Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Blaðsíða 11
i FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996 _____________________________ myndbönd Jumanji: Jumanji er ekkert venjulegt borðspil. Það er nokkurs konar náttúruafl. Þ"ð kallar til fólks sem á við vandamál að stríða með dul- arfullum trumbuslætti og tælir það til að hefja leik. Þegar einhver hefur kastað teningunum birtast gátur og það sem segir í gátunni verður raun verulegt. Fáir spila Jumanji oft- ar en einu sinni því ef þú klár- ar ekki leikinn mun spilið umturna lífi þínu. Robin Williams leikur í Jumanji Alan Parrish sem tólf ára gamall hóf leik í Jumanji árið 1969 ásamt Söru vinkonu sinni. Eftir að hann fékk upp ákveðn- ar tölur á teningana sogaðist hann inn í Jumanj i-frumskóginn. Sara var of skelfd til að halda leiknum áfram og því hefur Alan setið fastur í frumskóginum i 26 ár þegar tveir munaðar lausir krakkar, Judy og Peter, finna spilið uppi á háaloftinu í húsinu sem þau eru nýflutt í. Börnin ákveða að prófa spilið og þeg- ar upp kemur rétta talan i ten- ingakasti hjá þeim er Alan Parrish frelsaður og birtist hjá þeim, 38 ára gamall síðskeggjaður karl í tötrum. Til að geta klárað leikinn hefla þau leit að Söru og brátt verður hús- ið þeirra vettvangur mikils ævintýris þar sem ljón, filar, nashymingar, veiðimenn, apar, köngulær, krókódílar, framskógargróður og reiðinnar ósköp af vatni koma við sögu. teiknuðu risaeðlunum í Jurassic Park. Þeir sáu einnig um tölvuteikningar i Ju- manji en þar var verkefnið enn erf- iðara því að í staðinn fyrir hreistrið á risaeðlunum kem- ur loðfeldur og hár á dýrum sem ailir vita hvemig líta út. ADI var fengið til að hanna og stýra vél- rænum dýraherm- um og til að sjá um forðunarbrellur en ADI hefur meðal annars unnið að brell- um við mynd- imar Death Becomes Her og Wolf. Það tók þá háift ár að hanna og smíða sum dýrin og þurfti oft fleiri en eina vél fyrir hvert dýr. Eitt ljón var gert fyr- ir nærmyndir, með hreyfanlegt andlit sem gat opn- að og lokað Konungur grínsins Brellur á brellur ofan Tæknibrellur leika stórt hlutverk i töfra- heimi Jumanji þar sem allt getur gerst. Fólk sekkur ofan í gólfið og breytist í bavíana, frumskógardýr leika lausum hala á götum úti og innviðir húsa breytast smám saman í innanhússfrumskóg. Tvö fyrirtæki komu þar mikið við sögu, Industrial Light & Magic (ILM) og Amal- gamated Dynamics, Inc. (ADI). ILM hefur komið að gerð mynda eins og Star Wars og Raiders of the Lost Ark og ber ábyrgð á tölvu- augunum og hreyft munnvikin, og annað var gert og notað fyrst og fremst í at- riði þar sem sjónarhom- ið var yfir öxl ljónsins. Sömuleiðis vom tveir krókódílar notaðir, einn til að synda og annar til að brjótast um og skella skoltum. Eins og í flestum Robin Williams myndum er hann aðalstjarnan og aðrir leikarar hálf- gerð uppfylling. Þó könnumst við við Bebe Neuwirth, sem leikur forráðamann harn- anna, sem ísklumpinn dr. Lilith Sternin í Staupasteini og Adam Hann-Byrd, sem leikur Alan Parrish sem dreng, vakti athygli í myndinni Little Man Tate. Kirsten Dunst er frægust leikara í myndinni (utan Robin Willi- ams) en eftir hlutverk í Interview with the Vampire, Little Women og nú Jumanji má fara að líta á hana sem barnastjörnu. Robin Williams er einhver vinsælasti gamanleikar- inn um þessar mundir og frægur fyrir að koma meðleikurum sínum stöðugt í vandræði með því að spinna eitthvað nýtt. Good Morn- ing Vietnam, Mrs. Doubtfire og The Birdcage em m.a. til vitnis um gamanleik hans en hann hefur einnig leikið í alvarlegri myndum og má þar benda á The World According to Garp, Dead Poets Society og Awakenings. Hann byrjaði eins og svo margir amerískir gamanleikarar í uppistandi og sló í gegn. Hann fékk fljótlega hlutverk i sjónvarpsþátt- um og í framhaldi af því komst hann í kvik- myndirnar þar sem hann er nú ókrýndur konungur grínsins. -PJ Brellur eru vel útfæröar í Jumanji. UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT Örn Árnason Ég á erfitt með að gera upp á milli góðra mynda. Ég horfi mjög mikið á