Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996
x>v Fréttir
Pétur Runólfsson á bryggjunni í Bolungarvík þar sem bátur hans liggur
bundinn hálft áriö. Pétur segist ekki hafa efni á því aö stunda veiöar á þorski
og fá 80 krónur fyrir kílóiö á sama tíma og hann geti leigt kílóið á 90 krónur
og legiö í landi. DV-mynd BG
Meira fyrir að leigja kvóta en sækja fisk:
Maður hálf-
skammast sín
fyrir þetta
- segir Pétur Runólfsson skipstjóri
DV, Bolungarvík:
„Maöur hálfskammast sín fyrir
þetta. Ég fæ 90 krónur fyrir kílóið af
þorski í leigu en 80 krónur fyrir að
sækja fiskinn. Það sjá allir að það er
ekkert vit í að veiða meðan svo er.
Maður dundar bara við að dytta að
bátnum í landi. Ég hefði ekki trúað
því fyrir nokkrum árum að svona
staða kæmi upp í útgerð,“ segir Pét-
ur Runólfsson, skipstjóri og útgerð-
cirmaður í Bolungarvík.
Pétur á og gerir út bát sinn Árna
Óla ÍS frá Bolungarvík. Útgerðin
stendur í nokkrum blóma enda hef-
ur báturinn legið við bryggju síðan
um miðjan apríl. Pétur segist aðeins
gera bátinn út á rækju í tsafjaröar-
djúpi meðan þær veiðar standa yfir
veturinn.
„Þetta er staða sem maður er
neyddur til að vera í. Það væri bara
rugl að fara að sækja fiskinn á þeim
kjörum sem bjóðast hér. Ég hef ein-
faldlega ekki efni á því,“ segir Pét-
ur.
Þess má geta að ef miðað er við 30
tonn af þorski þá fást fyrir þau 2,7
milljónir króna með því að liggja
við bryggju. Ef samsvarandi magn
af fiski er sótt á haf út fást 2,4 millj-
ónir króna. Þannig þarf viðkomandi
fiskimaður beinlínis að greiða með
sér 300 þúsund krónur auk þess að
leggja út fyrir þeim kostnaði sem
veiðunum fylgir.
Hann segir að nýjustu breytingar
á fiskveiðilöggjöfinni, svo sem af-
nám línutvöfóldunar, leggist illa í
sig.
„Ég er hræddur um að það eigi
eftir að fækka mikið bátum hér með
afnámi línutvöföldunarinnar. Það á
sérstaklega við um smærri báta.
Mér líst hrikalega á þetta og þessi
breyting mun drepa niður byggðar-
lögin,“ segir Pétur. -rt
Ólafsíjörður:
Glit ekki í
gang aftur
DV, Akureyri:
„Fyrirtækið fór ekki á hausinn,
en við stöðvuðum reksturinn og
höfum reyndar ekki unnið mikið í
því að koma fyrirtækinu í gang
aftur,“ segir Hálfdán Kristjáns-
son, bæjarstjóri á Ólafsfirði, um
keramikfyrirtækið Glit sem er í
eigu bæjarins.
Rekstur Glits var stöðvaður í
vor þegar i ljós kom að markaðs-
mál þess höfðu ekki gengið á þann
veg sem menn vonuðust eftir.
Framleiðsla hafði þá staðið yfir í
nokkurn tíma en sala lítil þrátt
fyrir að eitthvað hafi verið reynt
að koma framleiðsluvörum fyrir-
tækisins á markaði erlendis.
„Ég tel líklegast að við munum
nú auglýsa fyrirtækið til sölu,
annaðhvort í heilu lagi eða ein-
staka hluta þess sérstaklega. Við
höfum því miður ekki séð neinar
forsendur til að fara af stað með
þennan rekstur að nýju,“ segir
bæjarstjórinn. -gk
..... ........—
Arfur horfinna
kynslóða
Jurtasmyrsli Erlings grasalæknis
fást nú í apótekum og
heilsubúðum um land allt.
* Græöismyrsl
* Handáburöur
* Gylliniæðaráburöur
Ihv
Framleiðandi: Islensk lyfjagrös ehf.
