Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1996 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnariormaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, simi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftan/erð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Einangrunargreni Einangrun í lengri tíma veldur fólki heilsuvanda og í mörgum tilfellum verulegum geðrænum erfiðleikum. Þetta kemur fram í nýlegri grein eftir landlækni. Þar leggur hann til að einangrun fanga vari að öllu jöfnu ekki lengur en þrjár til fjórar vikur. Mörg dæmi eru um miklu lengri einangrun fanga hér- lendis og allt upp í tveggja ára einangrunarvist. Aðrir hafa lýst hremmingum sínum og niðurbroti eftir langa vist, einangraðir í fangaklefa. Grein landlæknis byggist á nýlegum erlendum rann- sóknum. Þær rannsóknir sýna að einangrun gæsluvarð- halds hefur í för með sér svefnleysi, þunglyndi, einbeit- ingarskerðingu og kvíða. Líkamlegir kvillar versna með- an á gæsluvarðhaldi stendur. Einangrun í gæsluvarðhaldi er neyðarúrræði rann- sóknaraðila og getur verið nauðsynleg við rannsókn sakamála. Það hefur hins vegar verið sýnt fram á að að- gerðin er svo harkaleg og mannskemmandi að takmarka verður tíma einangrunarinnar eins og mögulegt er. Það kom fram hjá fangelsislækni í gær að einangrun- artími í fangelsum hérlendis hefur styst á undanfómum árum. Undantekningar eru ef menn sitja lengur í ein- angrun en fjórar til sex vikur. Þær.undantekningar em þó til og einangrunin getur þá skipt mánuðum. Þá er vit- að að menn koma skemmdir út. Því lengur sem einangrun varir því verri áhrif hefur hún á einstaklinginn. Klippt er á öll tengsl við umheim- inn. Fanganum er neitað um öll bréf og það sem hann lætur frá sér fara er grandskoðað. Hann getur ekki haft samband við ástvini sína og hefur af eðlilegum ástæðum miklar áhyggjur af ástandi fjölskyldu sinnar. Við þessar aðstæður brotna menn fljótt niður. Það getur ekki verið tilgangur fangavistarinnar að menn komi verri út en þeir fóm inn. Því verður að hraða mjög rannsókn mála meðan fangi situr í einangrun. Það má aldrei gleymast að fangar hafa mannréttindi. Við þetta bætist að aðstaða í einangrunarfangelsunum í Reykjavík er afleit. Fangelsislæknir orðaði það svo í gær að Síðumúlafangelsið teldist varla boðlegt einstakl- ingum í siðmenntuðum heimi og samrýmdist ekki þeim kröfum sem gerðar væm í dag. Menn eru dæmdir til fangelsis en ekki mannskemmdar, sagði læknirinn. Lýsingar á fangaklefum í Síðumúlafangelsinu eru ófagrar og líkjast helst því sem sést hefur í bíómyndum frá samfélögum sem við viljum ekki bera okkur saman við. í þröngum klefum er boðið upp á steinbekk með lé- legri dýnu. Borð á jámstólpa er skrúfað í gólfið. Stóll er í klefanum, ófæranlegur. Þykkmúraður gluggi efst. Ekki er aðstaða til að horfa á afþreyingarefni í sjónvarpi eða hlusta á útvarp. Ekki þarf heldur að hafa mörg orð um aðstöðu fanga í gamla hegningarhúsinu við Skólavörðustíg. Sé hún ekki boðleg í Síðumúlanum er hún það ekki heldur við Skóla- vörðustíginn. Fangelsislæknirinn bendir á að enginn sé eins lágt settur og fangar og fyrrverandi fangar. Þeir eigi sér fáa málsvara. Því er þrýstingur á aðgerðir í þeirra þágu lít- ill. Ábyrgðin er engu að síður yfirvalda. Nýtt fangelsi er risið á Litla-Hraimi. Þar er aðbúnaður allur annar en áður var. Fyrirhugað er að reisa fangelsi á höfuðborgarsvæðinu. Það verkefni er aðkallandi. Ein- angrunargrenin við Síðumúla og Skólavörðustíg eru eng- um manni bjóðandi. Jónas Haraldsson „Hvernig má það vera að þjóðin eigi fiskimiðin en nokkrar útgerðarfamilíur eigi fiskinn í sjónum um aldur og ævi...?“ Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur Hver man ekki eftir því að allir voru að barma sér yfir pólitík- inni? Það grimma kvikindi var svo frekt og hávært að enginn þóttist óhultur fyrir því. Það skreið inn í hverja smugu gjamm- andi og glefsandi og menn fórnuðu höndum og báðu guð að hjálpa sér. Nú er sá tími liðinn. Eða svo gott sem. Og nú fer mörgum eins og þeim sem tóku andskotann út úr sálmabókinni og settu hann síð- an inn aftur í næstu útgáfu. Vegna þess að enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur. Hver ræður hér? Pólitíkin gat verið leiðinleg og truflað sálarfriðinn en hún snerist þó um eitthvað sem gat skipt máli. En nú blasir helst við sá heimsó- sómi að yfir dynja miskunnarlaust tíðindi af einstaklingum sem heimta að eiga síðasta orðið, hver á sínum vettvangi. Ræður biskup í kirkjunni eða formaður prestafé- lagsins? Ræður presturinn eða organistinn? Ræöur leikhússtjór- inn eða leikararnir? Hver ræður Slysavarnafélaginu og Almanna- vörnum, já og hver fær að ráða því hvort björgunarsveitin kaupir bíl? Rangt er að segja að öll þessi forræðismál séu ómerk með öllu. Ekki skyldi maður setja sig á svo háan hest. En að öllu samanlögðu koma frá þessum málum daufleg og leiðinleg skilaboð út um borg og bý. Umræðan er negld niður við það eitt hver ráði á hverjum stað. Þegar best lætur gera menn sig alvarlega og einbeitta á svip og segja: Þetta eru ekki nokkur vinnubrögð! Það var ekki talað við mig eða okkur, þessi fór út fyrir sitt umboð, þessi tók sér vald, þessi gerði ekki neitt! Þar með glutrast niður sú „pólitík" að það skipti máli til hvers átti að nota öll þessi slóttugu eða freku vinnu- brögð. Það vill gleymast að menn ætluðu sér eitthvað með sínu bar- dúsi, allt koðnar niður í rifrildi um það, hvernig menn fara að því að sitja kyrrir þar sem þeir eru komnir. Eitthvað svipað einkennir Kjallarinn Árni Bergmann rithöfundur einatt það sem enn er eftir af eig- inlegri pólitík. Stjórnmálaflokkar eru stundum að fitja upp á stefnu- málum og leggja á einhver ráð, þó nú væri. En athygli fá þeir helst ekki nema það sé einhver hana- slagur innan þeirra. Til dæmis hefur líklega verið sagt og skrifað tíu sinnum meira um síðasta for- mannskjör í Alþýðubandalaginu en um allt annað s'em sá flokkur hefur verið að bauka. Og ef Al- þýðuflokkinn ber á góma spyrja menn um aðeins eitt: kemur Jó- hanna aftur eða ekki? Pólitík hefur áður verið mjög persónugerð á íslandi, ekki vantar það. En raunverulegur skoðanaá- greiningur og hugmyndabarátta fengu að fylgja með í því dæmi. Nú erum við stödd á þeim amer- íska tíma þegar skoðanir og stefna skipta litlu sem engu, en ímyndin er allt. Menn eiga að koma vel fyr- ir. Menn eiga að vera trúverðugir. Ef þeir eru trúverðugir þá er þeim trúandi til... ja hvers? Menn kom- ast sjaldan