Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1996 Útlönd Evrópusambandið staðfestir bann á innflutningi bresks nautakjöts: Stórfelld slátrun naut- gripa óhjákvæmileg Bretar veröa að öllum líkindum að beygja sig fyrir alþjóðlegum þrýstingi og verða að slátra stórum hluta naut- gripastofnsins í landinu til að bjarga framleiöslunni frá algjöru hruni. Bretar urðu fyrir áfalli í gær þegar Evrópusambandið staðfesti bann við innflutningi á öllu bresku nautakjöti til landa innan sambandsins. Bretar höfðu gert sér vonir um að engin þörf væri á að slátra nautgrip- um í stórum mæli, en nú virðist sem útilokað sé annað en að grípa þurfi til þess úrræðis. Bresk stjórnvöld funda nú stift um til hvaða aðgerða grípa þurfi og margar tillögur voru ræddar. Allar eiga þær það sammerkt að gert er ráð fyrir stórfelldri slátrun á naut- gripastofni landsins. Spurningin var bara sú hve langt yrði gengið í því efni, en nautgripastofn Bretlands tel- ur 11 milljón gripi. Heyrst hefur talað um tölur allt að helmingi stofnsins og aðallega rætt um slátrun á eldri grip- um. Yngri nautgripir eru síður taldir smitaðir af riðuveikinni. Tollverðir á Bretlandseyjum ha'fa hert mjög gæsluna við landamærin, af ótta við að örvæntingarfullir fram- leiðendur nautakjöts í landinu reyni að smygla afurðum út fyrir landstein- ana. Breskir nautakjötsframleiðend- ur mega síst við því nú að sýkt kjöt nái að berast út fyrir landsteinana, sem gæti orðið til þess að algjört hrun yrði á verðlagi breska nauta- kjötsins. Talsmenn Verkamannaflokksins 'hafa haldið uppi ákafri gagnrýni á stjórn íhaldsmanna, saka hana um vanhæfni í málinu og að hafa gripið allt of seint til aðgerða. Íhaldsmenn svara fullum hálsi og saka talsmenn Verkamannaflokksins um að magna upp moldviðrið í kringum fréttir af riðuveikinni og að ala enn frekar á móðursýki fólks. Frakkar, einir helstu kaupendur á bresku nautakjöti, hafa staðfest bann sitt á innflutningi en hafa lýst sig reiöubúna til að styðja Breta í barátt- unni með fjárframlögum. Frakkar gripu fyrstir þjóða til banns við inn- flutningi á nautakjöti frá Bretlandi. Reuter Dæmdur fyrir morðið á Rabin Réttur í Tel Aviv úrskurðaði í morgun að Yigal Amir, sem ákærður var fyrir að hafa myrt Itzhak Rabin, fyrrum forsætisráð- herra, væri sekur. Dómsupp- kvaðningunni var útvarpað beint. Oddviti þriggja dómara hafnaði þeirri staðhæfingu verjenda Am- irs, heittrúaðs gyðings sem játaði að hafa skotið Rabin til að hindra friðarumleitanir við Palestínu- menn, þess efnis að hann hefði einungis ætlað að lama Rabin. Sagði dómarinn að morðið hefði verið vandlega skipulagt og fram- kvæmt með ískaldri yfirvegun. Ákæruvaldið fór fram á lífstíðar- fangelsi. Segulbands- upptökur frá Watergate opinberaðar Von stendur til að yfir 3000 klukkutíma segulbandsupptökur frá forsetatíð Richards Nixons verði gerðar opinberar í næsta mánuði. í bandaríska dagblaðinu The New York Times í dag segir að aðilar sem tengjast dómsmál- um vegna upptaknanna séu að ná samkomulagi um opinberun þeirra og eigi einungis eftir að flnpússa ýmis smáatriði. Einungis 65 klukkustundir af upptökunum hafa veriö gerðar op- inberar en þær leiddu til afhjúp- unar Watergate-hneykslisins og afsagnar Nixons á sínum tima. Á upptökunum má heyra samræður um innbrot, símahleranir, mist- notkun opinberra stofnana og ýmis „skítatrikk“. Búist er við að sá hluti upptaknanna sem inni- halda þær samræður verði fyrst opinberaður. Bannað að giftast vegna getuleysis Kaþólskur prestur í Brasilíu héfur bannað fyrirhugað brúð- kaup lamaðs manns og tveggja bama ekkju á þeim forsendum að maðurinn sé getulaus. Sagði prestur að báðir aðilar þyrftu að vera í fullkomnu líkamlegu ástandi til að geta gifst. Maðurinn, sem setið hefur í hjólastól í 15 ár eftir átök við ná- granna sinn, segir að ákvörðun verðandi eiginkonu eigi að vega þyngra en ákvörðun prests. Hann vísar á bug áhyggjum prests yfir að hann geti ekki fullnægt hjóna- bandsskyldum sínum og segir hjónarúm parsins verða stað hamingju og ástar. Maðurinn hef- ur ráðið sér lögmenn og hyggst færa brúðkaupið í aðra kirkju, enda búinn að undirbúa allt fyrir athöfnina. Reuter Elísabet Englandsdrottning heilsar hér Lech Walesa, fyrrum forseta Póllands, við mótttöku í Belvedere-höllinni, þar sem drottning býr meðan heimsókn hennar til Póllands stendur yfir. Walesa var boðið í eftirmiðdagste eftir að hafa hafnað boði í hádegisverð drottningar fyrr um daginn. Neitaði hann að fá sér bita með drottningu þar sem pólitísk- ur fjandmaður hans, Aleksander Kwasniewsky