Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 Utlönd Taleban skæru- liðar hörfa Taleban skæruliðar, sem náðu völdum í Afganistan fyrir um tveimur vikum, máttu þola mikið mannfall í nótt er þeir börðust við herafla Masoods í Salang skarðinu í Panjsher dal. Talið er að yfir eitt hundrað skæruliðar hafi fallið og margir særst. Ætlun skæruliöanna var að ná yfirráðum yfir Golbahar, sem er við mynni dalsins, en Masood og mönnum hans tókst að koma í veg fyrir það. Masood er herstjóri Rabbini sem hrak- inn var frá forsetastóli á dögun- um. Reuter Kína: Andófsmaður í þriggja ára þrælkunarvist ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR ELDHÚS INNRÉTTINGAR BAÐ INNRÉTTINGAR FATASKÁPAR VÖNDUÐ VARA - HAGSTÆTT VERÐ Frí teiknivinna og tilboðsgerð N&ttOline, - fyrsta flokks frá iFQmx HÁTÚNI6A REYKJAVlK SlMl 552 4420 Kinverski andófsmaðurinn og bók- menntagagnrýnandinn Liu Xiaobo var úrskurðaður í þriggja ára vist í þrælkunarbúðum aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann var handtekinn á heimili sínu í Peking í gærmorgun. Lögregla tilkynnti eigin- konu andófsmannsins, Liu Xia, frá úrskurðinum sem ekki þarf að fara með fyrir dómstól. Henni var ekki greint frá því fyrir hvað væri verið að refsa Xiaobo. Einkennisklæddir og óeinkennis- klæddir lögreglumenn birtust skyndilega á heimili Lius Xiaobos snemma í gærmorgun og handtóku hann. Þeir höfðu einnig á brott með sér bækur, skjöl og myndir. Að sögn Liu Xia getur verið að maður hennar verði sendur í þrælkunarbúðir ná- lægt heimabæ sínum, Dalian, í norð- austurhluta Kína. Lögregluyfirvöld hafa ekki viljað tjá sig um málið. Að sögn stjórnarerindreka hefur það verið algengt undanfarna mán- uði að koma andófsmönnum úr um- ferð á þennan hátt í stað þess að láta þá koma fyrir rétt. Lögreglan gaf ekki upp neina ástæðu fyrir hand- töku Lius Xiaobos. Liu varð frægur fyrir þátttöku sína í lýðræðishreyfingu stúdenta 1989 sem kínversk yfirvöld bældu niður með blóðbaði. Undanfama mánuði hefur Liu látið til sín taka og sent yfirvöldum nokkur opinber, djörf bréf. Þann 30. september síðastliðinn gáfu Liu og andófsmaðurinn Wang Xizhe út yfirlýsingu þar sem kín- versk yfirvöld vom hvött til að hafa í heiðri loforð frá 1945 um prent- og tjáningarfrelsi, leyfi til að mynda stjórnmálaflokka og efna til mót- mælaaðgerða. Félagarnir kröfðust þess að höfðað yrði mál gegn leiðtoga kommúnistaflokksins, Jiang Zemin, hann ákærður og látinn víkja vegna brota á stjórnarskránni með því að lýsa því yfir að Frelsisher fólksins heyrði undir flokkinn en ekki ríkið. Liu var handtekinn í fyrra eftir að hafa komið á framfæri til þingsins ýmsum óskum andófsmanna. Hann var í haldi í sjö mánuði og var látinn laus í janúar síðastliðnum. Ekkert var vitað um ferðir Wangs í gær. Hann á yfir höfði sér sjö ára fangelsi fyrir meinta niðurrifsstarf- semi. Reuter IRA lýsir ábyrgð á tilræðinu á hendur sér Irski lýðveldisherinn (IRA) lýsti yfir í gær ábyrgð sinni á sprenging- Til