf- semi. Þótt rökin fyrir því að láta upp- lýsingamál skipa veigamikinn sess í þjóöfélaginu séu þannig borðleggjandi þá hefur það ekki leitt sjálfkrafa til viðeigandi áherslu hérlendis. í þessu efni eins og mörgum öðrum hefur hefð- in ráðið ríkjum og tafið um ára- tugi þróun sem að réttu hefði átt að fá verulegan byr miklu fyrr. Hvað þarf að gera? Upplýsingar þurfa að verða miklu aðgengilegri fyrir almenn- ing og atvinnulíf en nú er raun á. Enn fremur er þörf á þvi að þær standi til boða með mjög viðráðan- legum tilkostnaði. Þetta þýðir ann- ars vegar aö það skipulag sem byggt er upp til miðlunar þarf að vera sterkt og virkt. Hins vegar að sjálfir neytendumir þurfa að vera mjög virkir og áhugasamir. Lítt dugar að efla góð þjónustukerfi ef notkun þeirra er ónóg vegna áhuga- eða þekkingarskorts not- endanna. Þörfin fyrir almenna fræðslu Veigamikill þáttur í að efla not- endurna er að taka upp almenna fræðslu um upplýsingamál og upp- lýsingaöflun. Þessi fræðsla þarf að ná allt frá grunnskóla og til há- skólastigs. Hver einasti nemandi sem útskrifast úr framhaldsnámi og æðra námi ætti að þekkja aUvel allar helstu upplýsingalindir og uppsprettur upplýsinga á eigin fagsviði. MikiU misbrestur er í þessu efni í dag enda er kennsla af þessu tagi sáralítU víðast hvar. En fræðsla um upplýsingaöflun er ekki nóg. Að auki þarf að gera mikið átak í því að efla sjálfs- menntagetu fólks og áhuga þess á að læra aUt lífið. Greiður aðgang- ur að upplýsingum gerir fólk ekki endUega áhugasamt né hæft um að stunda virka símenntun. AUir vita að bækur rykfalla ólesnar um land aUt í bókahiUum sem eru innan seilingar. Nýir möguleikar tU að afla gagna sem enginn les skipta því litlu. Átak þarf enn fremur að gera í eflingu framtaks tU að nýta þá þekkingu sem aflað er tU verð- mætasköpunar. Jón Erlendsson „Þótt rökin fyrir því að láta upplýsinga- mál skipa veigamikinn sess í þjóðfélaginu séu þannig borðleggjandi þá hefur það ekki leitt sjálfkrafa til viðeigandi áherslu hérlendis.“ Benedikt Valsson, framkvæmdastjóri FFSÍ. Meö og á móti Eignaraðild útlendinga í fiskvinnslu Hvati fyrir áhættufé „Erlendum aðilum er heim- Ut að fjárfesta í rekstri sem nýt- ir sér hráefni, það er að segja hálfunnar sjáv- arafurðir, eins og frystan fisk, saltaðan fisk og hertan, til frek- ari úrvinnslu. Þetta tel ég ekki vera hvata fyrir erlent áhættufé. Þess vegna tel ég óhætt að þeim verði veitt heimild til að vera með rekstur i frum- vinnslu sjávarafurða í landi hér- lendis. Þá um leið skapast raun- hæfir auknir möguleikar á að hingað berist aukið erlent áhættufé. Með því ættum við að geta tengst betur erlendri tækni- þekkingu og markaðsaðgangi. Þrátt fyrir þessi sjónarmið og þessa afstöðu okkar tel ég ekki að verið sé á nokkurn hátt að minnka forræði íslensku þjóðar- innar yfir náttúruauðlindum landsins, þar með töldum auð- lindum sjávar. Til að tryggja það tel ég nóg að útgerðarfyrirtækin sem slík séu alfarið í eigu íslend- inga. Til að tryggja hér enn frek- ar sambúð erlendra rekstraraðila í fiskvinnslu við íslenska eigna- raðila í útgerð þá sé þessu best fyrirkomið þarinig að ísfiskur, sem landað e'r hér á landi, fari í gegnum fiskmarkaði. Þar með er slitið á milli tengsla veiða og vinnslu.“ Lítum á málið í heild „Samtök fisk- vinnslustöðva hafa á síðast- liðnum tveim- ur árum ályktað á aðal- fundum í þá veru að þau styðji óbeina aðild útlend- Arnar S|gurmunds. mga aö Sjav- son, framkvæmda- arútvegsfyrir- stjóri sfs. tækjum hér á landi. Einkum í fyr- irtækjum sem eru almennings- hlutafélög með dreifðri eignaraö- ild. í núverandi lögum er ekki gerður munur á því hvort aðilar eru í sjávarútvegi almennt eða fiskvinnslu og útgerð sérstaklega. í viðræðum við þingnefndir í undirbúningi að frumvarpi til laga, sem nú hefur verið lagt fram á Alþingi, höfum viö stutt þær út- víkkanir sem stjómarfrumvarpið gerir ráð fyrir að nái utan um nú- verandi ástand hvað varðar sjáv- arútveginn í heild. Á síðustu vik- um hafa komið fram hugmyndir sem ganga í þá veru að hægt sé að taka fiskvinnsluna sérstaklega út úr og banna eingöngu eignaraðild útlendinga að útgerðinni sjálfri. AÚðvitað er tæknilega séð hægt að gera þetta. Það er hægt að stofna sérstök hliðarfyrirtæki eða dótturfyrirtæki þar sem sjávarút- vegsfyrirtæki, sem bæði er í út- gerð og vinnslu, myndi stofnað eingöngu fyrir fiskvinnslu með útlendingum. Hins vegar væri hægt aö stofna fyrirtæki sem væri eingöngu í vinnslu og út- lendingar ættu. Ég óttast slíka samkeppni. Ég neita því ekki að stórir erlendiar aðilar myndu geta leikið grátt mörg lítil fisk- vinnslufyrirtæki hér á landi. Þess vegna höfum við lagst gegn þess- ari hugmynd. Við viljum líta á sjávarútvegsfyrirtækin í heild.“ -S.dór Kjallarahöfundar Æskilegt er að kjallaragreinar berist á tölvudiski eða á netinu. Hætt er við að birting annarra kjallaragreina tefjist. Netfang ritstjórnar er: dvritst@centrum.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.