Dagblaðið Vísir - DV - 09.10.1996, Síða 15
14
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996
MIÐVIKUDAGUR 9. OKTÓBER 1996
35
Iþróttir
Iþróttir
Middlesboro
vann Tailand
Enska úrvalsdeildarfélagið
sigraði landslið Tailands í æf-
ingaleik í Tailandi um síðustu
helgi.
Lokatölur urðu 1-2 fyrir Midd-
lesboro, en leikið var í Tailandi.
Juniniho og Blackmore skoruðu
mörk Middlesboro sem lék án
margra fastamanna.
-SK
Graf og Seles
ekki með á EM
Nú er ljóst að tvær bestu tenn-
iskonur heims verða ekki á með-
al keppenda á Evrópumeistara-
mótinu í tennis sem fram fer í
Sviss.
Þær Steffi Graf frá Þýskalandi
og Monica Seles frá Bandaríkj-
unum eru báöar meiddar á hné.
Þær deila með sér efsta sætinu á
listanum yfir bestu tenniskonur
heims í dag.
-SK
Dýrt að tryggja
skankana
Unglingurinn efnilegi hjá Real
Madrid, Raul Gonzalez, er séður
þótt ungur sé.
Líklegt er að Gonzalez leiki
fyrsta landsleik sinn fyrir
spænska landsliðið gegn því
tékkneska í kvöld.
Til að fyrirbyggja hugsanlegt
fjárhagslegt tjón, komi til
meiðsla eða fjarveru frá spark-
iðkun af öðrum sökum, hefur sá
stutti tryggt á sér skankana fyr-
ir rúman milljarð króna.
-SK
Bosnich að
ná heilsunni
Allt útlit er fyrir að Mark
Bosnich, landliðsmarkvörður
Ástrala og Aston Villa, leiki með
varaliði félagsins í kvöld og verji
mark Villa gegn Tottenham um
næstu helgi.
Bosnich er aö skríöa upp úr
erfiðum meiðslum og lék síðast
með aðalliði Aston Villa í síðasta
leik liðsins á síðasta keppnis-
tfmabili.
-SK
Króatar sigruðu
Króatar sigruðu Bosníu, 4-1, í
1. riðli heimsmeistaramótsins í
knattspymu í gærkvöldi. Alen
Boksic skoraði tvö af mörkum
Króata og þeir Slaven Bilic og
Goran Vlaovic eitt hvor. Hasan
Salihamidzic gerði mark Bosníu-
manna.
Þá sigruðu Búlgarar lið Lúx-
emborgara, 1-2, á útivelli. Bala-
kov og Kastadinov skomðu fyrir
Búlgara. Roby Langers gerði
mark heimamanna.
-JKS
21-árs úrslit í gærkvöidi
Eistland-Skotland ....0-1
tsrael-Rússland.......1-0
Belgía-San Marínó ....5-1
Bosnía-Króatía .......3-1
Svíþjóö-Austurríki ...4-1
Huddersfield vann
í 1. deild ensku knattspymunnar var
einn leikur þar sem Huddersfteld
vann Birmingham, 3-0.
Yfirburðir Víkinga
Víkingar tóku Keflvíkinga í kennslu-
stund í 2. deild karla í handknattleik
í gærkvöldi. Lokatöiur leiksins urðu
10-26.
-JKS
Bayless
fer á
Skagann
DV, Akranesi:
„Við náðum samkomulagi við
Ronald Bayless og hann kemur
upp á Skaga á sunnudaginn og
verður strax löglegur. Hann leik-
ur sinn fyrsta leik með okkur
gegn KR á sunnudaginn í fyrir-
tækjabikamum. Ég held að
koma Bayless geri gæfumuninn
og hann á eftir að verða okkur
drjúgur í vetur. Hann lék í fyrra
með Val á móti okkur tvívegis,
skoraði 47 stig i fyrri leiknum og
37 stig í þeim síðari. Það er von-
andi að hann haldi uppteknum
hætti áfram okkar megin,“ sagði
Sigurður Sverrisson, formaður
Körfuknattleiksfélags Akraness,
í samtali við DV í gærkvöldi.
