Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996
Fréttir
Samtök iðnaðarins um skipasmíðaiðnaðinn:
Fyrri markaðshlutdeild
verði náð fyrir aldamót
- hvert fiskveiðiskipið af öðru siglir nú til Póllands til breytinga
DV, Akrireyri:
Ingólfur Sverrisson, deildarstjóri
hjá Samtökum iönaöarins sem hef-
ur með aö gera málefni skipaiðnað-
arins, segir samtök iðnaðarins hafa
sett sér það markmið að skipaiðnað-
urinn nái fyrri markaðshlutdeild
(75-80%) fyrir næstu aldamót og
auki umsvifin síðan um 30% innan
tíu ára. Til að þetta takist veröi að
skapa grundvöll innan greinarinnar
fyrir arðbær verkefni sem standist
alþjóðlegar köfur um verð og gæði.
Úm þessar mundir eru 5-7 íslensk
fiskveiðiskip í Póllandi þar sem
unniö er við lengingu á þeim og
önnur verk og að óbreyttu er fyrir-
sjáanlegt að framhald verði á því að
íslenskir útgerðarmenn sigli skip-
um sínum þangað til slíkra breyt-
inga enda munar allt að 100% á því
verði sem pólsku stöðvamar bjóða
miðað við þær íslensku eins og fram
kom í DV í gær.
Mun skemmri verktími
Sverrir Leósson, sem gerir úr
nótaskipið Súluna frá Akureyri,
hefur sent sitt skip til Póllands þar
sem lengja á það um nokkra metra
og framkvæma fleiri verkþætti.
Munurinn á pólska tilboðinu, sem
útgerðin tók, og innlendum tilboð-
um í því tilfelli var um 30% og inn-
lent tilboö i svipað verk á nótaskip-
inu Guðmundi Ólafssyni ffá Ólafs-
firði var 100% dýrara innanlands en
í Póllandi, svo dæmi séu nefnd.
„Það er þó ekki eina atriðið sem
við horfum á. Pólverjamir vinna
þessi verk á mun skemmri tíma og
þegar verðið bætist svo við er ekki
um annað að ræöa fyrir okkur en
taka erlendu tilboðunum þótt viö
viljum auðvitað veg innlendrar
skipasmíði sem mestan,“ segir
Sverrir.
Aukin samvinna
Ingólfur Sverrisson segir aö með
samvinnu sé unnt að auka afrakst-
ur einstakra verka, bæta gæði fram-
leiðslu og þjónustu og stytta
vinnslutíma. TU að örva slíka þróun
verða innlend fyrirtæki hvött til að
sérhæfa sig á tilteknum sviðum og
ná með því hámarksafköstum og
gæðum. Þá segir Ingólfur að hefja
þurfi skipulagt starf til að ryðja úr
vegi markaðshindrunum eins og
reglum sem koma í veg fyrir að er-
lend fiskiskip geti leitað hafna hér á
landi, landað afla og þegið þjónustu.
„Sannleikurinn er sá að verð í
Póllandi hefúr verið að nálgast okk-
ar verð enda leggi pólsk yfirvöld
áherslu á að skipasmíðastöðvamar
þar verði aö standa sig sjálfar. Hvað
varðar stálvinnu standa Pólvérjar
öðram þjóðum framar en þegar kem-
ur að annarri vinnu séu íslensku
stöðvamar samkeppnisfærar og það
fyUUega. Eitt vandamálið sé þó
vinnslutiminn. í PóUandi sé hægt að
vinna verkin á mun skemmri tíma
vegna þess hversu stór fyrirtækin
eru og þess vegna verði m.a. lögð
áhersla á einhverja samvinnu ís-
lensku fyrirtækjanna sem sérhæfi
sig á ákveðnum sviðum.
Hægt aö kæra
Um árabU hafa Norðmenn og
Spánverjar einnig tekið tU sín stór-
an hluta vinnu við smíði og viðgerð-
ir og breytingar á íslenskum skip-
um en nú er að verða breyting þar
á. „Nú erum við komnir undir sömu
reglugerðir og þessi lönd og það er
einn af kostunum að við fóram inn
á EES- svæðið. Við getum því kært
hluti eins og undirboð þessara aðUa
vegna þess að stöðvamar þar eru
komnir undir sömu reglur og við
störfum eftir" segir Ingólfúr.
