Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Side 13
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996
13
Velferð án
í athyglisverðri
grein í síðasta
hefti hins virta
tímarits The
Economist er sagt
frá nýlegu frum-
varpi (The Right
to Work Bill) sem
borið hefur verið
upp sameiginlega
af þingmönnum í
breska íhalds-
flokknum og
verkamanna-
flokknum. í frum-
varpinu er gert
ráð fyrir því að
flestir þeir sem
missa atvinnuna
verði virkjaðir til
verka af einhverju
tagi. Það nýtur
stuðnings 135
breskra þingmanna, þar af 80
íhaldsmanna. Báðir stóru flokk-
arnir í Bretlandi hafa um tíma
verið með hugmyndir af þessu tagi
til athugunar.
Tillögur í þessa veru hafa ekki
ávallt notið vinsælda. Margir
ihaldsmenn hafa þannig verið á
móti þeim samkvæmt grein The
Economist. Sú mótbára hefur með-
al annars verið höfð uppi að sé öll-
um haldið að verki þá valdi það
verðbólgu. Við hætist að sumum
hægrimönnum hefur ekki líkað sú
hugmynd að ríkið tryggi öllum
þeim atvinnulausu verkefni sem
ekki er unnt að nýta i þágu hins
almenna markaðar og auki þannig
umsvif sín.
I greininni kemur fram að auð-
velt er að koma með gagnrök gegn
fyrrgreindum mótbárum. Þannig
er lítil ástæða til að halda að verk-
efni sem ekki keppa um vinnuafl
við störf á frjálsum markaði verki
verðbólguhvetjandi. Nóg er af
þeim. Það úrlausnarefni sem blas-
ir við er því að finna eða
skilgreina slík verkefni í
nægilegum mæli sem
þar að auki misbjóða
ekki þeim atvinnulausu.
Ef að líkum lætur þá er
þetta auðleyst ef tekið er
á því af krafti.
Haldlítil mótrök
Andstaða manna gegn
því að ríkið taki að sér
að tryggja næg verkefni
fyrir alla atvinnulausa,
geti aðrir það ekki, virð-
ist því ekki reist á sterk-
um grunni. Þegar öllu er
á botninn hvolft þá er
um tvennt að velja, það
er virkni eða óvirk bóta-
taka. Munurinn á kostn-
aðinum við þessa tvo
valkosti þarf ekki að
vera sérlega mikill. í báðum tilvik-
unum þarf ríkið að leggja fram
mestallt féð í formi atvinnuleysis-
bóta. Meginkosturinn við breytta
skipan er á hinn bóginn sá að til
kæmi veruleg ný verðmætasköp-
un sem ekki sér stað nú. Það virð-
ist því greinilega hagkvæmt að
gera breytingar. Furðu vekur að
þessi augljósu sannindi skuli hafa
mætt andstöðu.
Frá sjónarhóli
þeirra atvinnu-
lausu er mikil
framfór í slík-
um breyting-
um. Þorri
þeirra sem
missa atvinn-
una líður fyrir
þá útskúfun
sem felst í nú-
verandi fyrir-
komulagi. Flest-
ir þurfa á þeirri andlegu kjölfestu
að halda að taka virkan hátt í sam-
félagi vinnandi fólks. Það sem
einkum þarf að tryggja er að kerfi
af þessu tagi séu það vel skipulögð
að atvinnulausum sé ekki misboð-
ið. Enn fremur að þau raski ekki
samkeppni á frjálsum markaði.
Ný öryggisnet
Þróunin í Bretlandi á sér víða
hliðstæður. Um allan heim er
kominn upp sterkur stuðningur
við að endurskoða velferðarkerfi
og atvinnuleysistryggingakerfi í
þeim tilgangi að draga úr eða
Kjallarinn
Jón Erlendsson
yfirverkfræðingur Upp-
lýsingaþjónustu Há-
skólans
„Þorri þeirra sem missa atvinn-
una líður fyrir þá útskúfun sem
felst í núverandi fyrirkomulagi.
Flestir þurfa á þeirri andlegu
kjölfestu að halda að taka virkan
þátt í samfélagi vinnandi fólks.“
verkleysis
í!®illílilii|piiÉII||||§1
.. «siJ
i ■■ , > ■ . . , &ma
:
Padraig Flynn, yfirmaður félags- og atvinnumála hjá EB, kom hingað til
lands í boði félagsmálaráðuneytisins.
hætta greiðslum fyrir verkleysi.
Dæmin eru mörg. Velferðarfrum-
varp það sem Bandaríkjaforseti
undirritaði nýverið er í þessum
anda.
Yfirmaður félags- og atvinnu-
mála hjá EB, Padraig Flynn, sem
var hér á landi fyrir nokkru í boði
félagsmálaráðuneytisins, hefur
látið í ljós skoðanir af þessu tagi.
