Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Page 12
12 Spurningin MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1996 Hvers getur þú síst verið án? Ragnar Þórðarson: Konunnar. Vigfús Orrason nemi: íslands. Björg Rós Guðjónsdóttir nemi: Fí- lófaxins míns. Hrund Hauksdóttir nemi: Sturtu. Guðrún Rúnarsdóttir húsmóöir: Karlsins. Sigríður Oddný Stefánsdóttir stuðningsfulltrúi: Vatns, salts og andrúmslofts. Lesendur_______ Leikfélags- leiðindi Baðstofumenningin hefur færst inn í glæstasta menningarmannvirkið, Borgarleikhúsið, segir m.a. í bréfinu. Einar S. Guðmundsson skrifar: Áður fyrr hafðist fólk við í illa hirtum húskytrum þar sem aldrei voru opnaðir gluggar. í stað þess að hleypa inn fersku lofti lágu menn heilu mannsaldrana í fýlu og fnyk. Hjá þessu sauðþráa sveitafólki var djúpstæð andúð á öllum breyting- um. Skipti ekki máli hvort um var að ræða röskun á veraldlegum hátt- um eða hugarfari. Þetta mentalítet, sem líka stærir sig af einni frumstæðustu matar- menningu veraldar, lifir hér enn góðu lffi í dag. Þótt löngu séu liðnir tímar illa lyktandi húskofa má enn finna fólk sem kýs að hafast við að baki lokaðra hlera. Inni í glæstasta menningarmannvirkinu, Borgar- leikhúsinu. Þótt burstabærinn gamli hafi breyst í íburðarmikið borgarleikhús er hugsunarháttur- inn sá sami og forðum. Hjá Leikfé- lagi Reykjavikur er loftleysið ofar öllu. En þar má ekki opna glugga. Fyrir nokkru var mikið rætt og ritað um brottrekstur nýráðins leik- hússtjóra. Þetta gerðist bara sísona og þykir í raun ekkert tiltökumál. Menn rausuðu í nokkra daga og svo var það búið. Og leikhúsið heldur áfram að vera æviafdrep leikara sem drattast um sviðið í sömu rull- unum ár eftir ár. Með fyrrverandi leikhússtjóra fékkst gullið tækifæri til að hleypa inn ferskum vindum í leikhúsið. En í fláræði þess forskrúfaða voru allar væntanlegar tiltektir stöðvaðar strax og hlerarnir negldir fastir. Sú spurning vaknar hvort þessi þver- girðingsháttur hafi ekki líka áhrif á gæði starfseminnar í húsinu. Stöðn- un er það fyrsta sem kemur upp í hugann. Ef engu má breyta þá breytist ekkert. Og með tilliti til reksturs leikfélags er það mjög slæmt. Afdalamennirnir í Leikfélagi Reykjavíkur hafa ítrekað það að fé- lagið sé lokaður klúbbur sem bygg- ir á gamalli hefð. Það þýði því ekk- ert fyrir einhverja spjátrunga að spásséra þar um gójf með glóðvolg- ar nútímagrillur í höfðinu. Brott- rekstur leikhússtjórans er algjört hneyksli sem hlýtur að rýra álit al- mennings á Leikfélaginu. Það þarf greinilega að endurnýja alla starfs- hætti félagsins og reglur. Pál Skúlason fyrir forseta Viðar Hreinsson skrifar: Margir hafa skorað á Pál Skúla- son, prófessor i heimspeki við Há- skóla íslands, að gefa kost á sér til forsetakjörs. Páll er víðkunnur fyrir ritstörf sín og fyrirlestrahald, langt út fyrir veggi háskólans. Hann er af- burða fræðimaður og hefur fram að færa þaulhugsaðan boðskap. Honum er lagið að fjalla á manna- máli um málefni sem brenna á fólki en er oft ýtt til hliðar í spennu hversdagsins. Helst þeirra eru sam- band mannsins við umhverfi sitt, siðfræði og menning, bæði þjóðlega og alþjóðleg. Þau eru knýjandi um- hugsunarefni fyrir okkur íslendinga nú á tímum ef við viljum halda áfram að kallast sjálfstæð þjóð. Hógværð, hlýja og myndugleiki einkenna fas og framkomu Páls. Því getur hann af skynsamlegu viti tal- að við og talað fyrir þjóðina um æðri gildi mannlífsins, hvatt hana til dáða og áminnt, eftir því sem við á. Með því myndi hann halda við þeirri hefð sem skapast hefur; að vera þjóðhöfðingi sem lifir og hrær- ist með þjóðinni, hafinn yfir dægur- þras stjórnmálamanna, en um leið fullfær um að sinna þeim skyldum sem embættinu fylgja. - Því vil ég eindregið skora á Pál Skúlason að gefa kost á sér til forsetakjörs að þessu sinni. TFA - Reykjavík Radíó - svar til Eðvarðs Ólafssonar Lárus Jóhannesson, yfirdeildarstj. Reykjavíkur-radfós TFA, skrifar: Þann 14. mars birtist bréf frá Eðvarð Ólafssyni undir ofangreindri fyrir- sögn þar sem rifjað er upp atvik er átti sér stað þegar Dagfari GK-70 fékk á sig brotsjó úti fyrir Reykjanesi að morgni 21. febr. sl. í bréfinu varpar Eðvarð fram spum- ingunni: „Það væri fróðlegt að fá upp- lýst hver afþakkaði þessa aðstoð. Var hann kannski aö taka tillit til áhafn- arinnar á Dagfara eða ættingja henn- ar?