Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1996
Viðskipti_____________________________________________________________________________ðv
Iðntæknistofnun og Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins:
Sameinaðar í
eina stofnun
- samkvæmt tillögu ráðherranefndar
Metafkoma
hjá ístexi
í Mosfellsbæ
Ullariðnaðarfyrirtækið ístex í
Mosfellsbæ skilaði ríflega 19 raillj-
óna króna hagnaði á síðasta ári.
Þetta ér besta afkoma félagsins
frá stofnun þess árið 1991. Frá
þessu var greint á aðalfundi ný-
lega. Rekstrartekjur ársins námu
349 milljónum króna og hafa þær
aukist um 30 prósent á þremur
árum. Ávöxtun eigin fjár var 38%
og hækkaði gengi hlutabréfa um
þriðjung. Starfsmenn ístex eru 63
og námu launagreiðslur á síðasta
ári 109 milljónum króna. Útlit er
fyrir aukna sölu á þessu ári og
gera áætlanir ráð fyrir 7,8 millj-
óna króna hagnaði.
Það er mikið um dýrðir hjá
ístexi þessa dagana. Um næstu
helgi verður efnt til sýningar hjá
fyrirtækinu í tilefni af 100 ára af-
mæli ullariðnaöar að Álafossi í
Mosfellsbæ. Það verður hægt að
berja augum gamlar ljósmyndir
og handbrögð fyrri tíma. Ný
hönnun úr íslenskri ull verður
kynnt sem og framleiðsla ístex á
ullarbandi í afkastamiklum vél-
um. Sömuleiðis verður sýnt nýtt
myndband um ullarvinnslu fyrr
og nú.
Ráðstefna á upp-
lýsingahraðbraut
Tveggja daga ráðstefna hefst á
morgun á Scandic Hótel Loftleið-
um á vegum félagsskaparins Arc-
ÍS um Oracel upplýsingakerfi og
ESRI landupplýsingakerfi. Ráð-
stefnan ber yfirskriftina „Á upp-
lýsingahraðbraut 1996“. Fluttir
verða fjölmargir fyrirlestrar, þar
af koma 5 fyrirlesarar frá útlönd-
um.
ArcíS er félag notenda ESRI
hugbúnaðar á íslandi. Umboðsað-
Oi er Samsýn ehf. Teymi hf. hefur
umboð fyrir Oracle hugbúnað og
Opin kerfi, umboðsaðili HP á ís-
landi, útvegar allan vélbúnað til
kynninga á ráðstefnunni.
Þingbók í hluta-
bréfaviðskiptum
Þingbók nefhist forrit sem dótt-
urfyrirtæki Verkfræðistofu Stefáns
ÓMssonar, VSÓ-Mínúta, hefur
hannað fyrir þá sem stunda hluta-
bréfaviðskipti. Þingbók vinnur
með upplýsingar frá Verðbréfa-
þingi íslands og inniheldur m.a.
gagnagrunn með ölium viðskiptum
á þinginu frá 1989 og öllum tilboð-
um frá 1. janúar 1994. -bjb
Salaleiga
Höfum sali sem henta
fyrir alla mannfagnaði
íDtel tpM)
5687111
Nefnd skipuð síðastliðið haust af
Finni Ingólfssyni iðnaðarráðherra
til að endurskoða starfsemi Iðn-
tæknistofnunar og Orkustofnunar
hefur lokið störfum og skilað af sér
skýrslu. Niðurstöður varðandi
Orkustofnun hafa verið tíundaðar
en ekkert verið greint frá afdrifum
Iðntæknistofnunar í skýrslu nefnd-
arinnar. Hún leggur til að Iðntækni-
stofnun og Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins, RB, verði
sameinaðar í eina stofnun. Samein-
Álverð á heimsmarkaði hefur
verið á uppleið síðustu daga. Ástæð-
urnar eru einkum þrjár. í fyrsta
lagi leystist langvinnt verkfall hjá
bílaverksmiðjum General Motors í
Bandaríkjunum, í öðru lagi var gerð
kjarasamninga og í þriðja lagi betri
hagtölur í bandarísku efnahagslífi
en gert hafði verið ráð fyrir. Sér-
fræðingar spá þriggja mánaða ál-
verði í kringum 1.650-1.700 dollara
tonnið á næstunni.
