Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996 Spurningin Finnst þér ofbeldi hafa auk- ist í þjóöfélaginu? Ásgeir Þór Guðmundsson nemi: Ég myndi segja já. Elínborg Halldórsdóttir sjúkra- liði: Já, mjög mikið. Eyrún Ingadóttir sagnfræðingur: Já, ætli það ekki. Umræðan í fjöl- miðlum er alla vega meiri. Guðný S. Jónsdóttir húsmóðir: Já, ég held það. Guðmann Friðgeirsson bruna- vörður: Já, já. Þórólfur Kristján Beck hæsta- réttarlögmaður: Á fréttum er það að heyra. Lesendur Beinir skattar, jaöarskattar - skattalækkun: Marklausar fréttir úr skattheimi Skattalækkanir fylgja breyttri kjördæmaskipan, ekki loforöum landshluta- þingmanna og flokka, segir m.a. í bréfinu. Ólafur Sigurðsson skrifar: Skattgreiöendur, þ.e. þeir sem á annað borð vinna fyrir skattlögðum tekjum hafa alltof lengi sætt sig við þunga skattbyrði. Og alltof lengi hafa menn trúað yfirlýsingum stjórnmálamanna um skattalækk- anir. Ráðherrar og heilu stjórn- málaflokkamir hafa fengið tiltrú kjósenda vegna ummæla í þessa átt. Meira að segja hefur stærsti flokkur þjóðarinnar, Sjálfstæðis- flokkurinn, samþykkt á landsfund- um sínum (fleiri en einum) að af- nema tekjuskatt í áfongum. Sá skattur hefur þó einfaldlega verið hækkaður í áfóngum, allt til þessa dags. Nú tekur forsætisráðherra einn og sjálfur upp umræðuna, í ný- afstaðinni fjárlagaræðu sinni, og segir tíma til kominn að lækka skattana - á næstu ámm. Ekki var það nú meira. í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðs- ins um síðustu helgi er vitnað til ummæla forsætisráðherra um skattalækkanir og segir þar að eðli- legt sé að fyrstu skrefin í átt til um- talsverðrar skattalækkunar verði tekin i ársbyrjun 1998 og síðan komi til frekari lækkun árið eftir, 1999. Óskynsamlegt er, segir í þessu Reykjavíkurbréfi, fyrir ríkisstjóm- arflokkana að bíða með skattalækk- anir þar til 1999 vegna hugsanlegra ásakana um kosningabragð. Þetta er rétt ályktað. En eins og tvisvar tveir em fjórir verður ekkert af þessum áformum. Við munum ekkert fararsnið sjá á sköttunum, vegna þess eins að það er ekki áhugamál stjómmálamanna að afnema skatta yfirleitt. Ástæðan: Jú, þingmenn em kjördæmakosnir en ekki á landsvísu. Þingmenn vilja rétta eymamerktum skjólstæðing- um sínum brú hér og göng þar. Við eigum enga þingmenn þjóðarinnar, bara landshlutaþingmenn. Skatta- lækkun sér fyrst dagsins ljós eftir breytingu á kjördæmaskipan og Al- þingi starfar óskipt fyrir þjóðina alla. Er atvinnuleysi í Reykjavík? Ómar Sigurðsson skrifar: Á undanförnum árum höfum við séð ógnvænlegar tölur um atvinnu- leysi í Reykjavík og raunar um allt land. Vissulega er skelfilegt ef dug- mikið og heilbrigt fólk hefur ekki atvinnu. Það era mannréttindi hvers manns að hafa fasta vinnu. Það er engum hollt að þurfa að þiggja atvinnuleysisbætur eða aðra framfærsluaðstoð samfélagsins. Ég rek lítið fyrirtæki í Reykjavík. Við og við vantar mig starfsmann og hef þá leitað til vinnumiðlunar Reykjavíkur sem hefur með skrán- ingu atvinnulausra að gera. Þeir skipta tugum sem hafa komið í „við- tal“. Auk þess að vera á atvinnu- leysisbótum eiga þessir menn það sameiginlegt, allir með tölu, að hafa ekki nokkurn áhuga á að fá vinnu heldur einungis undirskrift upp á að hafa mætt í viðtal til þess að geta haldið áfram á atvinnuleysisbótum. Vissulega eigum við íslendingar glæsilega æsku, vel menntað fólk, íþróttamenn sem leggja hart að sér og sýna ótrúlegan sjálfsaga og gott fordæmi. En við eigum lika stóran hóp aula sem öllum em til ama, sér- staklega þó sjálfum sér, og sem af- reka það eitt að góna á vídeómynd- ir alla daga og slíta skósólum niðri í miðbæ um helgar eða jafnvel eitt- hvað þaðan af verra eins og að stunda innbrot, dópsölu eða líkams- árásir á saklausa vegfarendur. Besta leiðin til að vinna gegn þessum vanda er að koma þessu fólki í vinnu. Og eina leiðin til þess er að taka af því atvinnuleysisbæt- umar. Það er min skoðun að allir þeir sem vilja vinna geti fengið vinnu í dag. Atvinnuleysi verka- fólks í Reykjavík er bara á pappír- um. Löggæsla, fjármunir og fimm milljónir Heföu 5 milljónir til séra Flóka dugaö til aö koma upp myndavélakerfi í miðborginni? Viöeigandi forgangsrööun í bananalýöveldi? Ólöf skrifar: Hvað er að gerast á okkar litla ís- landi? - Þrátt fyrir válynd veður, bágborið efnahagsástand og fleira neikvætt við að búa á þessari eyju okkar höfum