Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.1996, Qupperneq 28
Vlnnlngstölur mlðvlkuc ’aglm Fjöldi vinninga 120.3/96 Vinningsupphxó ^
^ I( 3 25 26) 3 17.176,600!
’hn íw' 0 538.801 «
(27X28X41) 3 w‘ 4 52.270 1
203 1.630 f
W (t YkVaIS s 3of‘' wv 671 210 |
3 vLa®J55'í „l:;í 52.74 ibipupp/ueÖ 19.481 A filond 1.219.681
Miðvikudagur (&) (^) (jO) (j^)
KÍN tt
I
> FRÉTTASKOTIÐ
CC J—J LXJ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
^ o S LO <=c Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn.
oo *—3
1— LTD 1— 550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 21. MARS 1996
Björn Grétar Sveinsson, formaöur Verkamannasambandsins:
Verðum að koma
þessum uppvakn-
ingi fýrir kattarnef
- formenn allra verkalýðsfélaga landsins boðaðir til fundar
Eldur í Vini ÍS:
Sama vanda-
málið ojg í
- Kofra IS
„Þaö er sama vél í bátnum og í
Kofranum og mér virðist sem eldur-
inn hafi komið upp á sama stað.
Þetta virðist því vera sama vanda-
málið,“ segir Einar Einarsson, skip-
stjóri á Vini ÍS 8 frá Hnífsdal.
Eldur kom upp í bátnum í gær-
kvöldi, rúmum hlukkutíma eftir að
lagt var úr höfn í Bolungarvík. Var
báturinn þá kominn til móts við
Galtarvita. Einar sagði að tölverður
eldur hefði blossað upp en yfirvél-
stjórinn, Jón Torfason, hefur lært
reykköfun og hann náði að slökkva
eldinn.
„Þetta hefði getað farið eins og í
Kofranum ef ekki hefði náðst að
bregða svo. skjótt við,“ sagði Einar.
Búið var að kalla út þyrlu Landhelg-
isgæslunnar en hún fór aldrei í loft-
ið. Þá var Flosi ÍS nærstaddur.
Vini var siglt fyrir eigin vélarafli
til hafnar í Bolungarvík í nótt.
Skemmdir urðu ekki meiri en svo
að haldið verður út á ný í dag.
-GK
Hornafjörður:
. Sigldi á
grjótgarð
Sex tonna trilla skemmdist nokk-
uð í gærkvöld þegar henni var siglt
á grjótgarð í innsiglingunni í
Hornafiarðarós um klukkan tíu.
Gott veður var og er ókunnug-
leika á aðstæðum kennt um óhapp-
ið. Trillan var dregin á flot og til
hafnar á Höfn. Einn maður var um
borð og sakaði hann ekki. -GK
Tekinn tvisvar
á sama
- klukkutíma
Kópavogslögreglan tók í gær
sama ökumanninn tvisvar á sama
klukkutímanum fyrir of hraðan
akstur. Mikið var um að ökumenn
virtu ekki hraðamörk í bænum í
gær og voru ekki færri en 36 stöðv-
aðir og fá þeir sekt. Enginn ók þó
svo hratt að hann væri sviptur öku-
réttindum. -GK
Fyrstu sinu-
eldarnir
Fyrstu sinueldar ársins loguðu í
gær í Fossvogi og Víðidal. Þetta er
— óbrigðull vorboði en ekki ýkja ljúf-
ur. Slökkviliðið fór á báða staðina
og hlaust ekki tjón af. -GK
„Við bregðumst við þessari
árás eins og til var stofnað. Við
verðum að fara og kynna þetta
mál í hverju einasta verkalýðsfé-
lagi landsins. Það verður róið að
því öllum árum að koma þessum
uppvakningi, sem frumvarp fé-
lagsmálaráðherra er, fyrir kattar-
nef. Við þurfúm að taka upp bar-
áttuna úti í kjördæmunum. Þetta
er orðin stéttarpólitísk barátta
við þá sem eru með þetta og ætla
að koma frumvarpinu í gegnum
þingið. Þess vegna verðum við að
sækja til fólksins úti í kjör-
dæmunum sem er með fulltrúa
sína á hinu háa Alþingi,“ sagði
Björn Grétar Sveinsson, fonnaður
Verkamannasambands íslands,
um viðbrögð verkalýðshreyfing-
arinnar við frumvarpi félags-
máiaráðherra um stéttarfélög og
vinnudeilur
Alþýðusambandið hefur boðað
formenn allra aðildarfélaga sam-
bandsins til fundar á morgun. Þar
verður málið rætt og línur lagðar
um til hvaða aðgerða verður gripið.
„Við hljótum að taka mjög hart
á móti þessari árás. Okkur væri
gert ómögulegt að vinna eins og
menn ef þetta frumvarp verður
samþykkt," sagði Guðmundur Þ
Jónsson, formaður Landssam-
bands iðnverkafólks, í morgun.