myndbönd og vinn þar að auki við að talsetja sum þeirra. Ég er alæta á þessa hluti og horfi á allt sem ég kemst í, a, b, c, d, og e myndir ef þær eru þá til. Ég verð reyndar að viðurkenna að ég varð fyrir ákveðinni hugljómun þeg- ar ég sá Star Wars. Tæknibrellumar í þeirri mynd heilluðu mig al- veg upp úr skónum. Það sama á við um Ju- rassic Park, brellumar þar eru æðislegar. Það er alltaf þessi strákur í mér sem tæknibrell- urnar heilla. Svo finnst mér hann Arnold Schwarzenegger al- veg æðislegur, sérstaklega í Terminator. Hann er ákaflega lé- legur leikari, karlanginn, en hann er flottur töffari. Ætli það sé ekki draumurinn aö horfa á svona mann eins og maður vildi kannski sjálfur vera. Svona íturvaxinn á öðrum stöðum en maður er sjálfur. Hann er vöðva- tröll og kann út í ystu æsar að haga sér sem slík- ur á skjánum. Myndir með góð- um tæknibrellum erú greinilega það sem heillar mig og alla þá sem eru ung- ir í anda. Guð hjálpi þeim sem verða fúll- orðnir. -ilk Now and then Now and then eða Vinkonurnar eins og hún nefnist á íslensku er hugljúf kvikmynd um vináttu sem varir að eilífu. Fjórar æsku- vinkonur hitt- ast á ný og rifja upp atburði úr lífi sínu þegar þær voru ung- lingar. Á sumr- in höfðu þær eytt tíma sín- um í að leika við drengi en nú eru þær að breytast, ókunnar tilfinningar fara að ráða ferðinni og hlutir, sem áður þóttu sjálfsagðir, verða vandræðalegir. Átta leikkonur fara með aðalhlut- verkin, tvær kynslóðir, í hlutverk- um vinkvennanna þegar þær eru orðnar fullorðnar eru Melanie Griffith, Demi Moore, Rosie O’Donnell og Rita Wilson en sem unglingar eru þær leiknar af Christ- ina Ricci, Thora Birch, Gaby Hoff- mann og Ashleigh Aston Moore. Það má segja með sanni að Now and then sé að öllu leyti gerð af konum. Auk þess sem öll helstu hlutverkin eru í höndum kvenna er Demi Moore framleiðandi myndarinnar, leikstjóri er Lesli Linka Glatter og I. Marlene King skrifar handritið. Myndform gefúr út Now and then 22. ágúst og er hún leyfð öllum ald- urshópum. Clockers Annie Clockers kemur úr smiðju Spike Lee og sem fyrr er hann reiður út I þjóöfélagið og beitir vopni sínu, kvikmyndavél- inni, gegn óréttlæti og spillingu. En Clockers er einnig spenn- andi sakamála- mynd þar sem| margt kemur á| clock®rs Fyrir mörgum árum var gerð söng- og dansmynd um hina vin- sælu teiknimyndapersónu, Annie, sem býr hjá hin- um ríka War- buck og varð myndin mjög vinsæl. Nú hef- ur Annie 2 litið dagsins ljós. I byrjun myndar- innar býður k óvart. I mynd-‘ | inni er það 1 heimur ungra Warbuck Annie og vinkonum sínum með til óT eiturlyfjaneyt- London þar sem enda og sölu- manna sem er viðfangsefni Lees. Strike er duglegur að selja eiturlyf ungu fólki á sama aldri og hann er en þegar myndin hefst hefur hann ætlað sér um of og þegar hann fer að selja fyrir og sjást í fylgd með þekktum eiturlyijasala fer lögreglan að hafa gætur á honum, sérstaklega eftir að einn keppinautur hans finnst myrtur. Með aðalhlutverkið fer ungur óþekktur leikari, Mekhi Phifer, lög- reglumennirnir eru leiknir af Harv- ey Keitel og John Turturro. Delroy Lindo leikur eiturlyfjakónginn. Framleiðandi myndarinnar er Martin Scorsese og hafði hann sjálf- ur ætlað að leikstýra henni en vegna anna við önnur verkefni mátti hann ekki vera að því og fékk Spike Lee til að taka að sér verkið. ClC-myndbönd gefur út Clockers 21. ágúst og er hún bönnuð innan 16 ára. hann á að taka við aðalsnafnbót úr hendi drottning- ar. Ekki gengur það átakalaust þar sem hin illræmda lafði Hogbottom situr á svikráðum og hefur í hyggju að ræna Buckingham- höll, þar sem afhendingin á að fara fram, og steypa drottningunni af stóli. Eins og ætíð er Annie með nefíð niðri í öllu og kemst brátt að hinum illu áformum lafðinnar. Það er ung leikkona, Ashley Jo- hnson, sem leikur Annie, Warbuck er leikinn af George Kearns og hin þekkta breska leikkona Joan Coll- ins leikur hina illu lafði. Leikstjóri er Ian Toynton. Skífan gefur Annie 2 út 21. ágúst og er hún leyfð öllum aldurshópum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.