við íslendingar þó átt eitt mikilvægt atriði umfram aðrar þjóðir og státað okkur af því: að hvergi séum við jafnóhult gagnvart glæpum og óhugnaði þeim tengd- um. - Alls staðar annars staðar í hinni vondu veröld sé svo mikið af glæpamönnum, dópistum og öðru illþýði að við viljum hvergi annars staðar ala upp böm okkar. í dag er komið annað hljóö í strokkinn. Það er nánast algilt að um hveija einustu helgi hafa átt sér stað alvarlegar líkamsárásir, rán, innbrot og annað í þeim dúr. í sept- ember siðastliðinum voru kærðar til lögreglu yfir 40 líkamsárásir. Engin tala er til yfir þær sem ekki voru kærðar. Hvar sem maður fer er þetta orðið eitt helsta umræðu- efnið. Fólki líður illa, er óömggt og einfaldlega hrætt og sérstaklega hér í Reykjavík. Og margt er öfugsnúið í þessum efnum. Á meðan ekkert er gert til aö auka löggæsluna og til að þyngja dóma verulega, þrátt fyrir brýna nauðsyn, heyrir maður þær fréttir að borgarstjórinn I Reykjavík vilji ekki eyða fjármunum í að koma upp fullkomnu myndavélarkerfi í mið- bænum til aðhalds og eftirlits. Háttvirtur forsætisráðherra og nokkrir meðráðherrar hans hafa hins vegar fjármuni á lausu til að eyða. Fimm milljónir til að koma séra Flóka úr landi!! Hver er eigin- lega forgangsröðun hjá forráða- mönnum þessa lands? Hvenær varð ísland slíkt bananalýðveldi að ekk- ert tillit er tekið til óska og þarfa skattgreiðenda en fjármunum þeirra nánast hent út um gluggann? Sameinaður vinstri flokkur Hulda Sigurðard. skrifar: Ég er þeirrar skoðunar að sameining vinstri flokkarma; Al- þýðubandalags, Kvennalista og Alþýðuflokks, sé það akkeri sem við mörg hér viljum fá á næst- unni því að rikisstjórn Davíðs Oddssonar er svo fjandsamleg launafólki og þeim sem minna mega sín að fólk er óttaslegið um framtíðina. Þjóðin er tví- skipt, þeir ríku og fátæku, verkafólk með 60-70 þús. kr. mánaðartekjur og hinir með hundruð þúsunda í laun. Reynt er að eyðileggja verkalýðshreyf- inguna með „hæfilegu atvinnu- leysi“. Eina ráðið gegn þessu öllu er einn sameinaður vinstrj flokkur. Stuttbylgju- sending RÚV Kristinn Sigurðsson skrifar: Ég tel að stuttbylgjusendingar RÚV séu ómetanlegar fyrir íslend- inga erlendis. Ég var nýlega á ferð í Kaupmannahö&i og Stokkhólmi og heimsótti islenska kunningja. Hjá fjölskyldu einni vildi svo skemmtilega tO að verið var að lýsa úrslitaleik í knattspymu og áhuginn gífurlegur, og voru þar samankomnar 3 íjölskyldur til að hlýða á lýsinguna, og krakkamir kölluðu: Við heyrum ísland, við heymrn ísland. Ríkisútvarpið á miklar þakkir skiidar fyrir að sinna þúsundum íslendinga er- lendis með þessum hætti. „Hundavini" svarað Sigriður Lárusdóttir skrifar: Þetta er svar til Kristins Snæ- land, „hundavinar". - Kæri Kristinn. Mætti ekki bjóða þér að heimsækja hunda Reykjavík- urborgar? Þá munt þú hitta fyr- ir sanna hundavini. Af tjölda gæludýraverslana sem sprottið hafa upp hér, fullar af góðum varningi til gæludýrahalds, má sjá að blessuðum hundunum eru búnar góðar aðstæður í borg- inni. Því miður finnast svartir sauðir, sem hvorki ala hundana sína né hirða skítinn undan þeim, sem er þó lögboðin skylda. En dæmi um vanrækslu er víst að finna á mörgum öðmm svið- um, t.d. í umferðinni, jafnvel í barnauppeldi. Ég er sannfærð um að gæludýrahald, hvort sem um er að ræða hund, kött eða aðrar tegundir, myndi stórbæta líðan okkar allra. Því hver getur strokið mjúkan feld ferfætts vin- ar án þess að mýkjast i skapi og líða betur? Djöflaeyjan - betri kynning Elsa hringdi: Ég er ekki fyrir ofbeldi, klám eða þess háttar í kvikmyndum. Ég forðast því yfirleitt íslenskar kvikmyndir. Nýjasta myndin, Djöflaeyjan, er sögð fá góða dóma. Það sem ég hef séð úr myndinni í sjónvarpi lofar ekki góðu fyrir mig. Reglulegur djöf- ulgangur. - En kannski vantar einfaldlega betri sjónvarpskynn- ingu á myndinni til að gera hana aðlaðandi fyrir fólk eins og mig. Að komast af Edda Hákonard. skrifar: Að komast af er fyrsta skrefið, komast af eins og frumbyggjar í náttúrunni, veiða, og rækta græn- meti. Við, í vestrænni menningu, höfum gleymt fyrsta skrefinu. Við emm spillt. Höfum komist eins langt og hægt er í henni. Við ætt- um aö taka á honum stóra okkar og lifa af náttúrunnar gæðum. Það er margt unaðslegt við náttúruna; t.d. rómantík á kvöldin eftir að hafa lokið góðu dagsverki á akrinum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.