Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Blaðsíða 8
22 um helgina FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996 DV Hlaupið á afmæli borgarinnar: „Ég er bjartsýnn fram í fingur- góma núna. Veðurfræðingarnir spá sæmilegu veðri og það geri ég líka,“ segir Knútur Óskarsson, formaður Reykjavíkur maraþonsins. Hlaupið fer fram á afmælisdegi Reykjavíkur- borgar, sunnudaginn 18. ágúst, og mun það vera 12. maraþon Reykja- vikurborgar. Þetta er orðinn fastur liður í viðburðum sumarsins í Reykjavík og útlendingar hafa sýnt hlaupinu mikinn áhuga. „Já, það er eftirsóknarvert að taka þátt. Fyrstu verðlaun fyrir maraþonið eru vegleg og útlending- ar sækjast eftir þeim eins og við hin. Við bjóðum upp á allt frá skemmtiskokki til maraþons og all- ir ættu því að geta tekið þátt,“ segir Knútur. Sjúkragæslan efld Hlaupið verður hefðbundið en þó hafa skipuleggjendur gert sitt hvað til að breyta og bæta í ár. „Við ætlum að reyna að hafa meiri stemningu þetta árið. Tónlist mun óma um svæðið og það ætti að létta þrautina fyrir hlauparana. Svo erum við líka búin að efla sjúkra- gæsluna. Við höfum blessunarlega verið laus við öll alvarleg óhöpp í gegnum tíðina en það er betra að vera við öllu búin.“ „Hlaupið verður reyndar ekki eins og það hefur verið undanfarin ár. Ástæðan fyrir því er að ég mun ekki hlaupa maraþonið. Það hef ég alltaf gert en núna er ég einfaldlega ekki í nógu góðu formi. Mér finnst þetta voðalegt en fólk er vonandi í betra formi en ég og ég býst fastlega við góðri þátttöku. í fyrra hlupu 3.200 manns þrátt fyrir grenjandi- rigningu og við gerum okkur vonir um að fjöldinn fari upp í 3.500 núna,“ segir formaðurinn. Það geta allir tekið þátt í Reykja- víkur maraþoninu sem vilja. AÍLs kyns uppákomur verða eins og til dæmis verðlaunaafhending fyrir furðulegasta hlaupabúninginn. Svo fá allir sem taka þátt verðlaunapen- ing og dregið verður um íjölda aukaverðlauna. Það er örugglega hægt að gera margt vitlausara én að hlaupa á sunnudaginn og hrista af sér slenið. -ilk Eftírtaldir einstaldmgar hafa verið dfegnír úr pottinum og hlotið efthfarandi verðlaun. íþróttagalla 09 bol frá Mízuno Hljóta; Berghildur Valdimarsdóttir, Stapasíðu 15C, 603 Akureyri CuðbjörgM. Björnsdóttir, Asparfelli 4, 111 Reykjavík Sigríður, Sunnufelli 10, 701 Egilsstaðir i Likamsraektarkort frá likamsradkUrstöjMnni Martti hljóta: María Sólveig Cunnarsdóttir, Meistaravöllum 9,107 Reykjavík Ósk Elín Jóhannsdóttir, Unufelli 46,109 Reykjavík Kassa af heílsudrykknum Aquaríus frá Vífílfclli hljóta: Sveinn Birkir, Svalbarði 3, 220 Hafnarfjörður Klara Hauksdóttir, Skipasundi 39,104 Reykjavík Císli H. Jónsson, Básenda 14,108 Reykjavík Ester Jónsdóttir, Miðengi 23, 800 Selfoss Stella Sigvaldadóttir, Logafold 62,112 Reykjavík Barilla-pastakörfu frá $$ hljóta: Stígur Reynisson, Silfurbraut 31, 780 Höfn Snjólaug S. Óskarsdóttir, Hrafnakletti 8, 310 Borgames Harpa Kristinsdóttir, Starrahólum 15,111 Reykjavík Védís Baldursdóttir, Stafholti 20, 603 Akureyri Áslaug Baeringsdóttir, Reykjanesvegi 14, 260 Njarðvík Pitsuvtislu fyrir 3 frá Pizza 67 hljóta: Helga Björgólfsdóttir, Crenigrund 14, 300 Akranes Jónína Loftsdóttir, Karfavogi 35,104 Reykjavík Vinningshafar eru beðnir að saekja vinninga í Ráðhús Reykjavíkur á morgun, laugardaginn 17. ágúst þar sem nýskráning fer fram og afhending gagna. L’ Við þökkum öllum þeim sem tóku þátt kærlega fyrir þátttökuna og vonum að sem flestir verði með okkur í Reykjavíkurmaraþoninu á sunnudag. \J 4 ) List úr læðingi w - tattóveraðir Islendingar Á morgun verður opnuð sýning á Mokka þar sem sýndar