Sama má segja um Jacques
Delors, fyrrverandi framkvæmda-
stjóra EB. Og hér á landi eru fjöl-
margir sama sinnis. Málið er
reyndar komið það langt að á veg-
um félagsmálaráðherra, Páls Pét-
urssonar, eru í undirbúningi lög
sem ganga í þessa átt.
Nauðsyn vandaðs skipu-
lags
Ekki er aUt komið með því að
setja lög til að virkja þá atvinnu-
lausu. Tryggja verður að verkefn-
in sem þeir eiga að taka til hend-
inni við séu árangursrík og að þau
nýti hæfileika og þekkingu fólks.
Þegar búið er að kosta miklu til
menntunar dugar ekki að nýta at-
vinnulaust fólk í stórum stíl sem
jarðvinnuvélar sakir þess að þeir
sem ákveða hvað á að gera hafa
ekki aðrar og betri hugmyndir.
Þetta er viðamikið úrlausnarefni
sem krefst mun meiri fyrirhyggju,
meiri vinnu, fjölbreyttari úrræða
og betra skipulags en við búum
við í dag. Jón Erlendsson
A6 velja sér lífsstíl
Erfðir, lífsstíll og umhverfi hafa
áhrif á heilbrigði okkar. Við erum
hluti stærri heildar og allt það
sem við gerum hefur áhrif á líðan
okkar á einhvern hátt. Það að líða
vel er upplifun hvers og eins og
heilbrigði er mun meira en það að
vera án sjúkdóma.
Við getum ávallt valið. Á hverj-
um degi stöndum við frammi fyrir
ákveðnu vali, meðvituðu eða
ómeðvituðu. Margur kannast við
það að koma örþreyttur heim úr
vinnu, borða, kasta sér upp í sófa
og liggja þar þangað til maður
drattast upp í rúm. Viðkomandi
hefur valið það að borða og leggja
sig í stað þess t.d. að fara út að
ganga. Að lokum kemst þetta upp
í vana og eins og flestir vita er
erfitt en ekki ómögulegt að kenna
gömlum hundi að sitja.
Vani og gamlar hefðir
íslendingar teljast til upplýstari
þjóða og flest okkar þekkja mikil-
vægi þess að ástunda heilbrigt líf-
erni. Hvers vegna lifum við þá
ekki heilsusamlegra lífi en við ger-
um? Vani og gamlar hefðir draga
oft úr vilja okkar til breytinga.
Það skiptir
miklu máli hvað
við erum alin
upp við. Heilsu-
samlegt líferni
gengur oft í erfð-
ir því börnin
læra það sem
fyrir þeim er
haft. Það skiptir
okkur líka máli
hvemig vinir og
jafningjar hegða
sér. Við réttlæt-
um oft óæskilega
hegðun með því að aðrir sem við
þekkjum til hegði sér á svipaðan
máta.
Lífsstíll hefur ótvíræð áhrif á
heilbrigði. í rannsókn, sem gerð
var í Bandaríkjunum 1987, var
sýnt fram á að hægt væri að rekja
50% dauðsfalla til
lífsstíls fólks. Þar er
m.a. átt við rangt
mataræði, hreyfing-
arleysi, streitu, reyk-
ingar og áfengi.
Einnig hefur verið
sýnt fram á tengsl
hreyfingarleysis og
veikindaflarvista frá
vinnu.
Ávinningur heil-
brigðara lífernis er
m.a.: Bætt sjálfs-
mynd, minni streita,
minni líkur á hjarta-
og æðasjúkdómum,
minni líkur á stoð-
kerfisvandamálum
og einkennum frá
meltingarfærum og
hægari öldrun.
Ekki nægir að huga að heils-
unni annað slagið. Heilsusamlegt
líf á að vera hluti af okkar daglega
lifi en. ekki skammtímaátak
hverju sinni.
Bíllaus dagur
Hreyfing er ein af forsendum
heilsusamlegs lífs. Oft ber fólk við
tímaskorti þegar rætt er um nauð-
syn þess að hreyfa sig. Þó unnið sé
í 50 klukkustundir á viku, sofið í
60 og borðað í 25 þá
eru ennþá 33 klukku-
stundir aflögu. Gefum
okkur tima til hreyf-
ingar. Göngum út í
búð, notum stiga í
stað lyftu og leggjum
bílnum í nokkurri
fjarlægð frá vinnu-
stað.
íslendingar eru
flestra þjóða lífseig-
astir. ÖÚ hljótum við
að hafa leitt hugann
að því hvernig við
viljum eyða ævi okk-
ar. Öruggt er að flest
viljum við viðhalda
andlegri, líkamlegri
og félagslegri vellíð-
an. Hættum að setja
okkur skammtíma-
markmið. Bætum lífi við árin en
ekki einungis árum við lífið.