Hlutabréfaviðskipti í siðustu viku
um kerfi Verðbréfaþings íslands og
Opna tilboðsmarkaðarins námu 66,3
milljónum króna. Vinsælustu bréfin
ingu skal vera lokið fyrir 1. janúar
1998. Einnig leggur nefndin til að
iðnaðarráðherra ræði við landbún-
aðarráðherra um að matvælarann-
sóknir og efnagreiningar Rannsókn-
arstofnunar landbúnaðarins, RALA,
flytjist einnig til sameinaðrar stofn-
unar.
Nefndin komst að þeirri niður-
stöðu að bæði faglegur og fjárhags-
legur ávinningur fylgdi sameiningu
stofnanna. Með því náist þrjú mark-
mið. í fyrsta lagi myndist sjálfstæð
voru hjá Eimskip og Flugleiðum.
Hlutabréf Flugleiða upp á tæpar 17
milljónir skiptu um eigendur og við-
skipti með Eimskipsbréf námu 12
milljónum. Þriðja vinsælasta hluta-
félagið í vikunni var Þormóður
rammi með 8,2 milljóna viðskipti.
Að öðru leyti dreifðust viðskiptin á
nokkuð mörg félög.
Enn fjúka metin
Sá sjaldgæfi atburður í seinni tíð
varð í síðustu viku þegar þingvisi-
tala hlutabréfa lækkaði milli daga.
Lækkunin varð reyndar óveruleg og
stökk vísitalan aftur upp á við sl.
heild í rannsóknarstarfseminni, í
öðru lagi skapist öflugt rannsóknar-
umhverfi sem af meiri krafti geti
sótt í erlend verkefni og í þriðja lagi
lækki rekstrarkostnaður.
Lagt er til að í lögum um nýja
tæknistofnun verði sjálfstæði tryggt
svo þróun þjónustunnar og manna-
hald verði eins sveigjanlegt og kost-
ur er. Nefndarmenn telja betra að
hafa stofnunina sjálfseignarstofnun
frekar en hlutafélag.
mánudag. Þá var enn eitt sögulega
metið sett er talan fór í 1747 stig.
Viðskipti dagsins námu 35 milljón-
um, þar af fyrir 12 milljónir í Flug-
leiðum og 10 milljónir í SÍF.
Engir íslenskir togarar áttu sölu-
daga í erlendum höfnum í síðustu
viku, samkvæmt upplýsingum Afla-
miðlunar LÍÚ, en í gámasölu í Eng-
landi seldust 102 tonn fyrir 13,9
milljónir króna.
Helstu breytingar á gengi gjald-
miðla gagnvart íslensku krónunni
undanfama viku er að jenið og pund-
ið hafa lækkað i verði en dollar og
mark staðið nánast í stað. -bjb
Rauði krossinn
hættir með
Hótel Lind
Rauði kross íslands hefur dreg-
ið sig úr rekstri á Hótel Lind og
leigt hann til Fosshótels ehf. til
næstu fimm ára. Eigendur Foss-
hótels eru Ómar Benediktsson,
stjórnarformaður íslandsflugs,
Úrval-Útsýn, Guðmundur Jónas-
son hf. og Halldór Bjamason.
Rauði krossinn hefur annast
hótelrekstur frá 1986 eftir að hús-
eignin að Rauðarárstíg 18 var
keypt. Sjúkrahótel RKÍ hefur ver-
ið starfrækt á efstu hæð hússins
með alls 28 rúmum og verður
rekstur þess með óbreyttu sniði
áfram. Veitingaaðstaða Hótels
Lindar verður áfram leigð til eig-
enda veitingastaðarins Carpe
Diem.