sölu F.h. Byggingardeildar borgarverkfræðings er óskað eftir tilboðum í gæsluvallarhús. Húsið stendur við Suðurhóla og selst til fjarlægingar af lóð. Stærð er um 35 m2, það er úr timbri og hvílir á steyptum undirstöðum og er með steyptu gólfi. Húsið skai fjarlægja innan 5 daga frá samþykki verðtiiboðs. í húsinu eru ýmis hreinlætistæki, lampar og innréttingar í nothæfu ástandi, sem og timburvirki. Að stæður, ástand og nánari útlistun hússins kynna kaupendur sér á staðnum. Kaupandinn aftengir húsið veitukerfi borgarinnar á lögbundinn hátt og skilar grunni hússins sléttum og lausum við drasl. Þá skal kaupandi uppfylla ákvæði gr. 3.4.7. í byggingarreglugerð nr. 177/1992 við niðurrif húsa. Allar upplýsingar um húsið veitir Byggingardeild borgarverkfræðings, Skúlatúni 2, 5. hæð, sími 563-2390, og verður húsið til sýnis fimmtudaginn 10. október nk. kl. 11-12. Tilboðum skal skila til Innkaupastofnunar Reykjavíkurborgar, Fríkirkjuvegi 3, fyrir kl. 16 mánudaginn 14. október 1996. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frfkirkjuvegl 3 - Sfmi 552 58 00 - Fax 562 26 16 STOR- ÚTSALA Vefnaðarvara á frábæru verði. Sparið og saumið sjálf. Lítið inn. Verslunin HORN Kársnesbraut 84, Kópavogi Sími 554-1709 unum í Thiepval-herstöðinni á N-ír- landi í fyrradag. Hann krefst þess að hinn pólitíski armur flokksins, Sinn Fein, fái að taka þátt í friðar- viðræðum. Þetta var fyrsta tilræðið á N-írlandi í tvö ár en IRA rauf vopnahléið í febrúar sl. með árásum á Bretlandi og á breska herstöð í Þýskalandi. Bandaríkjamenn fordæmdu til- ræðið harkalega í gær og sagðist ör- yggisráðgjafi Bills Clintons Banda- ríkjaforseta, Anthony Lake, hrædd- ur um að þetta myndi hrinda af stað hrinu ofbeldisverka á Norður-lrl- andi. Hann beindi orðum sínum til mótmælenda og bað þá að gripa ekki til ofbeldisverka í hefndar- skyni. Haxm sagði að ef til meira of- beldis kæmi nú myndi það gera út um að friðarviðræður bæru árang- ur í nánustu framtíð. Hann sagðist einnig dást að mótmælendum sem haldið hefðu að sér höndum frá þvi í febrúar er írski lýðveldisherinn lét til skarar skríða. „Clinton forseti setur mál N- ír- lands í forgang og gerir allt hvað hann getur til að friðarferlið haldi áfram,“ sagði Lake og bætti því við að hann vildi gjarnan sjá hinn pólit- íska arm IRA taka þátt í friðarvið- ræðunum en það gæti ekki gerst nema að til vopnahlés kæmi. John Major, forsætisráðherra Bretlands, fór ófógrum orðum um leiðtoga Sinn Fein, Gerry Adams, á flokksþingi íhaldsmanna í Bour- nemouth í gær. Hann sagði Adams loks hafa sýnt sitt rétta andlit. „Adams hefur beðið um að fá að tala við mig undanfariö um að taka þátt í að friðarferlinu verði haldið áfram en á meðan var hann að und- irbúa það að myrða saklaust fólk,“ sagði John Major forsætisráðherra í gær. Reuter John Major, forsætisráðherra Bretlands, fordæmdi hinn pólitíska arm lýö- veldishersins og þá sérstaklega leiðtoga hans, Gerry Adams, á flokksþingi íhaldsmanna í Bournemouth