svo langt að spyrja að því. Botninn er suður í Borgar- firði. Skoðanafælni og afneitun Þetta ástand er ekki samsæri gegn almenningi. Landsins þegnar eru satt best að segja ekkert sér- lega móttækilegir fyrir þá ósvífni og þau friðarspjöll að menn hafi skoðun og vilji beita sér fyrir henni. Þeir eru skoðanafælnir sem aldrei fyrr. Þeir eru um leið haldn- ir algengum kvilla sem kallaður er afneitun. Afneitun er í því fólgin að menn viija helst ekki heyra óþægileg tíðindi. Hún er líka fólg- in í því að menn í leti sinni gefast upp við að setja sig inn í snúin mál. Því er dauft yfir því stórmáli sem varðar hvern íslending: hvernig má það vera að þjóðin eigi fiskimiðin en nokkrar útgerðarfa- milíur eigi fiskinn í sjónum - um aldur og ævi að því er dómstólar segja? Því er enn daufara yfir því, að við lifum á tímum dæmalausra „eignatilfærslna". En það er kurt- eist feluorð yfir þá þróun sem er að gerast hjá okkur og allt um kring, að þeir sem mest hafa fá enn meira - í eignum, tekjum, skattfríðindum, starfslokasamn- ingum og eftirlaunum. Meðan plokkað er af þeim sem minnst hafa og það fjarar undan þeim stóra hópi sem búið hefur við millistéttarkjör. Við skulum ekki fást um svoleiðis. Við skulum horfa í aðra átt. Hvað er að frétta af séra Flóka í dag? Árni Bergmann „Afneitun er í því fólgin að menn vilja helst ekki heyra óþægileg tíðindi. Hún er líka fólgin í því að menn í leti sinni gefast upp við að setja sig inn í snúin mál.“ Skoðanir annarra Frá hugsunarhætti einokunarinnar „Háeflún fyrirtækja tekur sinn tíma og felst ekki eingöngu í því að breyta eignarforminu ... Ríkið er ekki lengur sá bakhjarl sem var til staðar óháð því hvemig reksturinn gekk, óháð þvi hvernig þjónusta var veitt. Ef þjónustan er slæm koma engir pening- ar í kassann, fyrirtækið skilar ekki hagnaði og starfsmennirnir missa vinnuna. Á endanum er það allra hagur að komast frá hugsunarhætti einokunar tfl hugsunarháttar samkeppninnar; að veita góða þjónustu, að viðskiptavinurinn komi aftur.“ Hrönn Hrafiisdóttir í Alþbl. 26. mars. Þjóðaratkvæði „Þegar EES-samningurinn var til meðferðar hjá Alþingi tók Morgunblaðið afstöðu gegn kröfum um að efnt yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um málið, á þeirri forsendu að ekki væri hefð fyrir slíku hér á landi. Ekki hefði verið viðhaft þjóðaratkvæði um aðra milliríkjasamninga eða um mikilvæg innan- landsmál ... Þetta breytir þó ekki því, að þjóðarat- kvæðagreiðslur hafa ýmsa kosti ... Mál, sem nýtur raunverulegs meirihlutafylgis meðal kjósenda, getur strandað á því að þingheimur endurspegli ekki vilja þjóðarinnar vegna úrelts kjördæmakerfis." Úr forystugrein Mbl. 26. mars. Vinnulöggjöfin „Vinnustaðafélög og staða aðila fyrir og eftir lög- in verða efnisákvæði sem koma til meðferðar Al- þingis ... Sú afstaða stjórnarandstöðunnar að leggj- ast eindregið gegn þinglegri meðferð málsins er gagnrýni verð. Við þá meðferð gafst gott tækifæri til þess að hafa samráð um þessa mikilvægu lagasetn- ingu, ekki síst við samtök launþega. Stjómarand- staðan hefur þar að auki verkstjórn í því máli, því stjórnarandstæðingur er formaður félagsmálanefnd- ar.“ Úr forystugrein Tímans 26. mars.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.