Ákveðið hefur verið að hvetja
Reykvíkinga til að draga úr bila-
notkun á bíllausum degi þann 22.
ágúst næstkomandi. Notum tæki-
færið. Skipuleggjum þann dag tím-
anlega með það fyrir augum að
nota bílinn sem minnst. Göngum,
hjólum, notum strætisvagna eða
sameinumst um bíla ef þörf er á.
Björg Árnadóttir
„Öruggt er að flest viljum við við-
halda andlegri, líkamlegri og fé-
lagslegri vellíðan. Hættum að
setja okkur skammtímamarkmið.
Bætum lífí við árin en ekki einung-
is árum við lífíð.u
Kjallarinn
Björg Árnadóttir
hjúkrunarfræðingur hjá
Heilbrigðisráðgjöf í fyrir-
tækjum
Arni Hjörleifsson,
bæjarfulltrúi Al-
þýöuflokksins í
Hafnarfiröi.
Með og
á móti
Núverandi meirihlutasam-
starf í Hafnarfirði
Betri og bjart-
ari framtíð
„Mitt mat er
að undir stjóm
Alþýðuflokks-
ins síðustu tvö
kjörtímabil
hafi verið mik-
ið framfara-
skeið í sögu
Hafnarfjarðar.
Það var því
mikið áfall þeg-
ar myndaður
var meirihluti
Alþýðubandalags og Sjálfstæðis-
flokks eftir siðustu kosningar.
Enda kom í ljós að þetta eina ár
sem sá meirihluti sat er það ár
sem flestir Hafnfirðingar vildu
gleyma því aldrei í sögu bæjarins
ríkti annaö eins dugleysi og
svartnætti við stjórnun bæjarins.
Þessir aðilar höfðu engan dug til
að stjórna bænum. Þeir voru í
taumlausu ofstæki, á kafi í því að
reyna að sverta störf alþýðu-
flokksmanna og svo langt gekk að
þeir voru farnir að kæra sínáeig-
in samstarfsménn. Það var svo
sem í lagi þótt þeir ófrægðu bæj-
arfulltrúa Alþýðuflokksins en
verra var að með atferli sínu
voru þeir stöðugt að sverta
ímynd Hafnarfjarðar. Að lokum
ofbauð tveimur bæjarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins ástandið og
tóku upp samstarf við Alþýðu-
flokksmenn. Samstarfið hefur
byggst á dugnaði og gagnkvæmu
trausti á milli aðila og því hefur
náðst mikill árangur á ýmsum
sviðum á aðeins einu ári. Það er
því fráleitt í mínum huga að slíta
þessu samstarfi því það er aug-
ljóst að meirihlutinn er að gera
góða hluti sem skila Hafhfirðing-
um betri og bjartari framtíð."
Mata ómælt
krókinn
„Við mynd-
un meirihlut-
ans var það
skilyrði Al-
þýðuflokks að
málarekstri á
hendur Jó-
hanni G.
Bergþórssyni
væri lokið.
Hann sór þess
eið að þeir
sjálfstæðis-
menn hæfu þetta samstarf með
hreint borð. Meirihlutanum tel
ég því sjálfhætt í kjölfar dóms
yfir J.G.B. enda gæti enn fleira
verið í gruggugu farvatninu
J.G.B. og Ellert Borgar sitja
flestum nefhdum og ráðum bæj
arins ög mata þar ómælt krók
inn. Það er í andstöðu við sveit-
arstjórnarlög að kjörinn fulltrúi
skipi sjálfan sig í stöðu, sbr.
J.G.B. og verkeftirlit við Miðbæ.
Þá er óþolandi að J.G.B. skuli
sitja beggja vegna borðs, t.d. hvað
varðar verkútboð bæjarins, sbr.
framkvæmdir í Straumsvíkur-
höfn o.fl. en Hagtak var sett í for-
val með traustum fyrirtækjum á
borð við ístak, JVJ og Sveinbjörn
Runólfsson þrátt fyrir að að-
standendur Hagtaks hafi þrisvar
farið á hausinn! Á þessu ári mun
Hafnarfjarðarbær greiða og af-
skrifa sem nemur þúsundum
króna á hvert mannsbarn vegna
skaða sem bærinn hefur hlotið af
viðskiptum við fyrirtæki J.G.B.
Þeir félagar eru kjörnir fulltrúar
og eign Sjálfstæðisflokksins sem
ber á þeim alla ábyrgð. Samstarf
við þessa menn stórskaðar Al-
þýðuflokkinn og bæjarfélagið.
Það gengur þvert á og hamlar
framkvæmd jafnaðarstefnunnar.
Þess vegna ber nú þegar að slíta
þessu samstarfi. -gdt
Sverrir Olafsson,
stjórnarmaöur í Al-
þýöufélaginu í
Hafnaifiröi.