Dagblaðið Vísir - DV - 16.08.1996, Blaðsíða 12
26 myndbönd
MYNDBAm
★** ÍSfZ)
SmKwt
Drykkfelldur knattspyrnumaður
Þessi athyglisverða mynd gerist í Sheffield á
Englandi og segir frá Jimmy Muir sem vinnur í
verksmiðju og spilar fótbolta með félögunum (ekki amerískan eins og
stendur á kápunni). Hann hafði sem strákur dreymt um að verða at-
vinnumaður en er löngu búinn að gefa þann draum upp á bátinn og
sættir sig við að vera besti leikmaðurinn í hverfísliðinu. Þá gerist hið
óvænta að einn af aðstoðarþjálfurum Sheffield United sér hann spila og
ákveður að gefa honum tækifæri til að koma á æfingu og sýna sig fram-
kvæmdastjóra félagsins. Framtíðin blasir því björt við Jimmy, en hann
þarf að takast á við vandamál heima fyrir og stenst ekki álagið.
Drykkja hans leiðir til þess að hann klúörar tækifærinu sinu og miss-
ir unnustu sína. Það sem gerir útslagið er dauði bróður hans og ákveð-
ur hann að taka sig á og reyna að fá annað tækifæri, bæði hjá unnust-
unni og fótboltaklúbbnum. Úrvalsleikarar fara með hlutverk í mynd-
inni. Sean Bean leikur Jimmy, Emily Lloyd unnustu hans og Pete Post-
lethwaite þjálfarann sem gefur Jimmy tækifæri. Myndin er mjög raun-
sæ og trúverðug mestailan tímann en missir sig í restina.
WHEN SATURDAY COMES. Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Maria Giese. Aðalhiut-
verk: Sean Bean, Emily Uoyd og Pete Postlethwaite. Ensk, 1995. Sýningartíml: 94
mín. Bönnuð bömum innan 12 ára. -PJ
Sjónhverfingar **
Clive Barker er á góðri leið með að ná fyrsta sæt-
inu af Stephen King sem höfundur hryllingssagna
fyrir kvikmyndir. í þetta skiptið er ekki verið að
gera mynd eftir einni af bókum hans, heldur skrif-
aði hann handritið beint fyrir kvikmyndina og það
sem meira er: hann leikstýrir sjálfur. Myndin fjall-
ar um einkaspæjara sem flækist í óhugnanlegt
valdatafl yfirnáttúrulegra afla. Djöfullegur leiðtogi
sértrúarsafnaðar hefur verið drepinn af sjónhverf-
ingameistara nokkrum og félögum hans og nú eru
safnaðarmeðlimir að leita hefhda og enn fremur að
reyna að vekja meistara sinn upp frá dauðum. Einkaspæjarinn reynir
að komast til botns í málinu og vernda skjólstæðinga sína fyrir ofsókn-
armönnum þeirra, en verður að lokum að kljást við heldur ófrýnilegan
uppvakning með yfirnáttúrulegt afl. Scott Bakula úr Quantum Leap
leikur einkaspæjarann og er nákvæmlega eins hér og í sjónvarpsþátt-
unum, Famke Janssen (Xenia Onatopp úr Goldeneye) er til skrauts og
Kevin J. O’Connor er sæmilega einkennilegur sem hinn dularfulli sjón-
hverfmgameistari. Söguþráðurinn er ekkert vitlausari en gengur og
gerist en framleiðslan er heldur ódýr og hryllingurinn í minna lagi.
Upphafsatriðið er best.