„Ég trúi því ekki að menn fari
að stefha í átök á vinnumarkaði
vegna þessa frumvarps. Það vek-
ur athygli mína og veldur Hka
vonbrigöum varðandi viðbrögð
verkalýðshreyfingarinnar að ég
hef ekki heyrt rökstudda gagn-
rýni af þeirra hálfu á eitt einasta
tiltekið atriði í frumvarpinu.
Mest í frumvarpinu er bj’ggt á því
starfi sem við áttum í nefnd fé-
lagsmálaráðherra í tæp tvö ár,
þar sem menn voru í góðu tómi
að vinna. Það er hins vegar rétt
að innan verkalýðshreyfingarinn-
ar hafa verið sterkir aðilar sem
hafa ekki mátt til þess hugsa að
þessum reglum verði komið í lög.
Þeir hafa viljað semja um málið á
þann veg að samningurinn bindi
bara þau stéttarfélög sem skrifi
undir hann, hin ekki. Þar með
myndu mismunandi reglur gilda
á vinnumarkaðnum. Enda þótt
mér þyki frumvarpið ef til vill
ekki ganga nógu langt á öllum
sviðum er það engin spurning að
það er til mikilla bóta,“ sagði Þór-
arinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, i morgun.
Frumvarpið verður eina málið
á dagskrá Alþingis í dag og má
búast við löngum og snörpum um-
ræðum. -S.dór
Biskupsmálið:
Yfirheyrslur
hófust í
morgun
Yfirheyrslur hófust klukkan tíu í
morgun hjá Rannsóknarlögreglunni
vegna opinberrar rannsóknar á
ávirðingum á hendur Ólafi Skúla-
syni biskup um kynferðislega
áreitni. Kallaðar voru fyrir Sigrún
Pálína Ingvarsdóttir og Stefanía
Þorgrímsdóttir.
„Nú er tækifærið fyrir þá sem
hafa eitthvað til málanna að leggja
að koma fram,“ sagði Sigrún Pálína
í samtali við DV í morgun. Reiknað
var með að yfirheyrslur yfir konun-
um stæðu í allan dag og jafnvel á
morgun líka. -GK
Prestar í Hólastifti:
Þagnarmúr-
inn rofinn
Prestar í Hólastifti komu saman
til fundar á Akureyri í gær til að
ræða málefni kirkjunnar, einkum
stöðu biskups og biskupsembættis-
ins og Langholtsdeiluna.
Fundarmenn urðu sammála um
að ræða ekki við fjölmiðla um það
sem fram fór en samkvæmt heimild-
um DV urðu menn ásáttir um að
sérhver sóknarprestur yrði að eiga
það við samvisku sína hvernig
hann ræddi þessi mál við sóknar-
börn sín og aðra sem til þeirra leit-
uðu, enda ætti söfnuðurinn kröfu á
því að vita afstöðu presta sinna til
málefna kirkjunnar. Nokkrir prest-
ar hafa þegar gert sóknarbörnum
sínum grein fyrir skoðunum sínum
í ræðu og riti og eftir fundinn má
búast við að fleiri komi i kjölfarið.
____________________-SÁ
Grundarfjöröur
Velti inn í
húsagarð
Ungur Grundfirðingur slasaðist
lítilega þegar hann velti bíl sínum
inn í húsagarð við Grundargötu, að-
algötuna í bænum, laust eftir mið-
nættið í nótt. Fékk hann skurð á
höfuðið en slapp við meiri meiðsl.
Bílinn er töluvert skemmdur. -GK
Innbrotafaraldur
í nótt var brotist inn í þrjá bíla í
Breiðholti og úr þeim stolið hljóm-
flutningstækjum. Ekki komst upp
um innbrotin fyrr en fólk fór í
vinnu í morgun og náðust þjófarnir
ekki.
í fyrrinótt var einnig brotist inn í
þrjá bíla i Grafarvogi en í því tilfelli
náðust þjófarnir á staðnum.
-GK
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, á miðstjórnarfundi sambandsins í gær. Þar var frumvarpið um stéttarfélög og
vinnudeilur til umræðu og því hafnað og boðað til baráttu gegn því. Það eru þeir Hervar Gunnarsson, varaforseti
ASÍ, og Ari Skúlason, framkvæmdastjóri sambandsins, sem eru á myndinni með forseta ASÍ.
DV-mynd BG
L O K I
Veðrið á morgun:
Þurrt og
bjart
austan til
Veðurstofan býst við suð-
lægri átt, allhvassri um landið
norðvestanvert en hægari ann-
ars staðar. Vestan til á landinu
verður rigning en þurrt og
bjart veður austan til. Hiti
verður 2-7 stig.
Veðrið í dag
er á bls. 36
Hlaðborð í hádeginu
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
Vbulsen
Suðurlandsbraut 10. S. 568 6499