Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996
Fréttir
Stuttar fréttir dv
Verulega breytt dómsniðurstaða í líkamsárásarmálinu á Akranesi í janúar:
Ein stúlkan fær 2 ár
en hinar þrjár skilorð
- lögfull sönnun talin fyrir því að hnéspark olli lífshættulegum höfuðáverka
Fjölskipaður Héraðsdómur Vest-
urlands breytti verulega í gær fyrri
niðurstöðu dómstólsins í máli fjög-
urra 16-18 ára stúlkna sem réðust
með höggum og spörkum að Ing-
unni Pétursdóttur, 16 ára, á Akra-
nesi aðfaranótt 20. janúar síðastlið-
ins. Hæstiréttur vísaði málinu heim
í hérað í júni eftir að fyrri málsmeð-
ferð hafði verið kærð. Var þá ákveð-
ið að fjölskipaður dómur dæmdi í
málinu á ný.
í dómi sem kveðinn var upp þann
15. mars var elsta stúlkan, Linda
Dögg Ragnarsdóttir, dæmd í 20 mán-
aða fangelsi en hinar þrjár fengu 12
mánuði. í dóminum sem kveðinn
var upp í gær kvað við allt annan
tón. Refsing Lindu Daggar var
ákveðin 24 mánaða fangelsi en hin-
ar stúlkumar fá 3ja mánaða skil-
orðsbundið varðhald. Þær þurfa því
ekki að sitja af sér refsingu. Stúlk-
umar þrjár vora sakfelldar fyrir að
hafa veitt fómarlambinu eftirför og
veist að henni með tilefnislausum
höggum og spörkum. Þeirra þáttur
var metinn sem líkamsárás sem
hafði ekki í för með sér alvarlega
áverka.
Samkvæmt dóminum veitti elsta
stúlkan fómarlambinu hins vegar
öflugt hnéspark þannig að smellur
heyrðist. Lögfull sönnun þótti hafa
komið fram í málinu um að þetta
högg hefði leitt til lífshættulegs höf-
uðáverka - svo alvarlegs samkvæmt
læknisvottorðum að ef bráðaaðgerð
hefði ekki verið framkvæmd á höfði
stúlkunnar hefði höggið leitt til
dauða hennar.
Að þessu virtu var Linda Dögg
sakfelld fyrir stórfeflda líkamsárás -
sérstaklega hættulega vegna þeirrar
aðferðar sem beitt var. Mið var tek-
ið af því að hún var orðin 18 ára er
hún framdi verknaðinn.
Atlaga hinna stúlknanna þriggja,
sem frömdu verknaðinn í félagi, var
talin einbeitt og tilefnislaus. Hins
vegar var tekið tillit til mjög ungs
aldurs þeirra. Vegna aldurs og þess
að þær höfðu ekki hlotið refsingu
áður var ákveðið að dómar þeirra
skyldu verða skilorðsbundnir.
Héraðsdómaramir þrír vora sett-
ir í málinu. Jónas Jóhannsson var
dómsformaður en þeir Ólafur Ólafs-
son og Helgi I. Jónsson dæmdu mál-
ið með honum. -Ótt
Ferðamönnum
hefur fjölgað en
þeir eyða minna
- segir ferðamálastjóri
„Ferðamönnum til íslands hefur
fjölgað og aukning hefur orðið í far-
gjaldatekjum. Á þessu ári hefur dags-
ferðamönnum fjölgað sem gerir það
að verkum að meðaldvalarlengd stytt-
ist. Þeir koma að morgni og fara að
kvöldi og eyða ekki miklum pening-
um hér,“ sagði Magnús Oddsson
ferðamálastjóri en gjaldeyristekjur af
ferðaþjónustu voru 800 mifljónum
króna minni fyrstu sex mánuði ársins
en á sama tíma í fyrra.
„Árið 1995 var metár þvi þá var
aukning upp á nær tvo mifljarða í gjald-
eyristekjum. Þá voru haldnar hér mjög
stórar ráðstefnur og fúndir sem skiluðu
miklum tekjum," sagði Magnús.
Aðspurður hvort ferðamönnum
kynni að fjölga í kjölfar gossins í
Vatnajökli sagði Magnús að hann
heföi enga ástæðu til að ætla það.