LORD OF ILLUSIONS. Útgefandi: Warner-myndir. Leikstjóri: Clive Barker. Aðalhlutverk:
Scott Bakula, Kevin J. O’Connor og Famke Janssen. Bandarisk, 1995. Sýningartími:
116 mín. Bönnuö bömum innan 16 ára. -PJ
Strákur hittir stelpu
Bed of Roses er týpísk ástarvella þar sem strákur
hittir stelpu og þau verða æðislegá ástfangin, en síð-
an kemur babb í bátinn og allt stefnir 1 voða þang-
að til í blárestina að þau sjá að sér og ná saman aft-
ur og allir lifa hamingjusamlega til æviloka. Nánar
til tekið leikur Mary Stuart Masterson Lisu, unga
konu á framabraut sem á sér sorglega fortíð sem
gerir hana óörugga i tiffinningamálum, og Christi-
an Slater leikur Lewis, ungan blómasala sem á sér
sorglega fortíð sem gerir hann óöruggan í tiffinn-
ingamálum. Lewis sér Lisu gráta og verður heillað-
ur. Hann sendir henni blóm og þau fella hugi saman, en Lisa er svo óör-
ugg með sig og finnst hún ekki eiga neitt gott skilið og ræður ekki við
að hafa ást í lffi sínu, svo hún slítur sambandinu og þau eru bæði voða
óhamingjusöm um hríð þar til vinkona Lisu peppar hana upp í að fara
og sættast við Lewis og þá verður allt gott aftur. Þetta er með eindæm-
um ófnunlegt, en leikararnir eru ágætir og myndin stendur sosum fyr-
ir sínu. Hún er agalega rómó.
BED OF ROSES. Útgefandl: Myndform. Lelkstjóri: Michael Goldenberg. Aðalhlutverk:
Christian Slater og Mary Stuart Masterson. Bandarísk, 1995. Sýningartími: 98 mín.
Leyfö öllum aldurshópum.
-PJ
BYTTAN OG HORAN
★★★
I Leaving Las Vegas segir frá drykkjumanninum
Ben sem fer til Las Vegas til að drekka sig í hel. Þar
hittir hann hóruna Seru og þau hrífast hvort af öðru.
Hann flytur inn til hennar og þau verða ásátt um að
hvorugt þeirra skipti sér af löstum hins, Sera reyni
ekki að fá Ben til að hætta drykkjunni og Ben sætti
sig við að Sera haldi áfram að stunda vændi. Þrátt
fyrir góðan ásetning verða hnökrar á samkomulag-
inu og sérstaklega á Sera erfitt með að horfa aðgerða-
laus upp á stöðugt hrakandi heilsufar Bens. Nicolas
Cage fékk óskar fyrir túlkun sína á Ben og vissulega leikur hann all-
vel, en er þó ekki nándar nærri nógu subbulegur í hlutverkinu. Persón-
an er kunnugleg. Drykkjuræfill er rómantíseraður með skáldlegum til-
burðum og hnyttni (Barfly, t.d.). Hin persónan er einnig stereotýpa,
hóran með hjarta úr gulli, en verður áhugaverðari fyrir heiðarlegan
leik Elizabeth Shue, sem hefði átt óskar mun meira skilið en Nicolas
Cage. Sagan er áhugaverð og leikaramir góðir, en það sem eftir situr
er boðskapur sem er út í hött. Það er rómantískt að vera ræfill og þjást.
LEAVING LAS VEGAS. Útgefandi: Skífan. Leikstjóri: Mike Flggis. Aöalhlutverk: Nicolas
Cage og Elizabeth Shue. Bandarisk, 1995. Sýnlngartími: 107 mín. Bönnuö börnum
innan 16 ára. -PJ
FÖSTUDAGUR 16. ÁGÚST 1996 JLlV
Myndbandalisti vikunnar
^ 6. ágúst til 12. ágúst '96
SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. TEG.