í gær. Hins vegar fór vel á með honum og fyrr- um leiðtoga flokksins, Margaret Thatcher. Símamynd Reuter STORA SKRIÐDÝRASYNINGIN Tropical Zoo í heimsókn JL-Húsið v/Hringbraut 2. hæð, 1000 m2 sýningarsalur 5. okt. - 27. okt. Opið virka daga kl. 12-20; laugardaga og sunnudaga frá kl. 12-19 Upplýsingar gefur Gula línan - sími 562-6262 Lifandi hitabeltisdýr Risasnákar Eitursnákar Eðlur Skjaldbökur Sporðdrekar - kóngulær o.s.frv. Hitabeltisfiðrildi í hundraðatali Fjölbreytt safn af óvenjulegum, lifandi dýrum úr öll- um heims- hornum Stuttar fréttir dv Barnaníðingur dæmdur Dómstóll í.Hollandi dæmdi 43 ára gamlan mann í 5 ára fangelsi fyrir kynferðislega misnotkun á stúlkubömum á Filippseyjum. Miiljón heróínfíklar Á milli hálf og ein milljón manna í Evrópusambandslönd- unum neyta heróíns eða 0,25 til 0,50 prósent allra íbúa aðildar- landanna. Tengdaforeldrar myrtir Tengdafor- eldrar líflækn- is Borísar Jeltsins Rúss- landsforseta hafa verið myrtir. Tengdamóðir- in var stungin til bana í gær á heimili sínu. Eiginmaður henn- ar fannst snemma í morgun lát- inn með höfuðáverka. Rannsókn- araöilar telja að um rán hafi ver- ið að ræða og að morðin séu ekki af pólítískum toga. ítalir áhyggjufullir Aðstoðarforsætisráöherra Ítalíu, Walter Veltroni, tjáði for- seta Tyrklands, Suleyman Dem- irel, frá því í gær að ítalir hefðu áhyggjur af mannréttindabrot- um í Tyrklandi. Mæður deyja úr eyðni Yfir 180 þúsund brasilísk börn eiga á hættu að missa mæður sínar úr eyðni. Talið er að mæð- ur rúmlega 10 þúsund bama í Brasilíu hafi þegar dáið úr sjúk- dómnum. Mætir ekki hjá Oprah Vegna laga- ákvæða verð- ur ekkert af því að Bob Dole, forseta- frambjóðandi repúblikana í Bandaríkjun- um, mæti í viðtalsþátt Oprah Winfrey eins og fyrirhug- að var. Samkvæmt þeim eiga keppendur um forsetaembættið að fá jafnmikinn tíma í útvarpi og sjónvarpi. Samkvæmt nýj- ustu skoðanakönnunum hefur Dole saxað verulega á fylgi Clintons. Nóbel í hagfræði Breski prófessorinn James Mirrlees og Kanadamaðurinn WiUiam Vickrey fá nóbelsverö- launin í hagfræði á þessu ári. Verðlaunin fá þeir fyrir að hafa tengt saman þjóðfélagslega ábyrgð og efhahagslega hvata. 2 tonn af kókaíni Yfirvöld á Kúbu lögðu hald á 2 tonn af kókaíni sem var um borð í báti er yfirgefinn hafði verið. Bátsmenn höfðu verið teknir um borð í skip banda- rísku strandgæslunnar. Kastró gagnrýnir Clinton Fidel Kastró Kúbu- forseti segir að Bill Clinton Bandaríkja- forseti eigi að hætta að haga sér eins og frambjóðanda og fara að haga sér eins og stjómmálamað- ur. Kastró lét þessi orð falla á fundi með fréttamönnum í breska sendiráðinu í Havana í gærkvöldi. Kínverjar flýja Skip með 109 kínverska flótta- menn um borð kom til Bermuda í gær. Yfirvöld ætla ekki að hleypa fólkinu í land. Gas frá Frakklandi Franskur sagnfræðingur held- ur því fram aö hluti af gasi því, sem notað var til að útrýma gyð- ingum, hafi komið frá Frakk- landi. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.