Rússinn Bendarenko, sem
Skagamenn ætluðu að nýta í vet-
ur, fer af landi brott um 'nelgina.
-DVÓ
Fundur stjórnar HSÍ og formenn 1. deildar félaganna í handknattleik um sjónvarpsmálin:
Samningurinn stendur
- segir Guðmundur Ingvarsson, formaður HSÍ, og segir að sættir hafi náðst
Mikið var skeggrætt um sjónvarpsmálin á fundi formanna 1. deildar félaganna og stjórnar HSI í gærkvöldi. Á stærri
myndinni eru, frá vinstri: Guömundur B. Olafsson, formaöur handknattleiksdeildar Fram, Þorgeir Haraldsson,
forömaöur handknattleiksdeildar Hauka, og Guðmundur Ingvarsson, formaöur HSÍ. Á innfelldu myndinni bera
lögmaöur KA og Siguröur Sigurösson, stjórnarmaöur KA, saman bækur sínar. DV-mynd Brynjar Gauti
Samningur sá sem HSÍ og samtök 1. deildar
félaganna gerðu við RÚV og Stöð 3 um einka-
rétt stöðvanna á sýningum leikja frá 1. deild-
inni í handknattleik næstu fjögur árin mun
standa, sagði Guðmundur Ingvarsson, formað-
ur HSÍ, í samtali við DV í gærkvöldi eftir fund
stjómar HSÍ með formönnum allra 1. deildar
liðanna í gær.
Fundurinn var boðaður vegna þeirra samn-
inga sem Valur, KA og Afturelding höfðu gert
við Stöð 2 og Sýn um sýningarrétt frá heima-
leikjum félaganna en félögin þrjú töldu HSÍ
ekki geta samið um sjónvarpssendingar frá
heimaleikjum sínum. HSí segir að þessir
samningar standist ekki og því verði félögin
þijú að rifta gerðum samningum sínum við
Stöð 2 og Sýn.
Máttu aldrei gera þennan samning
„Félögin máttu aldrei gera þennan samn-
ing. Þó svo að þessi samningur 1. deildar fé-
laganna hafi ekki verið til staðar mega ein-
stök félög ekki gera svona. Þetta skal gerast í
samráði við Handknattleikssamband íslands,"
sagði einn viðmælenda hjá HSÍ við DV í gær-
kvöldi.
Samningsrétturinn skýlaus hjá HSÍ
„Ég get ekki séð að stóm HSí hafi ástæðu til
aö ætla annað en allir standi bak við þennan
samning við RÚV og Stöð 3. Félögin þrjú
hljóta nú að rifta samningum sínum við Stöð
2 og Sýn en við erum ekki aðilar að því og
skiptum okkur ekki af því hvemig þau fram-
kvæma það. Aðalmálið er að við stöndum við
gerða samninga við RÚV og Stöð 3. Samnings-
rétturinn er skýlaus hjá HSÍ og samtökum 1.
deildarfélaganna en ekki hjá félögunum
hveiju fyrir sig,“ sagði Guðmundur Ingvars-
son við DV.
„Óneitanlega fannst okkur þessi félög vera
að fara á bak við okkur og lýsa um leið van-
trausti á stjómina en við veröum aö sætta
okkur við það og gleyma því fyrst allir náðu
sáttum. Nú verðum við að einbeita okkur að
handboltanum og gleyma þessu sem fyrst og
hafa gaman af hlutunum," sagði Guðmundur
ennfremur.
Vísa á formanninn
DV náði tal af Jóhanni Guðjónssyni, for-
manni handknattleiksdeildar Aftureldingar, í
gærkvöldi.
„Ég hef ekkert um málið að segja og visa
málinu aifarið til formanns HSÍ,“ sagði Jó-
hann.
