Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1996
Fréttir
i>v
í stöðugri lífshættu eftir að hafa orðið vitni að ráni á Jamaíku:
Hann ætlaði að skjóta
mig en hitti hundinn
- segir Hildur Sigmarsdóttir, 16 ára skiptinemi úr Vestmannaeyjum
„Hann ætlaði að skjóta fyrstu
manneskjuna sem kæmi upp stig-
ann. Ég fór á undan hjónunum inn
í húsið og því reyndi hann að skjóta
mig en hitti hundinn. Ég er logandi
hrædd og er enn að reyna að átta
mig á því sem gerðist," segir Hildur
Sigmarsdóttir, 16 ára skiptinemi úr
Vestmannaeyjum, í samtali viö DV.
Frá því í ágúst hefur Hildur verið
við nám í Kingston á Jamaíku. Á
mánudagskvöldið kom hún heim að
loknum skóla með hjónunum sem
hún er hjá. Þá vildi svo til að vopn-
aður innbrotsþjófur var fyrir í hús-
inu. Hildur fór inn á undan hjónun-
um og upp á efri hæð hússins. Þar
beið þjófurinn eftir að ryðja sér leið
út enda átti hann ekki von á að
heimilisfólkið kæmi svo snemma
heim.
Heimilishundurinn var með Hildi
og varð hann fyrir fyrsta skotinu.
Hildi sakaði hins vegar ekki. Hún
segist engu að síður hafa orðið fyrir
miklu áfalli og dvöl hennar á Jama-
íku lýkur á morgun, þremur mán-
uðum áður en ætlað var.
„Hundurinn ætlaði strax að
stökkva á þjófinn og þvi hefur hann
orðið fyrir skotinu. Hann rann
særður niður stigann en reyndi
strax að komast upp aftur. Hann
komst þó ekki langt upp áður en
hann dó,“ segir Hildur þegar hún
lýsir lífsreynslu sinni.
Raunum Hildar er þó ekki lokið
með þessu. Hún verður að hafa lif-
vörð nótt og dag því þjófurinn sá
hana og hún sá hann. Því er reikn-
að með að hann reyni að finna hana
aftur með morð í huga. Þess vegna
hafa hjónin, sem Hildur er hjá, lagt
mikla áherslu á að hún fari heim
sem fyrst. Skiptinemasamtökin AFS
eru sama sinnis og flýgur Hildur til
Lundúna á morgun.
„Þetta er mjög hræðilegt að láta
vopnaðan mann gæta sín allan sól-
arhringinn en það er óhjákvæmi-
legt. Hjónin sem ég er hjá hafa ver-
iö mér mjög góð og mér hefur fram
tO þessa liðið vel,“ segir Hildur.
Hún segir þó að flestir íbúar
Kingston lifi við sárustu fátækt.
Hún býr hins vegar hjá ríku fólki og
það verður að hafa rimla fyrir öll-
um gluggum og láta gæta húsa
sinna. Þjófurinn, sem reyndi að
skjóta Hildi, fór inn um glugga þar
sem rimlamir höfðu verið teknir
frá vegna viðgerða.
Húsmóðir Hildar á Jamaíka er
sjónvarpsfréttakona. Það hefur leitt
tO þess að Hildur hefiu- fengið hlut-
verk í auglýsingum hjá sjónvarps-
stöðinni. Það kemur sér Ola nú því
andlit hennar er þekkt meðal eyjar-
skeggja og gæti auðveldað þjófnum
að flnna hana.
Fjölskylda Hildar hér heima hef-
ur haft miklar áhyggjur af henni
síðustu daga. Hún hefur þó verið í
símasambandi við hana og veit að
aOt er í góðu lagi núna.
„Ég vO bara að hún komi heim
strax. Það er ekkert líf að verða að
láta lífvörð fylgja sér hvert fótmál af
ótta við morðingja,“ segir Kristrún
Axelsdóttir, móðir HOdar. -GK
Framtíð SÁÁ tryggð á Staðarfelli:
Mikilvægt að eiga stað fyrir utan borgina
segir Þórarinn Tyrfingsson, formaður SÁÁ
Friðrik Sophusson fjármálaráðherra, Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra, Þórarinn Tyrfingsson, formaður
SÁÁ, Björn Bjarnason menntamálaráðherra, Guðmundur Bjarnason landbúnaðarráðherra og Sveinn Gestsson,
bóndi á Staðarfelli í Dölum, undirrita samning um afnot SÁÁ af Staðarfelli. DV-mynd BG
„Það er mjög mikOvægt fyrir okk-
ur að eiga stað fyrir utan borgina.