Hann sagði að talsvert heföi verið
hringt erlendis frá og spurt en hann
ráðlegði ekki fólki að koma til skoða
gosið. Það væri ekki hægt að komast
að því landleiðis og mjög ótryggt
vegna veðurfars að skoða það úr lofti
og hættan væri einfaldlega of mikil til
að hvetja fólk til koma. -gdt
Jónas Kristjánsson, ritstjóri DV, hlaut í gær verfilaun úr Móðurmálssjóðnum - minningarsjóði Björns Jónssonar, rit-
stjóra ísafoidar og síðar ráöherra. Tilgangur sjóösins er að verölauna mann er hefur aðalstarf sitt við blaöamennsku
og hefur afi dómi sjóösstjórnar ritaö svo góðan stíl og vandaö íslenskt mál aö viöurkenningar sé vert. Jónas tekur
hér viö verölaununum, 60 þúsund krónum, úr hendi Sveins Skorra Höskuldssonar, formanns sjóösstjórnar.
DV-mynd BG
Gagnrýnir bókhald
Ingibjörg Pálmadóttir heil-
brigðisráðherra gagnrýnir bók-
hald Sjúkrahúss Reykjavíkur og
segir að þar sé ýmsu ábótavant.
RÚV greindi frá þessu.
Fisksala í Færeyjum
Stærstu íslensku fisksölufyrir-
tækin eru að kanna möguleika á
að taka þátt í færeyskum fiskiðn-
aði í kjölfar þess að stærsta fisk-
iðnaðarkeöja í Færeyjum hefur
fengið greiðslustöðvun. Þetta
kom fram í RÚV.
Sekt fyrir sinubruna
Bóndinn sem borinn var út á
jörðinni Skriðufelli, að kröfu
Skógræktar ríkisins, var í gær
dæmdur til greiðslu sektar
vegna sinubrana sem hann olli
og eyðilagði skógarreit.
Dýr forsetaflutningur
Flutningar á skrifstofu for-
setaembættisins í nýja húseign
við Sóleyjargötu og endurbætur
á Stjómarráðinu kosta tæpar 100
milljónir króna, samkvæmt
frumvarpi til fjáraukalaga.
Framboð gegn Friðriki
í Degi-Timanum kemur fram í
dag að skorað hafi verið á Sól-
veigu Pétursdóttur að bjóða sig
fram gegn Friðriki Sophussyni í
kosningum um embætti varafor-
manns Sjálfstæðisflokksins.
Landsfundur flokksins hefst á
morgun.
Umskipti í sorphiröu
Umskipti verða i sorphirðu á
Austfjörðum þegar allri sorp-
brennslu verður hætt á svæðinu
frá Neskaupsstað til Stöðvar-
fjarðar. Stöð 2 greindi frá þessu.
Athygli tekur við Ægi
Athygli hefúr tekið að sér út-
gáfumál fyrir Fiskifélag íslands,
þ.m.t. útgáfu á Sjómannaalman-
akinu, sjómannablaðinu Ægi og
fylgiritum þess. Jóhann Ólafúr
Halldórsson, fyrram ritstjóri
Dags, hefur verið ráðinn dagleg-
ur ritstjóri blaðanna.
Embættismenn hittast
Danskir og íslenskir embættis-
menn hittast í Reykjavík í dag til
að ræða fiskveiðideilur þjóðanna
vegna Kolbeinseyjar.
Von á uppgjöri
Næstu daga er von á reikn-
ingsuppgjöri forsetaframboða
Ólafs Ragnars Grímssonar og
Péturs Kr. Hafsteins. -bjb
Dagfari
Fátækir forsetaframbjóðendur
Guðrún Agnarsdóttir forseta-
frambjóðandi hefur kynnt reikn-
inga sína og skuldir vegna forseta-
framboðsins í vor. Samkvæmt
þeim skuldar hún enn þá 5,6 millj-
ónir króna en samtals kostaði for-
setaframboðið hana rúmar sautján
milljónir. Áreiðanlegar heimildir
herma að kostnaöur Ólafs Ragnars
Grímssonar af kosningunum hafi
veriö mun hærri og sömuleiðis
skuldimar sem hann er með í
farteskinu. Þá liggur fyrir að kosn-
ingabarátta Péturs Hafstein hafi
verið dýrast þeirra allra, en Pétur
hefur enn ekki haft tima til að gera
dæmið upp. Hann er farinn að
dæma í Hæstarétti og má ekki vera
að því að skoða fjárhaginn hjá sér.