verða ljós- myndir af húðflúri eftir OFjölni Bragason myndlistarmann. Mynd- irnar tók Jón Páll Helgason ljós- myndari. Fjölnir er nemi i Myndlista- og handiðaskólanum í Reykjavík en hann byrjaði að tattóvera til að íjár- magna nám í útlöndum og starfar á Tattoo JP. Fjölnir lærði að tattóvera hér á íslandi en þetta er eflaust eitt elsta listform sem maðurinn hefur stund- að og örugglega það vandmeðfam- asta. Maðurinn sjálfur er striginn og listaverkið fylgir honum í gröf- ina. Tattóvering er I tísku og sýningin ku vera einkar athyglisverð. -ilk Tattóveruö geirvarta meö eyrnalokk. Síkvik veröld Herra Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, ætlar að opna sýn- ingu í Listasafni Kópavogs á morg- un kl. 15.00. Sýningin, sem kölluð er Síkvik veröld, er hingað komin að frumkvæði Utagawa-félagsins í Japan í samvinnu við Listasafn Kópavogs. Þar verður hægt að sjá fáein málverk og hátt á annað hundrað tréþrykk frá 18. og 19. öld. Japönsk þrykklist er ein sú merkasta fyrr og síðar og trúlega hefur þessi listgrein sjaldan eða aldrei náð jafnmikilli fullkomnun. Óhætt er að fullyrða að aldrei hef- ur íslendingum áður gefist viðlíka tækifæri á að skyggnast inn í lit- ríkan menningarheim Japans fyrr á öldum. Sýningin stendur til 29. septem- ber en um riiitt sýningartímabilið verður hluti myndanna tekinn nið- ur og aðrar settar upp í staðinn. Á sunnudaginn verður í tengsl- um við sýninguna japönsk te- drykkja kl. 14.00. MESSUR Árbæjarkirkja: Guðsþjón- usta kl. 11 árdegis. Sr. Sigur- jón Ámi Eyjólfsson annast guðsþjónustuna. Áskirkja: Vegna sumar- I leyfa starfsfölks Áskirkju er minnt á guðsþjónustu í Laugameskirkju. Breiðholtskirkja: Sam- koma Ungs fólks með hlut- verk kl. 20. Bústaðakirkja: Guðs- þjónusta kl. 11. Pálmi Matthíasson. Digraneskirkja: Messa Íkl. 11. Altarisganga. Sóknar- prestur. Dómkirkjan: Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur sr. Mar- ía Ágústsdóttir. Viðeyjarkirkja: Messa kl. 14. Prestur sr. María : Ágústsdóttir. Bátsferð úr Sundahöfn kl. 13.30. Elliheimilið Grund: | Messa kl. 14. Prestur sr. Fjalar Sigurjónsson. Félag fyrrverandi sóknarpresta. Fella- og Hólakirkja: Helgistund í umsjá Ragnars ISchram kl. 20.30. Prestamir. Grensáskirkja: Messa kl. 11. Altarisganga. Prestur sr. Halldór S. Gröndal. Grafavogskirkja: Guðs- þjónusta kl. 11. Prestamir. Hafnarfjarðarkirkja: Sumarferð til Þingvalla með rútu kl. 15 frá safnaðar- heimilinu. Guðsþjónusta í Þingvallakirkju kl. 17. Tak- ið nesti með. Sr. Þórhallur Heimisson. Hallgrímskirkja: Messa kl. 11. Sr. Ragnar Fjalar Lár- usson. Orgeltónleikar kl. 20.30. Gunnar Idenstam, konsertorgelleikari frá Sví- | þjóö. Hjallakirkja: Guðsþjón- usta kl. 14. Ath. breyttan tíma. Kristján Einar Þor- | varðarson. Kópavogskirkja: Helgi- stund kl. 11 í umsjón sr. IÞorbergs Kristjánssonar. Ægir Fr. Sigurgeirsson. Landspitalinn: Messa kl. 10. Sr Ragnar Fjalar Láms- son. Háteigskirkja: Messa kl. 11. Forsöngvari Soffia Guð- mundsdóttir. Sr. Helga Soff- ía Konráðsdóttir. Langholtskirkja, Kirkja Guðbrands biskups: Engin guðsþjónusta vegna sumar- i leyfa starfsfólks. Minnt á þjónustu í Bústaðarkirkju. Laugarneskirkja: Messa kl. 11. Félagar úr Kór Laug- arneskirkju syngja. Guðs- | þjónusta kl. 14 í Sjálfsbjarg- arhúsinu, Hátúni 12. Ólafur Jóhannsson. Neskirkja: Guðsþjónusta kl. 11. Sr Halldór Reynisson. Seljakirkja: Guðsþjón- ustur falla niður í ágúst- mánuði vegna sumarleyfa H starfsfólks kirkjunnar. 1 Sóknarprestur. Seltjamameskirkja: | Messa kl. 11. Prestur sr. 1 Hildur Sigurðardóttir. -ilk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.