Ýmislegt á eftir aö gerast
„Viö höfum ekkert gert i þessum samningi
við Stöð 2 ennþá og við KA-menn eigum eftir
að ræða þessi mál innbyrðis. Það á ýmislegt
eftir að gerast án þess að ég vilji gefi nokkrar
yfirlýsingar. Ég rengi ekki orð formanns HSÍ
og hann segir örugglega ekki annað en hann
telur sig geta sagt. Annað vil ég ekki segja um
þetta mál að svo stöddu," sagði Páll Alfreðs-
son, formaður handknattleiksdeildar KA, við
DV í gærkvöldi.
Þaö er gott aö vera vitur eftir á
„Ég var ekki á fundinum til enda og því veit
ég ekki niðurstöðu hans. Það er ljóst að þessi
þrjú félög hafa gert tvo samninga og það þarf
einhvem veginn að losa sig út úr þeirri
klemmu. Ég á eftir að ræða við mína menn
hvað við gerum í stöðunni og það er ljóst að
þetta er hitamál.
Ég held að ef menn hefðu skoðað málið al-
veg niður í kjölinn hefðu þefr nú kannski ekki
gert þetta en það er alltaf gott að vera vitur
eftir á,“ sagði Brynjar Harðarson, formaður
handknattleiksdeildar Vals, við DV.
-GH
Gassi verður
að hætta
að drekka
Paul Gasgcoigne hjá Glasgow
Rangers og enska landsliðinu í
knattspymu fékk í gær alvar-
lega aðvörun hjá Glen Hoddle,
landsliðsþjálfara enska lands-
liðsins í knattspymu.
Ferill hans í hættu
„Ef hann hættir ekki að
drekka þá gæti ferill hans í
landsliðinu verið á enda. Ef
Gascoigne á að verða minnst
sem ein mesta stjama enskrar
knattspymu þá verður hann að
hætta öllum fiflalátum og hætta
öllum drykkjuskap,“ sagði
Hoddle í tveimur breskum dag-
blöðum í gær.
Tveir Evrópuleikir hjá KA um helgina:
„Rennum blint í sjóinn"
DV, Akureyri:
í rauninni vitum við sáralítiö um
þetta svissneska lið og rennum alveg
blint í sjóinn með þessa leiki sem er
auðvitað hábölvað. Ég á þó von á ein-
hverjum upplýsingum um liðið núna
í vikunni en sennilega kemst ég ekki
yfir myndband af leik liðsins," segir
Alfreð Gíslason, þjálfari KA, um Evr-
ópuleikina gegn svissneska liðinu
Amicitia sem fram fara í KA-húsinu
um helgina.
Svisslendingamir ákváðu að leika
báða leikina hér á landi og munu
fjárhagsleg sjónarmið ekki hafa ráðið
ferðinni þar heldur hitt að þeir telja
sig eiga auðvelt með að slá KA út úr
keppninni. Hvort þeir hafa efni á að
vera svo góðir með sig á hins vegar
eftir að koma í ljós.
„Ég veit að liðið hefur a.m.k. þijá
þekkta leikmenn innan sinna raða.
Það era René Bart, sem er þrítugur
miðju- og línuspilari með yfir 200
landsleiki, og Kostadinorich sem spil-
ar fyrir utan og er góður gegn-
umbrotsmaður. Þá er í liðinu einn er-
lendur leikmaður en það er Telley
Baniro frá Slóvaníu.
Hefur umtalsverða reynslu í
Evrópukeppninni
Ég veit að þetta lið varð svissnesk-
ur meistari á árunum 1987-1989 og
hafhaði í 2. sæti á síðasta keppnis-
tímabili í Sviss. Liðið hefúr verið í
Evrópukeppni meira og minna í 10-15
ár svo það er áreiðanlega einhver
umtalsverð reynsla þama fyrir
hendi,“ segir Alfreð.
Hann segist ekki eiga von á öðru
en geta stillt upp sínu sterkasta liði ef
Heiðmar Felixson er undanskilinn en
hann er meiddur. Kúbumaðurinn,
sem verið hefur í herbúðum KA í vet-
ur, mun því leika í markinu ásamt
Guðmundi A. Jónssyni og vonandi
nær annar þeirra eða jafhvel báðir að
eiga góðan dag. Fyrri leikur liðanna
verður í KA-húsinu á föstudagskvöld
en sá síðari á sama staö á sunnudag.
