Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1996, Síða 25
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1996
Strætið í fok-
heldu leikhúsi
Leikhópur Nemendafélags Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja frumsýnir í
kvöld Stræti eftir Jim Cartwright og
verður það sýnt í stórum sal, Ársölum,
sem enn er aðeins fokheldur.
Djasstríó á Café Amsterdam
í kvöld leikur djasstríó ásamt söngv-
aranum Geira Ólafs á Café Amsterdam.
Tríóið skipa Carl Möller, Árni Schev-
ing og Guðmundur Steingrímsson.
Annað Músíktilrauna-
kvöldið
í kvöld verður annað Músiktilrauna-
.kvöld Tónabæjar og ÍTR. Hljómsveit-
imar sem koma fram eru: Panorama,
Sódavatn, Be Spiders, Ormétinn,
Skvaldur, Á túr og Hi Fly. Gestahljóm-
sveit er Maus.
Sinfómutónleikar
í Keflavík
Sinfóníuhljómsveit íslands heldur
tónleika í tónfeikaröðinni Tónlist fyrir
alla í íþróttahúsinu í Keífavík kl. 20.00
í kvöld. Einleikari er Andrés Bjömsson
trompetleikari.
Skemmtifundur
í Valhöll
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt held-
ur skemmtifund í Valhöll í kvöld.
Fundarstjóri er Rósa Ingólfsdóttir.
Tríó Ólafs Stephensen.
Afmælistónleikar
Hið kunna djasstríó Ólafs Stephen-
sen heldur afmælistónleika í Norræna
húsinu í kvöld kl. 20.30. í tríóinu leika
auk Ólafs Tómas R. Einarsson og Guð-
mundur R. Einarsson.
Ferðabúnaður til fjalla
Björgunarskóli íslands og Slysa-
vamafélag íslands standa fyrir fræðslu-
fundi fyrir almenning um ferðabúnað
til göngu- og fjallaferða i Hlíðarenda,
Hvolsvelli, í kvöld kl. 20.00.
Saga kristni og kvenna
á íslandi
Inga Huld Hákonardóttir rithöfund-
ur flytur fyrirlestur i Hallgrímskirkju í
kvöld kl. 20.30 á vegum Reykjavíkur-
prófastsdæmis vestra um sögu kristni
og kvenna á íslandi.
Samkomur
Tónleikar og ljóðalestur
verða i Listasafni Kópavogs - Gerðar-
safni í kvöld. Flytjendur era tónlistar-
mennimir CamÚla Söderberg og
Snorri Örn Snorrason og Arnar Jóns-
son leikari.
Tvímenningur
Bridge, tvímenningur, verður í Ris-
inu kl. 13.00 í dag. Leiksýning kl. 16.00.
Réttindi og skyldur opin-
berra starfsmanna
er yfirskrift hádegisverðarfúndar á
Hótel Borg á morgun kl. 12.00 til 13.30.
Frummælendur: Gunnlaugur Sig-
mundsson og Eiríkur Tómasson.
Ráðstefna úm
húsnæðiskerfið
Húsnæðiskerfið - Miklir peningar,
lítill árangur? er yfirskrift ráðstefhu
sem verður í Komhlöðunni við Lækjar-
brekku i dag kl. 16.30. Fyrirlestrar og
pallborðsumræður.
Eilífðin og eilífa lífið
er yfirskrift fyrirlestrar sem
séra Vigfús Þór Ámason, sókn-
arprestur í Grafarvogi, heldur
hjá Digranessöfnuði í kvöld kl.
20.30.
Skálafell
771 m.y.s.
Stólalyfta
Lengd 1200 m
Flutningsgeta
1200 manns
pr. klst.
Skíðasvæðið
Skálafelli
Létt leiö
Tjalz Gizur á Gauki á Stöng:
Frumsamið í bland
við annað
Gaukur á Stöng býður upp á lif-
andi tónlist í kvöld eíns og önnur
kvöld vikunnar. Staður þessi, sem
er í hjarta Reykjavíkur og er einn
grónasti „pöbbinn“ í bænum, hef-
ur lengi verið í fararbroddi þeirra
staða sem flytja lifandi tónlist. í
kvöld er það hljómsveitin Tjalz
Gizur sem leikur fyrir gesti stað-
Skemmtanir
arins. Hljómsveitarmeðlimir eru
búnir að starfa saman í nokkurn
tíma og spilað víða. í kvöld flytja
þeir frumsamið efni í bland við
þekkt lög. Munu þeir sjálfsagt
flytja lög sem prýða munu fyrstu
plötu sveitarinnar en stefnt er að
því að hún komi út í sumar.
Þeir sem skipa Tjalz Gizur eru:
Kristinn Júníusson, sem er söngv-
Tjalz Gizur leikur á Gauknum í kvöld.
ari sveitarinnar, Guðlaugur Júní-
usson, leikur á trommur, Egill
Tómasson, á gítar, Einar Hjartar-
son, einnig á gítar, og Amar Dav-
íðsson, á bassa. Tónleikar Tjalz
Gizur hefjast í kringum 10.30.