Hver þorir líka að rakka hæsta-
réttardómara?
Eini frambjóöandinn sem segist
vera búinn að borga sitt er Ástþór
Magnússon, sá sem ætlaði að
virkja Bessastaði, en framboðið
kostaði hann 40 milljónir. Ef Dag-
fari man rétt þá fékk Ástþór eitt-
hvað um fjögur þúsund atkvæði,
þannig að hvert atkvæði kostaði
hann 10.000 krónur. Dýr mundi
Hafliði allur.
Ástþór er með reikning í Bret-
landi og átti fyrir virkjuninni. Það
er meira heldur en hægt er að
segja um þá hjá Columbia, sem
vilja ólmir byggja álver á íslandi
og virkja virkjanimar, ef íslend-
ingar leggja honum til peninga.
Ástþór þarf ekki á íslendingum að
halda. Hann er orðinn ríkur í þágu
friðarins.
Ólafur Ragnar selur myndir af
sér og frúnni og ætlar að hala inn
á bókaútgáfu. Pétur Hafstein rukk-
ar framlög hjá lögfræðingastétt-
inni, sem hlýtur auðvitað að bregð-
ast vel við þegar hæstaréttardóm-
arinn biður þá um ölmusu. Það er
eins gott að hafa svarað rakkunum
frá dómurum áður en dómar era
kveðnir upp.
Af Guðrúnu Agnarsdóttur er það
hins vegar að frétta að hún ætlar
að leita á náðir ríkisins. Hún vill fá
felldan niður virðisaukaskatt, rétt
eins og ríkið hafl staðið fyrir fram-
boði hennar. Guðrún hefur senni-
lega talið að henni bæri skylda til
að bjóða sig fram í þágu þjóðar og
ríkis og almannahagsmuna og tel-
ur þess vegna eðlilegt að ríkið
borgi fyrir framboðið.
Guðrún upplýsir að hún hafi
ekki haft efni á að bjóða sig fram
og hafi kannski ekki náð kosningu
vegna þess hversu fátæk hún er.
Þetta átti hún auðvitað að segja
strax þegar hún bauð sig fram og
áður en kosningabaráttan hófst því
þá heföi fólk ekki verið að ómaka
sig að kjósa hana eða fylgja henni.
Hún var fyrirfram vonlaus vegna
þess að hún átti ekki fyrir fram-
boðinu. Og hún hefði verið vonlaus
forseti af því að hún hefði ekki haft
efhi á að vera kosin.
í raun og vera má það sama
segja um Ólaf Ragnar. Ef það er
rétt að hann skuldi enn þá, þrátt
fyrir að hafa náð kjöri, er hann
með allt niður um sig í skuldum og
hefur engin efni á að halda til á
Bessastöðum. Við þurfum ríkt fólk
á Bessastaði.
Ástþór er sá eini sem haföi efna-
hag til að ná kjöri. Og kannski
hæstaréttardómarinn. Það á eftir
að koma í ljós. Menn verða að hafa
ráð á forsetaframboði og merrn
verða að hafa ráð á að vera forset-
ar. Annars situr þjóðin uppi með
skítblanka forseta.
Það er svo eftir öðra'að fjármála-
ráðherra hafnar þeirri hugmynd
Guðrúnar Agnarsdóttur að gefa eft-
ir virðisaukaskatt, enda er honum
meira annt um ríkiskassann held-
ur en forsetaframbjóðendur og skil-
ur ekki þýðingu þess að ríkið borgi
framboðin. Fjármálaráðherra vill
ekki hafa fátæka forsetaframbjóð-
endur á framfæri ríkisins, enda
væri þá enginn hörgull á frambjóð-
endum. Ráðherrann er að reyna að
leggja fram hallalaus fjárlög.
Dagfari