Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Side 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.03.1996, Side 18
34 MIÐVIKUDAGUR 27. MARS 1996 íþróttir_________________________________________________________________________________________dv 1 ff M U < l 1 m m m % - JF Hersey Hawkins og félagar hans í Seattle Supersonics unnu Washington nokkuö örugglega í nótt og Seattle vann þar með fjórða sigur sinn í röð í NBA-deildinni. Þorvaldur ekkert með í mánuð - sleit vöðva í læri og kviðslitinn að auki „Það orðnar um fjórar vikur sið- an að ég sleit vöðva aftan í læri. Ég veit ekki ennþá hversu alvarlegt þetta er en ég fór núna fyrst í byrj- un vikunnar að hreyfa mig eftir að slitið átti sér stað. Ofan á þetta kemur svo í ljós að ég er nárakvið- slitinn. Ef allt gengur að óskum er ég að vonast eftir að geta spilað síð- ustu leikina á tímabilinu en það er of snemmt að spá nokkru fyrir um það á þessri stundu,“ sagði Þor- valdur Örlygsson landsliðsmaður hjá enska 1. deildarliðinu Oldham í samtali við DV í gærkvöldi. Staða liðsins slæm Nokkrir mánuðir eru siðan að Þorvaldur skrifaði undir tæpan fjögurra ára samning við Oldham en þar áður lék hann með Stoke og Nottingham Forest. Oldham hefur gengið allt í mót frá því um áramót og er nú svo komið að liðið er komið í bullandi fallhættu. Það er sú staða sem fáir áttu von á þegar keppnistímabilið hófst. Liðinu var spáð góðu gengi og vildu sumir meina að liðið færi upp í úrvalsdeildina. Meiðsli á leikmönnum hafa komið niður á liðinu „Auðvitað hefur gengið á liðinu ekki verið eins og flestir vonuðust eftir. Liðið hefur farið illa með tækifærin og svo hafa margir leik- menn verið óheppnir að lenda í meiðslum. Þetta hefur að vonum sett strik í reikninginn. Þótt staðan sé slæm eru menn að vona að lið- inu takist að rétta úr kútnum og haldi sæti sínu í 1. deild. Þrátt fyr- ir öll meiðslin er ég mjög ánægður hjá Oldham. Hér er allt annar vinnuandi en var hjá Stoke,“ sagði Þorvaldur Örlygsson. -JKS Haukastúlkur í úrslitaleik - eftir sigur á Fram í gærkvöldi Haukastúlkur tryggðu sér sæti í úr- slitaleik gegn Stjörn- unni um íslandsmeist- aratitil kvenna í hand- knattleik eftir sigur á Fram, 18-17, í gær- kvöldi. Haukar unnu því báðar viðureign- irnar gegn Fram. „Þetta var ekki góð- ur leikur. Það var alltof mikið um mistök af hálfu beggja liða. Bæðin liðin voru of taugaspennt. Við verð- um að leika betur gegn Stjörnunni í úrslitun- um. Við munum und- irbúa okkur af kost- gæfni fyrir þá leiki,“ sagdði Judith Estergal, þjálfari og leikmaður Haukaliðsins, við DV eftir leikinn. Þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið í leiknum. Fyrri hálf- leikur var slakur en sá síðari var skemmtileg- ur og spennandi. Jafnt var, 15-15 og 17-17, en það var Ragnheiður Guðmundsdóttir sem skoraði sigurmarkið. Judith og Auður voru bestar hjá Hauk- um en Ama, Kolbrún og Hafdís hjá Fram. Mörk Stjörnunnar: Judith 5/1, Auður 4, Hulda 3, Ragnheiður 3, Thelma 2, Kristín 1. Varin skot: Alma 9, Vigdís 1/1. Mörk Fram: Ama 8/5, Hafdís 4, Berglind 2, Hekla 1, Kristin 1, Svanhildur 1. Varin skot: Kolbrún 16. JKS/ HS NBA-deildin í körfuknattleik í nótt: Fyrsti ósigur Orlando heima í rúmt eitt ár í nótt gerðust þau undur og stór- merki í NBA-deildinni í körfuknatt- leik að lið Orlando Magic tapaði loks á heimavelli sínum. Orlando hafði unnið 40 heimaleiki í röð og auðvitað hlaut að koma að því fyrr eða síðar að liðið yrði sigrað í Or- lando. Og fyrstir til að gera það í rúmt ár voru Erwin Magic Johnson og félagar í Los Angeles Lakers. Úrslitin i NBA-deildinni í nótt: Orlando-LA Lakers .........91-113 Toronto-Atlanta...........111-114 Cleveland-Washington .......89-96 Detroit-Vancouver ..........86-75 Indiana-Boston ............103-96 Houston-NY Knicks...........74-83 Denver-Charlotte ... (2 frl.) 112-119 Phoenix-Sacramento.......102-98 LA Clippers-Milwaukee .... 103-97 Golden State-Seattle.....102-114 „Því miður hlaut að koma að því að þessari glæsilegu sigurgöngu lyki. Þrátt fyrir ósigurinn gegn Lakers er ég mjög stoltur af strák- unum,“ sagði Brian Hill, þjálfari Or- lando, eftir leikinn í nótt og Dennis Scott bætti við: „Það eina góða við að tapa þessum leik var að nú þurf- um við ekki að hugsa um þetta met fyrir hvem einasta leik í deildinni.“ Síðasti tapleikur Orlando á heimavelli var gegn Utah Jazz 14. mars í fyrra. Nick Van Exel var stigahæstur hjá Lakers og skoraði 22 stig en Eddie Jones kom næstur með 18. Cedric Ceballos lék á ný með Lakers og átti frábæran síðari hálfleik og sneri leiknum við fyrir Lakers. Hjá Orlando skoraði Shaquille O'Neal 23 stig og Penny Hardaway 21. „Ég held að jafnvel þó Horace Grant hefði leikið með Orlando þá hefðu þeir verið í vandræöum," sagði Erwin Magic Johnson eftir leikinn, en hann skoraði 14 stig og átti 7 stoðsendingar. „Lakersliðið gekk á öllum og vel það í kvöld,“ sagði Magic enn fremur. Denver og Charlotte háðu æðis- gengna baráttu í Denver og þurfti tvær framlengingar til að fá fram úrslit. Larry Johnson og Dell Curry skomðu 20 stig fyrir Charlotte. New York lék frábæran vamar- leik gegn Houston og hafði 22 stiga forskot í leikhléi. Leikmenn Hou- ston söxuðu á forskot Knicks í síð- ari hálfleik en náðu ekki að gera leikinn spennandi í lokin. John Starks lék vel að þessu sinni fyrir Knicks og skoraði 21 stig. Hins veg- ar mætti lið Houston með vængbrot- ið til leiks. Hakeem Olajuwon, Ro- bert Horry, Clyde Drexler, Sam Cassell og Mario Elie em allir meiddir og munar um minna. Charles Barkley skoraði 29 stig fyrir Phoenix Suns, sem þrátt fyrir lélega hittni marði sigur gegn Sacramento Kings. -SK Roberto Baggio. Baggio ekki með Allar líkur eru taldar á því að stórstjarnan Roberto Baggio hjá AC Milan spili ekki með ítölum á Evrópu- mótinu á Englandi í sumar. „Ég held að það séu 90% líkur á því að ég muni ekki velja Baggio í liðið. Baggio hefur átt slæmt tímabil með Milan í vetur og það er ástæðan fyrir því ef ég vel hann ekki í lið- ið,“ sagði Sacchi þjálfari ítala.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.