-gk
DV, Akureyri:
Loðnuaflinn á sumarvertíðinni er
nú kominn yfir 300 þúsund tonn sem
er það langmesta sem veiðst hefur á
sumarvertíð tU þessa og rúmlega
helmingi meira en veiðst hefur mest
áður í upphafi loðnuvertíðar. Aflinn
væri án efa mun meiri hefðu veiö-
amar hafist fyrr eins og sjómenn
óskuðu eftir en fengu ekki vegna
ákvæða í samningi við Norðmenn.
Loðnuaflinn á fiskveiðiárinu, sem
er frá 1. september tU 31. ágúst, er
nú kominn yfir eina mUljón tonna
og það hefur heldur ekki gerst áður
og er aflinn um 350 þúsund tonnum
meiri en á sama tíma á síðasta fisk-
veiðiári.
Á sumarvertíðinni hafa borist
tæplega 46 þúsund tónn tU Siglu-
fjarðar, um 30 þúsund tonn til Seyð-
isfiarðar, ríflega 27 þúsund tonn tU
Eskifjarðar og fjórði hæsti löndun-
arstaðurinn er Raufarhöfn með tæp-
lega 26 þúsund tonn. -gk
Vigdísi veitt
heiðursverðlaun
Sumarvertíöin:
Loðnuaflinn yfir
300 þúsund tonn
Það verður vegleg fjölskylduhátíð
um helgina í RangárvaUasýslu.
Töðugjöld kaUast hún og þar verður
fjölbreytt dagskrá aUa helgina. í dag
er bænda- og markaðsdagur og
keppt verður meðal annars í plæg-
ingu. Sunnudagurinn verður helg-
aður menningu, gengið verður á
Heklu og ýmsar uppákomur verða
aUan daginn. Sérstök alþjóðleg verð-
laun, Heimshomið, verða veitt og
það verður frú Vigdís Finnbogadótt-
ir sem tekur við þeim.
Búist er við miklu fjöri á töðu-
gjöldunum en þar verður lögð
áhersla á kynningu á landbúnaðar-
framleiðslu héraðsins, menningu,
náttúru og útivist. -ilk
Guðmundur Árni Stefánsson alþingismaður er oddamaður nefndar sem kjörin var á fulltrúaráðsfundi krata í Hafnar-
firði í gær og er sögð eiga að endurskoða núverandi meirihlutasamstarf í bæjarstjórn Hafnarfjarðar. Ingvar Viktors-
son bæjarstjóri, sem hér er ásamt Guömundi Árna, er líka í nefndinni. Hann og formann Alþýðuflokksfélags Hafnar-
fjarðar greindi á um það í sjónvarpsviötali í gærkvöldi hvert væri hlutverk nefndarinnar. DV-mynd S
Sjópróf á sjóslysinu á Arnarfiröi hófust í gær:
Þörf að na myndum af flakinu
Sjópróf hófust í gær á ísafirði
vegna sjóslyssins þegar skelfiskbát-
urinn Æsa sökk á Arnarfirði 25. júlí
sl. Þijú vitni vora kölluð fyrir í sjó-
prófum i gær, tveir af áhafnarmeð-
limunum fjóram sem komust lífs af
og skipstjórinn á Æsu en hann var
*/ rödd
FOLKSINS
904 1600
Á að leyfa Dönum að
veiða á gráa svæðinu?
ekki meö í ferðinni örlagaríku. Sem
kunnugt er fórast tveir úr áhöfn
skipsins þegar þvi hvolfdi á dular-
fullan hátt um eina og hálfa mílu
frá landi. Flakið af Æsu liggur enn
á botni Arnarfjarðar.
Sjóprófin fóra fram fyrir luktum
dyram í stjómsýsluhúsinu á ísa-
firði í gær. Var það gert samkvæmt
ósk útgerðarfélagsins sem er Vest-
fiskur skelfiskur hf. á Flateyri.
Tveir af áhafnarmeðlimum eiga enn
eftir að bera vitni en þeir vora báð-
ir löglega forfallaðir I Reykjavík.