forseti, þekktist boðið. Símamynd Reuter Spenna eykst í samskiptum Kúbu og Bandaríkjanna: Saka Bandaríkjamenn um brot á lofthelgi Yfirvöld á Kúbu tilkynntu í gær að tvær litlar flugvélar frá Banda- ríkjunum hefðu brotið lofthelgi yfir Kúbu í síðustu viku. Kúbverjar segj- ast ekki hafa gripið til vopnaðra að- gerða gegn þeim en þess í stað hald- ið uppi háværum mótmælum við Bandaríkjastjórn. Atvikið gerist aðeins einum mán- uði eftir að Kúbverjar skutu niður tvær flugvélar sem rufu lofthelgi landsins. Flugvélarnar sem skotnar voru niður þá voru í eigu kúbverskra útlaga sem aðsetur hafa í Bandaríkjunum. Talsmenn útlaga- hópsins segjast ekki eiga neitt í þeim vélum sem Kúbverjar sáu á radarskjám sínum í síðustu viku. Kúbverjar hafa krafið Banda- ríkjastjórn um skýringar á brotum á lofthelginni. Þeir hafi ítrekað reynt að ná radíósambandi við flug- mennina á vélunum, en svo virðist sem flugmennirnir hafi lokað fyrir allar merkjasendingar. Kúbverjar sjálfir eru sannfærðir um að vélam- ar hafi verið í eigu sama útlaga- hópsins og brutu lofthelgina í síð- asta mánuði. Bandaríkjamenn sjálf- ir segjast engar fregnir hafa um flug í lofthelgi Kúbu og saka Kúbumenn um að vera að þyrla upp moldviðri í málinu. Reuter Skotar græða a oskarnum Skotar hafa ekki farið varhluta af velgengni kvikmynda sem gerast í landinu. Margar kvikmyndir, sem fjalla um Skota eða atburði í Skotlandi, hafa náð mikilli hylli al- mennings á undanfornum mánuð- um. Skemmst er að minnast kvik- myndarinnar Braveheart sem hlaut fimm óskarsverðlaun fyrr í vik- unni. Hún fiallar um uppreisnar- hetju Skota á 13. öld. Síðan hún kom á markaðinn hefur ferðamönn- um til landsins fiölgað um átta af Mel Gibson. hundraði. Meðal annarra mynda, sem hafa enn frekar beint kastljósinu að landinu, eru Rob Roy og Loch Ness. Skosk ferðamálayfirvöld búast við enn frekari aukningu ferðamanna að lokinni óskarsverðlaunaafhend- ingunni. Skotar hafa um árabil þurft aö horfa upp á minnkandi fiölda ferðamanna til landsins en líta nú loks bjartari augum til fram- tíðar. Reuter Stuttar fréttir :dv Ólæti í Bahrain Mótmælaaðgerðir vegna lífláts shíta-múslíms vöruðu fram á nótt og er búist við áframhaldandi óróa. Múslímar heim aftur Tvær rútur hlaðnar 54 Bosníu- múslímum og eigum þeirra fóru frá flóttamannabúðum í Ungverjalandi áleiðis til Bosníu. Sameinuðu þjóð- irnar skipuleggja nú heimferð þeirra sem flúðu ógnaröldina í Bosníu. Samper yfirheyrður Emesto Samper, forseti Kólumbíu, var yfirheyrður í níu klukkustundir vegna ásakana um að hann heföi fiármagnað kosningabaráttu sína 1994 með milljóna dollara eiturlyfiagróða. Lykilvitni segir frá í Ástralíu hóf lykilvitni að segja frá i máli gegn manni sem grunaður er um að hafa myrt sjö bakpoka- ferðalanga og kastað líkunum í skóg- lendi. Óvissa í Sierra Leone Viðræöum stríðandi aðila í Afr- ikuríkinu Sierra Leone lauk án ár- angurs. Clinton fyrir rétt Verjandi í Whitewater- hneykslinu segir líklegt að Clint- on forseti muni bera vitni i mál- inu 27. apríl og staðhæfa þá að hann hafi ekki hvatt til ólög- legrar lántöku fyrir um áratug. Vilja hækka iægstu laun Demókratar í öldungadeild Bandaríkjaþings hafa iagt til hækk- un lágmarkslauna en rákust á and- stöðu repúblikana, með Bob Dole í broddi fylkingar. Lofa öryggi og friði Báðir helstu stjórnmálaflokkar ísraels, sem nú heyja kosningabar- áttu, lofa kjósendum öryggi og friði en greinir á um leiðir til að ná því marki. Heilahimnubólga geisar Heilahimnubólgufaraldur í 17 Afr- íkuríkjum hefur lagst á um 40 þús- und manns og banað 6 þúsund á þessu ári. Deilt um auð Mandela Nýnasistar í Suður-Afríku krefiast rann- sóknar á auðæf- um Nelsons Mandela forseta eftir að fiár- kröfur Winnie Mandela komu fram í skilnaðar- málinu. Mandela biður um að menn virði friðhelgi einkalífsins. Treysta könum betur Margir eru á þeirri skoðun að væru konur fiölmennari í stjórnun- arstöðum hjá hinu opinbera væri málum betur stjómað. Þetta kemur fram í nýrri alþjóðlegri könnun. Flestir vilja hins vegar hafa karl- mann sem yfirmann. Muskie látinn Edward Muskie, fyrrum öldunga- deilarþingmaður og utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, er látinn á 82. aldursári. Fundu vopnabúr Lögregla í Baskahéruðum Spánar fann mikið magn vopna og tækja til sprengjugerðar í húsi sem tilheyrir Aðskilnaðarhreyfingu Baska, ETA. Herskip fara Herskipafloti Bandaríkjanna við Taívan bjó sig til brottfarar en Bandaríkjamenn segja deiluna milli Kína og Taivans afstaðna. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.