-gk
Fer Baldur til Lyngby?
- félög í Noregi og Svíþjóð hafa einnig áhuga
Baldur Bragason, knattspymumað-
ur úr Leiftri á Ólafsfirði, fór í gær-
morgun til danska úrvalsdeildarliðs-
ins Lyngby. Forráðamenn félagsins
höfðu samband við hann um helgina
og buðu honum að koma út.
„Þá vantar leikmann sem spilar á
vinstri vængnum sem kantmaður eða
sem bakvörður. Þeir þurfa að fá hann
sem fyrst þar sem leikmaðurinn, sem
lék þessa stöðu, meiddist illa. Ég
reikna með að æfa hjá félaginu í ein-
hveija daga og eftir það ræðst hvað
verður,“ sagður Baldur í samtali við
DV.
Baldur æfði með félaginu í gær og
fór á æfinguna nánast beint úr flugvél-
inni.
„Ég lenti á þrekæfingu og gat því
svo sem ekki mikið sýnt mig. Mér líst
mjög vel á þetta lið og mannskapinn
sömuleiðis. Ég hef mikinn áhuga á að
komast út að spila og draumurinn
væri að gera tveggja ára samning við
Lyngby. Ég hef ekkert rætt málin við
forráðamenn Lyngby en reikna með
að þeir ræði við mig á morgun (í dag)
eða á fimmtudaginn," sagði Baldur.
Danska úrvalsdeildin er spiluð af
fullum krafti fram í nóvember en síð-
an er gert vetrarhlé fram í mars. „Það
getur svo sem vel verið aö þeir viiji
bjóða mér samning út þetta ár en ég er
ekki eins spenntur fyrir því. Ef þetta
klikkar þá mun ég skoða fleiri mál en
félög í Noregi og Svíþjóð hafa boðið
mér að kikja á aðstæður," sagði Bald-
ur.
Það yrði slæmt fyrir Ólafsfirðinga
að missa Baldur enda er hann snjall
leikmaður sem býr yfir miklum hraða
og er mjög tekniskur.
-GH
Baldur Bragason fór til Lyng-
by í gær.
Myers í Grindavík
DV, Suðumesjum:
Nýr erlendur leikmaður kemur
til úrvalsdeilarliðs Grindvikinga í
körfuknattleik dag í stað Banda-
ríkjamannsins Johns Jacksons
sem látinn var fara í gær. Þetta er
Herman Myers sem lék með
Grindvíkingum fyrri hluta keppn-
istímabilsins í fyrra áður en hann
meiddist.
„Við reyndum að fá Myers fyr-
ir tímabilið en það gekk ekki.
Hann hefur verið að leika í Pól-
landi en fær ekki borgað og því er
hann tilbúinn að koma afhir til
okkar. Hann kemur í góðu formi
og verður með okkur gegn Þór á
fimmtudagskvöldið,” sagði Mar-
geir Guðmundsson, formaður
körfuknattleiksdeildar Grindavík-
ur, viö DV.
-ÆMK
Kvennalandsliðið:
Theodór ráðinn þjálfari
Theodór Guðfinnsson, þjálfari Víkings, var í gær ráðinn þjálfari kvennalands-
liðsins í handknattleik í stað Kristjáns Halldórssonar sem fyrir skömmu hætti og
tók við þjálfun norska kvennaliðsins Larvik.
Theodór hefur undanfarin ár þjálfað kvennaliðs Víkings með góðum árangri og
þá hefur hann þjálfað yngri flokka Vals.