Það er sérstaklega nauðsynlegt
núna þegar nýir ungir einstaklingar
koma inn til okkar. Þetta fólk er
hömluminna og er yfírleitt að kljást
við eiturlyfjavandann," segir Þórar-
inn Tyrfmgsson, formaður SÁÁ, í
samtali við DV.
Framtíð SÁÁ á Staðarfelli var
tryggð í gær þegar fjórir ráðherrar,
formaður SÁÁ og bóndinn á Staðar-
feOi undirrituðu samning um fram-
tíð á StaðarfeUi. Með samningnum
eru SÁÁ tryggð ótímabundin afnot
af Staðarfelli og hyggjast samtökin
ráðast í miklar endurbætur á gamla
húsmæðraskólanum þar sem með-
ferðin fer fram. Húsið er nánast að
hruni komið. Ráðist verður í söfnun
meðal landsmanna til þess að fjár-
magna endurbæturnar.
„Framtíðin er tryggð og hægt er
að fara út í uppbyggingu á staðnum.
Það hefur ekki verið hægt vegna
þess að óvissa ríkti um framhaldið.
Húsið er mjög mikilvægt fyrir
SÁÁ,“ segir Theódór S. Halldórsson,
framkvæmdastjóri SÁÁ.
Hvert rúm hefur verið skipað á
StaðarfeOi frá upphafi meðferðar-
starfsins árið 1980. Innlagnir eru
rúmlega 5.700 tO dagsins í dag. Und-
Verðum
Stjórn Háskólabíós hefur sent for-
ráðamönnum Sinfóníuhljómsveitar
íslands bréf þar sem tilkynnt er aö
leigusamningi um aðstöðu sveitar-
innar í húsinu hafi verið sagt upp.
Runólfur Birgir Leifsson, fram-
kvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveit-
arinnar, staðfesti þetta í samtali við
anfarnar vikur og mánuði hefur
samsetning sjúklinga á StaðarfeOi
tekið á sig breytta mynd frá því sem
áður var þegar flestir voru þar tO að
ná tökum á áfengisvanda sínum.
Um 30 sjúklingar dvelja á StaðarfeOi
DV, bréfið hefði borist honum í síð-
ustu viku. Samningnum er sagt upp
með þriggja mánaða fyrirvara. Run-
ólfur sagði að samkvæmt öllu
óbreyttu yrði Sinfóníuhljómsveit ís-
lands á götunni eftir þann tíma, um
mánaðamótin júní/júlí í sumar.
Strax væri farið að líta eftir öðru
hverju sinni og nú er meirihluti
þeirra yngri en 25 ára. Flest þessara
ungmenna eru að takast á við am-
fetamínfíkn.
Samkomulag SÁÁ og ríkisins
felst í því að SÁÁ er afhent tO fuOra
húsnæði en ekki væri um auðugan
garð að gresja í þeim efnum. Sinfón-
íuhljómsveitin hefur greitt 12 mOlj-
ónir króna á ári fyrir afnot af skrif-
stofuhúsnæði í anddyri, geymsluað-
stöðu í kjaOara og æfinga- og tón-
leikaaðstöðu í aðalsal bíósins. Run-
ólfur sagði að engin skýring væri
gefin á uppsögninni í bréfinu. Hann
sagðist hins vegar hafa heyrt fram-
kvæmdastjórann, Friðbert Pálsson,
tala um að fá skrifstofuaðstöðuna og
geymsluaðstöðu hljómsveitarinnar
undir starfsemi bíósins. Jafnframt
væri vilji eigenda fyrir því að
hækka húsaleiguna. Runólfur sagði
að hljómsveitin hefði einfaldlega
ekki fjármagn til að greiöa hærri
húsaleigu. „Við þurfum á geymslu-
aðstööu að halda og það gengur ekki
upp að fara með skrifstofuna eitt-
hvað annað. Viö höfum lagt í mikl-
ar fjárfestingar héma í innréttingar
og annað á undanförnum árum. Það
er ekki ágreiningur um eignarétt í
húsinu en það er spurning með af-
afnota meðferðarheimOiö að Staðar-
feOi svo lengi sem SÁÁ starfrækir
þar meðferðarheimOi fyrir áfengis-
sjúklinga. SÁÁ greiðir ekki leigu en
greiðir fasteignagjöld og önnur
rekstrargjöld. -em
notaréttinn, t.d. af anddyrinu. Okk-
ur finnst sárt að fá þessa uppsögn,
sérstaklega eftir að hafa farið glæsi-
lega for til Bandaríkjanna og koma
sfðan heim fuO bjartsýni og fá þetta
inn á borð tO okkar,“ sagði Runólf-
ur. Runólfur sagði að uppsögn
samningsins skapaði óvissu um
næsta leikár hljómsveitarinnar.