„Sjóprófum er ekki lokið því það
eiga enn eftir að koma fyrir tvö
vitni sem höfðu lögmæt forfoll. Um
leið og þessi vitni hafa komið fyrir
verða málsgögn unnin og send
áfram til Rannsóknamefndar sjó-
slysa, Siglingamálastofnunar og rík-
issaksóknara. Það er lítið um sjó-
prófin að segja sem slik. Það hefur
ekkert komið fram sem getur varp-
að ljósi á hvað gerðist þegar skipið
fórst. Það hefur ekki verið hægt að
ná flakinu upp þar sem það liggur
svo djúpt. Því er þörf að ná betri
myndum af flakinu og veriö er að
vinna í því,“ sagði Sonja Hreiðars-
dóttir, settur héraðsdómari í málinu
á ísafirði í gær. -RR
Frá sjóprófunum DV-mynd Hörður
H valij arðar strönd:
Álverið
kærkomin
viðbót
DV, Akranesi:
Ef af byggingu álvers á Grandar-
tanga verður mun lóð þess ná yfir
hreppamörk og tilheyra bæði Skil-
mannahreppi og Hvalfjarðarstrand-
arhreppi. Fasteignagjöld álversins,
sem yrðu um 8,5 milljónir, myndu
skiptast til helminga á milli þessara
tveggja hreppa. Jón Valgarðsson,
oddviti Hvalfjarðarstrandarhrepps,
segir að álverið verði kærkomin bú-
bót fyrir sveitarfélagið ef af verði og
líst flestum vel á að fá það í sveita-
félagið. íbúar þar era 160 og segir
Jón að fasteignagjöldin yrðu helsta
búbót hreppsins og sé komin tölu-
verð reynsla á þetta því að nágrann-
amir í Skilmannahreppi hafi fast-
eignagjöld af Járnblendifélaginu.
Hann býst hann við að fasteigna-
gjöldum yrði skipt til helminga.
„Þetta era kærkomin atvinnu-
tækifæri til sveitarinnar því þau
hafa ekki verið mörg síðan Jám-
blendið kom til sögunnar og einkum
er þetta kærkomið vegna þess að
samdrátturinn í landbúnaði, og þá
einkum sauðfjárrækt, hefur bitnað
hvað mest á hreppnum og ofan á
þetta misstum við hvalinn sem var
ákaflega slæmt.“ Jón Valgarðsson
vildi ekki tjá sig um það hvort til-
koma álvers myndi flýta fyrir sam-
einingu hreppanna. Hann sagði að
þótt þetta hefði lítils háttar verið
rætt heföi það ekki verið í neinni £d-
vöru til þessa. -DVÓ
Gekk ótrúlega vel
„Þetta gekk alveg ótrulega vel fyr-
ir sig, það var lítilleg seinkun á sum-
um leiðum, en það var aðallega
vegna þess að fólk var mikið að
spyijast fyrir,“ sagði Lilja Ólafsdótt-
ir, forstjóri SVR um hinar viðtæku
breytingar sem áttu sér stað i gær.
Hún sagði að símalínur hjá SVR
heföu verið rauðglóandi í allan gær-
dag, fólk heföi flest verið að afla sér
upplýsinga um nýja leiðakerfið. -gdt
Stuttar fréttir
Slitnað upp úr
Slitnað er upp úr viðræðum
Þormóðs Ramma hf. og Haraldar
Böðvarssonar hf. um myndun
stærsta sjávarútvegsfyrirtækis á
landinu. Sjónvarpið sagði frá.
Innheimt í sjávarútvegi
Um 800 milljónir verða inn-
heimtar af sjávarútvegsfyrir-
tækjum í þróunarsjóð og til
veiðieftirlits á næsta fiskveiði-
ári.
Eftirspurn minnkar
Eftirspum eftir íslenskri
rækju í Japan hefur minnkað
vegna matareitranarinnar þar,
skv. RÚV.
Seinagangur í kerfinu
íbúar Flateyrar eru óánægðh-
með að ekki er byrjað að reisa
snjóflóðavamargarð vegna
seinagangs í stjómkerfinu. Sjón-
varpið greindi frá.
Úr Þjóðvaka
Lilja Á. Guðmundsdóttir
kennari ætlar að segja sig úr
Þjóðvaka ef hún fær starf dag-
skrárstjóra Rásar 2. Alþýðublað-
ið sagði frá.
Almannagjá lokuð
Almannagjá var lokuð í gær
og fyrradag vegna töku erlendr-
ar auglýsingakvikmyndar.
Mogginn greindi frá.
Landnámsbær fundinn
Fundist hafa minjar um land-
námsbæ nærri kumli í Nesjum.
Moggi greindi frá. -GHS