Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1996, Page 3
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1996
nlist ,7
HLJ0MPL9TU
isiöm'Jii
Alice in Chains - Unplugged 'k'k'k
Aðgengilegir á almúgans máli
Tónsmíðar Alice in Chains hafa
til þessa þótt vera í þyngri kant-
inum. Eagles-aðdáendur keyptu til
dæmis ekki þau eintök af síðustu
plötu sem seldust, hvað þá heldur
þá bílfarma sem seldust af plöt-
unni Dirt. Ég endurtek, þær hafa
þótt þungar til þessa. Stuttplatan
Jar of Flies sýndi hins vegar á
þeim nýja hlið, rólegri og
melódískari, eða hvað?
Það sem kemur nefnilega í Ijós á
þessum órafmögnuðu tónleikum
með Alice in Chains (fyrir þá sem
ekki vissu), er að tónlistin er mjög
melódísk, nánast poppuð, ef þunglyndistextar Staley’s fylgdu ekki með.
Þessu hafa Alice in Chains aðdáendur, líkt og undirritaður, að visu tek-
ið eftir á fyrri plötunum, enda eitt aðalaðdráttarafl hljómsveitarinnar.
Gleðin felst hins vegar í þvi að hér gefst nýjum hlustendahópi færi á að
hlýða á melódíska tónlist hljómsveitarinnar í rólegri útsetningum.
MTV-tónleikar Alice in Chains voru þó þeim annmörkum háðir að
einungis hafði verið skipt út urgandi rafmagnsgíturum fyrir kassagítara.
Söngur Staley var misjafn á tíðum (enda ekki skrýtið miðað við reynslu-
heim söngvarans), en almennt var hljóðfæraleikur góður og afslappaður.
Það er mjög gaman að heyra lög eins og „Would“, „Down In A Hole“,
„Rooster", „Angry Chair“ og fleiri flutt á þennan máta. Á plötunni eru
hins vegar engar nýjar útsetningar, ekki mikið rokk, aðeins ágætlega
heppnaðir tónleikar, ekki endilega ætlaðir gömlum aðdáendum, frekar
nýjum. Alice in Chains á almúgans máli.
Guðjón Bergmann
Suede - Coming Up y ,. * y. •
Suede lifir!
Eftir slakt gengi plötunnar
„Dog Man Star“ og lítið umtal um
hljómsveitina á síðustu misserum
hafði undirritaður nánast talið
Suede af. Eftirvæntingin var því
ekki mikil þegar því var lýst yfir
að ný plata væri væntanleg frá
sveitinni: „Nú, er að koma ný
plata". Undirbúningurinn fyrir
upprisu Suede var ekki mikill.
Brett Anderson og félagar hafa
svo sannarlega unnið sina heima-
vinnu áður en upptökur á nýju
plötimni hófust. „Coming Up“ er
allt það sem „Dog Man Star“ var
ekki. Öll lög plötunnar eiga það eitt sameiginlegt að eiga ekki heima á
B-hlið neinnar plötu, eða að eiga öll heima á B-hlið. Hér eru nefnilega
engir venjulegir útvarpssmellir á ferð. Spicy Girls tóku ekki þátt í gerð
þessarar plötu.
„Trash“ er upphafslag plötunnar (einnig fyrsta lagið sem kemur út á
smáskífu). Einstaklega skemmtilegur texti um „rusl“ götunnar, þig og
mig, drífur einfalda og rokkaða melódíu áfram. „Filmstar" hefði jafnvel
hentað betur sem fyrsta smáskífa, en þar efast Brett um það sem við trú-
um á (nefnilega kvikmyndastjömumar). Geysilega kröftugt og töffara-
legt lag. „By the Sea“ er einstaklega fallegt, auk þess sem lögin „She“,
„BeautiM Ones“, „Lazy“ og „The Chemistry between Us“ em lög sem
hreinlega grípa hlustandann heljarpoppuðum rokktökum.
Hljómsveitin Suede hefur svo sannarlega rifið sig upp úr mikilli lægð
og lifir, góðu lífi. Þess má geta að gamlir Bowie-aðdáendur gætu vel
fundið sig í tónlist þessarar sveitar, hún er lík, en alls ekki eins. Hér er
töff, rokkuð, melódísk, flott og frumleg tónlist á ferð.
Guðjón Bergmann
Ómar Diðriksson - Uppörvun , ,, .
Einlægur og uppörvandi
Fjölgað hefur um einn í flokki
íslenskra kántrítónlistarmanna.
Ómar Diðriksson sendi á dögun-
um frá sér sína fyrstu hljómplötu
og andinn sem svífur þar yfir
vötnum er ættaður frá Nashville
þótt ýmsum öðrum stíltegundum
bregði fyrir í tónlist Ómars.
Skemmst er frá því að segja að
platan Uppörvun kemur á óvart.
Lög plötunnar eru flest hver
skemmtilega upp byggð og útsett.
Hljóðfæraleikur er í góöu lagi.
Ýmsir þekktir spilarar og óþekktir
leika með Ómari og vona ég að ég
móðgi engan úr þeim flokki þótt ég fullyrði að Björgvin Gíslason og út-
setjarinn, upptökustjórinn og slagverksleikarinn Rúnar Þór Guðmunds-
son séu þar í veigamestu hlutverkunum. Þá sleppur Ómar alla jafna
þokkalega frá söngnum og veit greinilega hvaða blær hæfir hverju sinni.
Raddarar eru finir.
Textar Ómars Diðrikssonar eru talsvert öðruvísi en gengur og gerist,
einlægir og eflaust uppörvandi þeim sem erfiði og þungum byrðum eru
hlaðnir. Gallalausir eru þeir ekki, nokkuð bemskir á köflum og allt að
því væmnir hér og þar (dæmi: Opið bréf til Vigdísar). En höfundurinn
er einlægur og vel þenkjandi og það er göllunum yfirsterkara.
Uppörvun er fmmraun sem lofar góðu. Ef Ómar Diðriksson slípar
textagerðina em honum, hygg ég, flestar leiðir færar á sveitavegum tón-
listarinnar. Ásgeir Tómasson
r Bubbi Morthens:
Arlegt tónleikaferðalag
Bubbi Morthens er að
hefja árlegt fónleika-
ferðalag sitt um landið.
Fyrsti áfanginn hófst sl.
miðvikudagskvöld í
Grindavík en í kvöld,
fostudaginn 20. septem-
ber, spilar hann í íþrótta-
miðstöðinni í Þorláks-
höfn. Annað kvöld liggur
leið Bubba til Akraness
þar sem hann spilar í
íþróttahúsinu og á
sunnudag spilar hann í
íþróttahúsinu á Stokks-
eyri.
Bubbi hefur lokið við
að hljóðrita nýjan geisla-
disk sem er væntanlegur
í plötubúðir í lok októ-
ber. í kjölfarið fer Bubbi
í aöra tónleikaferð sem
hefst fimmtudaginn 24.
október á Hvolsvelli.
Bubbi hefur einnig ný-
lokið við að hljóörita
ljóðadisk sem Mál og
menning gefur út og er
hann væntanlegur í búð-
ir á næstunni.
Bubbi Morthens er aö
hefja árlegt tónleika-
feröalag sitt um landiö.
HASKOLABIO
\