„Við vonum að sjálfsögðu í lengstu
lög að samningar takist við Há-
skólabíó. Ef ekki þá setur þetta aO-
an næsta vetur úr skorðum. Við
höfum gert skuldbindandi samn-
inga við innlenda og erlenda lista-
menn,“ sagði Runólfur. Stefán Már
Stefánsson prófessor er stjórnarfor-
maður Háskólabíós. Hann sagðist
ekki geta upplýst um ástæðú fyrir
uppsögn samningsins, það væri mál
bíósins og hljómsveitarinnar. Að
öðru leyti vOdi Stefán ekki tjá sig
um málið við DV. Ekki náðist á
Friðbert Pálsson þar sem hann er
staddur erlendis. -bjb
Stuttar fréttir
LÍÚ hættir stuðningi
LÍÚ ætlar að hætta stuðningi
við kvótakerfið verði lögum
breytt í samræmi við samkomu-
lag ráðuneytis og smábátaeig-
enda. RÚV greindi frá.
Rafmagnsverö
hækkar
Borgarráð hefur samþykkt að
rafmagnsverð hækki í Reykjavík
um 3% 1. aprO.
742 miiijónir í veitu
Suðurverk hf. og BV-tæki hf.
buðu minnst í 5. áfanga Kvísla-
veitu eða rúmar 742 miOjónir
króna. Verkið hefst í vor. Því á
aö ljúka 1. desember 1997.
Sandur skemmir hús
Skemmdir á húsum í Þorláks-
höfn stafa af sandfoki og landeyð-
ingu, að sögn Stöðvar 2.
Frumvarp um fiugskóla
Samgönguráðherra vOl leyfa
stofnun hlutafélags um flugskóla
og hefur kynnt frumvarp í ríkis-
stjórn. Útvarpið sagði frá.
16 útibú sameinuð?
Viðræður um fækkun útibúa
ríkisbankanna eru hafnar að
nýju. Hægt er að sameina 16 úti-
bú, skv. Viðskiptablaðinu.
Tap á tónleikum
Tap varð á tónleikum Breið-
bliks með KK, Bubba og Em-
Oíönu Torrini í Smáranum ný-
lega. Aðeins 100 gestir sóttu tón-
leikana. Tíminn sagði frá.
Ný lögreglulög?
Dómsmálaráðherra hefur lagt
fram á Alþingi frumvarp tO lög-
reglulaga. Æðsta stjórn lögreglu-
mála gjörbreytist. RÚV sagði frá.
Ráöherrar hittast
Utanríkisráöherra hittir utan-
ríkisráðherra írlands í Dyflinni á
morgun. Á fostudag fer hann í
opinbera heimsókn tO Liechten-
stein.
Ungliðar mótmæla
Ungir sjálfstæðismenn mót-
mæla lögbundnum einkarétti
augnlækna tO sjónmælinga og
hvetja tO endurskoðunar laga.
-GHS
,r ö d d
F0LKSINS
904-1600
Er rétt að takmarka
skemmtanahald um páska?
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
H Jj
Nel 2 I
Háskólabíó segir upp samningi viö Sinfóníuhljómsveitina:
á götunni að öllu öbreyttu