Dreifing: Lyfjaverslun jslands hf.
—------- =v
ið
SVARTI
SVANURINN
10ÁRA
Kjúklingaborgari
m/sósu og káli
+ franskar
350 kr.
2*
SVARTl SVANURINN
Bækur til sölu:
Hádegisblaöiö 1-19, 1940 (útg. Sig. Benediktsson), skb., Menn og menntir, 1.-4.
bindi e. Pál Eggert Ólason, skb., Safn til sögu íslands og ísl. bókmennta 1-6,
skb., Almindelig Kirke-Historie fra Christendommens först Begyndelse e.
Ludvig Holber, útg. í Kh. 1738-1767, uppr. 1. alskinnband, Tímaritiö Hlín 1.-44.
árg., ib., Saga mannsandans 1-5 e. próf. Ágúst H. Bjarnason, Árbók Feröafé-
lagsins 1928-1937, allt frumpr., vandaö, handbundiö skb., allar kápur og augl.
Ódáðahraun 1-3 e. Ólaf Jónsson, islenzkt gullsmíöi e. Björn Th. Björnsson,
vandað geitarskband, íslenskir oröskviöir, málgreinir, heilræöi, fornmæli, snilli-
yröi, sannmæli eftir Guömund Jónsson á Staðarstað, Kh. 1830, vandaö geitarsk-
band, Samtíðarmenn í spéspegli, frá hendi St. Strobls, sérútg. í 50 eint. á sér-
stakan pappír, vandaö geitarskband, Salomonsens-Leksikon, 1.-26. bindi, skb.,
flott eintak, Faxi e. dr. Brodda og Fákur e. Einar Sæmundsen, í áföngum, hesta-
málasaga Daníels í stjórnarráöinu, skb., Afmælisrit til dr. Einars Arnórssonar,
skb., Bíldudalsminning um Pétur Thorsteinsson og konu hans e. Lúövík Krist-
jánsson, Skrá yfir bækur í Stiptisbókasafninu í Reykjavík 1874 (eina bókaskráin
sem Landsbókasafn hefur út gefiö um bækur landsins), Ein ungbarns blessun e.
Eirík bónda á Brúnum, ib., Eyfellingaslagur e. sama, ób., Saga Reykjavíkur e.
Klemens Jónsson. Árbækur Reykjavíkur e. Jón biskup Helgason, Supplement
til islandske Ordböger III. deild, 1.-2. bindi kplt. e. dr. Jón Þorkelsson, Kennslubók
í yfirsetukvennafræði, 1886, skb., Sýslumannaæfir, 1.-5. bindi, vandað skinn-
band, Deildartunguætt, e. Hjalta Pálsson, 1.-2. bindi, Læknablaðið, 1.-55. ár-
gangur, ib. og ób., Alþingishátíöin 1930, Lýðveldishátíöin 1944, Ævisaga Jós-
efs Stalíns, fyrstu 50 árin (á rússnesku), viðhafnarútgáfa í alskinnbandi, Hlynur,
tímarit samvinnumanna, 1.-19. árg., skb., Verk Leníns, 2.-45. bindi, Mein Kampf
e. Adoif Hitler (á ensku), Jaröa- og búendatal í Skagafjaröarsýslu, 1.-4. bindi,
ób., Vefnaöur á íslenzkum heimilum e. Halldóru Bjarnadóttur, Upptök sálma og
sálmalaga á íslandi e. Pál E. Ólason, flestar bækur Guðmundar Finnbogasonar
próf., ævisaga séra Árna Þórarinssonar e. Þórberg, 1-6, Vorlöng, afmælisrit til
dr. Haraldar Sigurössonar, Þorsteinskver, til Þorsteins Jósepssonar, Austantórur
1-3, skb. e. Jón Pálsson, Hestar og reiðmenn á íslandi e. Schröder, frumútg.,
geitarskband, The Life og Jón Ólafsson (Indíafari) 1-2, Haklyut Society, Fisk-
arnir e. Bjarna Sæmundsson, frumpr. og endurpr., Biblían 1866, skb., Frjálst
verkafólk á íslandi e. próf. Guðbrand Jónsson, Minningarrit um Sigurð málara
Guömundsson, 1872, kápueintak, íslenzki þjóöbúningurinn e. Tryggva Magnús-
son listmálara, Pýramídinn mikli e. Adam Rutheríord, Símaskráin 1945-1946,
Vinstri andstaðan í Alþýðuflokki 1926-1930, lokaritgerö Ingibjargar Sólrúnar
Gísladóttur, borgarstjóra allra Reykvíkinga, Seld norðurljós e. Björn Th. Björns-
son, Villigötur e. Jóhannes Birkiland, Jeppabókin 1946, Islands Kort e. Daniel
Bruun, Fra Islands indre Höjland e. sama, (ísl. Turruter nr. 4), ób., Gallastríöiö e.
