Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Blaðsíða 28
Alla laugardaga
Vertu mðhúinfn)
vumingif
13) (16) (28)
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996
Helgarblað DV:
í stríði
við ríkið
í Helgarblaði DV á morgun kenn-
ir ýmissa grasa að venju. Opnuvið-
talið er við Gunnar Inga Gunnars-
son heimilislækni en hann hefur að
undanfomu staðið í stríði við hið
opinbera fyrir hönd samninga-
nefndar heilsugæslulækna.
Rætt er við mannfræðinginn Evu
Krosnowski, sem segist vera á leið í
fjöldagröf í Bosníu, og Boga Agnars-
son þyrluflugmann en hann hefur
starfað hjá hollensku fyrirtæki í Ní-
geríu auk ýmissa fastra liða. -GHS
Þróunarsjóður:
Lít á þetta sem
skattlagningu
Gjöld útgerðarinnar í landinu til
Þróunarsjóðs sjávarútvegsins verða
innheimt þegar nýtt fiskveiðiár hefst
þann 12. september nk. Gjaldið er 1.000
krónur á hvert þorskígildistonn og
verði það ekki greitt er hægt að svipta
skip veiðileyfum. Alls verða innheimt-
ar um 800 milljónir á nýju fiskveiðiári.
„Menn hafa verið missáttir við þá
stefnu sem í þessu felst og fundist far-
ið ilia með fjármunma. Það orkar
mjög tvímælis hvort notkun þessara
ijármuna í að eyða og sökkva skipum
og fækka þeim þannig hafi verið rétt-
lætanleg í því Ijósi að sjávarútvegur-
inn er upp fyrir haus í verkefnum,"
segir Jóhann A. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Hraðfrystihúss Þórs-
hafhar, í samtali við DV.
Gunnar Tómasson, framkvæmda-
stjóra hjá Þorbimi í Grindavík kvaðst
alltaf hafa verið andsnúinn innheimtu
af þessu tagi. „Ég lít frekar á þetta sem
skatflagningu en annað. Þeir geta beitt
harkalegum innheimtuaðferðum við
að innheimta þetta, en ætli til þess
komi, ætli menn greiði þennan skatt
ekki eins og aðra skatta.“ -SÁ
CÁ NÚ AÐ FARA A£>
5KATTLEGGJA
SÆGREIFANA?
Fulltrúaráðsfundur Alþýðuflokksfélaganna í Hafnarfirði:
Jóhann Bergþórsson
heldur sig til hlés
- kom fram í bréfi til fundarins - nefnd til að forða klofningi flokksins
„Á fundinum í gærkvöld las
Ingvar Viktorsson upp bréf frá
Jóhanni Bergþórssyni um að hann
myndi halda sig til hlés á
næstunni til að auðvelda félögum
sinum í meirihlutasamstarfmu að
starfa,“ sagði Guðmundur Ámi
Stefánsson í samtali við DV í
morgun.
Á fulltrúaráðsfundinum var
kjörin nefnd sem á að endurskoða
núverandi meirihlutasamstarf
krata við Jóhann G. Bergþórsson
og Ellert Borgar Þorvaldsson. Hún
á einnig að fara yfir innri málefhi
flokksins og tengsl bæjarfulltrú-
anna við almenning í Hafnarfirði.
Mikili hiti var í mönnum fyrir
fundinn og þung undiralda á hon-
um. Til stóð að bera fram tillögu
um að slíta núverandi meirihluta-
samstarfi. Óttuðust margir að ef
sú tillaga kæmi fram yrði klofn-
ingur í röðum krata í Hafharfirði.
Samkomulagið um nefiidarskipun-
ina bjargaði því að til mikilla átka
og síðan klofiiings kæmi.
„Það má vel segja að þarna sé
um sáttatillögu að ræða og hún
setur málin í ákveðinn farveg. Ég
tel einnig aö flokkurinn í Hafnar-
firði hafi unnið sigur með henni
því um hana var einhugur á fund-
inum. Ég tel einnig að með skipun
nefndarinnar sé umræðan um
meirhlutasamstarfið komið í rétt-
an lýðræðislegan farveg," sagði
Guðmundur Ámi.
Guðmundur var kjörinn í nefnd-
ina og er sagður vera þar odda-
maður ásamt fimm bæjarfulltrú-
um flokksins og formönnum
þríggja Alþýðuflokksfélaga í Hafn-
arfirði.
„Ég tel að þessi nefndarskipun
sé sú tillaga sem við andstæðingar
núverandi meirihlutasamstarfs
vorum með. Nefndin á að endur-
skoða meirihlutasamstarfið,"
sagði Sverrir Ólafsson, stjómar-
maður í Alþýðuflokksfélagi Hafn-
arfjarðar. Hann hafði boðað til-
lögu á fundinum um að meiri-
hlutasamstarfinu yrði slitiö.
Enn ér hiti í mönnum vegna
þessa máls. DV hefur heimildir
fyrir því að Alþýðuflokksfélag
Hafnarfjarðar hafi áhuga á því að
láta fara fram skoðanakönnun í
bænum um það hvort núverandi
meirihlutasamstarfi skuli haldið
áfram.
-S.dór
Undirfataverslunin Eg og þú var með tískusýningu á Astro í gær og eins og sjá má á þessari mynd hafði karlpening-
urinn mikinn áhuga á því sem verið var að sýna. Hvort þeir hafa verið að leita að einhverju handa elskunni sinni skal
ósagt látið en svo mikið er víst að þeir létu ekkert fram hjá sér fara. DV-mynd Pjetur
Læknadeilan:
Engin
hreyfing
„Það hefur ekkert gerst og ég
merki enga hreyfingu í okkar mál-
um. Ég trúi hins vegar ekki öðru en
að menn fari að vakna upp við að
við óbreytt ástand verður ekki
unað. Boltinn er hinum megin við
borðið," sagði Gunnar Ingi Gunn-
arsson, formaður samninganefndar
heilsugæslulækna, við DV í morg-
un. Fundur verður hjá sáttasemjara
í dag klukkan eitt.
Katrín Fjeldsted, formaður Félags
heimilislækna, fundaði með fjár-
málaráðherra og formanni Lækna-
félags íslands í gærmorgun. Hún
sagði við DV í gær að sá fundur
hefði verið árangursríkur.
-sv/-S.dór
Bílvelta við
Galtalæk
Bíll fór margar veltur við Galta-
læk í fyrradag og var þyrla Land-
helgisgæslunnar kölluð til að sækja
bílstjórann. Flogið var með hann á
Sjúkrahús Reykjavíkur. Meiðsl
hans voru talin minni en haldið var
í fyrstu. -sv
Veðrið á morgun:
Hægviðri
um allt
land
Á morgun verður hægviðri
um allt land en víða skýjað,
einkum þó norðan- og norðaust-
anlands.
Veðrið í dag er á bls. 36
Frumsýnum nýjan
Nissan
Terrano II ‘97
Verð frá kr.
2.254.000.-
• Ingvar
Helgason hf.
Strvarhöfda 2 •**£*«*•**#
Simi 525 8000