Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Page 2
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996 -ÖT'-
16
nlist
Kolrassa krókríðandi:
I japönsku hátæknisjónvarpi
nærtil 160 milljón manna
Hljómsveitin Kolrassa krókríðandi hyggur á landvínninga í Japan og birtist ■ sjónvarpsþætti þar nú fyrir jól.
Hin sérstæða og þjóðlega hljóm-
sveit Kolrassa krókríðandi tók ný-
lega þátt í gerð sjónvarpsþáttar sem
sýna á í sérstakri þrívíddarsjón-
varpsstöð nú fyrir jól. Búist er við
að um hálf milljón manna geti séð
þá útsendingu. Eftir jól verður svo
þátturinn sýndur á hefðbundnu
formi í japanska ríkissjónvarpinu
en um 160 milljón Japanir geta séð
útsendingar þess.
„Þetta byrjaði þannig að Anna
Hildur Hildibrandsdóttir í London
hafði samband við mig og spurði
hvort ég vildi taka þátt í þætti sem
bresk sjónvarpsstöð er að gera fyrir
japanskan markað,“ segir Elísa
Maria Geirsdóttir, söngkona Kol-
rössu krókríðandi. Gerðir voru
fimm þættir um íslenska þjóðmenn-
ingu og atvinnulíf. Kolrassa
krókríðandi tekur þátt í þættinum
sem fjallar um ungt fólk og menn-
ingu þess.
ísland kemur vel út
„í þáttunum er mikil áhersla lögð
á íslenska landslagið sem kemur
víst vel út í þrívíddarsjónvarpi. Það
er svo mikil dýpt í íslensku fjöllun-
um og auðninni. í okkar þætti erum
við notuð sem tengiliður, við leiðum
áhorfandann á milli atriða, ef svo
má segja,“ segir Elísa. Farið var
viða um land við gerð þáttarins.
Meðód þeirra staða, þar sem komið
var við voru Surtshellir og Þingvell-
ir og verið á 17. júní hátíð í Reykja-
vík. „í Surtshelli stóð yfir sýning á
verkum Páls Guðmundssonar. Við
vorum þar inni með Thor Vil-
hjálmssyni og hann las fyrir okkur
útilegumannasögur sem tengjast
hellinum. Það var mjög flott að vera
þama inni við kertaljós og hlusta á
þessar sögur en þegar við komum út
vorum við orðin kolsvört. Á 17. júní
hátíðinni fóru þeir Páll og Thor með
okkur og þeir hlýddu á þegar við
fluttum tónlist okkar þar. Þannig
var þetta látið tengjast saman,“ seg-
ir Elísa. Á tónleikunum klæddist
hún sérstöku pilsi úr fiskiroði sem
Linda Björk Ámadóttir hannaði en
hún kemur einnig fram í þættinum.
Útrás til Japan
Elísa segir að það sé lögð þung
áhersla á þjóðlegt þema í þætt-
inum en Japanir munu vera mjög
hrifnir af slíku. „Við vorum látin
tala um landið og menninguna í
bland við hitt. Það var frekar
erfitt að gera þáttinn en það var
líka mjög gaman. Það er erfitt að
þurfa beinlínis að leika sjálfan
sig,“ segir hún.
Elísa telur líklegt að hljómsveit-
in láti meira að sér kveða á
japönskum vettvangi. „Við höfum
verið í viðræðum við japanskl
plötufyrirtæki og þeir hafa verifi
mun jákvæðari eftir að við tókum
þátt í sjónvarpsþættinum. Það
væri frábært ef við gætum gert
eitthvað meira þar og hver veii
nema við förum þangað út eftir
jól. Þetta er meiri háttar mark-
aður og miklu meira spennandi en
margt annað,“ segir hún.
Ný og frábær plata
Ný plata með Kolrössu krókríð-
andi kemur út um miðjan septem-
ber og ber hún titilinn Köld eru
kvennaráð. Eitt lag af henni er að
finna í sjónvarpsþættinum góða
og er það gert við kvæði er Eirík-
ur útilegumaður í Surtshelli kvað
eftir að hann hafði komist undan
réttvísinni. „Þetta er skemmtilegt
lag, alls ekkert drungalegt og leið-
inlegt þó að það sé mjög þjóðlegt,“
segir Elísa. Hún er afar ánægð
með nýju plötuna. „Ég held að
þetta sé frábær plata, svona væg-
ast sagt. Öll tónlistin er ný og mér
finnst þetta miklu betra en það
sem við höfum verið að gera áður.
