Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Side 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1996 Fréttir Útsendingar Stöövar 3 enn óruglaðar: Yfirlýsingar sjónvarps- stjórans standast ekki - síðast átti „ruglið“ að heíjast um mánaðamótin janúar-febrúar Útsendingar sjónvarpsstöðvar- innar Stöðvar 3 eru enn óruglaðar en þær hafa staðið yfir í íjóra mán- uði eða frá 24. nóvember 1995. Áður en útsendingar hófust var væntan- legum áskrifendum lofað afruglara og aðgang að loftneti án endurgjalds en eftir að stöðin var komin í loftið varð fljótlega Ijóst að afruglarar yrðu ekki afhentir. Sjónvarpsstjóri Stöðvar 3, Úlfar Steindórsson, hefur sagt í fjölmiðlum að afruglaramir væru að koma, síðast sagði hann í byrjun janúar að „ruglaðar" útsend- ingar hæfust í lok þess mánaðar eða um mánaðamótin janúar/febrúar. Forráðamenn Stöðvar 3 hafa bor- ið fyrir sig tæknilegum örðugleik- um sem ástæðu fyrir að afruglurum hafi ekki verið dreift, Afmglararnir væru til staðar en þeir töldu ekki rétt að dreifa þeim á meðan bilanir væru í endurvarpsbúnaði. Eins og gefur að skilja hefur Stöð 3 ekki rukkað áskriftargjöld og loft- net hafa verið útveguð án endur- gjalds. Tekjur stöðvarinnar hafa því fyrst og fremst verið af auglýsing- um í þá fjóra mánuði sem hún hef- ur sent út efni. Ekki náðist á forráðamönnum Stöðvar 3 þar sem þeir hafa verið staddir erlendis. Æðsti maður hér heima á meðan hefur ekki svarað ít- rekuðum skilaboðum. Meðfylgjandi er graf þar sem þró- un á gangi mála hjá stöðinni sést nánar og hvað forráðamenn hennar hafa sagt í fjölmiðlum. -bjb Hafnarfjörður: Gripinn í innbroti Ungur maður var laust eftir klukkan sjö í gærmorgun grip- inn þar sem hann var að skríða inn i lítið fyrirtæki í miðbæ Hafnarfjarðar. Sást til mannsins á leið inn og náðu hann engum verðmætum áður en lögregla kom á staðinn. Maðurinn mun hafa verið ölvað- ur. -GK MEGA DRIVE LEIKJATÖLVA M/STÝRIPINNA **** „ ■' JAPISS BRAUTARHOLTI OG KRINGLUNNI ^ m Stöð 3 í fréttum S I O Ð Mbl. 14. nóv. 1995: „Orðið Ijðst að útsendingar Stöðvar 3 hefjast þann 24. nóvember og verður útsendingin opin fyrst um sinn í kynningarskyni, að sögn Úlfars Steindórssonar.“ Auglýsing í Mbl. 18. nóv. 1995: „Áskrifendurfá afhentan afruglara og aðgang að loftneti án sérstaks endurgjalds." Úlfar Steindórsson í Mbl. 19. nóv. 1995: „Við viljum gera öllum kleift að hafa aðgang að sem flestum sjónvarpsrásum. Gera fólki kleift að vera með í þeirri hröðu þróun sem er nú hér á landi. Þetta á að vera sjónvarpsstöð á verði sem allir ráða við.“ Mbl. 25. nóv. 1995: „Forsætisráðherra hleypti Stöð 3 af stokkunum í gærkvöldi." Bjarni Árnason, þáverandi auglýsingastjóri í Mbl. 25. nóv. 1995: „Margar nýjungar eiga eftir að líta dagsins Ijós á næstu vikum. Og sú sem þið verðið fyrst vör við er afruglarinn okkar....." Mbl. 2. des. 1995: „Að sögn Úlfars Steindórssonar er gert ráð fyrir því að endurvarpsbúnaðurinn verði settur upp í nokkrum áföngum og að allir íbúar á þessum svæðum geti náö útsendingum stöðvarinnar fyrir 1. mars 1996.