1 1 5 í .3: Seven Myndform Spenna
2 j 2 -A .Í'. ’-Á 3 ; Desperado Skrfan Spenna
3 3 4 Sabrina ClC-myndir Gaman
4 6 8 Assassins Warner -myndir Spenna
5 4 6 Ace Ventura when Nature Calls Warner -myndir Gaman
6 5 4 Something to Talk About Warner -myndir Gaman
7 11 2 Waiting to Exhale Skrfan Gaman
8 10 11 The Net Skífan Spenna
9 Ný 1 Bed of Roses Myndform Drama
10 7 7 The American President ClC-myndir Gaman
11 ! 13 12 Usual Suspect Sam-myndbönd Spenna
12 12 9 Dangerous Minds Sam-myndbönd Spenna
13 ' 9 1 9 Goldeneye Warner -myndir Spenna
14 8 V-.*r, v"Á'Jf 3 Mad Love Sam-myndbönd r" - Gaman
15 ' Ný i 1 Mute Witness Skífan Spenna
16 •" ."-r ■ "'' J ■ i' 17 2 < ' ; § J Devil in a Blue Dress Skífan * , Spenna
17 j 14 4 J x. Jury Duty Skífan Gaman
18 15 7 i A Walk in the Clouds Skifan .. .. Drama
19 i fli i 5 í To Die for Sam-myndbönd Spenna
20 16 J 5 J j Losing Isaiah . ■ ■ ;. - ClC-myndir Drama
Seven
Brad Pitt, Morgan
Freeman, Kevin
Spacey og Gwy-
neth Paltrow
Lögreglumað-
urinn Sommer-
set, sem er um
það bil að fara á
eftirlaun, og eftir-
maður hans, hinn
ungi Mills, fara
saman í útkall þar sem komið hef-
ur verið að manni einum látnum
við hroðalegar aðstæður. Þrátt fyr-
ir langa reynslu hefur Sommerset
aldrei upplifað neitt í líkingu við
þetta morð. Hann fer samstundis
að gruna að hér búi eitthvað meira
að baki en í fyrstu sýnist og upp-
götvar eftir aðra heimsókn sína á
morðstaðinn að hér er um að ræða
aftöku sem tengist höfuðsyndunum
sjö. Grunurinn verður að vissu
þegar tilkynnt er um aðra aftöku
og orðið „græðgi“ er málað á vegg
með blóði hins myrta. Nú vita þeir
að þeir geta átt von á fimm aftök-
um til viðbótar og hefst nú
æsispennandi leit að hinum djöful-
lega morðingja sem virðist ætíð
vera skrefi á undan.
jöfurs og hún af honum sér
Linus fram á að loksins geti
bróðirinn gert gagn og með
giftingu sér hann fram á
aukin viðskipti og stór-
gróða. En þá kemur Sabrina
fram á sjónarsviðið. Hún er
dóttir einkabílstjóra Linus-
ar og á meðan hún dvaldi í
París breyttist hún úr
óharðnaðri stúlku í glæsi-
lega konu.
Assassins
Sylvester
Stallone og
Antonio
Banderas
Vestrinn Desperado situr sem fastast í 2. sæti
listans. Á myndinni eru aðalleikarar myndar-
innar, Antonio Banderas og Salma Hayek.
Desperado
Antonio Banderas, Salma Hayek
og Cheech Marin
Antonio Banderas leikur hinn
svala Mariachi sem ferðast um með
haganlega útbúna gítartösku fulla af
vopnum. Mexíkóskir undirheima-
menn bera ábyrgð á dauða unnustu
hans og hann hefur svarið þess eið
að koma foringja eiturlyfjasalanna,
Bucho, fyrir kattarnef. Til þess nýt-
ur hann aðstoðar hinnar íðilfogru
Sölmu Haeyk og besta vinar síns.
Sabrina
Harrison Ford, Jul-
ia Ormond og
Greg Kinnear
Linus Larrabee
er sannkallaður
viðskiptajöfur en
öðru máli gegnir
um bróður hans.
Sá er glaumgosi
sem lffir kóngalffi
á þeim peningum sem bróðir hans
sér honum fyrir. En þegar bróðir-
inn verður ástfanginn af dóttur auð-
I Assass-
ins leikur
Sylvester
Stallone
leigumorð-
ingja, sem
búinn er að vera sá besti í langan
tíma. Nú finnst honum vera kominn
tími til að hætta, en það á eftir að
reynast honum erfitt og í staðinn
þarf hann að taka á öllu sem hann á
þar sem hann er orðinn skotmark
annars leigumorðingja, sem gjarnan
vil verða sá besti.
T* Jim Carrey
ATU
þar sem hann
hefur leitað sáluhjálpar og huggun-
ar eftir að hafa mistekist að bjarga
lífi þvottabjarnar. Sá sem truflar
hann er breskur konsúll í afrísku
smáríki og erindið er að fá Ace til
að hafa upp á horfinni leðurblöku
sem er heilagt dýr í augum eigenda
sinna, hins friðsama Wachati-ætt-
bálks.