Það er reyndar mjög skemmtilegt
hvernig við getum þróast áfram og
orðið betri og betri," segir Elísa
að lokum.
-JHÞ
Nirvana snýr aftur
Ferli stórsveitarinnar Nirvana er
greinilega ekki lokið þó að nokkuð
sé um liðið síðan söngvari og laga-
smiður hennar, Curt Cobain, ákvað
að jarðvistin væri honum um megn.
Þann 8. október næstkomandi verð-
ur platan From the Muddy Banks of
the Wiskah gefm út en þar má finna
16 lög sem voru hljóðrituð á fimm
ára tímabili, 1989 til 1994.
Frá heimaslóðum
Nafnið á plötunni, From the
Muddy Banks of Wiskah, kemur frá
ánni sem rennur í gegnum bæinn
Aberdeen í Washington þar sem
Nirvana var stofnuð upphaflega.
Þaðan eru einmitt þeir Curt Cobain,
söngvari og lagasmiður sveitarinn-
ar, og Krist Novoselic bassaleikari.
Kröftug plata
Lögin, sem um ræðir, voru hljóð-
rituð á hljómleikum sveitarinnar
víða um lönd. Sum þeirra eru frá
því þegar Nirvana lék á litlum
klúbbum í Bandarikjunum en önn-
ur frá því þegar leikið var á
risarokkhátíðinni í Reading. Flest
- Nýr geisladiskur á
þeirra eru frá tónleikaferð sveitar-
innar á árinu 1991 en tvö þeirra eru
hljóðrituð áður en Nirvana sló í
gegn með plötunni Nevermind.
Nýjasta hljóðritunin er frá því i
byrjun janúar 1994 en þá lék Nir-
vana í Seattle. Sem dæmi um lögin
á plötunni þá má finna titla þar eins
og Drain You, (Smells Like) Teen
Spirit, Lithium og Spank Thru.
„Þetta er kröftug plata,“ segir
Novoselic sem pældi í gegnum
meira en 100 klukkutíma af tónlist
ásamt trommuleikaranum Dave
Grohl þegar var verið að velja lög á
nýju plötuna. Novoselic segist von-
ast til þess að fólk fái nákvæmari
hugmynd um tónlist Nirvana. „Flest
af þeim lögum, sem við völdum á
plötuna, voru lög sem Nirvana spil-
aði hvert kvöld sem við lékum fyrir
áheyrendur," segir hann. Andy
Wallace sá um að hljóðblanda plöt-
una.
Tilfinningalega of erfitt
Upphaflega átti að gefa út tvo
geisladiska í einum pakka haustið
1994. Annar þeirra átti að vera óraf-
magnaður og hinn frá tónleikum
hljómsveitarinnar. Það reyndist
hins vegar of erfitt tilfmningalega
fyrir hljómsveitarmeðlimi að fara
að sökkva sér ofan í gamalt
efni hljómsveit-
arinnar
svo
stuttu
i eftir að
? Coba-
in
stytti sér aldur að órafmagnaða
platan, Unplugged in New York, var
gefin út ein og sér haustið 1994. Sú
plata sló svo sannarlega í gegn og
hefur selst i rúmlega 7 þúsund ein-
tökum hér á landi.
Kraftmikið band
„Mér hefur alltaf fundist
að það ætti að gefa út Nir-
vana-plötu eins og From the
Muddy Banks of the
Wiskah. Nirvana var ein-
faldlega frábært tónleika-
band og við teljum að
þessi plata gefi hlustend-
um góða tilfínningu
fyrir því
hvernig það
var að vera
staddur á
tónleikum
með sveit-
inni,“ segir
Mark Kates, einn af
stjórnendum DGC
plötufyrirtækisins
sem gefur plötuna út.
-JHÞ