Dagblaðið Vísir - DV - 06.05.1996, Blaðsíða 10
10
MÁNUDAGUR 6. MAÍ 1996
Útlönd
DV
Elísabet drottnmg:
Hættir að veita hirðmönn-
um sinum
Elísabet Englandsdrottning
hefur ákveðið að hætta að skjóta
skjólshúsi yfir hirðmenn sína
með því að láta þeim í té dýrar
og vel búnar íbúðir fyrir lítið
sem ekkert gjald. Ákvörðunin
mun hafa áhrif á um 50 ritara og
aðra sem halda utan um rekstur
konungsfjölskyldunnar. Elísbet
reynir með þessu að laga ímynd
konungsíjölskyldunnar en hún
hefur orðið yfir mikilli gagnrýni
vegna þess kostnaðar sem henni
fýlgir og umdeildrar hegðunar
yngri fjölskyldumeðlima. Þannig
lýsti drottning því yfir fyrr á ár-
inu að hún mundi hætta að
greiða skuldir Söru Ferguson
sem er að skilja við son hennar,
Andrés. Reuter
husaskjol
Elísabet er hætt að hýsa hirðmenn
sína. Símamynd Reuter
UTBOÐ
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í „Safnæðar
á Reykjum, endurnýjun - 2. áfangi“.
Endurnýja skal 3 safnæðar með einangruðu stálpípuefni í stærð-
um DN200 - DN500 mm. Heildarlengd um 700 m. Fjarlægja skal
á kafla steypta hitaveitustokka og leggja stálpípur í staðinn.
Verkinu skal að fullu lokið 1. september 1996.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 15.000 kr.
skilatr.
Opnun tilboða: þriðjud. 21. maí nk. kl. 11.00.
hvr 61/6
F.h. Hitaveitu Reykjavíkur er óskað eftir tilboðum í „Elliða-vog-
sæð - endurnýjun 1996“.
Endurnýja skal æðina milli Kleppsmýrarvegar og Holtavegar
með einangraðri stálpípu, DN 350/500 mm, alls um 730 m. Brot
og endurlögn malbiks er um 130 m2.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 15.000 kr.
skilatr.
Opnun tilboða: þriðjud. 14. maí nk. kl. 14.00.
hvr 62/6
F.h. Byggingad. borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í
lóðaframkvæmdir við Fossvogsskóla. Helstu magntölur eru:
Hellulagnir 500 m'
Gróðurmold 90 mJ
Malbik 70 m"
Opnun tilboða: miðvikud. 22. maí kl. 11.00 á skrifstofu vorri,
Fríkirkjuvegi 3, 101 Rvk.
bgd 63/6
F.h. Árbæjarsafns er óskað eftir tilboðum í rekstur Dillons-
húss. Safnið er opið frá 27. maí til 1. september og þrjá sunnu-
daga í desember 1996 og frá kl. 10.00 til 18.00 alla daga nema
mánudaga. Rekstur Dillonshúss þarf að vera í takt við aðra
starfsemi safnsins og er áhersla lögð á að Dillonshús bjóði upp
á þjóðlegar veitingar.
Áhugasamir sæki útboðsgögn á skrifstofu vora að Fríkirkjuvegi
3, 101 Reykjavík.
Opnun tilboða: miðvikud. 8. maí 1996 kl. 14.00 á sama stað.
árb 64/6
F.h. Byggingad. borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í
endurn. og viðhald glugga utanhúss í Langholtsskóla.
Helstu magntölur:
Nýir gluggar 27 stk.
Gler 180 m'
Rammar og opnanleg fög 245 stk.
Verkinu skal vera lokið 10. ágúst 1996.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 10.000 kr.
skilatr.
Opnun tilboða: fimmtud. 23. maí 1996 kl. 11.00 á sama stað.
bpd 65/6
F.h. Byggingad. borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í
endurn. rafkerfis í Árbæjarskóla.
Helstu magntölur:
Vír 1,5 m2
Aðaldreifiskápar 1 stk.
Undirdreifiskápar 6 stk.
Verktími: 5. júní - 10. ágúst 1996.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri gegn 5.000 kr. skilatr.
Opnun tilboða: þriðjud. 28. maí 1996 kl. 14.30 á sama stað.
bgd 66/6
INNKAUPASTOFNUN
REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16
Ringulreið ofbeldis og morða geisar í höfuðborg Líberíu:
Skáru fanga á háls
og skutu í höfuðið
Ungur drengur dansar og sveiflar sverði yfir líkum hermanna Charles
Taylors, sem höfðu verið líflátnir skömmu áður. Voru þeir skotnir í höfuðið
og skornir á háls. Símamynd Reuter
Ógnaröld ofbeldis og morða geis-
aði enn í Monróvíu, höfuðborg Lí-
beríu, um helgina en samningar um
vopnahlé, sem talið var að hefðu
tekist með stríðandi fylkingum á
laugardag, rann út í sandinn.
Skotbardagar geisuðu nær
stöðugt milli striðandi fylkinga og
var kveikt í fjölda húsa. Krahn-
skæruliðar Roosvelts Johnsons tóku
fimm af hermönnum Charles
Taylors og tóku þá af lífi fyrir opn-
um tjöldum á einni aðalgötu borgar-
innar. Voru fangarnir skornir á
háls eða skotnir í höfuðið. Lágu
Qögur líkanna í blóðpollum í húsa-
sundi meðan eitt lá í rennusteinin-
um.