“ Hlutverk Reykjavikur-radíós, eins og annarra strandstöðva Pósts og síma, er að vaka yfir og vakta öryggi sjófar- enda, m.a. með stöðugri vöktun á al- þjóðlegum neyðar- og kalltíðnum sídpa, annast neyðar- og öryggisíjar- ÍMM þjónusta Reynsla, hæfni og fagleg þekking þeirra sem stjórna björgunaraðgerðum hér er öllum kunn. skipti, fjarskipti vegna beiðna um læknisaðstoð, annast upplýsingamiðl- un til sjófarenda með fjarskiptasend- ingum á öryggisupplýsingum sem miða að því að reyna að tryggja ör- yggi sjófarenda sem best. I umræddu tilviki, hvað varðar Dag- fara GK-70, var ákvörðun sú sem send var til Breka/TFGS kl. 10.10 tiltekinn dag, um að ekki væri ástæða til að Breki/TFGS eða Þerney/TFPC héldu áfram á staðinn, ekki tekin af Reykja- víkur-radíói enda ekki þess hlutverk í tilviki sem þessu heldur, eins og eðlilegt er, þeirra sem stjórna björg- unaraðgerðum á svæðinu og geta lagt til grundvallar faglegt mat á aðstæð- um og stöðu mála hverju sinni. - Reynsla, hæfni og fagleg þekking þeirra sem stjórna björgunaraðgerð- um sem þessum hér á landi er öllum kunn. í samræmi við ofangreint hlutverk strandstöðvanna annaðist Reykjavík- ur-radíó/TFA í tilviki þessu fjarskipti og miðlun upplýsinga og tilkynninga til aðstoðar Dagfara/ TFME, milli björgunaraðila, þ.e. Landhelgisgæslu og SVFÍ, og skipa sem að málinu komu. Fagna framboði Guðrúnar Agn- arsdóttur Jón G. Jónsson skrifar: Ég fagna mjög ákvörðun Guðrún- ar Agnarsdóttur læknis að gefa kost á sér í komandi kjöri til for- seta íslands. Ég er þess fullviss að margir vilja sjá Guðrúnu taka við af frú Vigdísi Finnbogadóttur og telja það í raun framlengingu á farsælum ferli frú Vigdísar. í þetta starf kunna margir aö verða kallaðir áður en lýkur en aðeins einn útvalinn. Það er við hæfi að það verði kona en ekki karl, a.m.k. í bráö, vegna þess að kona er mun betur þeim hæfileikum búin að vera sáttasemjari og mála- miðlari en nokkur karl getur orö- iö. Allir hætti 65 ára gamlir Kjartan skrifar: Margir eru undrandi á því að ekki skuli fyrir löngu hafa verið orðið við óskum þess mikla fjölda fólks sem vill fá að hætta störfúm ekki síöar en 65 ára og fá þá rétf- indi til fúllrar lífeyristöku úr sín- um lífeyrissjóði. Þetta er ekki síst undarlegt með tilliti til hinna mörgu sem nú ganga atvinnulaus- ir en gætu fyilt skarð þeirra sem vilja hætta störfum. Nú eru bank- amir að lækka sín aldursmörk og margar aðrar starfsstéttir. Opin- berir starfsmenn hafa svo sérkjör að þessu leyti. Nú er orðið brýnt að almenningur búi líka við þess- ar reglur. Farbann á biskup íslands? Kristinn Guðmundsson skrifar: Biskupsmálið virðist ekki enn til lykta leitt. Það sýna m.a. yfir- heyrslur sem nú standa yfir hjá rannsóknarlögreglu yfir a.m.k. tveimur konum sem ásakað hafa biskup íslands um áreitni við sig. Ég hef hitt marga sem spyrja sem svo hvort ekki þurfi líka að yfir- heyra biskupinn og hvort ekki hefði verið nauðsynlegt að setja farbann á biskup íslands. Það er gert við aðra sem mæta þurfa til yfirheyrslu af minna tilefni en hér um ræðir. Raunar er þetta mál 'allt miklu alvarlegra en ráöamenn hér hafa viljað viðurkenna. Það er ekkert annað og minna í húfi en biskupsembættið sjálft. Er það kannski ekki þess viröi að það sé hreinsað að fullu? Yfirdýralæknir fyrir hverja? Margrét Á. Jónsdóttir skrifar: Brynjólfur Sandholt yfirdýra- læknir segir i frétt i sunnudags- blaði Mbl. að hann „voni að eng- inn íslendingur leggi sér gælu- dýrafóður til munns" og gefur þar til kynna að litlar líkur séu á að menn fái þannig hinn skelfilega Creutzfeldt-Jakob sjúkdóm. - Því væri fróðlegt ef yfirdýralæknir svaraði spurningunni um það hvort það væri þá í lagi að gælu- dýr landsmanna fengju riðusmit? Rykmettuð Reykjavík Árni hringdi: Ég tek undir lesandabréf í DV í dag (25. mars) um að Reykjavík sé yfirfull af ryki og óhreinindum. Það er alveg ótrúlegt hve mikið ryk er í loftinu, bara t.d. af um- ferðinni. Það er eins og allar göt- ur séu fúllar af mold og ryki. Þetta sér maður hvergi erlendis og jafn- vel víöa um landið þar sem mal- bikið hefur verið tekið völdin, eins og á Akureyri, er ekki svona mikið ryk i loftinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.