Lakari afkoma
Mjólkursam-
sölunnar
Afkoma Mjólkusamsölunnar í
Reykjavík versnaði á síðasta ári
frá árinu áður. Hagnaður af reglu-
legri starfsemi nam 10,5 millj-
ónum króna á móti 65 milljónum
árið 1994. Án fiármunatekna og -
gjalda nam hagnaðurinn tæpum
38 milljónum. Heildartekjur MS
námu rúmum 4 milljörðum en út-
gjöld rúmum 3,9 milljörðum og
jukust um 2,5% milli ára.
Versnandi afkoma skýrist eink-
um af samdrætti í mjólkurneyslu
og kostnaðarhækkunum í mjólk-
urvinnslu og -dreifingu.
266 milljóna
gróöi hjá Sjóvá-
Almennum
Aðalfundur Sjóvár- Almennra
verður haldinn á föstudaginn. Þar
verða lagöir fram reikningar síð-
asta árs sem m.a. sýna 266 millj-
óna króna hagnað af rekstrinum.
Það er svipuð afkoma og árið 1994
þegar hagnaður nam 259 millj-
ónum. Skrifstofu- og stjórnxmar-
kostnaður nam 612 milljónum og
hækkaði um nærri þriðjung milli
ára. Skýringin er einkum átak í
gæðastjórnun.
Iðgjöld ársins námu 3,5 millj-
örðum og lækkuðu um 7%. Tjón
ársins námu 2,7 milljörðum og
lækkuðu um 11% milli ára. Hluta-
fé félagsins var 369 milljónir í árs-
lok og skiptist á milli 441 hlut-
hafa. Á aðalfundinum verður lagt
til aö greiöa 10% arð til hluthafa.
Tryggingastofnun
á Internetið
Tryggingastofnun ríkisins,
fyrst norrænna tryggingastofn-
ana, hefur sett víðtækar upplýs-
ingar um almannatryggingar á
heimasíðu stofnunarinnar á Inter-
netinu. Upplýsingarnar eru allar
upp úr handbók Tryggingastofn-
unar sem kom fyrst út árið 1993.
Þar er m.a. greint frá starfsemi
Tryggingastofnunar, bótarétt,
upphæðir bóta og hvernig sótt er
um einstaka bótaflokka. Þá eru
útskýrðar reglur um tekjuteng-
ingu bóta og þátttöku Trygginga-
stofnunar í kaupum á hjálpar-
tækjum. Heimasíða stofhunarinn-
ar hefur eftirfarandi slóð:
http://www.tr.is/
Fundað um innkaup
og útboðsmál
Þegar DV fór í prentun í morg-
un stóð yfir fundur hjá Verslunar-
ráði á Hótel Sögu um opinber inn-
kaup og útboðsmál. Tilefnið var
fyrirhugaðar breytingar fjármála-
ráðherra á reglum um opinber
innkaup. Frummælendur voru
Þórhallur Arason og Skarphéðinn
B. Steinarsson úr fjármálaráðu-
neytinu og Birgir Ármannsson
frá Verslunarráði. Við pallborðið
auk frummælenda voru Ámi
Ámason frá Árvík, Bjami H. Frí-
mannsson frá VSÓ og Öm Andr-
ésson frá Einari J. Skúlasyni hf.
-bjb
-bjb
Aðalfundur íslandsbanka fyrir árið 1995 var haldinn með pompi og prakt í Borgarleikhúsinu á mánudaginn. Sam-
kvæmt uppgjöri ársins varð 331 milljónar hagnaður af rekstrinum, vaxtamunur minnkaði, framlag á afskriftarreikn-
ing gerði slfkt hið sama og rekstrarkostnaður einnig. Þau höfðu því ríka ástæðu til að brosa í kaffihléinu, Benedikt
Davíðsson, forseti ASÍ, Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða, og Kristín Jónsdóttir, útibússtjóri í ís-
landsbanka. DV-mynd GS
Álverðið á uppleið