“ Mbl. 10. des. 1995: „Dagskrá Stöðvar 3 send út órugluð í desember....Nægilegur fjöldi afruglara kemur til landsins í desember og segir Úlfar að í janúar verði allir áskrifendur Stöðvar 3 búnir að fá afruglara." Mbl. 15. des. 1995: „Ekki er búið að dreifa afruglurum Stöðvar 3 til áskrifenda og verður það gert í einu átaki í janúar, að sögn Úlfars Steindórssonar....." Úlfar Steindórsson í Mbl. 15. des. 1995: „Þetta er sérstök aðgerð sem þarf að meðhöndla sem slíka fyrst afruglararnir voru ekki komnir til landsins þegar við hófum áskriftarsölu. Það verður ekki gert í litlum skömmtum og með flýti, heldur að vandlega yfirlögðu ráði í einu áhlaupi." Mbl. 6. jan. 1996: „Stöð 3 mun dreifa fjölrása myndlyklum og rugla útsendingu sína í lok þessa mánaðar eða um mánaöamótin, að sögn Úlfars Steindórssonar." Úlfar Steindórsson í Mbl. 6. jan. 1996: „Allan tímann höfum við ekki viljað segja annað en við getum staðið við.“ Vaxandi umsvif hjá Fiskmarkaði Suðurnesja: Þorskur aðeins 29% af sölunni 1995 en var 47% árið 1994 - ánægður með gott ár, segir Ólafur Þór Jóhannsson DV, Suðurnesjum: „Við getum ekki verið annað en ánægðir með gott ár. Þetta er held- ur meira magn en var 1994 og það er gott í þeim kvótasamdrætti sem ver- ið hefur. Samt erum við að selja meira milli ára. 1993 var þorskur- inn 47% en er nú kominn niður í 29% af því sem selt er. Mikil aukn- ing er í öðrum tegundum og það erum við ánægðir með,“ sagði Ólaf- ur Þór Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Fiskmarkaðar Suðumesja hf. Aðalfundur FMS var haldinn á Flughótelinu í Reykjanesbæ 22. mars og gekk reksturinn vel. Rekstrartekjur 1995 námu 139,5 milljónum króna. Tekjur 1994 vora 126,1 milljón og aukning því 10,6%. Rekstrargjöld án fjármagnsgjalda námu 113,8 sem er 7,3% hækkun frá 1994. Þá vora rekstrargjöld 106 millj- ónir. Hagnaður af reglulegri starfsemi var 25,5 milljónir samanborið við 18,8 milljónir 1994. Greiddar voru 4,7 milljónir í tekju- og eignaskatt 1995. Eftir skatta var hagnaður af rekstri 1995 20,8 milljónir eða 14,9% af rekstrartekjum. 1995 seldust á fiskmarkaðnum 27,892 kg af fiski fyrir rúmar 135 milljónir. Meðal- verð var 76,57 á kíló. Salan milli ára jókst um 8% að verðmæti um 7%. Eignir FMS í árslok 1995 voru bókfærðar á 84,4 milljónir. Þar af vora 35,1 milljón veltufjármunir en aðrar eignir 49,3 milljónir. Skuldir voru 34,7 milljónir - þar af skamm- tímaskuldir 23,1 milljón. Eignir juk- ust um 28,5% en skuldir minnkuðu um 19,5% milli ára. Eigið fé í árslok 1995 var 49,7 milljónir og eiginfjár- hlutfall var 58,9% en var 34% árið áður. Heildarhlutafé félagsins tæpar Ólafur Þór Jóhannsson. 24 milljónir en hluthafar era 87. DV-mynd ÆMK -ÆMK Samstarfsverkefni: Fjötur um fót á Litla sviðinu Undanfamar vikur hefur leik- þátturinn Fjötur um fót verið sýndur fyrir grunnskólanemend- ur á Litla sviði Þjóðleikhússins. Um samstarfsverkefni leikhúss- ins og Sjálfsbjargar er að ræða en leikþátturinn vann til 1. verð- launa í samkeppni sem Sjálfs- björg, Halaleikhópurinn og Sam- band íslenskra sveitarfélaga efndu til í haust. Þátturinn var frumfluttur í leiklestri á alþjóða- degi fatlaðra í Háskólabíói 3. des- ember sl. Verkið er eftir sjúkraþjálfar- ana Unni Guttormsdóttur, Önnu Kristínu Kristjánsdóttur og Friðu B. Andersen og fjallar um aðgengis- og ferlimál fatlaðra. Segir af daglegu lífi Fals Atla, sem er fatlaður í hjólastól, og martröð hans um svonefnda Fatlavík. Leikhópinn skipa Guðmundur Magnússon leikari, Gunnlaugur Helgason leikari, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir leikari, Hlín Gunnarsdóttir leikmyndahönn- uður, Ægir Ásbjörnsson ljósa- hönnuður og Hávar Sigurjónsson leikstjóri. Sýningum verður haldið áfram fram að vori en í undirbúningi er að sýna leikritið í efri bekkjum grannskólanna á höfuðborgar- svæðinu næsta vetur. -bjb

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.