Herflokkar fóru um rænandi,
ruplandi og drapandi. Þannig fór
hópur um 30 Krahn-manna um,
klæddir ermalausum vestum og
með hárkollur. Með í för var nakinn
drengur vopnaður riffli.
Ógnaröldin í Líberíu hófst 6. apr-
íl þegar ráðandi öfl, með Charles
Taylor og Alhaji Kromah í broddi
fylkinga, reyndu að handtaka Roos-
evelt Johnson, leiðtoga Krahn-
manna, vegna morðákæra.
Flogið var með Johnson til Gahna
í bandarískum herþyrlum á fóstu-
dag þar sem friðarviðræður munu
fara fram á morgun og miðvikudag
með þátttöku Abacha, forseta her-
foringastjórnarinnar í Nígeríu.
Tímabundið vopnahlé náðist eftir
brottför Johnsons en Charles Taylor
vildi ekki viðurkenna það og héldu
bardagar því áfram. Bandarísk her-
skip eru í viðbragðsstöðu undan
ströndum Líberíu.
Þúsundir manna hafa neyðst til
að flýja heimili sín vegna ógnarald-
arinnar og hafast við í flóttamanna-
búðum í einu hverfa borgarinnar
þar sem öryggisverðir gæta þeirra.
Um 2 þúsund flóttamenn troðfylltu
ryðgað nígerískt flutningaskip sem
lagði úr höfninni i Monróvíu áleiðs
til Accra, höfuðborgar Ghana, í gær.
Hafa þúsundir manna hafst við í ná-
grenni hafnarinnar undanfarna
daga í von um skipsferð.
Reuter
Rætt um stofnun þriöja kosningaaflsins í Rússlandi:
Aðstoðarmaður Jeltsíns vill
fresta forsetakosningunum
Alexander Korsakov, öryggisfull-
trúi og aðalaðstoðarmaður Borisar
Jeltsíns forseta, sem stundum er
sagður valdamesti maður Rúss-
lands, vill að komandi forsetakosn-
ingum verði frestað. Hann segir
marga áhrifamenn í Rússlandi vera
hlynnta frestun kosninganna eins
og hann. Hann segir frestun æski-
lega til að viöhalda stöðugleika í
landinu.
Frestun kosninganna myndi hafa
afar neikvæð áhrif á lýðræðisþróun
í Rússlandi, setja spurningarmerki
við áframhaldandi efnahagsstuðn-
ing erlendis frá og valda erlendum
stuðningsmönnum Jeltsíns von-
brigðum.
En Korsakov sagði að ef kosning-
arnar færu fram á tilsettum tíma,
þ.e. 16. júní, yrði engin leið að koma
í veg fyrir ófrið, Ynni Jeltsín
myndu kommúnistar bera fram
ásakanir um kosningasvindl og ef
Mikill bruni gereyðilagði aðal-
stöðvar Credit Lyonnais bankans í
París, sem er í ríkiseigu, í gær. Er
bruninn síðastur í röð áfalla bank-
ans en gríðarlegt tap var á bankan-
um 1994 og varð ríkið að koma til
bjargar.
Eldur logaði enn í risastórri bygg-
ingunni, sem er frá síðustu öld og
fagurlega skreytt, í gærkvöldi 12
tímum eftir að eldsins varð vart.
Boris Jeltsín.
Zjúganov færði sig nær miðju
stjórnmálanna yrðu harðlínukomm-
únistar æstir.
Einungis tókst að bjarga um þriðj-
ungi byggingarinnar frá logunum.
Um 350 manns unnu að slökkvi-
störfum í allan gærdag og þurftu
um 40 manns að leita læknishjálpar
vegna slysa, reykeitrunar og þreytu.
Bruninn hefur engin áhrif á starf-
semi bankans en öll gögn voru
geymd á öruggum stað. Talið er að
eldsupptök hafi orðið vegna skamm-
hlaups í raflögnum. Reuter
Zjúganov sagði umræðu um frest-
un kosninganna stafa af því að
Jeltsín væri ekki viss um að vinna
þær. Hann sagði ráðandi öfl reiðu-
búin að taka völdin úr höndum
kjósenda.
En Jeltsín er ógnað af fleirum en
kommúnistum. Þrír farmbjóðendur,
sem ekki eiga mikla möguleika
bjóði þeir fram hver fyrir sig, hafa
átt í viðræðum um að sameina
kraftana fyrir kosningar og bjóða
fram þriðja aflið. Það eru þeir
Grígorí Javlinskí, Alexander Lebed
og Svjatoslav Fjodorov. Saman gætu
þeir ógnað bæði Jeltsín og Zjúga-
nov.
Rússneska fréttastofan Izvestía
sagði að Jeltsín stæði frammi fyrir
þeim valkosti að sundra þremenn-
ingunum eða sameinast þeim.
Jeltsín hefur rætt við Javlinskí og
mun ræða við hina tvo næstu daga.
Reuter
5 milljónir fyrir
golf með Clinton
Yflrmaður tölvúdeildar banda-
rísku tollþjónustunnar bauð
hæst, um 5 milljónir króna, þeg-
ar golfleikur með Bill Clinton for-
seta var boðinn upp á fjáröflunar-
uppboði Sidwell Friends-einka-
skólans. Chelsea, dóttir Clintons,
er í skólanum. Flestir héldu að
golfleikurinn færi á 4-600 þúsund
krónur en þrír ákafir golfarar
sprengdu loftiö. Spiláðar verða 18
holur á golfvelli sjóhersins í Was-
hington. Reuter
Bruni í aðalstöðvum
Credit Lyonnais