Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Síða 5
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996
Sniglabandið og Andrea Gylfadóttir:
A fullri ferð
- á Húsavík og í Hreðavatnsskála um helgina
Það verður engin lognmolla á
Húsavík og í Hreðavatnsskála
næstu helgi enda munu kappamir í
Sniglabandinu sjá um stuðið þar.
Eins og það sé ekki nóg þá fá þeir
Andreu Gylfadóttur til þess að hita
enn meira upp.
Úthvíldir og til í allt
Strákarnir í Sniglabandinu leggja
áherslu á að þeir séu úthvíldir og til
í allt. Þeir léku við mikinn fögnuð á
þjóðhátíð í Eyjum en þeir hvíldu
lúin bein síðustu helgi. Nú er hins
vegar komið að því að hefja leikinn
upp á nýtt. Laugardagskvöldið 17.
ágúst liggur leiðin norður yfir heið-
ar. Þá verður spilað og sungið á
Veitingahúsinu Hlöðufelli á Húsa-
vik. Ekki er vafi á því að Þingeying-
ar munu taka þessu tiltæki Snigla-
bandsins vel. Eftir að kynnt hefur
verið undir Norðlendingum verður
stefnan tekin á Vesturland. Þeir fé-
lagar í Sniglabandinu þekkja sig vei
í Hreðavatnsskála og helgina fyrir
verslunarmannahelgi léku þeir þar
með Ragnari Bjarnasyni. Nú er
Með strákunum í
Sniglabandinu verð-
ur hin landsþekkta
söngkona Andrea
Gylfadóttir. Hún verð-
ur gestasöngkona
Sniglabandsins á
föstudagskvöldinu og
laugardagskvöldinu.
Það er líka ekki við
öðru að búast en að
söngvarinn og raf-
virkinn Aðal-
steinn Þórólfs-
son taki sig til
og syngi titil-
lag nýútkom-
ins geisladisks
Sniglabandsins,
Eyjólfur hressist.
Hann er líka löngu
orðinn landsfrægur
fyrir góða frammi-
stöðu í þvi lagi.
komið að því að snúa aftur og spil-
ar hljómsveitin þar laugardags-
kvöldið 18. ágúst.
Andrea og Aðalsteinn
með í för
Andrea Gylfa-
dóttir veröur á
ferö meö Snigla-
bandinu um helg-
ina.
Nashville um helgina
Tvist og bast
Stemning sjötta áratugarins verður ríkjandi á Nas-
hvilie um helgina. Föstudaginn 16. ágúst og laugardag-
inn 17. ágúst kemur þar fram hin geðþekka og góðkunna
hljómsveit Tvist og bast. Á efri hæðinni mun plöusnúð-
urinn Gummi Conzales leika bæði kvöldin.
Uppstökkir
Tvist og bast gaf út geisladiskinn Uppstökkk síðastlið-
ið vor og hefur honum verið ágætlega tekið. „Við erum
nokkuð ánægðir með viðtökumar. Diskurinn hefur ver-
ið spilaður dálítið í útvarpi, sérstaklega fyrri hluta sum-
ars,“ segir Jón Ingólfsson, bassaleikari sveitarinnar. Að
hans sögn leikur Tvist og bast tónlist frá sjötta áratugn-
um en einnig leikur sveitin nýrri lög. „Hér er að mestu
um að ræða svokallaða sið- rokkabillítónlist og þess
konar tónlist munum við leika á Nashville,“ segir Jón.
Skemmtilegast á Neskaupstað
Jón segir að tónleikahald í sumar hafi verið mörgum
hljómsveitum erfitt. „Það virðist vera sem lifandi tónlist
trekki ekki' mikið nú um stundir og það er ekki mikið
af peningum í þessu. Þetta virðist mest megnis vera
komið inn í litla pöbba," segir hann. Jón er þó bjartsýnn
fyrir hönd Tvist og bast og segir að þrátt fyrir allt hafi
þetta verið skemmtilegt sumar. „Við leikum þannig tón-
list að hún ætti að ganga vel i stóru staðina í vetur. Nú
eru staðir eins og Hótel ísland og Hótel Saga að fara af
stað af fullum krafti og við miðum á þann markað enda
ætti okkar tónlist að ganga vel ofan í þá,“ segir hann.
Tvist og bast hefur eins og margar aðrar hljómsveitir
ferðast landshornanna á milli. „Ég held að skemmtileg-
Hljómsveitin Tvist og bast heldur uppi stuöinu á Nas-
hville næstu helgi.
asta ballið sem við höfúm spilað á hafi veriö i Neskaup-
stað. Annars er alltaf gaman að ferðast svona með góð-
um hópi, segir Jón að lokum.
Auk Jóns skipta þeir Sævar Sverrisson söngvari, Jós-
ep Sigurðsson píanóleikari, Gestur Pálsson saxófónleik-
ari, Magni Gunnarsson gítarleikari.
Útvarpsstöðin Ebbi
Hallærisleg og flott
Ungt fólk frá Seltjamarnesi hóf í
dag útvarpsrekstur og sent verður
út 16. til 24. ágúst frá félagsmiðstöð-
inni Selinu. Útvarpsstöðin ber nafh-
ið Ebbi og verður sent út á fm 88,6.