Helstu þjóð-
vegir færir
Allir helstu þjóðvegir landsins
eru færir en víða er hálka á fjallveg-
um og snjór er á vegum sem liggja
hátt. Á vesturleið er snjór á Stein-
grímsfjarðarheiði og Eyrarfjall er
ófært vegna snjóa. Verið er að lag-
færa Flateyrarveg og eru bílstjórar
Færð á vegum
beðnir að sýna aðgát. Á Austurlandi
er það aðeins Mjóafjarðarheiði sem
er ófær en snjór er á Oddsskarði,
Hellisheiði eystri og Fjarðarheiði. Á
Norðurlandi er vert að benda á að
hálka er á Lágheiði. í Borgarfirði er
hámarksöxulþungi 5 tonn á Geld-
ingadraga.
0 Hálka og snjór 0 Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
Q) LokaörStÖÖU H Þungfært @ Fært fjallabílum
Tvíburarnir
Sif og Arna
Þessar myndarlegu stúlkur á
myndinni eru tvíburar sem fædd-
ust á fæðingardeild Landspítalans
2. mars. Þær hafa fengið nöfnin Sif
og Ama Fannberg. Sif varð fyrri í
Barn dagsins
heiminn. Hún fæddist kl. 2.12 og
var 2244 grömm að þyngd og 46,5
sentímetra löng. Arna fæddist kl.
2.38 og var 2430 grömm að þyngd og
46,5 sentímetra löng. Foreldrar tví-
buranna eru Sigrún K. Halldórs-
dóttir og Þór Fannberg Gunnars-
son.
Baddi ásamt fósturmóður sinni.
Fjársvínið
Baddi
Sam-bíóin hafa sýnt undanfarið
við góða aðsókn hina vinsælu kvik-
mynd Babe en víst er að engin kvik-
mynd kom jafn rækilega á óvart í
fyrra og endaði hún sem ein vinsæl-
asta kvikmynd ársins og hefur af-
rekað það að fá sjö tilnefningar til
óskarsverðlauna, meðal annars sem
besta kvikmynd, það kemur síðan í
ljós aðfaranótt þriðjudags hvort hún
hreppir einhverja óskara.
Babe er áströlsk/bandarisk fram-
leiðsla, gerð að öllu leyti í Ástralíu.
Aðalpersónan er grísinn Baddi sem
leyfir sér að vera öðruvísi en önnur
svín. Baddi hefur nefnilega tekið
það í sig að hann geti orðið fjár-
hundur.
Framleiðandi myndarinnar er
hinn kunni ástralski leikstjóri, Ge-
orge Miller. Meðal kvikmynda sem
Kvikmyndir
hann hefur leikstýrt eru Mad Max
myndirnar. Leikstjóri Babe er Chris
Noonan sem búinn er að vera tutt-
ugu og fimm ár í bransanum í Ástr-
alíu en Babe er fyrsta kvikmynd
hans. Bandariski leikarinn James
Cromwell leikur bóndann á bænum
þar sem svínið er og hefur hann ver-
ið tilnefndur til óskarsverðlauna.
Hægt er velja um að sjá myndina
með ensku tali eða íslensku.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Ópus herra Hollands
Háskólabíó: Dauðamaður nálgast
Laugarásbíó: Nlxon
Saga-bíó: Fair Game
Bíóhöllin: Babe
Bíóborgin: Faðir brúðarinnar II
Regnboglnn: Fordæmd
Stjörnubió: Einkaspæjarinn
Gengið
Almennt gengi LÍ
21. mars 1996 kl. 9,15
Eininq Kaup Sala Tollgenqi
Dollar 65,980 66,320 65,900
Pund 101,570 102,080 101,370
Kan. dollar 48,490 48,790 47,990
Dönsk kr. 11,5790 11,6400 11,7210
Norsk kr. 10,2950 10,3520 10,3910
Sænsk kr. 9,9450 10,0000 9,9070
Fi. mark 14,3440 14,4290 14,6760
Fra. franki 13,0590 13,1330 13,2110
Belg. franki 2,1756 2,1886 2,2035
Sviss. franki 55,2500 55,5600 55,6300
Holl. gyllini 39,9500 40,1800 40,4700
Þýskt mark 44,7300 44,9500 45,3000
ít. lira 0,04241 0,04267 0,04275
flusf. sch. 6,3560 6.3950 6,4450
Port. escudo 0,4324 0,4350 0,4364
Spá. peseti 0,5318 0,5351 0,5384
Jap. yen 0,61910 0,62280 0.63330
jrskt pund 104,430 105,080 104,520
SDR 96,35000 96,93000 97,18000
ECU 82,8600 83,3600
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Krossgátan
Lárétt: 1 ósvífin, 8 aur, 9 frístund, 10
klefi, 11 sting, 13 flaut, 15 illgresi, 17 bar-
dagi, 18 tjóna, 20 brúnina, 21 æst, 22 átt.
Lóðrétt: 1 hönk, 2 tíðum, 3 fuglinn, 4
heppnast, 5 fjær, 6 mánuöur, 7 fljótum,
12 borga, 14 hlunnindi, 16 uppgötvaði, 19
farfa, 20 róta.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 mjöll, 6 óm, 8 aur, 9 auka, 10
urtu, 11 net, 13 töngin, 16 art, 18 aumi, 19
sauð, 20 auð, 21 klifra.
Lóðrétt: 1 maula, 2 jurt, 3 ört, 4 launaði,
5 lungu, 6 ók, 7 mat, 12 eimur, 14 ötul, 15
niða, 17 rak, 19 sá, 20 af.