Julius Caesar, þýö. Páls Sveinssonar, Lággengiö e. Jón Þorláksson ráöherra,
Annáll 19. aldar e. Pjetur Guömundsson, Islands Kirke 1-2 e. Jón biskup Helga-
son, ób., Ættarskrá Bjarna Þorsteinssonar í Siglufiröi, ób., Vöiuspá, útg. Eiríks
Kjerulfs, Pað vorar um Austur-Alpa, lofgjörö Knúts Arngrímssonar um þriöja ríkið,
íslenzkir hestar erlendis e. Guöm. Hávarðarson, Gömul, handrituð og skreytt
stjörnuspádómabók (aldur óviss), Byssur og skotfæri e. Egil J. Stardal, gamall
Grallari síðan 1756.
Maöurinn er alltaf einn e. Thor Vilhjálmsson, Hamar og sigö e. Sigurð Einars-
son, Ljóð Steins Steinarrs 1938, Spor í sandi e. sama, frumútg., 1940, Kvæöi Jó-
hanns Jónssonar, útg. Halldór Laxness, Kvæðasafn Jóns Helgasonar, próf. í
Kh., Heilög Kirkja e. Stefán frá Hvítadal, Gamlar geöveikisbakteríur e. Sigurö Z.,
Vinnukonurnar, leikrit e. Jean Genet, þýö. Vigdís Finnbogadóttir (leikarahandrit),
Paö blæðir úr morgunsárinu e. Jónas E. Svafár, frumút., ýmsar frumútg. bóka
Davíðs Stefánssonar, Magnúsar Ásgeirssonar, Gríms Thomsens og ótal ann-
arra skálda, Verkin tala e. Sigurð Z. ívarsson, Hvítir hrafnar, Ijóöabók Þórbergs
Þóröarsonar, frumútg. ób. m.k., handrit eftir Þórberg Þórðarson, handrit bréfs frá
Ólafi Jóh. Sigurðssyni, Engilbörnin e. Sigurbjörn Sveinsson, myndir e. Kjarval,
Heyr mitt Ijúfasta lag e. Helga lyfsala Hálfdanarson, Stuölamál, 1.-3. bindi,
ób.m.k. og ótal, ótal margt fleira nýkomiö.
Aö Vesturgötu 17 í Reykjavík verzlum viö meö gamlar og nýjar bækur í öllum grein-
um íslenzkra fræöa og vísinda - auk fagurbókmennta í geysilegu úrvali.
Við höíum pólitískar bókmenntir fyrir vinstri intelligentíuna og hægri villingana, þjóö-
legan fróðleik, ættfræöi og sögu fyrir fræðimenn og grúskara, Ijóö og skáldverk fyrir
fagurkerana, bækur og rit um trúarbrögö og spíritisma og guðspeki fyrir leitandi sál-
ir, svaðilfara- og feröasögur fyrir ævintýramennina, afþreyingarbækur fyrir erfiöis-
fólk, ævisögur erlendra stórmenna og íslenzks alþýðufólks fyrir upprennandi stjórn-
málamenn og konur og erlendar pocket-bækur fyrir lestrarhestana.
Kaupum og séljum allar bækur, gamlar og nýjar, heil söfn og stakar bækur og rit.
Gefum út bóksöluskrár reglulega og sendum þær öllum sem þess óska.
Vinsamlegast hringiö, skrifið - eöa lítið inn.
Bókavarðan
- Bækur á öllum aldri -
Vesturgötu 17
S 552-9720