Það sem okkar kynslóð
vill
„Við ætlum að spila alla tónlist
nema kántrí, enda er það léleg tón-
list,“ segir Þorvaldur Þór Þorvalds-
son. Hann segir að hugmyndin að
nýju útvarpsstöðinni hafi kviknað
þegar Seltjamarneskirkja og Sel-
tjamamesbær stóðu að útvarps-
rekstri í nokkra daga. Núna ætla
ungmennin að senda út á eigin veg-
um og hafa fyrirtæki stutt þau vel
og dyggilega. Einnig hefur Seltjam-
amesbær veitt nokkum styrk til
þessa. Búast má við að sendir út-
varpsstöðvarinnar Ebba dragi í 10
kílómetra radíus.
„Við ætl-
um að
vera
með
góða
tónlist,
fullt af
leikjum
og við-
töl
einfald-
lega það
sem
okkar
kynslóð vill. Þessi útvarpsstöð verð-
ur hallærisleg og flott," segir Þor-
valdur Þór.
DV-mynd GS
nlist
19
HLJÓMPLm
Ýmsir flytjendur - Salsaveisla aldarinnar irtck
Hvað er að gerast?
Ein helsta sumarplatan í
ár er án efa Salsaveisla ald-
arinnar, spriklandi hressi-
leg plata með blöndu af
gamalli og nýrri tónlist, ís-
lenskri og erlendri, með
suðrænum blæ. Milljóna-
mæringarnir eiga stóran
þátt í að skapa hina réttu
stemningu. Þrjú lög með
þeim á plötunni hafa ekki
verið gefin út áður, það er
Lúðvík, Kaffi til Brasilíu
og Svimi, svimi svitabað.
Hið fjórða er fyrsti smellur
Millanna, Marsbúa Cha
Cha. Og rétt er að vekja
sérstaka athygli á textan-
um við kaffisönginn. Hann
er eftir Stefán Hilmarsson
og er væntanlega einn hinn
besti sem Stefán hefur ort
til þessa.
Erlendu lögin em einnig
flest til þess fallin að hressa
lundina. Samkvæmt kredit-
lista völdu þeir Steinar
Berg ísleifsson og Jónatan
Garðarsson lögin. Þeir
virðast hins vegar hafa haft
lagalista Alex nokkurs
Macnutts til hliðsjónar en
hann sá einmitt um að
velja lög á salsaplötuna Mundo Latino sem Sony gaf út í fyrra-
sumar. Það er svo sem fátt við því að segja að menn stytti sér leið
við að velja lög á plötu en verra er að hönnuðir umbúðanna hafa
einnig gengið í smiðju til Sony og fengið eitt og annað að láni hjá
erlendum starfsbræðrum sinum sem unnu fyrmefnda Mundo
Latino plötu. Fmmhönnuðurinn, Tim Davies, fær ekki einu sinni
þakkir fyrir veitta aðstoð sem reyndar er ómögulegt að segja til
um hvort hann viti að hann veitti. Og ef svo er ekki er óvíst að
hann verði í sjöunda himni ef hann fær að sjá íslenska tilbrigð-
ið við vinnu sína.
En burtséð. frá þessum dapurlegu vinnubrögðum er það ágæt-
is skemmtun og virkilegur gleðigjafi að hlusta á Salsaveislu ald-
arinnar. Ég vona að aðstandendur plötunnar séu einnig glaðir í
sinni þótt ekki sé hægt að óska þeim til hamingju í þetta skipti
fyrir vel unnið verk.
Ásgeir Tómasson
Fræbbblamir - Viltu bjór, væna? ★★★
Stórmerkileg hljómsveit
Fræbbblarnir voru á sín-
mn tíma í framvarðasveit
pönkbylgjunnar á íslandi;
ögrandi og umdeildir eins
og vera bar. Þeir era löngu
orðnir goðsögn í íslensku
poppi og ekki held ég að
þessi plata, sem inniheldur
flest af því besta sem Fræbb-
blamir sendu frá sér, hrófli
neitt við þeirri mynd nema
síður sé.
Ekki er beinlínis hægt að
segja að tónlist
Fræbbblanna hafi verið
ýkja frumleg; fyrirmyndimar vora sóttar til bresku pönksveit-
anna sem tröllriðu öllu þá um stundir en ólíkt því sem nú tíökast
sungu menn á íslensku enda pönkið öðrum þræði uppreisn i orð-
bragði. Uppreisnin átti reyndar bæði við um tónlist og innihald
texta þar sem leitast var við að ganga fram af og hneyksla. Og
þetta tókst vel á sínum tíma, en það er eins með pönkið og aðra
umdeilda tónlist; hún hneykslar samtímann en þegar frá líður sjá
menn að þetta var ósköp meinlaust.
Þannig kemur það eflaust mörgum sem hlusta á þessa plötu á
óvart hversu fáguð hún er í raun og veru og áferðin ekki eins
gróf og við var að búast. Og platan færir okkur líka heim sann-
inn um að Fræbbblamir vora stórmerkileg hljómsveit sem fram-
leiddi mikið af góðri tónlist. Merkilegast en um leið sorglegast
finnst mér þó að heyra aö þetta sem Fræbbblamir vora að gera
fyrir 15 árum eða svo eru ungar íslenskar hljómsveitir enn að
streða við að gera sem segir manni að eitthvað hlýtur að vera
bogið við þróun íslenskrar popptónlistar.
Sigurður Þór Salvarsson