„Ég lít á þessa ráðningu sem mikinn heiður og hlakka til að takast á við verk-
efnið. Slæmur fjárhagur HSÍ hefur hindrað framgang kvennalandsliðsins en von-
andi kemur til með að verða breyting þar á. Ég lít svo á að við verðum að taka þátt
í þessum stóram mótum eins og undankeppni EM og HM og ég vona að það takist
að vera með í undankeppni heimsmeistaramótsins sem hefst í byijun næsta árs,”
sagði Theodór meðal annai-s á blaðamannafúndi sem HSÍ efndi til í gær vegna ráðn-
ingarinnar. -GH
Handbolti:
Haukar
verja
titilinn
Haukar verja íslandsmeistara-
titil sinn í 1. deild kvenna í
handknattleik ef marka má spá
forráðamanna liðanna í deild-
inni sem gerð var á blaöamanna-
fúndi sem HSÍ efndi til í gær.
Haukar urðu þar í efsta sæti
en Stjaman var stigi á eftir.
Eins og mönnum er í fersku
minni áttust þessi sömu lið við
í úrslitum í fyrra og þar höfðu
Haukastúlkur betur í hörkuleikj-
um þar sem fimm leiki þurfti til
að fá sigurvegara.
Spáin sem gerð var á fundin-
um i gær lítur annars þannig út:
1. Haukar ............124
2. Stjaman............123
3. FH . 95
4. Fram................86
5. KR..................75
6. Víkingur............67
7. Valur...............65
8. ÍBV.................36
9. Fylkir .............25
10. ÍBA ...............18
Mótið hefst í kvöld með þrem-
ur leikjum sem allir hefjast
klukkan 20. ÍAusturbergi leika
KR-FH, Stjarnan tekur á móti
ÍBV og Valur fær Víking í heim-
sókn.
Helstu félagaskipti
Helstu félagaskipti, sem átt
hafa sér stað í 1. deild kvenna,
em þessi:
Anna Steinsen, KR-Kolding
Ásbjörg Geirsdóttir, Haukar-Stjaman
Björg Gilsdóttir, FH-Stjaman
Dögg Sigurgeirsd, ÍBV-Valur
Gunilla Almqvist, ÍBV-Valur
Halla M. Helgadóttir, Víking-Sola
Hanna M. Einarsd, Víking-Eslövs
Heiða Erlingsdóttir, Vomp-Víking
Helga Kristjánsdóttir, ÍBV-Fram
Hólmfr. Hólmþórs, Haukar-Svendb.
Katrín Garðardóttir, ÍBV-ÍBA
Kristin Hjaltested, Fram-Hildesheim
Sara Frostadóttir, FH-Haukar
Svava Sigurðardóttir, Viking-Eslövs
Vaiva Drilingaite, Litháen-Valur
Vigdís Finnsóttir, Brönderslev-KR
Dregið var til 16-liöa úrslita í
bikarkeppni kvenna. Aðeins
einn leikur er í 16-liða úrslitun-
um en það er viðureign Fylkis og
Hauka sem fram á að fara 13.
nóvember. Hin félögin fara beint
í 8-liða úrslitin.
-GH
Ísland-Rúmenía á Laugardalsvelli klukkan 19:
„Til að vinna verða allir
hlutir að ganga upp“
- segir Guðni Bergsson, fyrirliði íslenska liðsins
íslendingar og Rúmenar mætast í
riðlakeppni heimsmeistaramótsins í
knattspymu á Laugardalsvelli
klukkan 19 í kvöld. Það verður örgg-
lega við ramman reip að draga fyrir
íslenska liðið. Margir eru hins veg-
ar á þeirri skoðun að íslenska lands-
liðið í knattspymu leiki aldrei betur
en undir pressu og það gegn sterk-
ari þjóðum. Hvort það verður ofan í
kvöld skal ósagt látið. Sjón verður
sögu ríkari.
Tveir leikir eru að baki hjá ís-
lenska liðinu og uppskeran úr þeim
'er eitt stig. Menn hefðu í öllu falli
viljað sjá uppskeruna meiri. Það er
því nauðsynlegt að fá góð úrslit út
úr leiknum við Rúmena í kvöld. Það
verður síður en svo auðvelt en með
yfirveguðum leik, einbeitingu og
um fram allt góðri baráttu eru auð-
vitað allir möguleikar í stöðunni.
íslenska liðið hefur æft tvisvar á
dag síðan það kom heim úr leiknum
í Litháen. Góður hugur er í hópnum
og allir staðráðnir í því að leggja sig
alla fram til að innbyrða hagstæð
úrslit fyrir íslenska knattspymu.
DV hitti Guðna Bergsson að máli
eftir æfingu liðsins og kom fram í
máli hans að liðið yrði að gera mun
betur en það gerði i Vilníus um síð-
ustu helgi.
„Við gerum okkur grein fyrir
mikilvægi leiksins. Frammistaða
okkar í Litháen var ekki nægilega
góð og nú kemur tækifæri í kvöld til
að bæta hana upp. Rúmenar em
með betra lið en við eigum heima-
völlinn og hann verður að nýta til
fulls. Við höfum sannað það að á
góðum degi getum við unnið hvaða
lið sem er. Við stefnum að sigri á
heimavelli en það er engin launung
að allir hluti verða að ganga upp
ætlum við okkur sigur gegn þessu
sterka rúmenska liði í kvöld,“ sagði
Guðni.
-Finnst ykkur kannski vera
komin pressa á ykkur eftir tvo
leiki í riðlinum, jafntefli við
Makedóníu og tap gegn Litháum?
„Já, svona þannig séð. Það er
náttúrlega pressa sem við setjum á
sjálfa okkur. Við viljum alltaf
standa okkur vel en það tekst
stundum ekki. Við ætlum að reyna
að bæta fyrir það í næsta leik og
fáum tækifæri til þess í kvöld. Við
vonumst eftir því í öllu falli eins og
allir íslendingar að krækja okkur í
góð úrslit. Það tókst ekki gegn Lit-
háum en stefnan er að gera betur
gegn geysiöflugu liði Rúmena,"
sagði Guðni Bergsson, fyrirliði ís-
lendinga, en í kvöld leikur hann
sinn 71. landsleik eins og Ólafur
Þórðarson.
-JKS
Arnór ekki
tilbúinn
Logi Ólafsson landsliðsþjálfari
sagðist í samtali við DV í gær-
kvöldi ekki hafa trú á því að
Amór Guðjohnsen yrði með í
leiknum gegn Rúmenía.
„Arnór er tæpur og það má
mikið gerast ef hann verði búinn
að ná sér,“ sagði Logi. Þjálfarinn
sagðist ekki tilkynna byrjunar-
lið íslands fyrr en um hádegið í
dag.
-JKS
Valur Fannar
inn í hópinn
Ein breyting hefur verið gerð
á íslenska landsliðinu undir 21
árs sem mætir Rúmenum á
Varmárvelli í MosfeOsbæ klukk-
an 14 í dag. Valur Fannar Gísla-
son hjá Arsenal á Englandi
verður í byrjunarliðinu.
Atli Eðvaldsson tilkynnti byrj-
unarliðið í gærkvöldi og er það
þannig skipað: Ámi Gautur Ara-
son, ÍA, Sigurvin Ólafson, Stutt-
gart, Brynjar Gunnarsson, KR,
Ólafur Stígsson, Fylki, Guðni
Rúnar Helgason, Völsungi,
Bjamólfúr Lárasson, ÍBV, Bjami
Guðjónsson, ÍA, Þorbjöm Atli
Sveinsson, Fram, Bjarki Stefáns-
son, Val, Araar Viðarsson, FH,
Valur Fannar Gíslason, Arsenal.
-JKS
Stórsigur íra
írar unnu stórsigur, 4-0, á
Makedóníu í Dublin í gærkvöldi
en þessar þjóðir leika með ís-
lendingum í riðli auk Rúmena,
Litháa og Liechtenstein.
Dómari frá Sviss
Dómari að leik íslands og
Rúmena í kvöld kemur frá Sviss
og heitir Claude Détruche. Hann
er 42 ára að aldri. Landar hans
veröa línuverðir. Eftirlitsmaður
á leiknum verður Kenneth
Ridden frá Englandi en hann á
ennfremur sæti í dómaranefnd
UEFA.
-JKS
Miðasala í dag
Miðasala á leikinn í kvöld
stendur yfir á Laugardalsvelli
frá klukkan 11 í dag.